Morgunblaðið - 07.10.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.10.2019, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2019 Vætutíð Rigningarpollar settu svip sinn á miðborgina í gærmorgun og var því ekki verra fyrir þá sem þar voru á ferli að vera í góðri regnkápu eins og þessi ferðamaður á Geirsgötunni. Eggert Heimsbyggðin stendur frammi fyrir margvíslegum áskor- unum. Á grundvelli þeirra hafa ríki heims sett sér sameiginleg markmið: Heims- markmið SÞ um sjálf- bæra þróun. Til að ná þessum mikilvægu markmiðum er brýnt að horfa til þeirra tækifæra sem felast í landi, þ.e.a.s. jarðvegi, gróðri, vist- kerfum og náttúru. Land, sjálfbær nýting og end- urheimt landgæða og vistkerfa eru lykilatriði við að takast á við margar af þeim stærstu áskor- unum sem við Jarðarbúar stöndum frammi fyrir. Loftslagsmál og landhnignun Hvernig getur land verið lykill að því að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda? Hvernig getur land eflt náttúruna, fjöl- breytileika hennar og vistkerfi? Hvernig getur land verið lykill að því að draga úr hungri og fátækt, auka efnahagslegt sjálfstæði og stuðla að kynjajafnrétti, félags- legum stöðugleika og friði í heim- inum? Staðreyndin er sú að hnignun lands og eyðimerkurmyndun á heimsvísu á sér stað á landsvæði sem er tvisvar sinnum stærra en Kína. Það er 186 sinnum stærð Íslands. Landhnignun hefur neikvæð áhrif á velferð meira en þriggja milljarða manna eða rúmlega 40% mannkyns. Sjálfbær landnýt- ing og endurheimt lífríkis mikilvæg Landi sem hefur hnignað losar gróð- urhúsalofttegundir sem valda loftslagsbreytingum. Lífrænt efni losnar úr jarðvegi og smám saman dregur úr frjósemi þess. Eftir því sem framleiðni og líffræðileg starfsemi skerðist dregur úr getu landsins til að standa undir vatnsbúskap og fæðuframleiðslu og efnahagslegt mikilvægi minnkar eða hverfur. Það getur aftur valdið félagslegum óróa og óstöðugleika, sem endað getur með fólksflótta og verið ógn við frið. Stríðið í Sýrlandi er ágætt dæmi um þetta. Landhnignun bitnar mest á þeim sem eru fátæk- ari og meira á konum og börnum sem oft bera ábyrgð á að yrkja landið og sækja vatn. Að yrkja og nýta landið með sjálfbærum hætti og endurheimta vistkerfi og lífríki bindur hins veg- ar gróðurhúsalofttegundir. Það eflir líffræðilega fjölbreytni, gerir landið frjósamara, myndar grund- völl lífsviðurværis, tryggir fæðu- framleiðslu og dregur úr líkum á vatnsskorti. Sjálfbær landnýting og endurheimt gæða lands eykur félagslegan stöðugleika, stuðlar að jafnrétti kynjanna og friði. Af þessum sökum er landið hlekkur sem tengir saman mis- munandi þætti í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Enn fremur er áætlað að endurheimt lands og sjálfbær nýting þess gæti verið allt að 1⁄3 af lausninni við lofts- lagsvánni á heimsvísu. Árangur um allan heim Rannsóknir sýna að það að ráð- ast í endurheimt lands er efna- hagslega skynsamlegt, en fyrir hvern dollara sem lagður er í slík verkefni á heimsvísu skila sér 10 dollarar til baka. Aðferðir sem stuðla að sjálfbærri nýtingu lands eru vel þekktar og einnig hefur þekking á endurheimt lands og landgæða stóraukist á undan- förnum áratugum. Árangursrík verkefni er að finna um allan heim, en bæði hér heima og á heimsvísu þurfum við að ráðast í slík verkefni á mun stærri skala en áður hefur verið gert. Til að svo megi verða er nauð- synlegt að fyrirtæki komi í stór- auknum mæli að aðgerðum varð- andi endurheimt og fjárfesti í þeim. Tækifærin eru óendanleg. Markvissar aðgerðir á Íslandi En hvað er að gerast í þessum málum hér heima? Landgræðsla og skógrækt hafa lengi verið ofarlega á dagskrá ís- lenskra stjórnvalda, margra fyr- irtækja, félagasamtaka og almenn- ings. Í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum eru skógrækt og landgræðsla – með áherslu á endurheimt birki- skóga, votlendis og annarra vist- kerfa – annar tveggja meginþátta áætlunarinnar. Á næstu fjórum ár- um munum við tvöfalda land- græðslu og skógrækt og tífalda endurheimt votlendis á vegum rík- isins. Mikilvægt er að virkja betur þann áhuga sem fyrirtæki hafa á að koma inn í verkefni á þessu sviði og taka þar með þátt í að ná markmiðinu um að Ísland verði kolefnishlutlaust árið 2040. Sam- hliða áherslu á kolefnisbindingu þurfum við síðan að draga veru- lega úr losun gróðurhúsaloftteg- unda og er nú markvisst unnið að því. Mikil reynsla af landgræðslu Íslendingar byggja á yfir hundr- að ára reynslu af landgræðslu. Landgræðsluskóli Sameinuðu þjóðanna sem staðsettur er hér á landi tekur árlega á móti fólki frá þróunarlöndum þar sem landeyð- ing og ósjálfbær landnýting eru vandamál, og býður upp á hálf sárs þjálfun í fræðilegum og praktískum lausnum við land- hnignun. Á aðildarríkjafundi eyðimerk- ursamnings Sameinuðu þjóðanna sem haldinn var nýlega skrifaði ég fyrir hönd Íslands undir vilja- yfirlýsingu með Umhverfisstofnun SÞ um að í sameiningu yrði ráðist í landgræðsluverkefni víða í Afríku með umhverfis- og félagsleg mark- mið í huga. Þar með yrði lang- þráður draumur okkar margra að veruleika um að Ísland beini enn frekari kröftum í þróunar- samvinnu sinni að málefnum sem tengjast landi og umhverfismálum. Ísland getur orðið í fremstu röð ríkja við að samþætta skipulag landnýtingar og endurheimt líf- ríkis og vinna þannig samtímis að öllum þremur umhverfissamn- ingum SÞ. Þetta gerum við með skýrri framtíðarsýn og mark- miðum, samþættingu áætlana um landnotkun, uppbyggingu þekk- ingar og víðtæku samstarfi innan- lands sem utan. Eftir Guðmund Inga Guðbrandsson » Ísland getur orðið í fremstu röð við að samþætta skipulag landnýtingar og end- urheimt lífríkis og vinna þannig samtímis að öllum umhverfis- samningum SÞ. Guðmundur Ingi Guðbrandsson Höfundur er umhverfis- og auðlindaráðherra. Landið er lykillinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.