Morgunblaðið - 07.10.2019, Side 8

Morgunblaðið - 07.10.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2019 Norðlingabraut 8 110 Reykjavík S: 530-2005 Bíldshöfði 16 110 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 600 Akureyri S: 461-4800 &530 2000 www.wurth.is Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur Rúðuþurrkur • Passa á flestar gerðir bíla 30% afsláttur (Gildir aðeins í verslun) Magnús Jónsson, veðurfræð-ingur og fyrrverandi veð- urstofustjóri, skrifaði í liðinni viku í Kjarnann um loftslagsmál. Þar gagnrýndi hann þau stóryrði sem notuð væru í umræðum um þessi mál og sagði að nú liði „ekki sá dagur að ekki sé rætt um að hlýnun jarðar sé álíka ógn við mann- kynið og kjarnorku- stríð hefði orðið þeg- ar kalda stríðið stóð sem hæst. Talað er um hækkun á hita jarðarinnar sem „mestu ógn mannkynsins“, „ham- farahlýnun“ og „stórfellda lofts- lagsvá“ og nú nýlega hefur „neyðar- ástandi“ verið lýst yfir í nokkrum löndum, jafnvel í Evrópu, vegna hennar. Hlýnun sem líklega er orðin um 1°C á síðustu 150 árum þar sem langtímameðalhiti jarðarinnar hefur hækkað um 0,1°C á hverjum 15 árum að jafnaði.“    Hann segir að nú sé verið að„kyrja þennan hræðsluboð- skap“ sem ekki sé tilefni til og bendir á vaxandi hræðslu hjá börnum og ungu fólki vegna þessarar yfirvof- andi „ógnar“ sem sagt sé að við höf- um aðeins fáein ár til að koma í veg fyrir.    Þó að Magnús telji allt of langtgengið í umræðunni um þessi mál styður hann viðleitni til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. En um leið tekur hann fram að hann telji mun meiri ástæðu „til að gefa öðrum þáttum í mannlífi jarðarinnar meiri gaum en loftslagsvánni“ og nefnir nokkur dæmi þar um, svo sem flóttamannavandann, vaxandi skort á neysluvatni og reykingar.    Magnús Jónsson er öfgalausmaður sem býr yfir góðri þekkingu á loftslagsmálum. Mik- ilvægt er að slíkir leggi orð í belg í umræðu sem hefur tilhneigingu til að fara úr böndum. Magnús Jónsson Öfgafull umræða STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Þetta er náttúrulega undir lág- markslaunum og einhverjum mörk- um sem ríkisstjórnin sjálf hefur sagt að sé lágmarksframfærsla,“ segir Margrét Erla Maack lista- kona, sem á að eiga barn á allra næstu dögum. Hún fékk þær fréttir á fimmtu- daginn að hún myndi einungis fá 158.000 krónur mánaðarlega frá fæðingarorlofs- sjóði í fæðing- arorlofi sínu. Það er vegna þess að Margrét er sjálfstætt starfandi listakona sem starfar stundum sem launamaður og stundum sjálfstætt. Hún tekur skýrt fram að hún borgi alla þá skatta og öll þau gjöld sem henni er skylt að greiða. Sjóðurinn geri hins vegar ekki ráð fyrir fólki sem „pass- ar ekki inn í kassann“ eins og Mar- grét orðar það. Hún tekur fram að hún sé ekki sú eina sem eigi erfitt með að fá al- mennilegt fæðingarorlof út úr sjóðnum. Margrét þekkir dæmi um frumkvöðla sem greitt hafa sjálfum sér takmörkuð laun til að koma á fót fyrirtækjum en fá síðan afar takmarkaðar greiðslur úr sjóðnum. Sömu sögu sé að segja um konur sem hafi bæði verið í námi og vinnu. „Fjárhagskvíði er ekki eitthvað sem þú vilt vera að kljást við með lítið barn,“ segir Margrét, sem átti að eiga í síðustu viku. Margrét hefur safnað fyrir orlof- inu sínu á Karolinafund, þar sem hún býður upp á gigg gegn greiðslu. Það hefur gengið vel og mun hún því vera örlítið betur sett en ella. Margrét óskaði eftir viðtali við Ásmund Einar Daðason barna- málaráðherra, til þess að ræða það mikla flækjustig sem fylgir sjóðn- um, en hefur enn ekki fengið. „Ég myndi vilja segja frá minni stöðu og stöðu fólks sem hefur talað við mig. Það þarf að gera kerfið skýrara og auðveldara fyrir þá sem eru ekki inni í kassa. Svo er líka spurning hvort maður ætti líka að tala við iðnaðarráðherra. Hún segir að frumkvöðlar séu lausnin og frum- kvöðlaaldurinn og barneigna- aldurinn haldast í hendur.“ Fær 158.000 krón- ur í fæðingarorlof  Konur sem falla utan kassans fá lítið Margrét Erla Maack Nú, um tveimur árum eftir að Ice- landair hóf beint flug yfir Atlants- hafið til Kansasborgar í Missouri- ríki, hefur Icelandair tilkynnt að flugi verði hætt til borgarinnar. Var ákvörðunin tilkynnt í síðustu viku en hún var tekin við árlega endur- skoðun á flugáætlun félagsins fyrir sumarið 2020. Frá þessu er greint á mbl.is. Var flug Icelandair fyrsta og eina beina flugið yfir Atlantshafið til Al- þjóðaflugvallarins í Kansas að því er fram kemur á vef Kansas City Star. Þar kemur jafnframt fram að ákvörðun Icelandair hafi verið mikið reiðarslag fyrir flugmálayfirvöld í borginni en framkvæmdastjórn flug- vallarins hafði unnið að því í um ára- tug að fá beint flug þangað frá Evr- ópu. Á mbl.is kemur fram að Keflavík- urflugvöllur hafi orðið einn af tíu vin- sælustu áfangastöðum fyrir ferða- menn Kansasborgar eftir að Icelandair hóf flug til Kansas. Á vef Kansas City Star er haft eft- ir Justin Meyer, staðgengli yfir- manns flugmála hjá alþjóðaflugvell- inum í Kansas, að markaðurinn hafi brugðist með jákvæðum hætti við komu Icelandair og að flugvöllurinn vilji opna á nýjar leiðir til Evrópu. Telur hann reynsluna með Icelandair bæta stöðu borgarinnar til að fá beint flug til annarra Evrópulanda. Harma brotthvarf Icelandair  Justin Meyer telur reynsluna með Icelandair bæta stöðu borgarinnar Morgunblaðið/Eggert Hættir Icelandair mun ekki fljúga til Kansas City árið 2020.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.