Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2019, Side 15
Hinn almáttugi Q gat brugðið sér í ýmis hlutverk úr mannkynssögunni.
Q birtist aðeins í níu þáttum á tíu árum en varð afar vinsæl persóna.
Það hlýtur að vera skemmtilegt að vera
hluti af einhverju svona stóru?
„Já, algjörlega. Og það hefur veitt mér svo
mörg tækifæri; opnað dyr. Ferill minn hófst
þarna fyrir alvöru og fór á flug. Í mínum
bransa verður maður að vera þekktur fyrir
eitthvað. Oftast er það þannig með þætti að
þeir hafa kannski í mesta lagi tólf ára líftíma,
en þessi þáttur bara heldur áfram. Og áfram
og áfram og áfram.“
Dulúð og orka á Íslandi
Eftir að hafa leikið hinn almáttuga Q fékk
John hlutverk í ýmsum sjónvarpsþáttum, eins
og Breaking Bad svo eitthvað sé nefnt. John
hefur leikið í ótal bíómyndum en hann tekur
fram að hann hafi líka leikið mjög mikið á sviði.
Einnig hefur hann tekið þátt í ýmsum upp-
færslum af óperum og unnið náið með sinfón-
íuhljómsveitum. „Og ekki gleyma siglingum!“
segir John sem elskar að sigla.
John, sem er rúmlegur sjötugur, segist ekki
vera kominn á eftirlaun en sé farinn að slaka
meira á.
„Ég er ekki að leita mér að verkefnum en ef
eitthvað kemur upp í hendurnar á mér skoða
ég það. Sumt langar mig ekki að gera aftur,“
segir hann. „Í dag heillar það mig ekki að
standa á sviði í leikriti í kannski ár. Ég er orð-
inn 71 árs og lífið er stutt. Það er ýmislegt ann-
að sem mig langar að gera. Það verður líka erf-
iðara með aldrinum að læra mikla texta,“ segir
hann og segist aðallega vilja núna ferðast um
og tala um sín hjartans mál.
Hvað um frægðina? Þekkir fólk þig úti á
götu?
„Já, en ég tek því með hógværð því ég hef
ekki átt það stóran feril eins og margar aðrar
stjörnur. En þessi ferill hentar mér vel; hann
hefur verið fjölbreyttur,“ segir hann.
Talið berst að Íslandsferðinni en John segir
sig alltaf hafa dreymt um að koma til Íslands.
„Ég er mjög spenntur að vera hér á landi og
ég vona að erindi mínu verði vel tekið. Svo að
því loknu fer ég til Skotlands á vísindaskáld-
skapsráðstefnu. Þaðan fer ég til Kaup-
mannahafnar og svo enda ég í Frakklandi í
litlum bæ þar sem ég dvaldi mikið sem barn,“
segir John en þess má geta að móðir hans var
frönsk.
Ekki er hægt að sleppa þessum geðþekka
leikara og húmanista án þess að spyrja hvað
honum finnist um Ísland.
„Stórkostlegt! Við fórum í dagsferð í gær út
á land. Og þegar við komum í gær akandi aftur
til Reykjavíkur sagði ég að mér fyndist ég vera
að koma úr forneskjulegum heimi. Það er ein-
hver orka og dulúð hér. Við konan mín ætlum
svo hringinn í kringum landið. Okkur var sagt
að það yrði tæplega sólríkt en ég sagði bara að
því klikkaðra sem veðrið yrði, því betra,“ segir
hann og hlær.
Við sláum botninn í viðtalið en áður en við
höldum út í rigninguna þarf blaðamaður að
spyrja að einu að lokum, svona í ljósi þess að
John er þekktur fyrir leik sinn um borð í geim-
skipum.
Myndir þú vilja fara út í geiminn?
Hann brosir. „Nei, ég held að ég hafi ekki
áhuga á því; ég vil frekar sigla út á opið haf.“
John de Lancie segir það hafa ver-
ið ævintýri að leika Q í Star Trek
en ferill hans fór á flug eftir það
hlutverk. Í dag vill hann ferðast um
og ræða trú og efahyggju við ungt
fólk í Bandaríkjunum og víðar.
Morgunblaðið/Ásdís
John de Lancie lék á móti Patrick Stewart í Star Trek en Stewart lék
Jean-Luc Picard, sem stjórnaði geimskipinu USS Enterprise.
’ Ég hef engin völd en talaút frá persónulegum hug-myndum. Pence hefur áhrif ástjórnvöld og það eru alls
kyns tilraunir í gangi. Hann
vill klárlega koma trú enn
frekar inn í samfélagið.
Siðmennt bauð John de Lancie til landsins og talaði hann við íslenska áhorfendur um efahyggjumál en John segist alltaf hafa viljað koma til Íslands.
Morgunblaðið/Hari
22.9. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15