Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.09.2019, Blaðsíða 30
Amanda Bynes hóf leiklist-arferil sinn ung. Hún var ein-ungis sjö ára gömul komin
með umboðsmann og varð fljótlega
þekkt andlit fyrir leik í fjölda auglýs-
inga fyrir fyrirtæki á borð við Barbie
og Nestlé og síðast en ekki síst fyrir
hlutverk sitt í þáttaröðinni All That á
barnarásinni Nickelodeon. Amanda
naut mikilla vinsælda í þáttunum og
ekki leið á löngu þar til barnastjarnan
var komin með sinn eigin sjónvarps-
þátt, The Amanda Show. Þátturinn sló
í gegn og urðu seríurnar þrjár talsins.
Þegar Bynes var 15 ára lék hún
aðalhlutverk í kvikmyndinni Big Fat
Liar og fékk í kjölfarið hlutverk í
þáttunum What I Like About You
sem meðal annars voru sýndir hér á
landi.
Hún fór að landa aðalhlutverkum í
Hollywood-myndum á borð við What
a Girl Wants, She’s the Man og Hair-
spray og varð gríðarlega vinsæl ung-
lingastjara.
Byrjaði ung í neyslu
Amanda Bynes var einungis 16 ára
þegar hún prófaði að reykja marí-
júana í fyrsta sinn. Bynes segir í við-
tali við tímaritið Paper sem kom út í
nóvember 2018 að hún hafi ekki orðið
háð maríjúana en það hafi hins vegar
haft þau áhrif að hana langaði að
prófa fleiri og sterkari eiturlyf. Svo
fór að Bynes prófaði molly, e-pillur og
kókaín en hún segist þó einungis hafa
ánetjast lyfinu adderall sem hún hafi
upphaflega tekið í þeim tilgangi að
grennast.
Segja má að neyslan hafi farið al-
gerlega úr böndunum vorið 2010 við
tökur á kvikmyndinni Hall Pass. Byn-
es var svo lyfjuð á setti að hún átti
erfitt með að lesa handritið og gat
ekki með nokkru móti munað lín-
urnar sínar.
Síðasta mynd Bynes var kvik-
myndin Easy A með Emmu Stone frá
árinu 2010. Segist Bynes hafa fengið
hálfgert áfall á forsýningu kvikmynd-
arinnar. Henni fannst hún leika illa
og líta illa út og var sannfærð um að
þetta yrði sitt síðasta hlutverk. Þess
má geta að Bynes var undir miklum
lyfjaáhrifum á forsýningunni og í
kjölfarið tísti hún um það að hún væri
hætt að leika. Ákvörðun sem hún sér
eftir að hafa tekið í dag en hún segir í
viðtali að hún hefði frekar átt að gefa
út formlega yfirlýsingu en tísta þess-
ari stóru ákvörðun. Hún hafi hins
vegar verið svo dópuð að sér hafi ver-
ið alveg sama á þeim tíma.
Rústaði ferlinum á Twitter
Í kjölfarið fór Bynes mjög hratt niður
í neyslu og þunglyndi og segir hún líf-
ið hafa að miklu leyti snúist um að
hanga heima, dópa, horfa á sjón-
varpið og tísta. Tíst leikkonunnar
vöktu fljótlega athygli þar sem hún
fór að úthúða öðru frægu fólki og fjöl-
skyldumeðlimum og viðurkennir leik-
konan í dag að tístin hennar hafi með-
al annars rústað leiklistarferlinum.
Amanda var handtekin fyrir akstur
undir áhrifum og lögð inn á geðspít-
ala á tímabili. Slúðurblöðin vestan-
hafs fjölluðu mikið um ástand leik-
konunnar á sínum tíma en hún var
jafnframt dugleg að birta furðulegar
myndir af sér á Instagram sem vöktu
vissulega forvitni pressunnar.
Nýútskrifuð og edrú
Leikkonan segist núna hafa verið
edrú í fimm ár og útskrifaðist nýlega
úr fatahönnunarnámi úr skólanum
FIDM í Los Angeles.
Hún hefur einnig greint frá því í
viðtölum að hún ætli sér að fara að
leika aftur. Hún hefur einnig í hyggju
að framleiða eigin fatalínu. Amanda
Bynes hefur enn ekki fengið nein
hlutverk síðan 2010.
Amanda Bynes var
vinsæl barna- og ung-
lingastjarna. Hún
ánetjaðist snemma
eiturlyfjum en er
edrú í dag.
HVAÐ VARÐ UM AMÖNDU BYNES
Rústaði ferlin-
um á Twitter
Amanda mætti í dómshúsið
með græna hárkollu þegar
réttað var yfir henni fyrir
að keyra undir áhrifum.
