Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 30

Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 30
Leikfélag Reykjavíkur stóð fyrir sýningum á Djöflaeyjan rís og hér sjást Edda Heiðrún og Guðmundur Björnsson í hlutverkum sínum í sýningunni í janúar 1987. pláss og öryggi. Við erum fær um að rækta og framleiða fæðuna okkar. Þetta eru náttúruauðlindir og lífs- kostir sem verða æ sjaldgæfari og verðmætari í heiminum. Það er alveg ljóst að við þurfum að skipta um gír. Við erum búin að einka- væða lofthelgina. Við erum búin að einkavæða sjávarauðlindirnar. Við erum á fullu að klára að einka- væða landið. Þetta hefur ekki leitt til neins annars en að breikka bilið milli ríkra og fátækra, svo ég tali nú ekki um gróðurhúsaáhrifin sem eru langt umfram spár og þegar farin að valda loftslagsbreytingum. Jörðin er farin að hósta og nær stundum ekki andanum.“ Þarf átak í umhverfismálum Hún tekur fram að mannfólkið hafi margoft breytt um stefnu og lagað það sem ekki var í lagi. Nú þurfi slíkt átak í umhverfismálum. „Það er mikilvægt að standa allt- af með réttindum þeirra sem eiga undir högg að sækja. Mannréttindi virðast augljós, samanber afnám þrælahalds og afnám kynþátta- stefnu, kvenréttindi og réttindi til kynhneigðar. Það hefur aldrei verið pólitískur vilji til að réttindi handa öllum næðu fram að ganga. Eitthvað sem var óhugsandi fyrir 100 árum er sjálfsagt í dag. Það þarf að skipta um kúrs. Við höfum oft gert það og nú þurfum við að gera það í umhverfismálum. Við stofnuðum Sameinuðu þjóð- irnar til að koma á friði í heim- inum – nú höfum við áttað okkur á því að til að koma á friði í heim- inum þurfum við að lækna ýmis önnur vandamál. Ólæsi, fá hreint drykkjarvatn og að þjóðir heims fái notið auðlinda sinna í staðinn fyrir að stórfyrirtæki taki þær til að græða á þeim í þágu örfárra ríkra eigenda sinna. Einn mikilvægur þáttur í starfi Sameinuðu þjóðanna er umhverfismálin.“ Óréttlætið svíður Edda segist ekki beint vera póli- tísk en hafa þó sterkar skoðanir og helst sé það óréttlætið í heiminum sem svíði. „Ég er félagshyggjumann- eskja svo fremi sem það lamar ekki einstaklingsfrumkvæðið og frjóa hugsun einstaklingsins, þess vegna er ég listamaður. Ég hef verið þjónn listarinnar, nú langar mig að vera þjónn náttúrunar. Betra er seint en aldrei.“ Hún hefur líka kynnst ýmsum hliðum samfélagsins eftir að hún veiktist, hliðum sem oft eru ekki sýnilegar. „Við verðum alltaf að hjálpa minnimáttar. Ef mér finnst eitthvað óréttlátt eða brotið á ein- hverjum þá verð ég aum. Ég get alveg reddað mér en sumir geta það ekki. Sumir hafa ekki döngun í sér og sumir hafa ekki sjálfstraustið í það. Það er auðvitað erfitt að horfa upp á það.“ Edda hefur vakið athygli á lélegu aðgengi fyrir fatlaða víða sem hún segir að sé til skammar og beri vott um virðingarleysi. „Eftir að ég veiktist þá kynntist ég annarri hlið á mannlífinu sem hefur verið mér svo lærdómsríkt. Öryrkjar eru líka fólk, fólk sem þarf hjálp. Það óskar sér enginn að vera í þessari stöðu. Þjóð- félagið er sett saman úr mörgum hlutum og þetta er einn fylgifiskur.“ Lífið er dýrmætt Hún segir veikindin hafa kennt sér margt. Hvað lífið sé dýrmætt og mikilvægt að njóta þess. „Sem betur fer hlúði ég strax vel að sambandinu við vini mína og sjálfa mig. Minn sjúkdómur hefur kennt mér þolin- mæði og þrautseigju. Þegar reynir á þá kemur fyrst í ljós úr hverju maður er gerður.“ Aðspurð hver sé stærsti lærdóm- urinn af veikindunum þá er hún ekki í vafa. „Hvað það er gaman að hlæja og syngja. Og faðma og kyssa. Það eru hlutir sem ég get ekki gert lengur. Ég bara þarf að ímynda mér þetta.“ Edda segist þó aldrei vera reið yfir því að hafa veikst og hún hafi aldrei hugsað af hverju það hafi þurft að koma fyrir hana. „Nei, ég hugsaði: Af hverju ekki ég? Ég er mjög góður kandídat í að vera sjúklingur.“ Edda heldur ótrauð áfram að mála og stefnir á að halda sýningar í sumar. Hún segir það hafa hjálpað sér mikið við að takast á við lífið í breyttum aðstæðum að geta málað, nokkuð sem hún hafði ekki gert áður en hún veiktist. „Þetta byrjaði þannig að ég þurfti að hafa eitthvað fyrir stafni. Ég ætlaði varla að þora í tíma, ég hélt það myndu allir horfa á mig,“ segir hún. Sú var ekki raunin. Nú hefur hún málað hundruð mál- verka sem eru eftirsótt. Sumarið fram undan er ekki bara annasamt þegar kemur að listinni heldur standa hin nýstofnuðu sam- tök, Rödd náttúrunnar, fyrir tveim- ur viðburðum þann 5. og 11. júní næstkomandi. Þar verður slegið upp heljarinnar veislum. Viðburðurinn þann 5. júní er listaverkauppboð og þann 11. júní verða rapptónleikar, fatamarkaður, tískusýning og upp- boð. Það er henni ljúft og skylt að standa fyrir þessum viðburðum enda það sem brennur á henni. „Við verðum að láta til okkar taka áður en það verður of seint að bjarga jörðinni.