Morgunblaðið - 07.10.2019, Side 16

Morgunblaðið - 07.10.2019, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2019 Undirritaður hefur ekki minnstu ástæðu til að skattyrðast við fyrrverandi stjórnanda svæðisútvarps Vest- fjarða. Samskipti okk- ar hafa ekki verið með þeim hætti. Hins veg- ar veldur það mér von- brigðum að hann snið- gangi það aðalsmerki góðs fréttamanns að leita heimilda fyrir staðhæfingum sem hann setur fram opinberlega. Til dæmis er það blá- kalt fullyrt að lykilmönnum HS Orku, þar á meðal forstjóranum, hafi verið sagt upp. Ég kannaði það mál og fékk staðfest að forstjórinn, Ásgeir Margeirsson, sagði upp af eigin frumkvæði og var síður en svo undir þrýstingi að taka slíka ákvörðun. Þetta geta stjórnendur staðfest. Enda fælust ekki mikil bú- hyggindi í að segja upp stjórnanda með hans þekkingu og reynslu. Finnbogi Her- mannsson þekkir vel hversu marga afburða- menn Hnífsdalskynið hefur lagt þjóðfélagi okkar til og hefði því átt að kanna málið. Sagt er í greininni með orðunum „svo virðist“ að nýr meiri- hluti hafi ákveðið að slá af vegagerð í Ár- neshreppi og senda verktaka heim og að á þessu hafi engin skýr- ing verið gefin. Sú skýring er reyndar ekki langsótt því hana er að finna fremst á heimasíðu Vestur- verks. Þar eru gefnar skýringar á hvers vegna verkinu var frestað. Síðan hefur Samgönguráðuneytið úrskurðað um fullan rétt Vestur- verks og Vegagerðarinnar til áframhaldandi framkvæmda sem verður ráðist í að vori. Það er rétt sem fréttamaðurinn segir að Hvalárvirkjun hefur valdið hörðum deilum, svo hörðum að and- stæðingar hennar hafa sýnt tilburði til lögbrota í þeim tilgangi að taka völd í sveitarfélagi sem þeir búa ekki í. Háttsemi sem yfirvöld hafa komið í veg fyrir. Því er haldið fram að mikil óafturkræf náttúruverð- mæti séu í húfi. Mikill vafi leikur á staðhæfingunni um óafturkræfni og má í því sambandi vitna til orða Ómars Ragnarssonar, þess ein- staklings sem gert hefur meira en nokkur núlifandi Íslendingur í að færa okkur íslenska náttúru og víð- erni heim í stofu. Hann gagnrýndi á sínum tíma Kárahnúkavirkjun sem hann sagði mynda 25 km langan og 180 metra djúpan dal af drullu og vera auk þess á eldvirku svæði. Síð- an segir Ómar orðrétt um Hvalár- virkjun í bloggi 6.7. 2016: „Hins vegar væri Hvalárvirkjun svipuð norskum fjallavirkjunum þar sem ekkert aurset settist í lónin og hægt væri að rífa stíflur og fjar- lægja mannvirki svo árnar með fossum sínum kæmu aftur í ljós.“ Ég hlýt síðan að andmæla þeirri staðhæfingu fréttamannsins að Vestfirðingar séu mjög skeytingar- litlir um náttúruvé sín, enda er hún órökstudd. Sú virðing sem á Vest- fjörðum er borin fyrir nátt- úruperlum eins og friðlandi Horn- stranda, Vigur, Dynjanda, Látrabjargi og Vatnsfirði benda til hins gagnstæða. Hvers vegna vill mikill meirihluti Vestfirðinga og reyndar meirihluti Íslendinga samkvæmt Gallup- könnun að Hvalá sé virkjuð? Meginrökin eru þau að með ári hverju er vaxandi þörf fyrir raforku og því er rökrétt að beisla þá orku úr vistvænni og endurnýjanlegri auðlind úr okkar náttúru og draga þannig úr brennslu jarðefna til orkuvinnslu. Hvorki undirritaður né Finnbogi Hermannsson hafa sérþekkingu á raforkumálum en við getum leitað í smiðju þeirra sem búa yfir þeirri þekkingu. Einn af þeim er Bjarni Jónsson rafmagnsverkfræðingur. Hann segir í bloggi 21.4. 2018: „Það stefnir í óefni með raforku- kerfi landsins, því að þröngsýni og einstrengingsháttur veldur því að enginn meginþáttanna þriggja, raf- orkuvinnsla, flutningur og dreifing heldur í við þróun raforkuþarfar þjóðfélagsins, heimila, fyrirtækja og opinberra stofnanna. Verst hafa Vestfirðingar, Eyfirðingar og íbúar á norðausturhorninu orðið fyrir barðinu á þessu.