Fréttablaðið - 28.05.2016, Side 100
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
22.05.16-
28.05.16
Það er skotheLd
Leið í Þessum
samféLagsmiðLaheimi
að haLda áfram að
hLaða efni inn á
netið.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
HEILSUDÝNA HÖNNUÐ Í SAMVINNU VIÐ
AMERICAN SLEEP FOUNDATION
TIL AÐ LEYSA 5 ALGENGUSTU SVEFNVANDAMÁLIN
L O S A Ð U Þ I G V I Ð
S V E F N VA N D A M Á L I N
Í E I T T S K I P T I F Y R I R Ö L L
KEMUR Í VEG
FYRIR MYNDUN
ÞRÝSTIPUNKTA
CARBON STEEL
POKAGORMA-
KERFI
HELDUR JÖFNU
OG RÉTTU SVEFN-
HITASTIGI
HINDRAR ÓÞARFA
HREYFINGU MILLI
REKKJUNAUTA
STEYPTAR
HLIÐARST YRKINGAR
A F S L ÁT T U R
25%
KO M D U N Ú N A !
S E R TA-D A G A R
America’s #1
Mattress Manufacturer
Þetta byrjaði allt snemma árs 2015, þegar ég fór til Asíu í bakpokaferðalag með bestu vinum mínum og sýndi frá því að ein-
hverju leyti á Snapchat. Það var hins
vegar lítið um nettenginu víðsvegar
um Asíu svo þetta var ekki mikið og
eingöngu til þess að sýna nánustu
vinum frá ferðinni minni. Þegar
heim var komið bauðst mér fljótlega
að mynda íslensku crossfit-kepp-
endurna á leið þeirra á heimsleikana
í crossfit. Ég þekki keppendurna vel
og var ekki lengi að taka tilboðinu,“
segir Snorri Björnsson, ljósmyndari
og Snapchat-stjarna, spurður hvernig
það bar til að hann fór á fullt að nýta
sér snjallsímaforritið Snapchat.
Snorri vakti töluverða athygli þegar
snap-sögurnar hans slógu í gegn á
meðan hann var á crossfit-leikunum
í Los Angeles.
„Ég var með þeim í þrjár vikur
fyrir leikana sjálfa að mynda æfinga-
búðirnar fyrir styrktaraðila þeirra en
þegar kom að leikunum sjálfum þá
mátti ég ekki mynda þar sem ég var
ekki með fjölmiðlapassa. Ég ákvað
að sýna þá bara frá mótinu í gegnum
Snapchat. Ég hafði samband við
símafyrirtækið Nova og lét þau vita
að ég væri í eins stuttu færi við kepp-
endurna og hægt væri og spurði hvort
Nova-snappið væri ekki kjörinn
staður til þess að sýna
frá mótinu. Hjá Nova
var víst búið að ráðstafa
snappinu í annað svo ég
tók mig til og gerði þetta bara á
eigin aðgangi og forsendum. Ég man
eftir því að vera í smá sjokki yfir því
að sjá átta hundruð manns fylgjast
með öllu sem ég gerði, þar á meðal
Arnar Grant íþróttakappa. Fljótlega
hafði Nova samband aftur og bauð
mér að sjá um aðganginn þeirra eftir
að hafa fengið ábendingar héðan og
þaðan. Það var freistandi að segjast
vera upptekinn en ég tók því að sjálf-
sögðu. Þá fóru áhorfin úr átta hund-
ruð manns yfir í þrjátíu þúsund,“ segir
Snorri, sem eftir leikana varð einn
vinsælasti snappari Íslands.
Eins og flestir vita þarf einstakl-
ingur sem heldur úti Snapchat-síðu
að vera virkilega sterkur karakter og
fara eflaust margir snapparar í það að
leika ákveðnar týpur. Ætli það komi
fyrir Snorra?
„Ég er lítið að leika einhverja týpu.
Þetta er algerlega filterslaus mynd af
því sem ég er að gera dagsdaglega. Ég
hef mjög gaman af því þegar virkir
snapparar eru að vinna með hinar
og þessar týpur en ég er
alls ekki góður í því svo
þetta er frekar heiðar-
legt með grín ívafi,“ segir
Snorri hlæjandi og bætir
við góðu ráði fyrir þá sem
vilja fjölga fylgjendum
sínum á samfélagsmiðl-
unum:
„Það er skotheld leið í
þessum samfélagsmiðlaheimi
að halda áfram að hlaða efni inn á
netið. Casey Neistat, YouTube-stjarna
sem er með þrjár milljónir fylgjenda,
sagði að það væru bara þrjú orð sem
lögðu honum línurnar fyrir það
hvernig ætti að nálgast þennan frá-
bæra árangur: „Just keep uploading.““
Fram undan er nóg um að vera hjá
Snorra en hann er um þessar mundir
staddur í Madríd á Spáni þar sem
hann er að snappa frá Evrópumeist-
aramótinu í crossfit.
„Það er mjög margt skemmtilegt á
döfinni en í júní er það Evrópumótið
í fótbolta og svo heimsmeistaramótið
í crossfit í ágúst. Með því er ég alltaf
að mynda einhver skemmtileg verk-
efni sem eru, ótrúlegt en satt, í meira
aðalhlutverki heldur en snöppin,“
segir Snorri spenntur fyrir sumrinu.
gudrunjona@frettabladid.is
Varð vinsælasti
snappari landsins
Snorri Björnsson, ljósmyndari og Snapchat-stjarna, hefur verið að
gera það gott, en hann er vinsæll á snjallsímaforritinu Snapchat þar
sem yfir tuttugu og þrjú þúsund manns fylgjast með honum daglega.
taka Þetta eins og
maradona ’86
„Við ákváðum að við
kæmum til baka
og myndum
taka þetta eins
og Maradona
gegn Eng-
landi ’86.“
Erpur Ey-
vindarson,
rappari
hjartað Leitar aLLtaf
heim
„Það var mikil og merk stund að sjá
stuttmyndina mína frumsýnda í
virtasta bíósal heims, umkringd fjöl-
skyldu og vinum,
samstarfs-
fólki og
kennur-
um. Það
gerist
ekki
betra.”
Ugla
Hauksdóttir,
leikstjóri
aLLir og ömmur Þeirra í
háLoftunum
„Síðast
þegar við
auglýstum
sóttu um
fimmtán
hundruð
manns um
starf.“
Svanhvít
Friðriksdótt-
ir, upplýs-
ingafulltrúi
WOW air
freknunum fLaggað
„Fólki finnst þetta svolítið furðu-
legt og spyr mig mikið hvers vegna
í ósköpunum ég sé að teikna á mig
freknur.“
Birna Magg,
förðunar-
fræðingur
Fylgjendur Snorra urðu skelkaðir er þeir fylgdust með honum lenda í bílslysi. Þó var um sviðsetningu að ræða undir for-
merkjum átaksins Höldum fókus. MyND/TJARNARGATAN
2 8 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R60 L í f i ð ∙ f R É T T a B L a ð i ð