“ í burtu. Það er mjög misjafnt hvernig fólk bregst við. Aðalmálið er að standa saman, að þau finni það.“ Edda segir mikilvægt að vera góð fyrirmynd. „Foreldrar taka ábyrgð á uppeldi barna sinna og það skiptir máli að vera góð fyrirmynd. Uppeldi er hlaðið gildum. Það þýðir ekki að segja „þú skalt aldrei reykja“ með kveikt í sígarettunni. Ef þú vilt að barnið þitt lesi þá lestu fyrir það. Það eru alls konar hugmyndir og hugmyndafræði fólgin í því sem barnið andar að sér, það nemur ósagðar hugsanir. Þess vegna skiptir máli að vera jákvæður. Þú ert alltaf fyrirmynd. Svo kemur að því vanda- sama hlutverki þegar barnið fer að vera ósammála manni að maður hefur ekki alltaf rétt fyrir sér. Þá er hægt að notast við fyrirgefning- una og trúnað. Þetta er svokölluð framþróun: sjálfbær framþróun. Að sama skapi skiptir félagsleg hegðun okkar máli, í því samhengi erum við líka fyrirmyndir – hvernig getur nokkur tekið út úr þeim sjóði sem hann borgar ekki í?“ spyr Edda og heldur áfram: „Ég vil taka það fram að mér finnst ekkert ljótt að græða peninga. Sá sem græðir hefur vissan hæfileika sem gerir honum kleift að skapa verðmæti úr auðlindum jarðar, jafnt á láði sem legi. Það sem gerist þegar þessi verðmæti verða til er að viðkomandi manneskja verður rík af peningum eða auðæfum, nærfjölskyldan nýtur góðs af því, vonandi samfélagið svo og þjóð- félagið. Það sem hefur hins vegar gerst á undanförnum 30 til 40 árum er að þessi gróðavon hefur breyst í græðgisvon, fólk tímir ekki að borga til þjóðfélagsins skatta,“ segir hún og þykir miður. „Hugtakið „græða“ hefur marga merkingu og ekki að ástæðulausu. Til dæmis að græða sár, svörð, samfélag og svo fram- vegis. Græðari er til dæmis maður sem notar óhefðbundnar aðferðir til þess að lækna, í flestum tilfellum manneskjur. Peningar eru einhvers konar afl, einhvers konar orka, ef við eigum of mikið af þeim og pössum okkur ekki að deila þeim réttlát- lega niður, þá leitar þetta afl eins og vatnið í sprungurnar, gallana – svo frostspringur allt.“ Rödd náttúrunnar Náttúruverndarmál eru Eddu hug- leikin. Á dögunum stofnaði hún náttúruverndarsamtökin Rödd nátt- úrunnar ásamt góðum hópi fólks. Formaður félagsins er náttúran sjálf. „Höfuðáherslan er verndun hálend- isins. Við ætlum að veita náttúrunni rödd og réttindi,“ segir hún. „Mér finnst við vanþakklát. Okkar brýnasta verkefni er að bjarga jörð- inni. Allt sem við búum til kemur frá þessari jörð. Þess vegna er hún kölluð Móðir Jörð. Það er tími til kominn að við förum að vernda hana og passa. Jörðin er ekki dauður hlutur. Hún er lifandi hnöttur með æðakerfið utan á sér, það er árnar, fljótin og höfin. Lungun eru líka úthverf, Amazon-regnskógarnir – þeir binda kolefni og framleiða súrefni, sem fer út í loftið og aðeins örþunnt lag, ósonlagið, heldur þessu öllu saman eins og líknarbelgur utan um barn,“ segir Edda. „Ég vil að minn forseti verði rödd náttúrunnar og sendiherra hennar. Jörðin er full af auðlindum sem sumir hafa ókeypis aðgang að og njóta góðs af því. Sumir erfa auðæfi í formi auðlinda, en fullt af auð- lindum eigum við sameiginlega. Því miður virðast sumir misskilja þetta og stunda rányrkju og drepa dýr til þess eins að græða. Við stöndum frammi fyrir útrýmingu dýrateg- unda af mannavöldum sem er svo víðtæk að önnur eins útrýming hefur ekki átt sér stað síðan risaeðl- urnar dóu út fyrir 65 milljónum ára. Þegar tegund deyr út þá á hún aldrei afturkvæmt á þessa jörð.“ Edda segir Íslendinga eiga að huga betur að náttúruauðlind- unum og bera virðingu fyrir þeim. Þetta séu okkar raunverulegu verð- mæti. „Við eigum svo margt; vatn, fallegt land, víðáttumikla nátt- úru, heitt vatn, hreina orku og nóg Hér má sjá Eddu Heiðrúnu við vinnuborðið sitt þar sem listaverkin verða til. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Edda Heiðrún æfa Villiöndina sem sýnd var í Þjóðleikhúsinu. ↣ Sem betur fer hlúði ég Strax vel að Sambandinu við vini mína og Sjálfa mig. minn Sjúkdómur hefur kennt mér þolinmæði og þrautSeigju. þegar reynir á þá kemur fyrSt í ljóS úr hverju maður er gerður. 2 8 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R30 h e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.