Fréttablaðið - 28.05.2016, Síða 37

Fréttablaðið - 28.05.2016, Síða 37
„Fluconazol ratiopharm er nú fáanlegt án lyfseð- ils í apótekum en lyfið hafði áður fyrr einungis verið fáanlegt út á lyfseð- il,“ segir Hákon Steinsson, lyfjafræðingur hjá LYFIS, og bendir á að þar sem Fluconazol ratiopharm sé nú selt án lyfseðils geti konur nálgast það strax og á þarf að halda en áður þurfti að fara til læknis og fá lyfseðil. Lyfið er notað við sveppasýkingu í leggöngum af völdum gersveppsins Candida hjá konum sem áður hafa verið greindar hjá lækni með slíka sveppasýkingu og þekkja því ein- kennin. Eflaust þekkja margar konur það að fá reglulega sveppa- sýkingu, t.d. í tengslum við sýkla- lyfjatöku. Það er því mikill kost- ur fyrir þær að geta farið strax í apótek og keypt lyfið og hafið með- ferðina. Einkenni sveppasýkingar eru mikill kláði á ytri kynfærum, eymsli, pirringur og sársauki við kynmök en einnig roði og tiltölu- lega lyktarlítil hvít útferð. Meðferðin felst í því að konur sem hafa verið greindar með sveppasýkingu og þekkja einkenn- in taka einungis eitt hylki inn um munn. Hér er því um að ræða ein- falda meðferð við algengum kvilla. Mikilvægt er að lesa fylgiseð- il lyfsins fyrir notkun og kynna sér helstu varúðarreglur. Stutta saman tekt um lyfið má sjá hér meðfylgjandi. Fluconazol ratiopharm fæst án lyf- seðils í apótekum. SVEPPASÝKING Í LEGGÖNGUM LYFIS KYNNIR Fluconazol ratiopharm 150 mg hylki fást án lyfseðils í næsta apóteki. Eitt hylki er tekið inn um munn við sveppasýkingu í leggöngum. Einföld meðferð við algengum kvilla. Fluconazol ratiopharm fæst án lyfseðils í apótekum. Eitt hylki er tekið inn um munn við sveppasýkingu í leggöngum. „Glinor-nefúði inniheldur virka efnið natriumcromoglicat, efni sem hindrar losun bólguvald- andi boðefna eins og histamíns,“ segir Hákon Steinsson, lyfjafræð- ingur hjá LYFIS. „Vegna verk- unarmátans er meðferðin fyrir- byggjandi í eðli sínu og því hægt að hefja notkun áður en ofnæmis- tímabilið byrjar.“ Glinor er eini nefúðinn með þessu innihalds- efni sem fæst án lyfseðils á Ís- landi en LYFIS hefur unnið mark- visst að því að auðvelda aðgengi landsmanna að lyfjum sem áður hafa einungis fengist gegn lyfseðli. Glinor er notað við ofnæmisbólgu í nefi en algeng einkenni hennar eru hnerri, nefrennsli, kláði og nef- stífla. Lyfið er ætlað fyrir fullorðna og börn, allt niður í fjögurra ára aldur. Skammtur fyrir fullorðna og börn er einn úðaskammtur í hvora nös tvisvar til fjórum sinnum á dag. Glinor-nefúðinn veldur ekki syfju. Mikilvægt er að lesa fylgiseðil lyfs- ins fyrir notkun og kynna sér helstu varúðarreglur. Stutta samantekt um lyfið má sjá hér meðfylgjandi. Glinor nefúði fæst án lyfseðils í apótekum. GLINor NEfúðI VIð ofNæMI LYFIS kynnir Glinor-nefúði við ofnæmisbólgu í nefi. Hefur fyrirbyggjandi verkun. Fæst á góðu verði án lyfseðils í næsta apóteki. Glinor-nefúði við ofnæmi er ætlaður fyrir fullorðna og börn allt niður í 4 ára aldur. Vegna verkunar- mátans er með- ferðin fyrirbyggjandi í eðli sínu og því hægt að hefja notkun áður en ofnæmistímabilið byrjar. Hákon Steinsson Einkenni ofnæmisbólgu í nefi l Hnerri l Nefrennsli