Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 78

Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 78
Árið 1918 stofnaði velski læknirinn Pendrill Varr­ier­Jones nýjan og bylt­ingarkenndan spítala í tengslum við lækna­ deild Cambridge­háskóla. Meginvið­ fangsefni sjúkrahússins var í fyrstu að sinna fólki með lungnasjúkdóma, einkum berklasjúklingum, sem voru fjölmargir í Bretlandi líkt og annars staðar í Evrópu. Að mati Varrier­Jones var ekki nóg að veita klíníska meðferð við sjúkdómnum sjálfum, heldur þyrftu sjúklingarnir líka aðlögun og endurhæfingu að dvölinni lokinni. Í tengslum við Papworth­spítalann reis því samnefnt þorp með íbúðum fyrir fjölda sjúklinga sem tryggð voru létt framleiðslustörf við ýmiss konar iðnað. Nálgunin var byltingarkennd, enda hafði meðhöndlun berklasjúklinga fram að þessu fremur gengið út á að einangra þá frá ys og þys samfélags­ ins. Að meðferð lokinni biðu hins vegar fá tækifæri til eðlilegs lífs. Þessu vildi Varrier­Jones breyta með öflugri iðjuþjálfun. Þá var sjúklingum heim­ ilað að hafa fjölskyldur sínar hjá sér í berklaþorpinu, en sú ráðstöfun varð afar umdeild meðal lækna. Papworth­þorpið vakti athygli víða um lönd, þar á meðal á Íslandi. Tals­ verður áhugi var fyrir því að koma upp endurhæfingarmiðstöðvum í tengslum við sjúkrastofnanir á borð við Kópavogshæli, Kristsneshæli og hressingarhælið að Reykjum, en fjár­ skortur og fjöldi sjúklinga kom í veg fyrir að slíkt næði fram að ganga. Það var ekki fyrr en með stofnun Reykjalundar í Mosfellssveit að draumurinn rættist. Samband íslenskra berklasjúklinga, sem stofn­ að var árið 1938, festi í stríðslok kaup á þrjátíu hekturum lands undir hið nýja vinnuheimili. Framkvæmdir hóf­ ust þegar og þann fyrsta febrúar 1945 var fyrsti áfanginn tekinn í notkun. Stórátak í Mosfellssveit Bygging Reykjalundar var stór­ merkur þáttur í sögu íslenskra heil­ … og jafnvel línudansara á kvöldin! Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um fíl, apa og ljón. brigðismála og má segja að með framkvæmdunum hafi verið lyft grettistaki. Verkið var að mestu fjár­ magnað með almennum fjársöfn­ unum SÍBS og reyndi það mjög á hugkvæmni félagsmanna sem sífellt voru á höttunum eftir nýjum fjáröfl­ unarleiðum. Merkjasala var hin hefðbundna tekjulind samtakanna. Stjórnarráðið helgaði einn dag á ári berklavörnum, þar sem eitt og annað var gert til að vekja athygli á málstaðnum. Flutt voru útvarpserindi um berklasjúk­ dóminn og hornaflokkar léku á fjöl­ förnum götuhornum í Reykjavík. Sjálfboðaliðar gengu svo hús úr húsi og seldu merki dagsins með fallegum silkiborða til að næla í barminn. Best­ um árangri í merkjasölunni náðu þó hjúkrunarskólastúdínur sem þræddu skemmtistaði að næturlagi, íklæddar einkennisbúningi stéttarinnar. Árið 1945 efndi SÍBS einnig til veg­ legs happdrættis til styrktar Reykja­ lundar. Smáhappdrætti hvers kyns félagasamtaka voru algeng fjár­ öflunar aðferð og voru eftirsóttustu vinningarnir hvers kyns innfluttur neysluvarningur, svo sem heimilis­ tæki og bifreiðar. SÍBS­happdrættið gekk skrefinu lengra. Meðal smærri vinninganna voru píanó, radíógrammófónar, Kjar­ valsmálverk, golfáhöld og flugferð til New York, svo eitthvað sé nefnt. Þá var hægt að vinna skemmtibát og „héppa“, sem var metnaðarfullt nýyrði fyrir Jeep­bifreið. Aðalvinn­ ingurinn var hins vegar