Fréttablaðið - 28.05.2016, Qupperneq 80
„Ég hef reyndar undanfarin ár verið duglegur við að segja já þegar mér hafa verið boðin verkefni og hef haft ískyggilega mikið að gera – fyrir
svona aldraðan mann.“ FrÉttablaðið/anton brink
„Þetta er hæsta tala sem ég hef náð fram að
þessu. Persónulegt met í aldri,“ segir Guðni
Kolbeinsson þýðandi glaðbeittur þegar
hann er spurður hvernig sjötugsafmælið
fari í hann. Hann svarar símanum austur
í Selvogi, er þó á leið til Reykjavíkur en
kveðst hafa stigið út úr bifreiðinni þegar
ég hringdi. Svona er hann löghlýðinn
borgari. En er orðið vorlegt í Selvoginum?
„Já, já, það er bara notalegt. Það var samt
bálhvasst hér í gærkveldi.“
Þar með upplýsir Guðni að hann hafi
gist í sveitinni. „Já, ég var að reyna að veiða
bleikju í Hlíðarvatni. Hvernig gekk? Ja, ég
fékk í soðið. Maður verður nú að ráða við
að gera að því sem maður veiðir!“ segir
hann og frekari aflatölur fæ ég ekki.
En breytir það einhverju fyrir þýðanda
að verða sjötugur? „Ekkert voða miklu,“
svarar hann og kveðst að mestu ráða tíma
sínum sjálfur. „Ég hef reyndar undan-
farin ár verið duglegur við að segja já
þegar mér hafa verið boðin verkefni og
hef haft ískyggilega mikið að gera – fyrir
svona aldraðan mann! Ég er býsna önnum
kafinn þessa dagana en samt er allt undir
kontról.“
Hann kveðst sjaldan taka löng og mikil
sumarfrí. „Ég fer á Hornstrandir í nokkra
daga og í veiði í nokkra daga – allt frekar
stuttar skreppur,“ upplýsir hann og kveðst
heimsækja Hornstrandir árlega, þær séu í
uppáhaldi. „Ég er ættaður úr Hælavík en
þar eru bara tóftir sem hafið er að berjast
við að taka frá okkur svo ég held dálítið
mikið til í Hlöðuvík, næstu vík við. Þar er
húsakostur og ég hef þar innhlaup. Reyni
að fara með stórfjölskylduna að minnsta
kosti annað hvert ár en sjálfur á hverju
ári. Hallvarður Guðlaugsson, frændi minn
frá Hlöðuvík, byggði þar hús, fyrst eitt og
síðan tvö og sá um að ættin fengi að njóta.“
Hvernig ferðist þið þangað? „Við leigj-
um okkur bát og siglum frá Bolungarvík,
svo förum við með gúmmíbát síðasta
spölinn. Landtakan er oft spennandi því
það er hált í fjörunni.“
Afmæli Guðna er sem sagt í dag og
hann kveðst ætla að halda „smá boð“ fyrir
nánustu ættingja og vini. Heima? „Nei,
reyndar er það nú í sal, nánustu ættingjar
og vinir verða fljótt fjári margir.“
gun@frettabladid.is
Persónulegt met í aldri
Hvaða þýðingu hefur það fyrir þýðanda að verða sjötugur? Guðni Kolbeinsson svarar því
og fleiri laufléttum spurningum, þar sem hann er staddur í veiðitúr austur í Selvogi.
Við leigjum okkur bát
og siglum frá Bolungar-
vík, svo förum við með gúmmí-
bát síðasta spölinn. Landtakan
er oft spennandi því það er hált í
fjörunni.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Þórðardóttir
Hjúkrunarheimilinu Eir,
áður að Dalbraut 14, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir
miðvikudaginn 25. maí.
Erna Sigríður Sigursteinsdóttir Torfi Elís Andrésson
Haraldur Sigursteinsson Erla Ívarsdóttir
Garðar Sigursteinsson Elín Margrét
Hárlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum
auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát
og útför okkar
ástkæru
Jóhönnu Hákonardóttur
og móður hennar,
Sigurlaugar Helgu Leifsdóttur
Útförin fór fram þann 17. maí frá Fossvogskirkju
í Reykjavík.
Leifur Hákonarson
Sigurlaug Helga Teitsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Sigurðardóttir
f. 01.10. 1941
Vatnsdalshólum,
andaðist á hjartadeild Landspítalans
þann 20. maí.
Útför hennar fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 7. júní
kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja
minnast hennar geta haft samband við Hjartaheill,
sími 552-5744.
Bertha Sigríður Eronsdóttir Garðar Gunnarsson
Sigurður Hreinn Eronsson
Hólmfríður Karlsdóttir
Hrefna Hrund Eronsdóttir
Arnór Þór Jónsson
Guðrún Inga Vigfúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Snævar Jón Andrésson
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti
undirbúnings og framkvæmd
útfarar ásamt vinnu við dánar-
bússkiptin. Við þjónum með
virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996
Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson
2 8 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R40 t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð
tímamót