Morgunblaðið - 07.10.2019, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2019
Vætutíð Rigningarpollar settu svip sinn á miðborgina í gærmorgun og var því ekki verra fyrir þá sem þar voru á ferli að vera í góðri regnkápu eins og þessi ferðamaður á Geirsgötunni.
Eggert
Heimsbyggðin
stendur frammi fyrir
margvíslegum áskor-
unum. Á grundvelli
þeirra hafa ríki heims
sett sér sameiginleg
markmið: Heims-
markmið SÞ um sjálf-
bæra þróun. Til að ná
þessum mikilvægu
markmiðum er brýnt
að horfa til þeirra
tækifæra sem felast í
landi, þ.e.a.s. jarðvegi, gróðri, vist-
kerfum og náttúru.
Land, sjálfbær nýting og end-
urheimt landgæða og vistkerfa eru
lykilatriði við að takast á við
margar af þeim stærstu áskor-
unum sem við Jarðarbúar stöndum
frammi fyrir.
Loftslagsmál
og landhnignun
Hvernig getur land verið lykill
að því að draga verulega úr losun
gróðurhúsalofttegunda? Hvernig
getur land eflt náttúruna, fjöl-
breytileika hennar og vistkerfi?
Hvernig getur land verið lykill að
því að draga úr hungri og fátækt,
auka efnahagslegt sjálfstæði og
stuðla að kynjajafnrétti, félags-
legum stöðugleika og friði í heim-
inum?
Staðreyndin er sú að hnignun
lands og eyðimerkurmyndun á
heimsvísu á sér stað á landsvæði
sem er tvisvar sinnum
stærra en Kína. Það
er 186 sinnum stærð
Íslands. Landhnignun
hefur neikvæð áhrif á
velferð meira en
þriggja milljarða
manna eða rúmlega
40% mannkyns.
Sjálfbær landnýt-
ing og endurheimt
lífríkis mikilvæg
Landi sem hefur
hnignað losar gróð-
urhúsalofttegundir
sem valda loftslagsbreytingum.
Lífrænt efni losnar úr jarðvegi og
smám saman dregur úr frjósemi
þess. Eftir því sem framleiðni og
líffræðileg starfsemi skerðist
dregur úr getu landsins til að
standa undir vatnsbúskap og
fæðuframleiðslu og efnahagslegt
mikilvægi minnkar eða hverfur.
Það getur aftur valdið félagslegum
óróa og óstöðugleika, sem endað
getur með fólksflótta og verið ógn
við frið. Stríðið í Sýrlandi er ágætt
dæmi um þetta. Landhnignun
bitnar mest á þeim sem eru fátæk-
ari og meira á konum og börnum
sem oft bera ábyrgð á að yrkja
landið og sækja vatn.
Að yrkja og nýta landið með
sjálfbærum hætti og endurheimta
vistkerfi og lífríki bindur hins veg-
ar gróðurhúsalofttegundir. Það
eflir líffræðilega fjölbreytni, gerir
landið frjósamara, myndar grund-
völl lífsviðurværis, tryggir fæðu-
framleiðslu og dregur úr líkum á
vatnsskorti. Sjálfbær landnýting
og endurheimt gæða lands eykur
félagslegan stöðugleika, stuðlar að
jafnrétti kynjanna og friði.
Af þessum sökum er landið
hlekkur sem tengir saman mis-
munandi þætti í heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna. Enn fremur
er áætlað að endurheimt lands og
sjálfbær nýting þess gæti verið
allt að 1⁄3 af lausninni við lofts-
lagsvánni á heimsvísu.
Árangur um allan heim
Rannsóknir sýna að það að ráð-
ast í endurheimt lands er efna-
hagslega skynsamlegt, en fyrir
hvern dollara sem lagður er í slík
verkefni á heimsvísu skila sér 10
dollarar til baka. Aðferðir sem
stuðla að sjálfbærri nýtingu lands
eru vel þekktar og einnig hefur
þekking á endurheimt lands og
landgæða stóraukist á undan-
förnum áratugum. Árangursrík
verkefni er að finna um allan
heim, en bæði hér heima og á
heimsvísu þurfum við að ráðast í
slík verkefni á mun stærri skala
en áður hefur verið gert.
Til að svo megi verða er nauð-
synlegt að fyrirtæki komi í stór-
auknum mæli að aðgerðum varð-
andi endurheimt og fjárfesti í
þeim. Tækifærin eru óendanleg.
Markvissar aðgerðir
á Íslandi
En hvað er að gerast í þessum
málum hér heima?
Landgræðsla og skógrækt hafa
lengi verið ofarlega á dagskrá ís-
lenskra stjórnvalda, margra fyr-
irtækja, félagasamtaka og almenn-
ings. Í aðgerðaáætlun
ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum
eru skógrækt og landgræðsla –
með áherslu á endurheimt birki-
skóga, votlendis og annarra vist-
kerfa – annar tveggja meginþátta
áætlunarinnar. Á næstu fjórum ár-
um munum við tvöfalda land-
græðslu og skógrækt og tífalda
endurheimt votlendis á vegum rík-
isins.
Mikilvægt er að virkja betur
þann áhuga sem fyrirtæki hafa á
að koma inn í verkefni á þessu
sviði og taka þar með þátt í að ná
markmiðinu um að Ísland verði
kolefnishlutlaust árið 2040. Sam-
hliða áherslu á kolefnisbindingu
þurfum við síðan að draga veru-
lega úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda og er nú markvisst unnið að
því.
Mikil reynsla af landgræðslu
Íslendingar byggja á yfir hundr-
að ára reynslu af landgræðslu.
Landgræðsluskóli Sameinuðu
þjóðanna sem staðsettur er hér á
landi tekur árlega á móti fólki frá
þróunarlöndum þar sem landeyð-
ing og ósjálfbær landnýting eru
vandamál, og býður upp á hálf
sárs þjálfun í fræðilegum og
praktískum lausnum við land-
hnignun.
Á aðildarríkjafundi eyðimerk-
ursamnings Sameinuðu þjóðanna
sem haldinn var nýlega skrifaði ég
fyrir hönd Íslands undir vilja-
yfirlýsingu með Umhverfisstofnun
SÞ um að í sameiningu yrði ráðist
í landgræðsluverkefni víða í Afríku
með umhverfis- og félagsleg mark-
mið í huga. Þar með yrði lang-
þráður draumur okkar margra að
veruleika um að Ísland beini enn
frekari kröftum í þróunar-
samvinnu sinni að málefnum sem
tengjast landi og umhverfismálum.
Ísland getur orðið í fremstu röð
ríkja við að samþætta skipulag
landnýtingar og endurheimt líf-
ríkis og vinna þannig samtímis að
öllum þremur umhverfissamn-
ingum SÞ. Þetta gerum við með
skýrri framtíðarsýn og mark-
miðum, samþættingu áætlana um
landnotkun, uppbyggingu þekk-
ingar og víðtæku samstarfi innan-
lands sem utan.
Eftir Guðmund
Inga Guðbrandsson » Ísland getur orðið
í fremstu röð við
að samþætta skipulag
landnýtingar og end-
urheimt lífríkis og
vinna þannig samtímis
að öllum umhverfis-
samningum SÞ.
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
Höfundur er umhverfis-
og auðlindaráðherra.
Landið er lykillinn