Fréttablaðið - 28.05.2016, Qupperneq 50
| AtvinnA | 28. maí 2016 LAUGARDAGUR10
Vilt þú vera á meðal stjarnanna?
Heildverslunin Satúrnus ehf. hefur frá áriðnu 1958 flutt inn hannyrðavörur frá þekktum fram-
leiðendum. Við leitum að harðduglegum sölumanni frá og með 15. ágúst nk. Starfshlutfall er 50%
Áhugasamir sendi inn ferilsskrá á netfangið sala@saturnus.is fyrir 3. júní nk.
Fyrirspurnum verður ekki svarað í síma.
Starfssvið
• Sala og afgreiðsla til viðskiptavina
• Símasala og heimsóknir til viðskiptavina
• Öflun nýrra viðskiptavina
• Kynningar og annað tilfallandi
Hæfniskröfur
• Reynsla af sölustörfum í amk 2 ár
• Þjónustulipurð
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Almenn tölvuþekking
• Samviskusemi
• Vönduð vinnubrögð
• Stundvísi og jákvæðni
KENNARI
Laus er til umsóknar 100% kennarastaða í Reykhólaskóla,
Reykhólahreppi skólaárið 2016 - 2017.
Um er að ræða umsjónarkennslu á miðstigi eða unglingastigi,
meðal kennslugreina er íslenska, stærðfræði, samfélagsfræði.
Leitað er eftir fólki með góða skipulagshæfileika og hæfni í
mannlegum samskiptum. Reynsla af teymisvinnu og samkennslu
og áhugi á þróunarstarfi er mikilvæg. Umsækjendur skulu hafa
hreint sakavottorð.
Reykhólaskóli á Reykhólum við Breiðafjörð er sameinaður
grunnskóli og leikskóli með 72 nemendur á aldrinum 1 árs til 16
ára. Einkunnarorð skólans eru Vilji er vegur. Lögð er áhersla á
skapandi starf og nám í gegnum leik.
Í Reykhólahreppi búa tæplega 280 manns, þar af 120 manns
í þéttbýliskjarnanum á Reykhólum. Á staðnum er öll almenn
þjónusta, verslun, glæsilegt íþróttahús og sundlaug með aðstöðu
fyrir alla aldurshópa. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar og mikil
náttúrufegurð.
Frekari upplýsingar gefur Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir skólastjóri í
síma 849 8531 og 434 7731 eða í netfanginuskolastjori@reykholar.
is. Umsóknum með ferilskrá og afriti prófskírteina ásamt
upplýsingum um meðmælendur skal skila í netfangið
skolastjori@reykholar.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2016.
Starfið felst í almennri skrifstofuvinnu, gagnavinnslu og stuðningi
við forstöðumann og verkefnisstjóra í vinnu með jaðarsettum
hópum, innflytjendum og fólki sem býr við þrengingar.
Starfsmaðurinn undirbýr fundi og margvíslega viðburði, annast
gagnavinnslu í tengslum við umsýslu sjálfboðaliða og rekstur
verkefna og tekur á annan hátt þátt í að veita bæði skjólstæðing-
um og sjálfboðaliðum úrvalsþjónustu.
Við leitum að reglusömum, drífandi og duglegum einstaklingi með
ríka þjónustulund og jákvætt viðhorf til starfs og hugsjóna Rauða
krossins. Starfsmaðurinn þarf að hafa gott vald á íslensku og
ensku og hafa bílpróf. Vinnutími getur verið sveigjanlegur.
Vinsamlegast sendið umsókn á
netfangið thorir@redcross.is og
merkið með orðinu starf2016 í
heiti póstsins.
Umsóknarfrestur er til 12. júní.
Rauði krossinn í Reykjavík óskar eftir að
ráða starfsmann í hálft starf á
skrifstofu deildarinnar
Reykjavík
ÓSKUM EFTIR
LAGER-
STARFSMANNI
sem getur einnig
tekið að sér sölustörf
í verslunum
Hæfniskröfur: Góð almenn tölvukunnátta,
bílpróf, skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð.
Vinsamlegast sendið umsóknina á
atvinna@forlagid.is fyrir 9. júní nk.
Farið verður með allar umsóknir
sem trúnaðarmál.
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
Hagsvið er nýtt svið innan embættis ríkisskattstjóra. Verkefni þess eru að annast söfnun, greiningu
og miðlun upplýsinga um efnahagsmál, greiningu á niðurstöðum álagningar opinberra gjalda,
hagrannsóknir, annast gerð úrtaks við ákvörðun skatteftirlits og hafa umsjón með opinberri birt-
ingu skattatölfræði ríkisskattstjóra, ásamt viðeigandi greiningu.
Starf sérfræðings á hagsviði er laust til umsóknar og mun hann koma að fjölbreyttum verkefnum
er þar eru unnin fyrir innri og ytri viðskiptavini.
Ríkisskattstjóri - hagsvið
Menntunar- og hæfnikröfur
● Háskólapróf í hagfræði, viðskiptafræði eða sambærilegt.
● Mikil hæfni til að taka þátt í hópastarfi.
● Frumkvæði, metnaður, atorka, hugmyndaauðgi og lausnamiðuð nálgun.
● Lipurð í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund, jákvæðni og góð framkoma.
● Þekking og reynsla af nýtingu upplýsingakerfa og gagnagrunna
við úrvinnslu upplýsinga.
● Öguð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfileika til að vinna undir álagi.
● Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, góð íslenskuþekking og vandað málfar.
● Nákvæmni, hlutlægni, talnagleggni og hæfni til að greina aðalatriði
við úrvinnslu upplýsinga.
Þekking á reikningshaldi er kostur, en ekki skilyrði.
Umsókn skal fylla út á vefslóðinni rsk.is/starf. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar upplýsingar um
menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með í viðhengi.
Frekari upplýsingar veitir Inga Hanna Guðmundsdóttir starfsmannastjóri RSK í síma 442-1151
eða á ingahanna@rsk.is.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2016. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
hefur verið tekin um ráðningu. Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við viðeigandi stéttarfélag.
Ríkisskattstjóri annast álagningu opinberra gjalda og annarra skatta, skatteftirlit og heldur lögbundnar skrár.
Að auki er embættinu falið að sinna ýmsum sérverkefnum til lengri eða skemmri tíma, nú síðast leiðréttingu á höfuðstól
verðtryggðra húsnæðislána og ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán.
Starfsmenn ríkisskattstjóra eru um þessar mundir 250 á níu starfsstöðvum, þar af um 160 í aðalstöðvum í Reykjavík.
Meginstefna RSK í mannauðsmálum byggir á gagnkvæmu trausti, tillitssemi og virðingu á milli stofnunar og starfsmanna
og starfsmanna sín í milli og unnið er eftir gildunum fagmennska, jákvæðni og samvinna.
Nánari upplýsingar á rsk.is