Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 84

Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 84
Brandarar Listaverkið Bragi Halldórsson 201 „Þetta er nú meira veggskriflið,“ sagði Kata, þar sem þau komu að hlaðinni steingirðingu. „Hér vantar nánast annan hvern stein,“ bætti hún við með fyrirlitningu. „En hann er nú bara að verða gamall,“ sagði Konráð. „Það gerir hann ekki endilega að vondum vegg, bara laslegum,“ bætti hann við. „Það vantar til dæmis ansi marga steina í þetta gat hérna fyrir framan okkur,“ sagði Kata og hélt áfram að úthúða veggnum. Konráð varð að viðurkenna að það vantaði jú ansi marga steina í þetta gat. „En við verðum að troða okkur í gegnum það ef við ætlum að komast eitthvað áfram,“ sagði Kata. „Spurning hvort það vanti það marga steina að við komumst í gegnum gatið,“ bætti hún við. Hversu marga steina skyldi vanta? Getur þú talið þá? Eru þeir: A 20 B 25 D 30 Svar: B Hún heitir Krot, segir Baldur Logi Freysson, listamaður vikunnar, um mynd sína. Hermann og Sandra Sif með heimilistíkina Ösku á milli sín. Fréttablaðið/Hulda Sandra Sif, átta ára, og Hermann, fimm ára, eru fjörugir krakkar sem rétt mega vera að því að stilla sér upp fyrir ljósmyndara Fréttablaðsins. Hermann er að koma úr kvikmyndatöku og Sandra Sif er að fara á vorhátíð í skólanum. En bæði eru nýlega komin úr ferðalagi með foreldr- um sínum austur í Öræfi, sem er sveit við rætur Vatnajökuls. Skyldu þau fara oft upp í sveit? Sandra: Já, við förum stundum í Öræfin, að Hofi og Hnappa- völlum. Hermann: Við fórum núna og kíktum á sauðburðinn. Hjálpuðuð þið til við búskapinn? Sandra: Já, ég fékk að hjálpa til að gefa kindunum hey í fjárhús- inu hjá Adda bónda. Ég fékk líka að fylgjast með ánum bera og hjálpaði líka við að smala þeim sem voru úti á túni með lömbin í gott skjól fyrir ofan hlöðu áður en nóttin kom. Hermann: Það var ein kind sem var að reyna að stanga mig og passa lambið sitt. Við skírðum hana Pirrulínu, af því hún var svo pirruð á okkur og vildi ekki hafa okkur nálægt sér. Lentuð þið í fleiri ævintýrum? Sandra Sif: Við fórum með pabba að veiða silung. Það var mjög skemmtilegt. Svo fór ég með mömmu og ömmu í fjall- göngu upp að einum helli sem heitir Hrognhellir. Hermann: Við fórum líka að leita að skúmseggjum og ég fann eitt egg en enginn annar í fjölskyldunni minni fann egg. Ég veiddi líka tvo silunga með pabba mínum. Skírðu kindina Pirrulínu Systkinin Sandra Sif og Hermann Samúelsbörn skruppu upp í sveit um daginn og upplifðu ýmislegt skemmtilegt, svo sem sauðburð og silungsveiði. Hermann fann skúmsegg og Sandra Sif kíkti inn í helli.Óli: Nú get ég varið mig ef einhver ræðst á mig. Ég er byrjaður að æfa karate og er þegar búinn að brjóta múrstein með hnefanum. Valdi: Það er flott hjá þér, en er ekki frekar sjaldgæft að múrsteinar ráðist á fólk? Sigga: Hvernig gengur með bókina sem þú varst að skrifa um sjálf- styrkingu og hugrekki? Palli: Bara vel. En ég hef bara ekki þorað með hana til útgefanda ennþá. Gunnar þrammaði fram og aftur um gólfið á meðan hann blés í trompet- inn. Að lokum gafst nágranninn upp, bankaði hjá honum og sagði: „Þessi hávaði er alveg óþolandi.“ „Fyrirgefðu,“ svaraði Gunnar, fór úr skónum og hélt áfram að spila á trompetinn á sokkunum. regína: „Þjónn! Ég ætla að fá salt- fisk.“ Viltu portúgalskan eða íslenskan? regína: „Það skiptir engu máli, ég ætla ekki að tala við hann.“ ALLAR HELGAR 365.is Sími 1817 Afinn sem allir elska og fjörugu vinkonurnar Skoppa og Skrítla skemmta börnum og foreldrum á laugardags- og sunnudagsmorgnum á Stöð 2. HELGARFJÖR FYRIR FLOTTASTA FÓLKIÐ 2 8 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R44 h e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.