Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2019, Page 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2019, Page 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.9. 2019 Stundum eru breytingar svo hægar ogátakalitlar að við tökum ekki eftir þeimfyrr en allt í einu, að við áttum okkur á því að við lifum nánast í öðru samfélagi en því sem við ólumst upp í. Þróun getur tekið lang- an tíma eins og jökuláin sem mótar dal eða sjórinn sem slípar stein. Það gerðist nefnilega í vikunni að tveimur helstu titlum í knattspyrnu karla var út- hlutað. Mínir menn í Víkingi urðu bikarmeist- arar og KR-ingar Íslandsmeistarar. Við mik- inn fögnuð stuðningsmanna liðanna. Nú liggur kannski ekki ljóst fyrir hvernig þetta tengist þróun, þótt vissulega sé það góð þróun að uppeldisfélag mitt vinni og líka íþróttafélag dætra minna. Það snýr svona meira að því hvernig þessu var tekið. Það var merkilegt að sjá viðtal við Rúnar Kristinsson, grátklökkan, eftir sigurinn á Val. Sú var tíð að þetta hefði þótt ótrúlegt og sumum hefði jafnvel fundist þetta óþægilegt og hugsanlega blátt áfram óviðeigandi. Rúnar, fyrir þá sem ekki muna, var grjót- harður leikmaður og ekki manna líklegastur til að fella tár. En þarna stóð hann eftir leik og barðist við tárin. Sem er bæði fallegt og gott. Reyndar voru öll viðtölin á svipuðum nót- um. Menn voru ýmist hálfgrátandi, nýlega grátnir eða gerðu ráð fyrir að gera það í klef- anum eftir leik. Og okkur finnst þetta fallegt og í fína lagi. Ekki það, auðvitað þekkjum við dæmi um knattspyrnumenn sem hafa grátið. Paul Gascoigne er sennilega þeirra frægastur og tárin sem féllu í Tórínó á HM 1990. Eða Samuel Kuffour sem hágrét eftir að Bayern München hafði misst af meistaradeildartitl- inum eftir tvö mörk í uppbótartíma. Við eigum líka okkar dæmi. Eiður Smári barðist við tilfinningarnar þegar honum þótti ljóst að hann fengi aldrei að taka þátt í stór- móti með íslenska landsliðinu eftir tap gegn Króatíu. Þessi mynd- skeið eru fræg, ekki síst fyrir hvað þau voru óvenjuleg. Sú var nefni- lega tíð að knatt- spyrnumenn voru ekkert mikið að tala um tilfinn- ingar eða sýna einhverjar mýkri hliðar. Það var litið á það sem veikleika. Og ef menn felldu tár þá reyndu þeir að gera það í ein- rúmi og láta lítið fyrir því fara. Nú gráta allir og það er fullkomlega eðli- legt. Margir vinir mínir felldu tár þegar 48 ára bið eftir bikarnum lauk. Það hafa senni- lega margir KR-ingar líka gert á mánudags- kvöld, þótt bið þeirra hafi ekki verið jafnlöng. Það er eitthvað fallegt við að sjá fólk sem er í tengslum við tilfinningar sínar og sér- staklega grátandi íþróttamenn. Það segir okkur að þeir hafi lagt allt í það sem þeir gera, spili með hjartanu og sé ekki sama um liðið sitt. Það segir okkur líka að eitt og ann- að hefur breyst í samfélagi okkar. Sem er gott. ’Menn voru ýmist hálf-grátandi, nýlega grátn-ir eða gerðu ráð fyrir aðgera það í klefanum eftir leik. Og okkur finnst þetta fallegt og í fína lagi. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Grátandi karlmenn Áslaug er mjög gömul sál og var í raun bara eins og gömul kona strax þegar hún var lítil stelpa, svo þroskuð var hún. Hún virðist þó yngjast með hverju árinu sem líður og hún tekur lífinu léttar en áður þó svo að hún taki að sér ábyrgðarmeiri störf í dag en í gær. Mig grunar að foreldrar hennar hafi jafnvel haldið að þau ættu von á dreng þegar prinsessan kom í heiminn, því í henni býr mikið strákslegt eðli og þar af leiðandi á hún oft betra með að vinna með karl- mönnum en konum. Þeir treysta henni fullkomlega enda traustsins verð og svo slúðrar hún aldrei um náungann, sem er fallegur eigin- leiki. Hún hefur sterkari réttlætis- kennd en flestir og stendur alltaf við það sem hún segir svo hún gæti farið í fyrstu varlega með orðaval sitt í nýja embættinu. En þar sem hún hefur aldrei ætlað sér að verða nein puntudúkka og enginn getur sagt að svo sé þá á hún eftir að koma á óvart bæði í orði og á borði. Hún á marga góða vini, sérstak- lega frá sínum yngri árum, en það er erfitt að komast að hjarta henn- ar vegna þess að þó svo að við treystum henni þá treystir hún ekki öllum. Að eðlisfari er hún ekki mikil kannski-manneskja, það er annaðhvort já eða nei, svart eða hvítt. Í öllu sínu réttlætiseðli fer hún samt eftir lögum og reglum og það verður ekki hægt að klína á hana neins konar vitleysu. Þar sem hún fæddist svona full- orðin getum við sagt að hún gæti vart hafa verið eldri að taka við þessu embætti því að hún nýtir tímann sinn tvöfalt á við meðal- manneskju. Það er ekki hægt að segja að þolin- mæði sé hennar helsta dyggð en í uppvextinum lærði hún að tileinka sér þolinmæði þar sem þörf er á. Þetta ár sem hún er að fara í gegnum núna gerist eins og á ofsahraða og mörg tækifæri hafa orðið á vegi hennar eins og við vit- um en hún hefur gripið þau og þor- að að segja já. Það koma tækifæri hjá okkur öllum en þau stoppa yfir- leitt stutt við svo við þurfum að vera snögg að hugsa. Og þar sem Áslaug er keppnis- maðurinn sem ætlar sér að komast í mark á réttum tíma sýnir hún sjaldan á sér hik. Hún hefur innst inni allt sitt líf verið að búa sig undir þau verkefni sem nú taka við. Ég segi því við þjóðina: Gefum henni tíma, sýnum henni þolinmæði og styðjum hana. Merki Áslaugar er Bogmaður Morgunblaðið/Hari Stendur við það sem hún segir ÁSLAUG ARNA SIGURBJÖRNSDÓTTIR DÓMSMÁLARÁÐHERRA FÆDD: 30. NÓVEMBER 1990 ’Hún hefur innstinni allt sitt lífverið að búa sig und-ir þau verkefni sem nú taka við. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.