Fréttablaðið - 28.05.2016, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 28.05.2016, Blaðsíða 24
Í dag 11.50 F1: Tímataka, Mónakó Sport 13.00 BMW PGA Golfstöðin 13.10 Fylkir - ÍA Sport 4 13.50 F4: Kielce - PSG Sport 2 13.50 Leiknir R. - Fjarðarb. Sport 3 15.50 F4: Kiel - Veszprém Sport 15.50 Hull - Sheff. Wed. Sport 2 17.00 Dean & Deluca Golfstöðin 18.15 Real Madrid - Atletico Sport 20.00 Demantamótaröðin Sport 2 13.00 Þór/KA - KR Þórsvöllur 14.00 Fylkir - ÍA Fylkisvöllur 14.00 Valur - FH Valsvöllur 14.00 ÍBV - Stjarnan Eyjar 14.00 Selfoss - Breiðablik Selfoss 14.00 Keflavík - Grindavík Keflavík 14.00 Leiknir R. - Fjarðarb. Leiknisv. dagar í13 EM 2016 http://www.seeklogo.net Á morgun 11.30 F1: Mónakókappakstur Sport 13.00 BMW PGA Golfstöðin 13.05 F4: Þriðja sætið Sport 2 15.50 F4: Úrslitaleikur Sport 2 16.50 Þróttur R. - ÍBV Sport 17.00 Dean & Deluca Golfstöðin 19.00 LPGA Volvik, golf Sport 4 19.50 KR - Valur Sport 14.00 Þór - Haukar Þórsvöllur 14.00 Huginn - Fram Fellavöllur 16.00 HK - Selfoss Kórinn 16.00 Leiknir F. - KA Fjarðabygg.h. 17.00 Þróttur R. - ÍBV Þróttarav. 19.15 Víkingur R. - ÍA Víkin 20.00 KR - Valur KR-völlur Tvær Norðurlandaþjóðir eru nú á EM í Frakklandi 2016 (Ísland og Svíþjóð) alveg eins og á þremur öðrum Evrópumótum (1992, 2004, 2012) en mest voru þær þrjár á EM 2000. Norðurlanda- þjóð hefur ekki komist upp úr riðlakeppninni á undanförnum tveimur Evrópumótum og ekki í gegnum átta liða úrslitin í 24 ár. Besta Evrópumót Norðurlanda- þjóða var eina mótið á Norður- löndum en Danir unnu EM í Svíþjóð 1992 og gest- gjafarnir, Svíar, komust þá í undanúrslit. Ná FH-stelpur að vera með HreiNt mark í em-FríiNu? Fjórða umferð pepsi-deildar kvenna fer fram í dag og verður leikur Fylkis og ía sýndur beint á stöð 2 sport klukkan 14.00 en bæði liðin eru að bíða eftir sínum fyrsta sigri. Nýliðar FH eru við hlið stjörnunnar á toppi deildarinnar og hafa enn ekki fengið á sig mark. Þær heimsækja val á Hlíðarenda klukkan 14.00 í dag og takist Jeannette J. Williams að halda marki Hafnarfjarðarliðs- ins hreinu fjórða leik- inn í röð þá verða FH-stelpurnar með hreint mark allt em-fríið. eftir þessa fimm leiki í dag verður nefni- lega ekki spilað aftur í deildinni fyrr en 24. júní næstkomandi en það er bæði vegna leikja kvennalandsliðsins og em karla í Frakklandi. Fótbolti „Þetta er ekki hefnd, þetta er nýtt tækifæri,“ sagði Diego simeone, knattspyrnustjóri atlético madrid, eftir að það lá fyrir að hans menn myndu mæta real madrid í úrslitaleik meistaradeildar evrópu í annað sinn á síðustu þremur árum. Þann 24. maí 2014 var atlético madrid aðeins 90 sekúndum frá því að vinna meistaradeildina í fyrsta skipti en skalli sergio ramos kramdi hjörtu atlético-manna. eftir að hafa gefið allt í leikinn áttu þeir ekki meira eftir í framlengingunni þar sem real madrid skoraði þrjú mörk og tryggði sér sinn tíunda meistaradeildartitil. Þeir