Morgunblaðið - 07.10.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 07.10.2019, Síða 14
SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Það getur kostað sitt að bjóðasig fram tilforsetaembættisins íBandaríkjunum, en áætlað hefur verið að frambjóðendur stóru flokkanna tveggja hafi safnað samtals um 1,7 milljörðum bandaríkjadala. Eru þá ekki talin með þau fjár- framlög sem aðrir frambjóðendur söfnuðu til baráttu sinnar á meðan forval flokkanna stóð yfir, og er heild- arfjárhæðin fyrir kosningarnar 2016 því nær tveimur og hálfum milljarði bandaríkjadala. Strangar reglur gilda um fjár- öflun frambjóðenda í Bandaríkj- unum, og þurfa framboðin reglulega að skila upplýsingum til stofnunar- innar Federal Election Commission (FEC), sem hefur eftirlit með fjár- málum framboða í alríkiskosningum, um það hversu mikið hafi safnast saman á hverjum ársfjórðungi, og eru þær upplýsingar opinberar almenn- ingi. Það vakti athygli fyrir helgi að af þeim frambjóðendum demókrata sem höfðu skilað inn tölum fyrir síðasta ársfjórðung hafði Joe Biden, fyrrver- andi varaforseti og sá sem talinn hef- ur verið einna sigurstranglegastur í forvalinu, „einungis“ safnað 15,2 milljónum bandaríkjadala, eða sem nemur tæplega 1,9 milljörðum ís- lenskra króna. Á sama tíma hafði öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders safnað 25 milljónum banda- ríkjadala, um þremur milljörðum króna og Pete Buttigieg, borgarstjóri South Bend í Indiana-ríki, um 19,1 milljón dala, eða tæplega 2,4 millj- örðum króna. Framboð öldunga- deildarþingmannsins Elizabeth Warren, sem velgt hefur Biden undir uggum í síðustu skoðanakönnunum, tilkynnti síðan á föstudaginn að þar á bæ hefðu safnast saman 24,6 milljónir bandaríkjadala á síðasta ársfjórð- ungi, ögn minna en Sanders náði. Skiptir summan máli? Talsmenn Bidens sögðu að milljónirnar 15,2 sem þó hefðu safn- ast settu framboðið í sterka stöðu fyr- ir haustið, og var sérstaklega tekið fram að keyptar hefðu verið auglýs- ingar fyrir sex milljónir bandaríkja- dala á bæði samfélagsmiðlum og í sjónvarpi í þeim ríkjum þar sem fyrst verður kosið í forvalinu. Þá hefðu fjármunirnir nýst til þess að ráða 200 manns til starfa fyrir framboðið. Biden sjálfur hafði hins vegar orð á því á fjáröflunarkvöldverði í Kaliforníu á fimmtudaginn hversu „lítið“ hefði safnast, og sagði megin- ástæðuna þá að hann tilkynnti ekki um framboð sitt fyrr en í apríl, nokkru síðar en flestir af helstu mót- frambjóðendum hans. Þrátt fyrir það að hann hafi safn- að minna en sumir af helstu keppi- nautum sínum hefur Biden ekki þurft að hafa áhyggjur af fylgisskorti til þessa. Kannanir hafa að jafnaði sýnt varaforsetann fyrrverandi með fylgi á bilinu 26%-32% af þeim sem kjósa munu í forvali demókrata, en Sanders hefur einungis náð í um 15-18% fylgi. Buttigieg, sem hafði safnað næst- mestu af þeim sem skilað höfðu inn fjáröflunartölum sínum fyrir helgi, hefur síðan verið kringum fimm pró- sentin og situr í fjórða sæti, langt á eftir Biden, Warren og Sanders. Hafa má í huga að fjáröflunin segir ekki alla söguna, og Trump náði að vinna Hvíta húsið síðast, þrátt fyr- ir að hann næði einungis að safna tæpum 650 milljónum dala, eða um helmingi minna en Hillary Clinton. Engu að síður geta tölurnar gefið vís- bendingu um það hversu vel fram- bjóðendum gangi að halda dampi þegar kosningabaráttan hefst fyrir alvöru stuttu eftir áramót. Í ljósi þess að Elizabeth Warren er farin að nálgast Biden, og jafnvel komin fram úr honum í sumum skoð- anakönnunum, gæti það reynst hon- um dýrkeypt að vera ekki kominn lengra með fjármögnun framboðs síns á þessu stigi baráttunnar. Meiri fjárframlög ekki ávísun á fylgi AFP Í vanda? Joe Biden hefur safnað minna fé en helstu keppinautar hans. 14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ HéraðsstjórnHong Kongákvað á föstudaginn að banna notkun and- litsgríma við mót- mæli eftir að hafa hert aðgerðir gegn mótmæl- endum í vikunni. Grímubannið er hugsað sem ein leið til þess að stemma stigu við fjöldamótmæl- unum miklu sem skekið hafa borgina síðan í vor og hafa orðið ófriðlegri að