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.9. 2019
07.00 Strumparnir
07.25 Tindur
07.40 Blíða og Blær
08.05 Dagur Diðrik
08.30 Lukku láki
08.55 Latibær
09.20 Dóra og vinir
09.45 Skoppa og Skrítla í
Afríku
10.05 Ninja-skjaldbökurnar
10.30 Ævintýri Tinna
10.55 Friends
11.20 Ellen
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.00 Nágrannar
13.20 Nágrannar
13.45 Planet Child
14.35 Masterchef USA
15.15 The Truth About Carbs
16.15 Ísskápastríð
16.55 60 Minutes
17.40 Víglínan
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Sportpakkinn
19.10 Framkoma
19.45 Leitin að upprunanum
20.25 War on Plastic with
Hugh and Anita
21.20 Deep Water
22.10 Beforeigners
23.00 A Black Lady Sketch
Show
23.35 The Righteous Gem-
stones
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Að austan (e)
20.30 Eitt og annað frá Austur-
landi
21.00 Nágrannar á Norður-
slóðum (e)
21.30 Eitt og annað frá Vestur-
landi (e)
endurt. allan sólarhr.
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta
20.30 Skrefinu lengra
21.00 Saga flugsins í 100 ár
endurt. allan sólarhr.
15.00 Gordon Ramsay’s 24
Hours to Hell and Back
16.00 Malcolm in the Middle
16.20 Everybody Loves Ray-
mond
16.45 The King of Queens
17.05 How I Met Your Mother
17.30 Happy Together
(2018)
17.50 Top Gear
18.40 Ný sýn
19.10 Ást
19.45 Speechless
20.10 Madam Secretary
21.00 Billions
22.00 The Handmaid’s Tale
22.55 Kidding
23.25 SMILF
23.55 Heathers
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Ljóðabókin syngur II.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Kefla-
víkurkirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Skyndibitinn.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu:
Sönghátíð í Hafnar-
borg 2019.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Listin að brenna bækur.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Fólk og fræði.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Begga og Fress
07.29 Lalli
07.36 Tulipop
07.40 Sara og Önd
07.47 Minnsti maður í heimi
07.48 Hæ Sámur
07.55 Söguhúsið
08.02 Letibjörn og læmingj-
arnir
08.09 Stuðboltarnir
08.20 Alvin og íkornarnir
08.31 Ronja ræningjadóttir
08.55 Disneystundin
08.56 Tímon & Púmba
09.18 Sígildar teiknimyndir
09.25 Líló og Stitch
09.45 Krakkavikan
10.05 Hæfileikarnir
11.00 Silfrið
12.10 Lestarklefinn
13.05 Menningin – samantekt
13.35 Heilsa og lífsstíll
14.05 Jóhanna
15.25 Sinfónían og Ashke-
nazy-feðgar
16.55 Þorvaldur Thoroddsen
jarðfræðingur
17.40 Fisk í dag
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Orlofshús arkitekta
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Veröld sem var
20.15 Landinn
21.15 Frú Wilson
22.15 Æska
00.15 Dagur í lífi landans
14 til 16 Tónlistinn Topp40
Eini opinberi vinsældalisti Íslands er sendur út á
K100 alla sunnudaga. Siggi Gunnars telur niður 40
vinsælustu lög landsins.
16 til 19 Pétur Guðjóns
Góð tónlist og spjall á sunnudags síðdegi. Pétur fylgir
hlustendum heim úr fríinu á sunnudögum, nú eða
skemmtir þeim sem eru svo heppnir að geta verið
lengur í fríi.
Í tilefni af stillanlegum heilsudögum Ergomotion í
Vogue ætlar K100 að gefa eitt stykki stillanlegt Er-
gomotion 330-heilsurúm með öllu. Það eina sem þarf
að gera til að eiga möguleika er að senda upptöku af
hrotunum þínum, makans eða einhvers sem þú þekkir
á hrota@k100.is. Besti „hrjótarinn“ vinnur stillanlegt
Ergomotion-heilsurúm með öllu; sængum, koddum,
sængurverum, lökum og hlífðarlökum. Ísland vaknar
liggur svo uppi í rúmi í beinni útsendingu frá Vogue-
búðinni fimmtudaginn 3. október þar sem vinnings-
hafinn verður kynntur. Nánar á k100.is.
Hrjótarinn 2019
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Nýttu þér
20%
kynningara
fslátt
af meðferði
nni
Loksins!
Augnlyfting
Við kynnumnýja
meðferð fyrir línur
og slappa húð á
augnsvæði