kalla hann „la Decima“. Nú tveimur árum og þremur dögum síðar fá strákarnir hans simeone tækifæri til að leiðrétta það sem fór úrskeiðis á ljósvangi í lissabon. Þetta eru reyndar ekki sömu strákar og síðast, nema að litlum hluta. lið atlético madrid hefur tekið miklum breytingum á þessum tveimur árum og líklega verða bara fimm leikmenn sem byrjuðu leikinn 2014 í byrjunar- liðinu í kvöld. en þrátt fyrir mannabreytingar eru það sömu þættirnir sem ein- kenna atlético-liðið; barátta, dugn- aður, ákefð, gott skipulag, beittar skyndisóknir og mikil samstaða. Og þessir þættir munu einkenna liðið svo lengi sem Diego simeone er við stjórnvölinn hjá því. argentínu- maðurinn er slagæðin í félaginu. kollegi hans hjá real madrid, Zinedine Zidane, á misjafnar minn- ingar frá úrslitaleikjum meistara- deildarinnar. Flestir muna eftir undramarki hans sem tryggði real madrid sigur á Bayer leverkusen í úrslitaleiknum 2002 en áður hafði hann tapað tvisvar í úrslitaleik sem leikmaður Juventus. Zidane tók við madrídarliðinu af rafa Benítez í janúar og hefur gert fína hluti á santíago Bernabeu. real madrid er með 80,8% sigurhlut- fall í 26 leikjum undir hans stjórn. aðeins tveir leikir hafa tapast, annar þeirra gegn atlético madrid sem hefur aðeins tapað einum af síðustu 10 leikjum gegn nágrönnum sínum. „atlético eru sérstakir mótherjar. Þeir hafa unnið hin tvö bestu liðin í evrópu svo þetta verður mjög erf- iður leikur,“ sagði Zidane í aðdrag- anda úrslitaleiksins. Frakkinn benti einnig réttilega á að atlético madrid væri meira en bara varnar- lið. atlético býr yfir gæðum, ekki jafn miklum og real madrid, en nógu miklum til að gera út um jafna leiki gegn sterkum liðum. stórkost- legt einleiksmark saúls Niguez í fyrri leiknum gegn Bayern er besta dæmið um það. aðalhausverkur Zidane verður að finna glufur á varnarleik atlético sem hefur þegar haldið Barcelona og Bayern í skefjum. varnarleikur real madrid hefur sömuleiðis verið góður í meistaradeildinni þótt mót- herjarnir hafa ekki verið jafn sterkir og þeir sem atlético hefur þurft að mæta. Zidane hefur tekist að finna jafnvægi í madrídarliðinu og luka modric hefur blómstrað undir hans stjórn. Cristiano ronaldo og Gareth Bale hafa sömuleiðis verið iðnir við kolann en sá fyrrnefndi er kominn með 16 mörk í meistaradeildinni í ár og vantar aðeins eitt mark til að jafna markamet sitt frá því fyrir tveimur árum. ronaldo vill eflaust bæta fleiri titlum á ferilskrána en þrátt fyrir að hafa skorað 364 mörk í 347 leikjum fyrir real hefur liðið „aðeins“ unnið spænska titilinn og meistaradeild- ina einu sinni með honum. í meistaradeildinni er sagan alltaf á bandi real madrid en félagið skil- greinir sig að stórum hluta út frá titlunum tíu. en sagan spilar ekki leikina og síðan simeone tók við atlético madrid hefur liðið verið í fullri vinnu við að fella risa. tveir eru þegar fallnir og það kemur svo í ljós í kvöld hvort