Morgunblaðið - 07.10.2019, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 7. O K T Ó B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 235. tölublað 107. árgangur
NETGLÆPIR
ÞEKKJA ENGIN
LANDAMÆRI MEÐ SKÝR FYRIRMÆLI
MIKIL ÞÖRF FYRIR
BRÁÐALÆKNA Á
ÍSLANDI
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN RIFF 28 HRÖÐ ÞRÓUN Í FAGINU 6TÖLVUÁRÁSIR 12
Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga, eða Deildakeppninnar
eins og mótið er gjarnan kallað, var haldinn um helgina í troð-
fullum Rimaskóla. Á þessu umfangsmesta skákmóti landsins
mætast á ári hverju mörg hundruð skákmanna á öllum aldri,
frá byrjendum til stórmeistara, og voru 48 lið skráð til keppni
að þessu sinni.
Í efstu deild af fjórum er ríkjandi Íslandsmeistari, Víkinga-
klúbburinn, í forystu að loknum fyrri hlutanum með 32 vinn-
inga. Í öðru sæti er Skákfélag Selfoss og nágrennis með 30
vinninga og Huginn er í þriðja sæti með 25 vinninga. Síðari
hluti mótsins verður haldinn í mars og ræðst þá hvort Vík-
ingar verja Íslandsmeistaratitil sinn.
Ungir sem aldnir tefldu til sigurs á Íslandsmóti
Morgunblaðið/Eggert
Bílaleigur eru farnar að setja
negld dekk undir bifreiðir sínar og
jafnvel leigja þær út þrátt fyrir að
ekki sé leyfilegt að aka um á negld-
um dekkjum fyrr en 1. nóvember.
Forsvarsmenn tveggja bílaleigna
segja í samtali við Morgunblaðið að
ómögulegt sé að skipta um dekk á
öllum bílaflotanum á skömmum tíma
og vilja undanþágu frá takmörk-
unum á notkun nagladekkja. Dagur
B. Eggertsson borgarstjóri segir
hins vegar að það sé plága að allir
bílaleigubílar séu á nöglum. »2
Á negldum dekkjum
mánuði of snemma
Færst hefur í vöxt að dagfor-
eldrar fái til sín börn sem eru óvön
því að borða mat og kunni jafnvel
ekki að tyggja hann. Virðist þessi
þróun tengjast auknum vinsældum
svokallaðra „skvísa“, maukaðs
barnamatar í pokum sem hægt er
að sjúga. Formaður samtaka dag-
foreldra í Hafnarfirði segist stund-
um kalla þessa kynslóð barna
„skvísukynslóðina“. »11
Kunni bara að sjúga
mat úr „skvísum“
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Dómurinn leggur nýjar línur varð-
andi áhrif og gildissvið tiltekinna
reglna Evrópuréttarins út fyrir
Evrópu,“ segir Halldóra Þorsteins-
dóttir, lektor og sérfræðingur í fjöl-
miðlarétti, um dóm Evrópudóm-
stólsins sem féll í síðustu viku.
Hann lýtur að því að dómstólar
einstakra Evrópuríkja geti skikkað
Facebook til að fjarlægja meiðandi
ummæli og efni af samfélagsmiðl-
inum hvar sem er í heiminum.
Gæti skipað Facebook fyrir
„Íslenska ríkið er bundið af
þeirri tilskipun Evrópuþingsins og
ráðsins sem á reyndi í málinu og
því er tækni-
lega ekki úti-
lokað að ís-
lenskur
dómstóll geti,
með vísan til
þessarar niður-
stöðu, gert Fa-
cebook að fjar-
lægja efni um
allan heim,“
segir Halldóra.
„Þetta er annars ein af þeim
fjölmörgu spurningum sem við
stöndum frammi fyrir með tilkomu
netsins, aukinni notkun samfélags-
miðla og miðlun upplýsinga á milli
einstaklinga. Bæði við hér heima
og önnur Evrópuríki, stofnanir
Evrópusambandsins og Mannrétt-
indadómstóllinn þurfum í dag að
kljást við flókin og áður óþekkt
álitaefni sem tengjast breyttu
landslagi á netinu og breyttu sam-
skiptaformi.“
Halldóra segir að þótt það sé ný-
lunda að dómstóll í einu landi geti
haft bein áhrif á birtingu efnis í
öðrum löndum hafi það tæknilega
verið hægt fram að þessu.
„Í sjálfu sér er ekki útilokað að
dómstóll í einu landi geti haft áhrif
á birtingu efnis í öðrum löndum.
Þannig getur tjáning á netinu til
dæmis snert mörg lönd í senn, svo
sem þegar ærumeiðing er sett fram
á íslenskri vefsíðu á ensku og tjón
á sér stað í Bretlandi.“
Gæti gert Facebook
að fjarlægja efni
Íslenskur dómstóll gæti haft áhrif á Facebook á heimsvísu
Halldóra
Þorsteinsdóttir
MAuknar skyldur á Facebook »4
Stefnt er að því að Landhelgis-
gæslan taki þrjár nýjar þyrlur í
notkun árið 2022. Þyrlurnar kosta
alls 14 milljarða króna, en þeim er
ætlað að koma í stað þriggja núver-
andi þyrlna, TF-LIF sem er í eigu
Gæslunnar og tveggja annarra sem
hún leigir frá Noregi. Engin áform
eru því uppi um stækkun flotans að
sinni.
Willum Þór Þórsson, formaður
fjárlaganefndar, segir að til greina
komi að veita Landhelgisgæslunni
aukið fjármagn til fjárfestinga í nýju
fjárlagafrumvarpi en það velti á því
hvort Gæslan beri sjálf upp óskir um
hvað þurfi að bæta. Íslensk stjórn-
völd bera ábyrgð á að hefja leitar- og
björgunaraðgerðir á um 1,9 milljón
ferkílómetra svæði, sem nær langt
út fyrir landhelgi Íslands. » 4
Frekari
framlög til
skoðunar
Ekki stefnt að
stækkun flotans