Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2019, Qupperneq 28
með Scorsese. Einnig má nefna leik-
arana Ray Romano, Bobby Canna-
vale, Önnu Paquin og Stephen Gra-
ham.
Sagan nær yfir nokkra áratugi og
hefur komið fram í fréttum að rán-
dýr tækni hafi verið notuð til að láta
De Niro og Pacino líta út fyrir að
vera yngri en þeir eru svo munar
nokkrum áratugum. Scorsese hafði
sínar efasemdir um tæknina og
ákvað ekki að nota hana fyrr en
hann hafði prófað hana. Það gerði
hann með því að fá De Niro til að
leika nokkur atriði úr myndinni Go-
od Fellas og beita tækninni á þau.
Niðurstaðan var greinilega það
sannfærandi að hann ákvað að taka
þessa tækni í sína þjónustu.
Myndin þykir í dýrari kantinum
Leikararnir Robert De Niro ogAl Pacino leiða saman hestasína í nýjustu kvikmynd leik-
stjórans Martins Scorseses, sem
fjallar um leigumorðingjann Frank
Sheeran og morðið á stéttarfélags-
leiðtoganum Jimmy Hoffa, sem
hvarf sporlaust árið 1975. Myndin
heitir Írinn (The Irishman), sem var
viðurnefni Sheerans.
Myndin verður frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í New York 27. sept-
ember og verður því næst sýnd á
kvikmyndahátíðinni í Róm 21. októ-
ber að viðstöddum helstu leikurum í
henni.
Pacino leikur Hoffa og De Niro
Sheeran. Að auki koma fram í mynd-
inni Joe Pesci og Harvey Keitel og
hafa þessir fjórir leikarar oft unnið
og hafa verið nefndar tölur allt frá
160 til 200 milljónir dollara, upp-
hæðir, sem oftast heyra nefndar í
sömu andrá og ofurhetjumyndir.
Efnisveitan Netflix framleiðir
myndina og verður hún aðeins sýnd í
kvikmyndahúsum í nokkrar vikur í
nóvember áður en farið verður að
bjóða upp á hana á veitunni 27. nóv-
ember.
Þegar er farið að orða myndina
við Óskarsverðlaun. Scorsese er
einn þekktasti leikstjóri Bandaríkj-
anna og hefur átta sinnum verið til-
nefndur til Óskarsverðlauna fyrir
leikstjórn. Í fyrra framleiddi Netflix
myndina Roma í leikstjórn Alfonsos
Cuaróns, sem var tilnefnd til tíu
Óskarsverðlauna og vann þrenn, þar
á meðal fyrir leikstjórn.
Aðalleikararnir
yngdir um áratugi
Kvikmynd Martins Scorsese um morðið á Jimmy Hoffa með Robert
De Niro og Al Pacino verður frumsýnd á næstunni. Þar verða nokkrir
áratugir flysjaðir af aðalleikurunum með sérstakri brellutækni.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Robert De Niro og Martin Scorsese glaðhlakkalegir á kvikmyndahátíð í
Marrakesh í Marokkó í desember. Þeir hafa enn á ný blásið til samstarfs.
AFP
GEIMURINN Ný og spennandi geimmynd, sem ber nafnið
Ad astra, fer að detta í kvikmyndahús um allan heim nú í
lok september.
Hún skartar eðalleikurum á borð við Brad Pitt, Liv Tay-
lor, Donald Sutherland, Tommy Lee Jones og John Ortiz.
Leikstjóri er James Gray.
Í myndinni segir af geimfaranum Roy
McBride, leikinn af Brad Pitt, sem leitar
um allt stjörnukerfið að sannleikanum
um týndan föður sinn sem fór í geim-
ferð þrjátíu árum áður. Ferð sú ógn-
ar nú alheiminum.
Myndin er sýnd í Sambíóunum
frá 27. sept.
Út í geim með Ad astra
AFP
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.9. 2019
LESBÓK
Í blaðinu verður fjallað um tísku,
förðun, snyrtingu, heilsu, fatnað,
umhirðu húðarinnar, dekur og fleira.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 30. sept.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
–– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ
SMARTLAND
BLAÐ
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 4. október
Robbie Robertson semur og
flytur ásamt Van Morrison tit-
illag myndarinnar Írinn. Lagið
heitir „I Heard You Paint Hou-
ses“ eins og bókin sem myndin
er gerð eftir og er af nýrri plötu
Robertsons, Sinematic, sem
kom út á föstudag.
Robertson segir að hann hafi
beðið Morrison að syngja lagið með sér og spurt hvort það myndi
standa í honum að titillinn vísaði til leigumorðingja sem bíaði allt
út í blóði þegar hann gengi til verka. Morrison sagði að hann léti sér
það í léttu rúmi liggja.
Scorsese og Robertson þekkja vel hvor til annars. Scorsese leik-
stýrði á sínum tíma myndinni Síðasti valsinn um síðustu tónleika
hljómsveitarinnar The Band þar sem Robertson var fremstur með-
al jafningja. Meðal þeirra sem fram komu í þeirri mynd var einmitt
Van Morrison. Á kvikmyndahátíðinni í Toronto, TIFF, fyrr í mán-
uðinum var frumsýnd heimildamyndin Once Were Brothers: Rob-
bie Robertson and The Band.
Söngur um leigumorð
Van MorrisonRobbie Robertson
HEIMILDAÞÆTTIR Leikkonan Selena Gomez tilkynnti í
vikunni að hún hefði lengi unnið leynilega að framleiðslu
hápólitískrar heimildaseríu: Living Undocumented. Í þátt-
unum er átta fjölskyldum, sem eiga á hættu að vera vísað
úr landi, fylgt eftir en fólkið býr við ótta alla daga.
Með því að segja sögur þeirra er það von Gomez að sýna
mannlegu hliðina á innflytjendalögum Bandaríkjanna og
sýna veruleika þessara fjölskyldna.
Á Instagram-reikningi Gomez má sjá stiklu úr seríunni.
Gomez skrifar þar að hún sé þakklát og auðmjúk að fá að
taka þátt í gerð þessarar Netflix-seríu. „Þetta er alvöru-
fólk í þínu hverfi, nágrannar þínir og vinir og þau eru öll
hluti af þessu landi sem við köllum heima.“
Serían fer í loftið 2. október.
Án skilríkja
Gomez ljóstrar upp leyndarmáli
um nýja seríu á Netflix.
Brad Pitt leik-
ur geimfara í
nýrri mynd.