sá þriðji fellur. ingvithor@365.is Fellir Atlético enn einn risann? Madrídarliðin Atlético og Real mætast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á San Siro í Mílanó í kvöld. Þetta er í annað sinn á þremur árum sem liðin mætast í úrslitum Meistaradeildarinnar en Real hafði betur síðast. © GRAPHIC NEWS 28. maí, San Siro leikvangurinn, Mílanó, Ítalíu REAL MADRID ATLETICO MADRID Þjálfari Zinedine Zidane Fyrirliði Sergio Ramos Árangur í Meistaradeild Árangur í Evrópukeppnum Tíu meistaratitlar Árangur í fyrra Tap í undanúrslitum (fyrir Juventus) Þjálfari Diego Simeone Fyrirliði Gabi Árangur í Meistaradeild Árangur í Evrópukeppnum Í úrslitaleik 1974 og 2014 Árangur í fyrra Tap í fjórðungsúrslitum (fyrir Real Madrid) Þetta er síðasta tækifæri spænsku risanna til að vinna titil í ár, eftir að félagið varð undir í baráttunni um spænska meistaratitilinn. Er að berjast fyrir sínum fyrsta Evrópumeistaratitli en hefur verið slegið úr leik af Real Madrid síðustu tvö ár, þar af í úrslitaleiknum árið 2014. S133 J43 T48 S27 J18 T12 Innbyrðisleikir liðanna (frá upphafi) Real 136 Atletico 67 Jafntefli 60 Deildarleikir liðanna 2015/16 Okt: Feb: Atletico Real Real Atletico 1-1 0-1 Leiðin í úrslitaleikinnVann A-riðil með sextán stigum. Vann C-riðil með þrettán stigum. Roma 2-0 (ú), 2-0 (h) 16-liða úrslit PSV 0-0 (ú), 0-0 (h) Wolfsburg 0-2 (ú), 3-0 (h) 8-liða úrslit Barcelona 1-2 (ú), 2-0 (h) Man. City 0-0 (ú), 1-0 (h) Undanúrslit Bayern 1-0 (ú), 1-2 (a) Vann 8-7 í vítakeppni Tölfræði liðanna (12 leikir) 27 5 86 93 6801 81 54% 16 7 72 62 4583 76 46% Mörk skoruð Mörk fengin á sig Skot á mark Skot framhjá Heppnaðar sendingar Hornspyrnur Með boltann að meðaltali Cristiano Ronaldo 16 mörk 4 stoðsendingar 37 skot á mark Antoine Griezmann 7 mörk 1 stoðsending 22 skot á mark Heimild: UEFA, Gracenote. Myndir: Getty Images *Í Evrópukeppnum. Oblak Juanfran Filipe Luis Godin Gimenez Koke Saul Niguez Fernandez GabiGriezmann Torres Navas Marcelo Carvajal Kroos Modric Bale Ronaldo Casemiro Benzema Ramos Pepe Líkleg byrjunarlið Dómari: Mark Clattenburg, Englandi Real hefur aldrei tapað fyrir spænsku liði í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Árangur gegn spænskum liðum* Atletico hefur ekki tapað fyrir spænskum andstæðingi síðan í úrslitaleiknum gegn Real árið 2014 - unnið fimm og gert þrjú jafntefli. Árangur gegn spænskum liðum* S10 J5 T3 S8 J4 T7 Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu 2016 Meistaradeildarbikarinn er að sjálfsögðu löngu kominn til Mílanó og hér sjást lögreglumenn bera bikarinn á milli sín í miðbæ Mílanóborgar í vikunni. FRéTTABLAðið/EPA Þeir hafa unnið hin tvö bestu liðin í Evrópu svo þetta verður mjög erfiður leikur. Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid 2 8 . M a í 2 0 1 6 l a U G a R D a G U R24 s p o R t ∙ F R É t t a b l a ð i ð sport
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.