Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 28

Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 28
Það eru auðvitað allir búnir að fá leið á því að heyra mína sjúkra-sögu. Það er skemmst frá því að segja að mér líður vel og það eru allir góðir við mig. Ég vil koma á fram- færi þökkum til allra, hvar í sveit sem þeir eru settir,“ segir Edda Heið- rún Backman brosandi er hún tekur á móti blaðamanni á heimili sínu á Vatnsstíg. Það er fallegt um að litast á heim- ili Eddu. Málverk prýða veggina og mörg þeirra eftir húsfreyjuna sjálfa sem málar svo snilldarlega með munni sínum, tækni sem hún lærði eftir að hún greindist með hrörn- unarsjúkdóminn MND. Aðstoðar- kona Eddu býður upp á kaffi og við hefjum spjallið. Eddu Heiðrúnu þarf ekki að kynna, hún á að baki glæstan feril sem leik- og söngkona, leikstjóri og einnig sem myndlistarkona síðustu ár. Hún hefur líka verið öflug í bar- áttunni fyrir auknum rannsóknum á taugakerfinu undanfarin ár enda þekkir hún baráttuna vel, hefur kynnst henni bæði sem sjúklingur og aðstandandi. Sólarmegin í lífinu Fyrir tæpum fjórtán árum fékk hún þau tíðindi að hún væri með ólæknandi hrörnunarsjúkdóm sem myndi hægt og rólega valda því að hún missti allan mátt í líkamanum. Sjúkdóminn þekkti hún vel þar sem bróðir hennar lést úr honum. Hún segir það auðvitað hafa verið töluvert áfall að fá þessa greiningu. Meðallíftími þeirra sem greinast eru fimm ár. „Manni bregður rosa- lega fyrst en svo einhvern veginn venst þetta. Maður fer að hugsa: Hvað get ég gert, hvernig á að ég að vera, hvernig sjúklingur verð ég? Ég var alveg viss um að ég yrði vond- ur sjúklingur,“ segir hún kímin en aðstoðarkona hennar segir það vera langt í frá. „Ég hef aldrei hitt þessa konu í vondu skapi,“ segir aðstoðar- konan og Edda brosir til hennar. Enda segir Edda jákvæðnina koma manni langt í lífinu, hún sé sterkt afl. „Ég hef alltaf viljað ganga sólarmegin í lífinu. Það er best fyrir mann sjálfan og best fyrir fólkið manns.“ Hún segir það líklega vera í eðli sínu að vera jákvæð og gefast ekki upp. „Ég er fædd til lífsins og ljóss- ins, ég er bara þannig gerð. Ég veit ekki hvað hitt er. Ég á rosalega erfitt með að skilja það.“ Þrátt fyrir að vera í hjólastól og háð öðrum um aðstoð að öllu leyti dettur Eddu ekki í hug að sóa lífinu í það að láta sér leiðast. „Það geta allir látið sér leiðast, það væri mjög auð- velt fyrir mig en samt hef ég nóg að gera. Mér leiðist ekki eitt andartak. Þá fer ég að reyna að hugsa, skoða náttúruna, blómin, fugla eða íhuga. Það er alltaf eitthvað að gera,“ segir hún. Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is Þegar Edda fær hugmyndir þá kemur hún þeim í framkvæmd strax og gefst ekki heldur svo auðveldlega upp. Aðstoðarkona hennar bendir á að í fyrra hafi Edda verið lögð inn á spítala eftir að botnlanginn í henni sprakk. „Ég fór upp á spítala og læknirinn sagði ég færi ekkert aftur heim. Þá sagði vinkona mín: Þá þekkirðu ekki hana Eddu Heiðrúnu! Ég fór heim eftir viku,“ segir hún og brosir út í annað. Vinir Eddu og systir hennar hafa staðið þétt við bakið á henni allt frá því hún fékk greininguna. „Fyrir mér eru vinir eitthvað það dýrmætasta sem maður á. Vináttubönd getur maður hnýtt alla ævi. Hjónaband getur fúnað ef það er ekki vináttu- band sem fléttast um það. Það að eignast vin, það er eitthvað sem maður velur sjálfur og ég hvet alla til að raða vinum, sem búa yfir einhverjum góðum eiginleikum, í kringum sig eins og perlufesti.“ Missti áhuga á að leika Fljótlega eftir að Edda greindist hætti hún að leika. „Ég var svo hepp- in að ég missti áhugann á því að leika þegar ég veiktist. Þegar þú ert leikari þá finnst þér bara allt snúast um leiklist. Svo uppgötvar maður að það er líka líf fyrir utan leikhúsið og maður er ekki starfið manns og heldur ekki nafnið manns, maður er bara maður sjálfur. Þegar manni er allt í einu kippt út, sér maður að það gerist ekkert. Lífið bara heldur áfram. Svona hefur þetta alltaf verið. Það er svo skrýtið, það eru margar góðar og skemmtilegar manneskjur sem eru dánar,“ segir hún. Aðalmálið að standa saman Það geta líklega allir foreldrar gert sér í hugarlund að það sé erfitt að segja börnunum sínum frá því að þeir séu með ólæknandi sjúkdóm. Börn Eddu voru ung að árum þegar hún greindist. „Ég valdi góðan tíma til þess að segja þeim frá, jólafrí. Það komu upp alls konar tilfinningar. Það var faðmast og líka hlaupið ↣ Edda Heiðrún Backman segir það auðvitað hafa verið mikið áfall að greinast með ólæknandi hrörnunarsjúkdóm. Hún hafi hins vegar alltaf haft jákvæðn- ina að vopni og veik indin hafi kennt henni þolinmæði og þrautseigju. Hef alltaf viljað vera sólarmegin í lífinu Hvað það er gaman að Hlæja og syngja. og faðma og kyssa. það eru Hlutir sem ég get ekki gert lengur. ég bara þarf að ímynda mér þetta. FréttAblAðið/SteFán 2 8 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R28 h e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.