Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 40

Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 40
Póstkortið hefur fylgt manninum alla 20. öldina og verið vettvangur alls kyns sköpunar og skilaboða. Í dag verður opnuð í Þjóðminjasafn- inu sýningin Með kveðju, en henni er ætlað að veita innsýn í mynd- heim íslenska póstkortsins með völdum dæmum eða syrpum frá tilteknum útgefendum, ljósmynd- urum og teiknurum en líka af ein- stökum efnisflokkum. Að sögn Ingu Láru Baldvinsdótt- ur, sviðsstjóra Ljósmyndasafns Ís- lands í Þjóðminjasafni Íslands, er áætlað að rúmlega 20.000 póstkort hafi verið gefin út hér á landi en söfnun póstkorta hófst í Þjóðminja- safninu fljótlega eftir aldamót- in 1900. „Á sýningunni verða um 1.000 póstkort sem spanna tímabil- ið frá 1898 til 2015. Þetta eru inn- rammaðar heildir sem raðað er í tímaröð. Við skynjum því framþró- un á mörgum sviðum samfélagsins með því að skoða sýninguna, t.d. þegar kemur að tísku, prenttækni, ljósmyndun og fjölbreyttum mynd- skreytingum á póstkortum. Fyrir utan landafræðina, byggingarsög- una og hvernig menningarlandslag- ið hefur breyst. Póstkort eru alveg merkileg náma til að grafa í.“ Spanna langt tímabil Aðdragandi sýningarinnar var fremur skammur miðað við aðrar sýningar á safninu að sögn Ingu Láru. „Póstkortin urðu fyrir valinu vegna þess að í Ljósmyndasafni Ís- lands eru varðveitt þrjú póstkorta- söfn með um 17.000 póstkortum. Tvö þeirra innihalda aðal lega kort frá því fyrir 1950 en eitt eftir þann tíma þannig að þau mynda sterka heild og spanna alla 20. öldina. Á síðustu tveimur áratugum hefur líka verið safnað nokkru af kort- um úr samtímanum og svo gerðum við átak í söfnun nýrri korta fyrir þessa sýningu. Þetta er safnkostur sem ekki hefur verið sýndur áður.“ Sýningin er þannig uppbyggð að sýnd eru saman póstkort frá einstökum útgefendum, teiknur- um og ljósmyndurum. „Söfnin eru ekki skipulögð þannig að kort hvers framleiðanda séu saman í möppu. Frekar reynum við að setja þau upp eftir stöðum og myndefni og því söfnuðum við þeim saman héðan og þaðan úr póstkortasafninu. Í fá- einum tilvikum urðum við að leita til annarra með kort, eins og Lands- bókasafns-Háskólabókasafns og einkasafnaranna Þórs Þorsteins og Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur.“ Einnig þurfti að leggjast í rann- sóknir segir Inga Lára. „Við búum svo vel að Ragnheiður Viggósdóttir póstkortasafnari hafði tekið saman lista yfir útgefin póstkort á Íslandi fram undir 1950 sem létti mikið vinnuna. Einkasafnararnir búa yfir mikilli þekkingu á þessum efnivið og voru þau Þór og Guðrún tilbúin að miðla af visku sinni. Við erum sjálf margs fróðari um sögu póst- kortsins og ég vona að það skili sér til gesta sýningarinnar.“ ÝmSar gerSemar Inga Lára segir sum póstkortanna á sýningunni hluta af þeim mynd- heimi sem allir Íslendingar þekki. „Margir kannast við mynd Ingi- mundar Sveinssonar, bróður Kjar- vals, af barni á hnísubaki, fjallkon- an hefur birst á kortum og síðan eru merkileg sérstæð kort eins og kort Samúels Eggertssonar með íslandssögunni í sjónrænu formi.“ Ekki má gleyma því að póst- kort voru gefin út til að á þau væri skrifað og þó að meiri- hluti kortanna í safninu sé nýr og ónotaður er þar fjöldi af kort- um með alls kyns áritunum. „Þar má nefna kort frá Hannesi Hafstein frá 1902, frá Sigurði Nor- dal síðan 1921 og frá Braga Krist- jónssyni í Bókinni frá 1980.“ En fyrst og fremst eru þetta kort með textum frá venjulegu fólki segir Inga Lára. „Þar má nefna kort frá krakka í Vindáshlíð til frænku sinnar, kort til móður sem var skrifað í Leifsstöð, svo að ör- uggt væri að eitthvert kort kæmi úr ferðinni, kort með kveðskap á tímamótum, lýsingu á fylleríi, boð um að mæta í vinnu að ógleymdum frásögnum af ferðalögum. Póst- kortin gegndu því gríðarlega fjöl- breyttu hlutverki og komu í stað alls þess sem við höfum við hönd- ina í dag, t.d. símans, sms-skila- boða, tölvupóstsins og auðvitað allra samfélagsmiðlanna.“ Sýningin verður opnuð kl. 15 í dag, laugardag, og verður opin í allt sumar. Nánari upplýsingar má finna á www.thjodminjasafn.is og á Facebook. Sagan Sögð með póStkortum Skynja má framþróun og breytingar íslensks samfélags á ýmsum sviðum gegnum gömul póstkort. Á sýningunni Með kveðju sem hefst í dag í Þjóðminjasafni Íslands má skoða rúmlega 1.000 íslensk póstkort frá árunum 1898-2015. Póstkort frá Sigurði Guðmundssyni frá um 1940. Þekkt mynd Ingimundar Sveinssonar prýðir þetta gamla póstkort. Póstkort frá Hannesi Hafstein sem hann sendi árið 1902 er til sýnis. Um 1.000 póstkort verða til sýnis í Þjóðminjasafninu í sumar. Inga Lára Baldvinsdóttir, sviðsstjóri Ljósmyndasafns Íslands (t.v.) og Kristín Halla Baldvinsdóttir, sérfræðingur í myndasafni. MyNd/HaNNa aNdréSdóttIr Nýjar gallabuxur Margir litir og margar gerðir Verð frá 8.990 kr.- Nýjar peysur frá Júníform Mikið úrval Kringlunni | sími 534 0066 ýjar gallabuxur argir litir og argar gerðir Verð frá 8.990 kr.- ýjar peysur frá Júnífor ikið úrval Kringlunni | sími 534 0066 2 8 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R6 F ó L k ∙ k y n n i n G a R b L a ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G a R b L a ð ∙ h e L G i n
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.