Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 98
Guðrún Jóna
Stefánsdóttir
gudrunjona@frettabladid.is
Hildir Kristín
stefánsdóttir
söngkona
Tókýó er mín uppáhaldsborg.
Ég bjó þar í eitt ár og ég var jafn
hrifin á hverjum einasta degi. Þú
finnur allt sem þú getur ímyndað
þér og hafðir aldrei ímyndað þér á
sama stað, Borgin er svo yndislega
skrýtin en ótrúlega vinaleg á sama
tíma. Hún skiptist upp í mörg
áhugaverð hverfi sem eru öll eins
og minni borgir í rauninni. Mitt
uppáhalds heitir Shimokitazawa
sem er voðaleg „up-coming“ og artí
hverfi með mjög rólegu yfirbragði
miðað við ys og þys stóru hverf-
anna.
ágúst Bent
sigBertsson
rappari og
leikstjóri
Uppáhalds-
borgin mín
er Reykjavík.
Alltaf þegar ég
fer til útlanda fæ
ég kvíðakast yfir því
að vera að missa af góðri veislu á
Prikinu. Það er líka allt of mikill
raki í útlöndum og enginn Nonna-
biti. Hér er hægt að gefa öndunum
brauð og aðra hluti, það er líka
hægt að fara í sjósund ef maður er
masókisti eða bara fara í sólbað/
mótmæli á Austurvelli. Best er að
kaupa hjólkoppa hjá Valda, kok-
teila á BarAnanas og gamla Pez-
kalla í Kolaportinu. Passið bara
að kaupa ekki óvart léttöl og ekki
nota kreditkort á Shooters.
JóHannes HauKur
JóHannesson
leikari
Ég hef á undanförnum tveimur árum
verið ansi mikið að vinna erlendis
og hef fengið að kynnast ýmsum
borgum. Eftir margra mánaða dvöl
í Búdapest, Vancouver, Marrakesh,
Belfast og víðar hef ég komist að þeirri
niðurstöðu að mér líður best í Reykja-
vík. Það er ótrúlega gott að vera í borg
eins og Reykjavík þar sem við höfum
allt til alls en erum enn þá mátulega
smá til að manni líði vel. Ég bý nú í
Laugardalnum sem ég fullyrði að er
einn besti staður að búa á í heimi.
Nálægðin við alla náttúruna í daln-
um, allt íþróttastarfið og menningin,
miðbærinn í 5 mínútna fjarlægð gerir
þetta að algjörum sælureit. Svo erum
við með Laugardalslaugina nánast í
bakgarðinum og bestu líkamsræktar-
stöð landsins þar við hliðina.
rúnar freyr gíslason
leikari
New York er uppáhaldsborgin mín. Mér
finnst alltaf alveg frábært að vera þar. Það
er einhvern veginn allt þarna, maður getur
rölt um borgina í marga daga og alltaf séð
eitthvað spennandi. Leikhúsin þarna finnst
mér æðilsleg, fólkið fjölbreytilegt og veðrið
yfirleitt þægilegt. Lætin eru náttúrulega
mikil, en þá getur maður alltaf farið í Central
Park og slakað á. Algjörlega frábær staður að
heimsækja.
Hallfríður Þóra
tryggvadóttir
leikhúsframleiðandi og
markaðsstjóri Tjarnarbíós
Þegar ég lendi í New York þá líður
mér eins og ég sé komin í mína
aðra heimaborg. Samt kemur hún
manni sífellt á óvart með sínum
magnaða fjölbreytileika. Uppá-
haldshverfin mín eru Lower East
Side á Manhattan og Williamsburg
í Brooklyn. Þar er frábært að kíkja
inn í litlar búðir og hitta skemmti-
legt fólk í bröns. Mæli með þak-
börunum Mr. Purple á Lower East
Side og á Wythe Hotel í Williams-
burg við sólsetur. Þar getur að líta
listaverkið, sem skýjakljúfar New
York eru. Listasenan er iðandi eins
og mannlíf borgarinnar. Mæli með
leiksýningunni Sleep No More, sem
er einstök upplifunarsýning. Í haust
fer ég í framhaldsnám við Columbia-
háskóla og get ekki beðið eftir að
kynnast borginni enn betur.
erpur
eyvindarson
tónlistarmaður
Kúba er kraftmesti
rommkokteillinn af
ólíkustu menningar-
heimum sem mætast
og blandast frábærlega
en standa einnig upp-
runalegir. Til að stikla
á stóru þá mætast
vindlafýringar frum-
byggjanna, spænsk
klassík nýlendu-
tímans, bandarísk
áhrif mafíutímans í
næturlífinu, sovésku
áhrifin í íþróttunum
og ballettinum,
tónlist og dans sem barst með
Afríkuþrælunum og þar fram eftir
götunum. Havana er gríðarlega
kraftmikil, gestrisin, stolt, hrá og lif-
andi.
Höfuðborg Kúbu er uppá-
haldsborgin mín.
alda dís
arnardóttir
söngkona
Uppáhaldsborgin mín
um þessar mundir er
San Francisco. Hún er
ótrúlega falleg, stór
en samt getur maður
labbað út um allt og
hægt er að gera bók-
staflega allt. Það er
frábær upplifun að
hjóla yfir Golden
Gate-brúna, svo er
líka hægt að skoða
Alcatraz-fangelsið
ásamt óteljandi
földum gim-
steinum sem San
Francisco hefur
upp á að bjóða.
san francisco
reykjavík
gunnar Hansson
leikari
London er mín uppáhaldsborg. Hef
komið þangað oftar en til nokkurrar
annarrar borgar og hér líður mér
alltaf vel. Ég á marga uppáhalds-
staði þar, það er frábært að ganga
um í görðunum og út um alla borg.
Camden Town er í miklu uppáhaldi
hjá mér, svo kynntist ég nýju hverfi
í síðustu ferð minni til London,
sem er Shoreditch, frábært hverfi
sem var eiginlega yfir-
tekið af listafólki þegar
hverfið var í hálfgerðri
niðurníðslu, þar er að
finna Brick Lane-
markaðinn og ótal
kaffihús og matsölu-
staði ásamt Al Amin,
besta indverska stað sem
ég hef prófað.
Flest allir eiga sér eina uppáhaldsborg. Oft eru það góðar
minningar sem skapa staðnum sérstakan sess og oft
er það líka staðurinn sjálfur sem spilar stórt hlutverk.
Fréttablaðið fór á stúfana og heyrði í nokkrum einstak-
lingum sem allir eiga það sameiginlegt að ferðast mikið. new york
ó, borg, mín borg
Hallfríður Þóra
elskar New York.
2 8 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R58 L í f i ð ∙ f R É T T a B L a ð i ð
Lífið
Havanatokýó
Alda Dís ásamt
kærasta sínum
Ásgeir Vísi.
london
Erpur ásamt góðum
vinum á Kúbu.
Hildur Kristín
kress og kát
í uppáhalds-
borginni sinni.