undanförnu. Það sem vakti ekki síst athygli var að stjórnvöld í Hong Kong nýttu sér heimild í lögum frá nýlendu- tíma Breta, sem gefur yfir- stjórnanda borgarinnar víðtæka heimild til þess að gefa út til- skipanir án þess að ráðfæra sig við þingið þegar neyðarástand ríkir. Þingmenn stjórnarandstöð- unnar í Hong Kong mótmæltu tilskipuninni og skutu málinu til hæstaréttar, sem í gær hafnaði kröfu stjórnarandstæðinga og staðfesti tilskipun stjórnvalda. Lögunum var síðast beitt af Bretum í óeirðum árið 1967, og voru lögreglunni í Hong Kong þá færðar auknar valdheimildir til þess að handtaka óeirðaseggi, ásamt því sem fjölmiðlar þurftu að una ritskoðun. Að þessu sinni var ekki gengið svo langt, en beiting laganna er engu að síður talin marka nokkur þáttaskil, ekki bara í óeirðunum, heldur í sögu Hong Kong eftir að Kín- verjar tóku við yfirumsjón borgarinnar. Mótmælin héldu áfram um helgina og mögnuðust á ný á sunnudag og gerðu mótmæl- endur lítið með grímubannið þrátt fyrir að eiga yfir höfði sér allt að árs fangelsi fyrir að mót- mæla með grímu fyrir andlitinu. Haldi mótmælin áfram með svip- uðum hætti þrátt fyrir bannið er fátt sem kemur í veg fyrir að lögunum verði beitt á ný, og þá með enn meira íþyngjandi hætti. Víst er að stjórnvöld í Hong Kong og í Kína eru orðin lang- eygð eftir endalokum mótmæl- anna og aukið ofbeldi auðveldar þeim að grípa til harkalegri að- gerða. Spurningin verður þá hvort orðspor Hong Kong sem réttarríkis, sem leitt hefur til þess að mest af utanríkis- viðskiptum Kínverja fer í gegn- um héraðið, sé í hættu. Beiting laganna og aukin harka héraðsstjórnarinnar, sem sýndi sig einnig í því að skot- vopnum var beitt í síðustu viku, bendir eindregið til þess að það muni lenda á yfirvöldum í Hong Kong að brjóta mótmælin á bak aftur, þar sem Kínverjar vilja helst forðast að óhreinka hendur sínar. Í augum vestrænna ríkja sem sækjast eftir viðskiptum við Kína, og sem Kínverjar eru orðnir mjög háðir viðskiptum við, gætu örlög mótmælanna í Hong Kong skipt höfuðmáli. Kínverjar hafa enda eytt miklu púðri síðustu áratugina í að byggja upp land sitt sem áhugaverðan viðskiptakost, þrátt fyrir að stjórnkerfi lands- ins sé enn bundið á klafa kín- verska kommúnistaflokksins og réttindi almennings afar ólík því sem þekkist á Vesturlöndum. Allt sem varpar skugga á Kína gæti skaðað mjög viðskipti við landið og þar með efnahag þess. Það er nokkuð sem kommún- istastjórnin vill forðast í lengstu lög, þó að enginn skyldi reikna með að hún láti það verða til þess að hún sætti sig við að missa tök- in á Hong Kong. Stjórnin í Hong Kong sýnir sitt rétta andlit sem útvörður Pekingstjórnar} Gríman felld Framkvæmda-stjóri Samtaka atvinnulífsins vakti athygli á því í að- sendri grein hér í blaðinu um helgina hve ólíkt hið opinbera og at- vinnulífið hefðust að. Hann benti á að fjöldi fyrirtækja hefði „brugðist við breyttum að- stæðum með hagræðingu í rekstri og uppsögnum starfs- fólks“. Hið opinbera héldi hins vegar áfram „að þenjast út eins og ekkert hefði í skorist“. Í fjárlagafrumvarpinu væri gert ráð fyrir að auka ríkis- útgjöld á næsta ári um 73 millj- arða króna, eða 600 þúsund krón- ur á meðalheimili. Ríkið væri fyrir mjög umsvifamikið og sveitarfélögin einnig, sem yrði til þess að skatttekjur hins opinbera væru um 34% af landsfram- leiðslu. Aðeins Svíar byggju við þyngri byrðar, en við blasti að með sama áframhaldi hér á landi styttist í íslenskt heimsmet. Framkvæmda- stjóri Samtaka at- vinnulífsins benti einnig á að nú stæðu yfir viðræður um kjarasamninga við opinbera starfsmenn sem teldu sig geta sótt meiri kjarabætur en gert hefði verið á almennum markaði. Engum á almennum markaði dytti í hug að hægt væri að ganga lengra en gert hefði verið í lífskjarasamningunum svokölluðu. Þar var teflt á tæp- asta vað eftir miklar hækkanir síðustu ára. Gengi hið opinbera lengra myndi almenni markaður- inn elta, rétt eins og fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins benti á. Þar sem ekkert svigrúm er til launahækkana yrðu fyrirtækin í landinu, ólíkt hinu opinbera, að ráðast í enn frekari uppsagnir. Að auki færi verðbólgan af stað. Ólíkt ríkinu geta fyrirtækin í landinu ekki leyst óábyrga kjara- samninga með skattahækkunum. Ljúka þarf kjara- samningum með ábyrgum hætti} Opinber útþensla og kjaramál E r þetta nú forgangsmál?“ Þetta er spurning sem sumir spyrja þeg- ar fram koma mál sem lúta að því að auka frelsi einstaklinga. Í hvert einasta skipti sem rætt er um breytingar á áfengislöggjöfinni er spurt hvort það sé forgangsmál og hvort það séu ekki mikilvægari mál sem hægt sé að sinna. Hvern- ig dettur nokkrum stjórnmálamanni í hug að einbeita sér að þannig máli á meðan fjölmörg önnur og alvarlegri mál kunna að bíða af- greiðslu? Þetta viðhorf einskorðast alls ekki við áfengislöggjöfina og á í raun við um flest frels- ismál. Stutta svarið er: Nei, þetta er ekki forgangs- mál, því miður. Það eru óteljandi mál sem ávallt bíða þess að hljóta athygli og afgreiðslu stjórnmálamanna. Vandamálin, bæði raun- veruleg og upptöluð, sem bíða þess að ríkið leysi þau eru og verða alltaf til staðar. Það má alltaf bæta hag einhverra hópa í samfélaginu, það þarf að afgreiða fjárlög, það þarf að uppfæra lög um hitt og þetta og það þarf að bregðast við þeim fjölmörgu málum sem koma upp hverju sinni. Allt eru það forgangsatriði hverju sinni. Það er ekki til það vandamál sem hið opinbera telur sig ekki geta leyst með fjármagni, lagasetningu eða reglu- gerð. Það má á sama tíma færa rök fyrir því að flest sem þingmenn og ráðherrar senda frá sér felur í sér aukin fjár- útlát af hálfu hins opinbera (sem sótt eru í vasa skattgreið- enda) eða einhvers konar form af þvingunum eða tak- mörkun á því sem einstaklingar og fyrirtæki geta tekið sér fyrir hendur. Lögum og reglu- gerðum er ætlað að leysa vandamál nútímans og ekki síður möguleg vandamál framtíðar- innar. Með einum eða öðrum hætti rammar ríkið reglulega inn það hvernig við lifum lífi okkar, stundum í þeim tilgangi að verja okkur fyrir okkur sjálfum. Í öllu þessu gefst sjaldan tími til að velta því fyrir sér hvort hægt sé að minnka ríkisvaldið, t.d. í formi þess að fækka eða afnema lög og reglugerðir. Og þá sjaldan sem það er gert er alltaf hægt að færa rök gegn því að afnema lög, því einhver gæti gert eitthvað sem gengur gegn hugmyndum um móðurhlutverk hins op- inbera. Á sama tíma er líka alltaf hægt að benda á eitthvað annað sem mögulega ætti að vera í forgangi. Frelsismál ættu að vera forgangsmál. Það að lækka skatta, minnka ríkisvaldið eða einfalda líf al- mennings, með einum eða öðrum hætti, er ekki síður mik- ilvægur hluti af starfi stjórnmálamannsins. Það eru fjöl- margir málaflokkar sem einstaklingar og fyrirtæki eru betur til þess fallin að sinna og það eru til lög og reglu- gerðir sem eru úr sér gengin. Það að vilja breyta lögum í frelsisátt og treysta almenningi fyrir eigin lífi er mikil- vægt viðhorf að hafa. Þær raddir eiga að heyrast og það hátt. Það er forgangsmál. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Er þetta forgangsmál? Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Áætlað er að kostnaður við for- setaframboð í Bandaríkjunum hafi margfaldast um 250 sinn- um frá því að Abraham Lincoln vann kosningarnar árið 1860, þegar leiðrétt hefur verið fyrir verðbólgu. Þá hefur kostnaður- inn ekki síst aukist hin síðari ár. Þannig vörðu George Bush eldri, Bill Clinton og Ross Perot um 190 milljónum bandaríkja- dala samanlagt í baráttu sína árið 1992, eða svipað og bæði Al Gore og George W. Bush eyddu hvor í sínu lagi árið 2000. Árið 2004 vann Bush yngri Hvíta húsið á ný og eyddi um leið 345 milljónum dala, sem þá var dýrasta kosningabarátta sögunnar. Barack Obama sló það met hins vegar rækilega ár- ið 2008, en hann eyddi um 730 milljónum. Á síðustu fimmtíu árum hefur einungis gerst tvisv- ar að sá sem eyðir meiru vinni ekki kosningarnar, en Trump vann Hillary Clinton 2016 þrátt fyrir að hafa einungis haft um helminginn af því fé sem hún hafði til umráða, og Jimmy Carter vann Gerald Ford árið 1976, þrátt fyrir að hafa safnað ögn minna en hann. Margfaldast frá 1860 KOSTNAÐURINN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.