Fréttablaðið - 28.05.2016, Qupperneq 91
Hvað? Phoenix Reykjavík
Hvenær? 14.30
Hvar? Snarfarahöfn
Ferðalag um landslag tilfinning-
anna þar sem gestir eru leiddir um
höfnina, báta, tjöld og fjöruna með
tilheyrandi upplifunum. Miðaverð
2.500 krónur.
Hvað? Vorhátíð Vallahverfisins og
lokahátíð Hraunvallaskóla
Hvenær? 14.00
Hvar? Framan við Hraunvallaskóla
Glæsileg atriði verða á boðstólum,
svo sem Jóhanna Ruth úr Ísland Got
Talent, Leikhópurinn Lotta, Zumba
frá Reebok, Gospelkór Ástjarnar-
kirkju ásamt hæfileikaríkum
krökkum úr Hraunvallaskóla í til-
efni Vorhátíðarinnar. Kynnir er eng-
inn annar en Gói og hefst dagskráin
stundvíslega klukkan 14.00. Opið
hús hjá Reebok fitness frá klukkan
10, ókeypis í sund í Ásvallalaug frá
kl. 10.00-13.00 og sundknattleiks-
deild SH kynnir sundknattleik í
sundlauginni frá kl. 11.30-13.00.
Allir velkomnir.
Hvað? Dr. Bæk fer yfir reiðhjólin
Hvenær? 12.30
Hvar? Borgarbókasafnið, Menningar-
hús, Sólheimum
Í dag, laugardag, geta allir komið
með hjólið sitt og fengið það
ástandsskoðað af sérfræðingum Dr.
Bæk. Komið og látið athuga loft-
þrýsting í dekkjum, smurningu á
keðjum, bremsur og gíra þannig að
hjólið sé klárt fyrir sumarið. Þátt-
taka ókeypis.
Hvað? Skákakademían á leik
Hvenær? 13.00
Hvar? Menningarhús, Spönginni
Fyrir áhugasama um að læra að tefla
eða rifja upp gamlar hrók eringar
stendur til boða að heimsækja
Skák akademíu Reykjavíkur sem
verður á safninu í dag. Allir vel-
komnir.
Námskeið
Hvað? Námskeið í rafhljóðfærasmíði
Hvenær? 17.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2
Jari Suominen sýnir þátttakendum
hvernig hægt er að búa til hljóð-
gervil. Þátttökukostnaður miðast
við efniskostnaðinn og er 4.200
krónur. Allir velkomnir.
Dans
Hvað? Tangó Sólstöðuhátíð Tangó-
ævintýrafélagsins
Hvenær? 11.00
Hvar? Dansskóli Jóns Péturs og Köru,
Síðumúla 30
Í ár fagnar Tangóævintýrafélagið
10 ára afmæli sínu og heldur upp
á tímamótin með alþjóðlegu
tangóhátíðinni: Tango Solstice Re-
treat sem fer fram dagana 27.-30.
maí. Fjögur námskeið í boði og
kennarar eru Ellen Engvall, Mari-
ana Docampo, Leonardo Sardella,
Helen La Vikinga og Walter Perez.
Námskeiðsgjald er 4.900 krónur.
Leiðsögn
Hvað? Leiðsögn og spjall Bjarna Bern-
harðs
Hvenær? 14.00
Hvar? Menningarhúsi Gerðubergi
Verk Bjarna Bernharðs myndlistar-
manns eru til sýnis í Gerðubergi og
ætlar listfræðingurinn Jón Proppé
að bjóða gestum safnsins í leið-
sögn um verk Bjarna. Leiðsögnin
er öllum opin.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
29. maí 2016
Dans
Hvað? Tangósólstöðuhátíð Tangóævin-
týrafélagsins
Hvenær? 13.00
Hvar? Kaffi Sólon, Bankastræti 7a,
2. hæð
Áframhaldandi afmælisfagnaður
Tangóævintýrafélagsins. Í dag,
sunnudag, verður dagskrá frá
klukkan 13.00 og hefst á nám-
skeiðum og lýkur með hugleiðslu
við Sólfarið við Sæbraut klukkan
22.00. Allir velkomnir.
Sýningar
Hvað? Sýningarstjóraspjall
Hvenær? 14.00
Hvar? Hafnarborg
Sumarsýning Hafnarborgar,
Ummerki vatns, var opnuð fyrir
helgi. Í dag, sunnudag verður
boðið uppá sýningarstjóraspjall,
en þau Ágústa Kristófersdóttir,
forstöðumaður Hafnarborgar, og
Birgir Snæbjörn Birgisson mynd-
listarmaður sjá um sýningar-
stjórnun.
Á TEDxReykjavík-ráðstefnunni eru margir spennandi fyrirlestrar í boði.
„TEDx er sjálfstætt starfandi afsprengi
TED talks sem eiga sér uppruna í Sili-
con Valley í Bandaríkjunum. Þetta eru
svona ráðstefnur til að mynda vett-
vang fyrir fólk til að hittast og deila
hugmyndum hvert með öðru sem svo
rata út í heiminn og breyta honum til
hins betra. Við vildum koma af stað
svona vettvangi hér á Íslandi. Við
erum með 10 fyrirlesara og tvö tón-
listaratriði,“ segir Einar Valur Más-
son, einn af skipuleggjendum ráð-
stefnunnar.
Meðal fyrirlesara verða þær Una
Torfadóttir og Margrét Snorradóttir
en þær eru 16 ára og hafa vakið
athygli fyrir að koma femínískum
boðskap á framfæri á frumlegan
hátt, en Una var einn höfunda sig-
uratriðis Skrekks, „Elsku stelpur“,
sem var dreift víða á netinu á sínum
tíma. Margrét stofnaði femínistafélag
í Hagaskóla og vakti athygli fjölmiðla
með því að bjóða upp á ókeypis túr-
tappa í skólanum. Þær munu í fyrir-
lestri sínum fjalla um mikilvægi þess
að konur taki pláss og séu sýnilegar.
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jóns-
dóttir, trans- og hinsegin aktívisti,
talar um reynslu sína sem trans-
manneskja í tvívíðu samfélagi. Tara
Ösp Tjörvadóttir, ljósmyndari, kvik-
myndagerðarkona og manneskjan á
bak við kassamerkið #Égerekkitabú,
ræðir um möguleika samfélagsmiðla
til að bæta geðheilsuna. Vignir Örn
Guðmundsson, stofnandi og forstjóri
Radiant Games, flytur fyrirlestur um
mikilvægi forritunar og þess að kenna
börnum tölvunarfræði. Tómas Guð-
bjartsson læknir verður með erindi
um náttúruvernd og Vilborg Arna
Gissurardóttir fjallar um svaðilför
sína á Suðurskautslandi.
Ráðstefnan hefst klukkan 09.00 í
Austurbæ og stendur til 17.00. Boðið
verður upp á léttar veitingar og miða-
verð er 7.500 krónur. – sþh
TEDxReykjavík haldin í sjötta sinn
-AFTENPOSTEN
Sýningartímar á eMiði.is, miði.is og smarabio.is
SJÁÐU EM 2016
Í SMÁRABÍÓI
NÁNAR Á SMARABIO.IS/EM
Sturlugata 5, 101 Reykjavík
www.norraenahusid.is
Vatnsmýrarhátíð 2016
Norræna húsinu, sunnudaginn 29. maí
Til að fagna sumri býður Norræna húsið öllum krökkum
og fjölskyldum þeirra á hina árlegu Vatnsmýrarhátíð
Dagskrá (13:00–15:00)
– Hátíðin sett og glæný leiktæki frá Krumma vígð
– Dr. Bæk hressir hjólin fyrir sumarið
– Ratleikur
– Teiknismiðjur
– Krakkaball og dansleikir með Margréti Maack plötusnúð
– Ísbíllinn mætir á svæðið – ring-ring!
– Grillaðu þitt eigið skandinavíska „snobrød“ (snúningsbrauð)
– Koddabíó
Þátttaka er ókeypis!
M e N N i N g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 51L A U g A R D A g U R 2 8 . M A í 2 0 1 6