Fréttablaðið - 28.05.2016, Qupperneq 84
Brandarar
Listaverkið
Bragi Halldórsson
201
„Þetta er nú meira veggskriflið,“ sagði Kata, þar sem þau komu að
hlaðinni steingirðingu. „Hér vantar nánast annan hvern stein,“ bætti hún
við með fyrirlitningu. „En hann er nú bara að verða gamall,“ sagði Konráð.
„Það gerir hann ekki endilega að vondum vegg, bara laslegum,“ bætti
hann við. „Það vantar til dæmis ansi marga steina í þetta gat hérna fyrir
framan okkur,“ sagði Kata og hélt áfram að úthúða veggnum. Konráð varð
að viðurkenna að það vantaði jú ansi marga steina í þetta gat. „En við
verðum að troða okkur í gegnum það ef við ætlum að komast
eitthvað áfram,“ sagði Kata. „Spurning hvort það vanti það marga steina
að við komumst í gegnum gatið,“ bætti hún við.
Hversu marga steina skyldi vanta?
Getur þú talið þá? Eru þeir:
A 20
B 25
D 30
Svar: B
Hún heitir Krot, segir Baldur Logi Freysson,
listamaður vikunnar, um mynd sína.
Hermann og Sandra Sif með heimilistíkina Ösku á milli sín. Fréttablaðið/Hulda
Sandra Sif, átta ára, og Hermann,
fimm ára, eru fjörugir krakkar
sem rétt mega vera að því að
stilla sér upp fyrir ljósmyndara
Fréttablaðsins. Hermann er að
koma úr kvikmyndatöku og
Sandra Sif er að fara á vorhátíð
í skólanum. En bæði eru nýlega
komin úr ferðalagi með foreldr-
um sínum austur í Öræfi, sem er
sveit við rætur Vatnajökuls.
Skyldu þau fara oft upp í sveit?
Sandra: Já, við förum stundum
í Öræfin, að Hofi og Hnappa-
völlum.
Hermann: Við fórum núna og
kíktum á sauðburðinn.
Hjálpuðuð þið til við búskapinn?
Sandra: Já, ég fékk að hjálpa til
að gefa kindunum hey í fjárhús-
inu hjá Adda bónda. Ég fékk líka
að fylgjast með ánum bera og
hjálpaði líka við að smala þeim
sem voru úti á túni með lömbin
í gott skjól fyrir ofan hlöðu áður
en nóttin kom.
Hermann: Það var ein kind sem
var að reyna að stanga mig og
passa lambið sitt. Við skírðum
hana Pirrulínu, af því hún var svo
pirruð á okkur og vildi ekki hafa
okkur nálægt sér.
Lentuð þið í fleiri ævintýrum?
Sandra Sif: Við fórum með
pabba að veiða silung. Það var
mjög skemmtilegt. Svo fór ég
með mömmu og ömmu í fjall-
göngu upp að einum helli sem
heitir Hrognhellir.
Hermann: Við fórum líka að
leita að skúmseggjum og ég
fann eitt egg en enginn annar í
fjölskyldunni minni fann egg.
Ég veiddi líka tvo silunga með
pabba mínum.
Skírðu kindina Pirrulínu
Systkinin Sandra Sif og Hermann Samúelsbörn skruppu upp í sveit
um daginn og upplifðu ýmislegt skemmtilegt, svo sem sauðburð og
silungsveiði. Hermann fann skúmsegg og Sandra Sif kíkti inn í helli.Óli: Nú get ég varið mig ef einhver
ræðst á mig. Ég er byrjaður að æfa
karate og er þegar búinn að brjóta
múrstein með hnefanum.
Valdi: Það er flott hjá þér, en er
ekki frekar sjaldgæft að múrsteinar
ráðist á fólk?
Sigga: Hvernig gengur með bókina
sem þú varst að skrifa um sjálf-
styrkingu og hugrekki?
Palli: Bara vel. En ég hef bara ekki
þorað með hana til útgefanda
ennþá.
Gunnar þrammaði fram og aftur um
gólfið á meðan hann blés í trompet-
inn. Að lokum gafst nágranninn
upp, bankaði hjá honum og sagði:
„Þessi hávaði er alveg óþolandi.“
„Fyrirgefðu,“ svaraði Gunnar, fór úr
skónum og hélt áfram að spila á
trompetinn á sokkunum.
regína: „Þjónn! Ég ætla að fá salt-
fisk.“
Viltu portúgalskan eða íslenskan?
regína: „Það skiptir engu máli, ég
ætla ekki að tala við hann.“
ALLAR HELGAR
365.is Sími 1817
Afinn sem allir elska og fjörugu vinkonurnar Skoppa
og Skrítla skemmta börnum og foreldrum á laugardags-
og sunnudagsmorgnum á Stöð 2.
HELGARFJÖR FYRIR FLOTTASTA FÓLKIÐ
2 8 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R44 h e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð