Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2019, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.9. 2019
07.00 Strumparnir
07.25 Tindur
07.35 Blíða og Blær
08.00 Skoppa og Skrítla
08.20 Dagur Diðrik
08.45 Dóra og vinir
09.10 Latibær
09.30 Lukku láki
09.55 Ævintýri Tinna
10.20 Ninja-skjaldbökurnar
10.45 Mæja býfluga
10.55 Friends
11.20 Ellen
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.00 Nágrannar
13.20 Nágrannar
13.45 Strictly Come Dancing
16.15 Masterchef USA
17.05 Sporðaköst
17.40 60 Minutes
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Sportpakkinn
19.10 Framkoma
19.40 Rikki fer til Ameríku
20.10 Drowning in Plastic
21.10 Deep Water
22.00 Beforeigners
22.50 A Black Lady Sketch
Show
23.25 The Righteous Gem-
stones
23.55 Snatch
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Að austan (e)
20.30 Eitt og annað frá Vest-
urlandi
21.00 Heimildarmynd
endurt. allan sólarhr.
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Omega
21.00 Tónlist
22.30 Gegnumbrot
20.00 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
20.30 Skrefinu lengra (e)
21.00 Búsetuformið á breyttum
húsnæðismarkaði (e)
21.30 Búsetuformið á breyttum
húsnæðismarkaði (e)
endurt. allan sólarhr.
14.30 Superstore
14.55 Gordon Ramsay’s 24
Hours to Hell and Back
16.00 Malcolm in the Middle
16.20 Everybody Loves Ray-
mond
16.45 The King of Queens
17.05 How I Met Your Mother
17.30 Top Gear
18.30 George Clarke’s Old
House, New Home
19.15 Ný sýn
19.45 Speechless
20.10 Madam Secretary
21.00 The First
21.50 The Handmaid’s Tale
22.45 Kidding
23.15 SMILF
23.45 Heathers
00.30 The Walking Dead
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Þjóðlagahátíð á Siglu-
firði.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Ljóðabókin syngur II.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Lang-
holtskirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Skyndibitinn.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Sumartónleikar evr-
ópskra útvarpsstöðva.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Listin að brenna bækur.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Fólk og fræði.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Begga og Fress
07.29 Lalli
07.36 Tulipop
07.39 Sara og Önd
07.46 Minnsti maður í heimi
07.47 Hæ Sámur
07.54 Söguhúsið
08.01 Letibjörn og
læmingjarnir
08.08 Stuðboltarnir
08.19 Alvin og íkornarnir
08.30 Ronja ræningjadóttir
08.55 Disneystundin
08.56 Tímon & Púmba
09.17 Sígildar teiknimyndir
09.24 Líló og Stitch
09.45 Krakkavikan
10.00 Flökkuhópar í nátt-
úrunni
11.00 Silfrið
12.10 Landakort
12.20 HM í körfubolta
14.20 Menningin – samantekt
14.50 Lestarklefinn
15.45 Karlakórinn Þrestir
16.40 Pricebræður bjóða til
veislu
17.20 Grænlensk híbýli
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Gleðin í garðinum
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Veröld sem var
20.15 Frú Wilson
21.15 Lof mér að falla
23.30 Glæpahneigð
14 til 16 Tónlistinn Topp40
Eini opinberi vinsældalisti Íslands er sendur út á
K100 alla sunnudaga. Siggi Gunnars telur niður 40
vinsælustu lög landsins.
16 til 19 Pétur Guðjóns
Góð tónlist og spjall á sunnudags síðdegi. Pétur fylgir
hlustendum heim úr fríinu á sunnudögum, nú eða
skemmtir þeim sem eru svo heppnir að geta verið
lengur í fríi.
Á þessum degi árið 2005
var Rod Stewart dæmdur til
að greiða spilavíti í Las
Vegas ansi háar skaða-
bætur. Ástæðan var sú að
söngvarinn neyddist til að
aflýsa tónleikum á Hótel Rio
á gamlárskvöld um alda-
mótin 2000. Stewart glímdi
við raddleysi, en röddin
hvarf tímabundið eftir að
fjarlægja þurfti æxli í skjald-
kirtli. Þurfti hann að greiða
tvær milljónir Bandaríkja-
dala, sem samsvarar um
212 milljónum íslenskra
króna. Sagði Stewart að
hann hefði ekki orðið góður
í röddinni fyrr en í júní 2001,
rétt áður en heimstónleika-
ferðalag hans hófst.
Raddleysið dýrkeypt
Söngvarinn Iggy Pop hefuraldrei farið troðnar slóðir oglífsstíllinn ekki verið að
læknisráði. En það er seigt í honum.
Hann kemur enn fram þótt orðinn sé
72 ára gamall og gefur sig allan í
verkið og í liðinni viku kom út Free,
18. hljóðverssólóplata hans.
Í ágúst voru rétt rúm 50 ár frá því
að fyrsta plata hans með hljómsveit-
inni The Stooges kom út. Platan var
samnefnd hljómsveitinni og á stóran
þátt í að hann fékk viðurnefnið afi
pönksins. Nú þykir platan marka
tímamót þótt hún hafi lítið sem ekk-
ert selst á sínum tíma.
Hljómsveitina stofnaði hann
tveimur árum áður, 1967. Tónleikar
með The Stooges voru þekktir fyrir
að vera hömlulausir og jafnvel blóð-
ugir. Pop ældi á sviði, fór úr fötum,
dró húsgögn og fólk eftir sviðinu og
skar á sér brjóstkassann með gler-
brotum. Laglínur voru aukaatriði og
hávaðinn grundvallaratriði.
James Osterberg yngri byrjaði
hins vegar sem trommuleikari í
grunnskóla í Michigan í Bandaríkj-
unum og fyrsta hljómsveitin hans,
The Iguanas, spilaði lög með Bítl-
unum, Rolling Stones og Kinks.
Iggy er dregið af nafni hljómsveit-
arinnar og nafnið Pop fékk hann lán-
að frá kunningja að nafni Jimmy
Popp.
Brátt fór hann að leita út á jaðar-
inn. Á tónleikum átti hann til að espa
upp áhorfendur, helst þá sem líkleg-
astir voru til að valda vandræðum.
Eitt sinn steypti hann sér fram af
sviði í hálftómum sal og braut á sér
framtennurnar. Í tímaritinu Rolling
Stone sagði að tónlist The Stooges
væri „hávær, leiðinleg, smekklaus,
laus við ímyndunarafl og barnaleg“.
The Stooges gaf út þrjár plötur og
var David Bowie upptökustjóri á
þeirri þriðju, Raw Power. Eftir hana
leystist hljómsveitin upp. Samstarf
hans og Bowies hélt áfram og hann
aðstoðaði Pop við upptökur á sóló-
plötunni Lust for Life, sem kom út í
ágúst 1977.
Pop hefur ávallt farið sínar eigin
leiðir og vinsældirnar hafa látið á sér
standa. Hann hefur tvisvar komið til
Íslands. Árið 2006 átti hann að spila í
Laugardalshöllinni, sem tekur 5.000
manns, en vegna dræmrar miðasölu
voru tónleikarnir fluttir í Listasafn
Reykjavíkur, þar sem þúsund manns
komast að. Hann kom aftur fram hér
á landi á tónlistarhátíðinni All To-
morrow’s Parties á Reykjanesi 2015
(í umsögn á mbl.is um tónleikana var
hann kallaður ofvirk risaeðla). Árið
eftir kom út platan Post Pop De-
pression og var það fyrsta plata hans
sem komst inn á topp tuttugu vin-
sældalistann í Bandaríkjunum. Hún
var einnig fyrsta plata hans sem
hlaut nánast einróma lof gagnrýn-
enda og sagði Josh Homme, for-
sprakki hljómsveitarinnar Queens of
the Stone Age, sem samdi með hon-
um lögin á plötunni og stjórnaði upp-
tökum, að Pop hefði við það komist í
tilfinningalegt uppnám „vegna þess
að það hafði aldrei gerst áður“.
Í viðtali við tímaritið The New
Yorker fyrir tveimur vikum sagði
Pop að hann hefði aldrei séð fyrir sér
að lifa hefðbundnu heimilislífi og það
væri mikilvægt fyrir sig að eitthvað
væri í verk hans spunnið. „Þetta
verður að vera fjandi gott,“ segir
hann í viðtalinu og ávarpar sjálfan
sig. „Þú hefur fórnað miklu fyrir
þetta, gaur, þetta er það sem þú
varst að gera þegar þú varst ekki til
staðar fyrir annað fólk, þannig að
það er eins gott að það sé gott.“
Þessi orð ættu að gefa góð fyrir-
heit um nýju plötuna.
Iggy Pop kom fram á Vieilles
Charrues-tónlistarhátíðinni í
Carhaix-Plouguer í Frakklandi
í júlí, ber að ofan að vanda. Ný
plata hans kom út í vikunni.
AFP
„Verður að vera
fjandi gott“
Iggy Pop veifar ljósmyndara við komuna til Íslands árið 2006.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
IGGY POP GEFUR ÚT 18. SÓLÓPLÖTU SÍNA
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Gelísprautun
NeauviaOrganic
Haust
tilboð
15%
afsláttur
Náttúruleg fylling í varir, línur,
kinnar, kinnbein og höku.