lítil farþega­ flugvél ásamt flugnámi. Vélin, sem lent gat bæði á sjó og landi, var sögð einhver fullkomnasta einkaflugvél Bandaríkjanna. Var henni fjálglega lýst í dagblöðum og meðal annars talið til kosta að veiði­ fúsir flugmenn gætu lent henni á vötnum og notað sem hraðbát. Endur­ speglar vinningurinn þá útbreiddu trú í lok fimmta áratugarins að einka­ flugvélar yrðu almenningseign innan fárra ára og álíka hvunndagslegur ferðamáti og bifreiðar. Landsmenn bitu á agnið og happ­ drættismiðarnir runnu út eins og heitar lummur. Svo fór að lokum að tvö ung systkini unnu flugvélina. Ekki gerðust börnin þó fluggarpar, heldur seldu vélina fyrirtæki sem stóð fyrir áætlunarflugi á milli Reykjavíkur og Akraness. Innfluttir skemmtikraftar Flugvélarhappdrættið mikla 1945 varð undanfari flokkahappdrættis SÍBS sem enn í dag er einhver mikil­ vægasta peningauppspretta samtak­ anna. Frumlegri fjáraflanir áranna í kringum 1950 tengdust þó hvers kyns skemmtanahaldi og innflutningi erlendra listamanna. Árið 1952 rann upp skringilegt og torskilið tónlistaræði í Svíþjóð. Ungur hrekkleysingi, Gösta Nordgren sem kallaður var Snoddas, sló í gegn fyrir hálfgamaldags vísnasöng og skringi­ lega raddbeitingu. Snoddas, sem jafnframt bar viðurnefnið „gúmmí­ karlinn“ frá því að faðir hans drýgði tekjurnar með smokkasölu, naut fádæma vinsælda í heimalandinu um nokkurra mánaða skeið vetur­ inn 1952­53, þótt óljóst væri hvort aðdáunin væri fölskvalaus eða hvort verið væri að skopast að listamann­ inum. Ljúflingurinn Snoddas hafði hug á að heimsækja Ísland og var til í að koma hingað gegn því einu að fá greiddan ferðakostnað og uppihald. Snoddas tróð upp á tíu tónleikum og var uppselt á þá alla, enda þótti ekkert slor að fá hingað til lands vin­ sælasta tónlistarmann Svíþjóðar. Tvær grímur runnu þó á suma áhorf­ endur þegar Snoddas hóf upp raust sína og var frammistaða Svíans lengi á eftir rifjuð upp sem áminning um að erlendar vinsældir væru ekki endi­ lega trygging fyrir gæðum. Reiður tónlistar­ unnandi skrifaði harðorða grein í Jazzblaðið í kjöl­ far tónleikaferðar­ innar og vandaði ekki aðstandend­ um kveðjurnar. „Mergur málsins er einfaldlega sá að „Snoddas“ er saklaus ein­ feldningur, sem útsmoginn „bus­ inessmaður“ að nafni Adenby hefur „blöffað“ hálfa Evrópu með undanfarið ár.“ Og áfram hélt greinarhöfundur: „Sóló­ lög mannsins voru svo algjörlega fyrir neðan allar hellur, að fimmtán ára strákar, sem voru búnir að eiga harmoniku í tvo mánuði gengu út af hljómleikunum stórhneykslaðir.“ Meiri og almennari ánægja var með aðra tónleika SÍBS á þessum árum. Síðla árs 1953 fluttu samtökin til að mynda inn sænsku söngkonuna og kvikmyndastjörnuna Alice Babs, sem gallhörðustu Júróvisjón­nirðir þekkja kannski sem fulltrúa Sví­ þjóðar á fyrstu Söngvakeppni evr­ ópskra sjónvarpsstöðva nokkrum árum síðar. Alice Babs kom fram tólf sinnum fyrir troðfullu Austur­ bæjarbíói og skilaði drjúgum tekjum í félagssjóðinn. Ekki tókst þó alltaf jafn vel til með innflutning erlendra skemmtikrafta. Ferðakostnaðurinn var hár og lítið mátti út af að bera til að tap yrði á öllu saman. Ákváðu stjórnendur SÍBS því á seinni hluta sjötta ára­ tugarins að hætta slíkum ævintýrum. Svanasöngurinn var tónleikahátíðin Tónaregn sem haldin var í Austur­ bæjarbíói vorið 1957. Þar léku annars vegar kunnir íslenskir tónlistarmenn