Fréttablaðið - 28.05.2016, Qupperneq 34
Útgefandi
Samfylkingin Hallveigarstíg 1 s. 414-2200
Ábyrgðamaður
Kristján Guy Burgess
Veffang
Samfylking@samfylking.is
FormannsFramBjóðendur
samFylKinGarinnar
HVer eru þau?
Tónlistarmaðurinn Valdimar Guðmundsson, Inga Björk Bjarnadóttir
listfræðingur, Anna Svava leikkona og Haukur Hólmsteinsson
heimspekingur tóku formannsframbjóðendur Samfylkingarinnar tali
og kynntust þeim betur, hvert með sínum hætti. Þau komust að því
hver Oddný, Helgi Hjörvar, Magnús Orri og Guðmundur Ari eru og
hvers vegna þau bjóða sig fram til formennsku í Samfylkingunni.
Samfylkingin stendur í stórræð-
um. Við köllum á fólkið okkar
sem býr um allt land og höldum
saman landsfund á Grand Hótel
um næstu helgi.
Á sama tíma taka allir flokks-
félagar þátt í að velja nýjan for-
mann í kosningu sem hefst í dag.
Úrslitin liggja fyrir klukkan 18 á
föstudaginn.
Á landsfundinum kjósum við
nýja forystusveit til að vinna með
nýjum formanni að sókn Samfylk-
ingarinnar, stillum saman strengi
og mótum áherslur flokksins til
framtíðar.
Allir landsfundarfulltrúar
taka í sameiningu þátt í að semja
ályktanir fundarins og leggja
þannig línurnar fyrir kosning-
ar í haust.
Yfirskriftin á landsfundinum
var valin í könnun meðal flokks-
fólks: Eitt samfélag fyrir alla.
Það táknar að enginn skuli skil-
inn eftir í samfélaginu en líka að
enginn eigi að komast undan þátt-
töku í sameiginlegum verkefnum
okkar allra, með því að koma fjár-
munum sínum í skattaskjól.
Yfirskriftin merkir að allir
séu velkomnir í okkar samfélag,
við séum opin fyrir alþjóðlegum
straumum, tökum sameiginlega
ábyrgð á stórum viðfangsefnum
og ætlum að mæta framtíðinni
saman.
Verkefni þjóðmálanna eru
ærin og á landsfundinum leitum
við leiða til að byggja upp fyrsta
flokks heilbrigðisþjónustu, finn-
um svörin við því hvernig allir
geti komið sér upp þaki yfir höf-
uðið, hvernig nýrri stjórnarskrá
verði komið á og hvernig fjár-
málakerfið verði miðað að þörf-
um fólks en ekki fárra útvalinna.
Við leitum svara við því hvern-
ig hægt sé að rétta hag yngri kyn-
slóðarinnar og að gera Ísland að
góðu landi til að eldast í. Hvern-
ig styðjum við fjölskyldur sem
þurfa að ná endum saman og lifa
góðu lífi.
Við verðum svo að vinna saman
við að minnka ójöfnuðinn í þjóð-
félaginu þannig að á Íslandi verði
raunverulega til eitt samfélag
fyrir alla.
Sjáumst glöð á góðum lands-
fundi!
eitt samfélag fyrir alla!
Kristján guy burgess, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar og Sema erla Serdar,
formaður framkvæmdastjórnar, vilja eitt samfélag fyrir alla.
rafræn SKilríKi
Allir sem skráðir voru félagar í
Samfylkingunni 7. maí geta kosið
í formannskjöri, en til þess að
kjósa þarf að hafa Íslykil eða raf-
ræn skilríki. Ef þú átt ekki þegar
Íslykil eða rafræn skilríki
getur þú sótt um Íslyk-
il á heimasíðunni islyk-
ill.is, en rafræn skil-
ríki sækir þú um í
viðskiptabankan-
um þínum. Við hvetj-
um þig til að sækja
um rétt skilríki með
góðum fyrirvara.
VefSlóð
Þegar kosningin hefst á hádegi,
laugardaginn 28. maí verður
hægt að fara inn á kosningavef-
inn í gegnum heimasíðu Samfylk-
ingarinnar, www.xs.is.
KjörSeðillinn
Þegar þú hefur auðkennt þig með
Íslykli eða rafrænum skilríkjum
kemur upp kjörseðill þar sem þú
kýst þá eða þann sem þú vilt sem
formann Samfylkingarinnar. Þú
hefur val um að velja aðeins einn
frambjóðanda eða að raða fram-
bjóðendum, þar sem þú merkir
fyrst við þá eða þann sem þú kýst
sem formann, næst við þá eða
þann sem þú kýst sem næstbesta
kostinn og svo framvegis.
KjörSeðill í póSti
Aðstoð er veitt á aðal-
skrifstofu Samfylking-
arinnar í síma 414-
2200. Eigir þú engan
kost á að kjósa raf-
rænt er hægt að óska
eftir að fá sendan
kjörseðil sem þú berð
sjálf/ur ábyrgð á að ber-
ist til skrifstofu flokksins fyrir lok
kosningar 3. júní kl. 12.
Beiðnina ber að senda á samfylk-
ing@samfylking.is og vinsamleg-
ast athugaðu að pósturinn getur
tekið 3 virka daga að berast.
aðStoð
Kjörstaður verður opinn á skrif-
stofu flokksins, Hallveigarstíg 1 í
Reykjavík, mánudaginn 30. maí
– fimmtudagsins 2. júní frá kl. 13
– 19 þar sem verður veitt aðstoð
við rafræna kosningu.
TaKTu þáTT í FormannsKjöri
28. maí - 3. júní
SamfylKingin
28. maí 20162