l Kláði í nefi l Nefstífla Notkunarsvið: Fluconazol ratiopharm inniheldur fluconazol. Án ávísunar frá lækni er Fluconazol ratiopharm notað við sveppasýkingu í leggöngum af völdum gersveppsins Candida hjá konum sem áður hafa verið greindar með sveppasýkingu. Frábendingar: Ofnæmi fyrir fluconazoli eða skyldum azól-lyfjum eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Samhliða meðferð með cisapridi, astemizoli, terfenadini, pimozidi eða quinidini. Gæta skal sérstakrar varúðar ef eftirfarandi á við: Í mjög sjaldgæfum tilvikum getur Fluconazol ratiopharm valdið alvarlegum húðviðbrögðum með blöðrumyndun og húðlosi (Stevens-Johnson heilkenni). Ef húðútbrot koma fram á meðan á meðferð með Fluconazol ratiopharm stendur skal strax hafa samband við lækni, sem ákveður hvort nauðsynlegt sé að grípa til frekari aðgerða. Samhliða meðferð með halofantrini eða terfenadini. Meðfædd eða áunnin breyting á starfsemi hjartans (lenging QT-bils). Samhliða notkun lyfja sem einnig geta lengt QT-bilið á hjartalínuritinu, t.d. lyf við hjartsláttartruflunum í flokki IA eða III. Truflun í jafnvægi blóðsalta, einkum minnkuð þéttni kalíums og magnesíums. Hægur hjartsláttur sem þarfnast meðferðar, hjartsláttartruflanir eða alvarleg hjartabilun. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki skal nota Fluconazol ratiopharm á meðgöngu eða meðan barn er á brjósti. Skömmtun: Við Candidasýkingu í leggöngum: Eitt Fluconazol ratiopharm 150 mg hylki í stökum skammti. Algengar aukaverkanir: Höfuðverkur, húðútbrot, kviðverkur, uppköst, niðurgangur og ógleði, breyting á lifrargildum. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Febrúar 2015. Eflaust þekkja margar konur það að fá reglu- lega sveppasýkingu, t.d. í tengslum við sýkla- lyfjatöku. Það er því mikill kostur fyrir þær að geta farið strax í apótek og keypt lyfið og hafið meðferðina. Notkunarsvið: Glinor nefúði inniheldur natríumcromoglicat og er ætlaður við ofnæmisbólgu í nefi. Frábendingar: Ofnæmi fyrir natríumcromoglicati, benzalkonklóríði eða einhverju hjálparefnanna. Varúð: Innihaldsefnið benzalkonklóríð getur valdið ertingu í húð. Meðganga og brjóstagjöf: Engin skaðleg áhrif á fóstur hafa komið fram við notkun natríumcromoglicats. Engu að síður skal forðast notkun á fyrsta þriðjungi meðgöngu og einungis skal nota lyfið á seinni stigum meðgöngu ef þörf er á. Natríum­ cromoglicat skilst í litlu magni út í brjóstamjólk. Þessi útskilnaður er sennilega skaðlaus en einungis skal nota lyfið hjá mæðrum með barn á brjósti ef þörf er á. Skömmtun: Fullorðnir og börn, 4 ára og eldri: Einn úðaskammtur í hvora nös tvisvar til fjórum sinnum á dag. Algengustu aukaverkanir: Erting í nefslímhúð getur komið fram í upphafi meðferðar en þessi áhrif eru skað­ laus og tímabundin. Lesið vandlega fylgiseðilinn sem fylgir lyfinu. SmPC: Desember 2015 Við kvefi og særindum í hálsi Coldfri munnúði • Vörn gegn sýklum • Linar særindi í hálsi • Flýtir bata á kvefi og endurnýjun slímhimnu í hálsi fæst í apótekum F ó l k ∙ k y n n i n g a r b l a ð ∙ H e l g i n 3l a U g a r D a g U r 2 8 . m a í 2 0 1 6
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.