dægurlög af vinsældalistum austan hafs og vestan. Því næst tók við enska rokkhljómsveitin Tony Crombie and his Rockets. Má telja þetta einhverja fyrstu íslensku rokktónleikana og fengu þeir þá umsögn tónlistargagn­ rýnanda að þar hefðu farið saman hávaði, æðisgengin öskur og algjör múgsefjun. Þrátt fyrir mikilsvert framlag sitt til útbreiðslu rokksins, hlýtur merkasta fjáröflun SÍBS á þess­ um tíma þó að teljast koma Cirkus Zoo árið 1951. Víðfrægur sirkus Líkt og aðrir skemmtikraftar sem SÍBS flutti hingað til lands, var sirkus þessi sænskur. Stjórnandinn, Trolle Rhodin, var af kunnustu sirkusfjölskyldu Sví­ þjóðar. Faðir hans heillaðist af undra­ heimi fjölleikahússins þegar hann sá bandarísku goðsögnina Buffalo Bill ferðast um Evrópu í lok nítjándu aldar. Innblásinn af Vísunda­Billa varð hann sér út um kúrekaföt, barðastóran hatt, glæsilegt yfirvaraskegg og viðurefni sem minnti á vesturheim – Brazil Jack. Sirkus Brazil Jack varð kunnur um öll Norðurlönd en sonurinn gekk skrefinu lengra og ferðaðist víða um lönd. Cirkus Zoo varð til að mynda fyrsta vestur­evrópska fjölleikahúsið til að heimsækja Sovétríkin og mun hafa haft mikil áhrif á rússneska sirkushefð. Eins og nafnið gefur til kynna voru tamin dýr í veigamiklu hlut­ verki í Cirkus Zoo, sem raunar var kallaður dýragarður en ekki sirkus í fyrstu blaðafregnum hér á landi. Í fjölleikahúsinu var hálfvaxinn fíll sem gekk undir nafninu Baba. Ekki verður séð af auglýsingum eða blaða­ greinum að fíllinn hafi sýnt neinar sérstakar kúnstir, en Reykvíkingum stóð á sama enda slík skepna nægi­ lega framandi. Meira líf var í hvítabjörnunum tíu sem átján ára tamningarmaður lét sýna listir sínar, þar á meðal að fara í rennibraut. Þrír skógarbirnir voru líka á sýningarskránni og hlupu meðal annars á hlaupahjóli. Pólskur dvergur var með trúðslæti og fjöldi fimleikamanna sýndi hvers kyns jafnvægislistir og glæfrafimleika – svo vitnað sé í fréttatilkynningar. Sýningar Cirkus Zoo fóru fram í 2.000 manna tjaldi sem komið var upp í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli. Djarft var teflt enda koma sirkussins fokdýr. Til að auka enn á spennuna greip SÍBS til þess ráðs að láta flugvél svífa yfir höfðum Reykvíkinga með borða þar sem nafn sirkussins var áletrað. Mætingin var þó undir væntingum á fyrstu sýningarnar eða allt þar til dýrahópurinn var fullkomnaður. Með næstu skipalest komu nefnilega fjögur ljón til viðbótar við dagskrána. Voru þau sögð af norður­afrískum stofni ljóna, sem evrópskir höfðingjar héldu um aldir sem stofustáss, en sem dóu út einmitt um þessar mundir. Allir vildu sjá konung dýranna og upp frá því var uppselt á hverja sýn­ ingu. Í allt sáu um 42 þúsund Íslend­ ingar sirkusinn í flugskýlinu eða nærri þriðja hvert mannsbarn í landinu. Sjóðir Reykjalundar bólgnuðu og mikilvægur kafli var skrifaður í sögu skemmtana og afþreyingar á Íslandi. Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Jón Stefánsson Stærsta uppboð ársins · óvenju margar perlur gömlu meistaranna mánudaginn 30. maí, kl. 18 og þriðjudaginn 31. maí, kl. 18 Listmunauppboð í Gallerí Fold Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Forsýning í Gallerí Fold mánudag kl. 10–17 og þriðjudag kl. 10–17 2 8 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R38 h e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.