“ Undir þetta tekur Guðni T. Jó- hannesson orkumálastjóri og vitnar í niðurstöðu skýrslu sem unnin var af sérfræðingum frá háskólastofn- unum MIT í Bandaríkjunum og IIT Cornillas á Spáni fyrir Orkustofn- un, Landsvirkjun og Landsnet. Í ljósi alls þessa vil ég skora á andstæðinga Hvalárvirkjunar að snúa sér að þarfari verkefnum í þágu náttúruverndar en ráðast gegn duglegum frumkvöðlum sem vinna samkvæmt þeirri sátt sem gerð var með Rammaáætlun sam- þykktri á Alþingi hinn 14. janúar 2013. Þessir frumkvöðlar hafa fylgt í hvívetna gildandi lögum og reglum. Er ekki kominn tími til að virða sátt um Rammaáætlun? Eftir Ólaf Bjarna Halldórsson »Hins vegar væri Hvalárvirkjun svip- uð norskum fjallavirkj- unum þar sem ekkert aurset settist í lónin og hægt væri að rífa stíflur og fjarlægja mannvirki. Ólafur Bjarni Halldórsson Höfundur er náttúruunnandi sem stundar hjólreiðar og göngur. Jón Baldvin Hanni- balsson, fyrrverandi formaður Alþýðu- flokksins, þingmaður og ráðherra, hefur skrifað og gefið út 600 blaðsíðna bók, sem hann nefnir: „Tæpitungulaust: Lífsskoðun jafn- aðarmanns“. Bókina helgar hann konu sinni, Bryndísi Schram, og 60 ára brúðkaupsafmæli þeirra hjóna. Bókin er í sex köflum og kemur Jón víða við. Hin pólitíska yfirsýn hans er með nokkrum ólíkindum og má fullyrða að bókin sé eitt merkasta stjórnmálarit sem út hefur komið á Íslandi um langt skeið. Framsetning hans á þeim málaflokkum, sem hann fjallar um, er svo skýr og skilmerkileg að hver maður getur haft gagn af. Það hefur lengi á það skort að stjórnmálaumræðan hér á landi sé í raun byggð á þeim grunngildum sem stjórnmálaflokkarnir styðjast við. Umræðan snýst meira um dagleg ágreiningsmál og reynt að móta stefnumið með almennt orð- uðum ályktunum. Í þessari bók dregur Jón Baldvin m.a. fram lífs- skoðun jafnaðarmanns og ber hana saman við þann kommúnisma sem nú hefur runnið sitt skeið og frjálshyggju kapítalismans sem síðustu árin hefur verið á framfæri ríkisins og skattgreiðenda. Hjá Jóni þurfa lesendur ekki að velkj- ast í vafa um skilgreiningu og mikilvægi jafnaðarstefnunnar. Yfirburðaþekking Jóns Baldvins á utanríkismálum kemur fram í mörgum köflum bókarinnar. Þar er hann hinn framsýni, pólitíski hugsuður sem hefur verið óragur að tala fyrir áherslum sínum og málstað sem oftar en ekki byggist á grunni norræna módelsins sem leitar uppruna síns í stefnu jafn- aðarmanna. Norðurlöndin eru hans fyrirmyndarríki í öllum samanburði við aðrar þjóðir. Hann fellir Eystrasaltsþjóðirnar að módelinu svo og náið samstarf við Evrópusambandið. Það er sú heimsmynd sem er honum að skapi. Jón Baldvin á að baki marga merkilega pólitískra sigra sem hann fjallar m.a. um í bók sinni. Þar má nefna undirbúning hans og aðstoðarmanna við gerð EES-samnings- ins sem fært hefur Íslendingum meiri hagsæld en aðrir samningar af svip- uðum toga. Hin síðari misseri hefur hann þó látið í ljós nokkrar efasemdir um þennan samning sem hann kveðst útskýra í bók- inni. Stærsta málið á ferli Jóns var stuðningur hans við frelsisbaráttu Eystrasaltsríkj- anna sem hann fjallar ítarlega um. Þá stóð hann nánast einn vestrænna leiðtoga og þurfti jafn- vel að takast á við leiðtoga vina- þjóða sem töldu hann veikja stöðu Gorbatsjovs í baráttu hans við harðlínumennina í Moskvu. Jafn- vel norrænir stjórnmálaforingjar voru honum andsnúnir. Sigur Jóns Baldvins í þessu máli er einn af hyrningarsteinum hans pólitíska lífs. Af öðrum köflum bókarinnar má nefna umfjöllun um orsakir og afleiðingar hrunsins, spurninguna um stöðu Íslendinga í samfélagi þjóðanna, norræna módelið gegn ögrun nýfrjálshyggjunnar og endatafl kalda stríðsins og fall Sovétríkjanna. Síðasti kaflinn er á persónulegum nótum; lífs- reynslusögur og hugleiðingar hans og Bryndísar um vegferð þeirra; til baka litið. Þessi bók Jóns Baldvins hlýtur að flokkast undir talsverð tíðindi í ritun stjórnmálasögu á Íslandi og þróun stjórnmálanna síðustu ára- tugi. Bókin er ekki hin sígilda við- tals- eða minningabók stjórn- málamanns. Jón grefur nokkuð djúpt í sinn pólitíska akur og dregur afgerandi ályktanir sem hann skilur öðrum eftir til um- hugsunar og umfjöllunar. Jón Baldvin talar tæpitungulaust Eftir Árna Gunnarsson Árni Gunnarsson » Það hefur lengi á það skort að stjórnmála- umræðan hér á landi sé byggð á þeim grunn- gildum sem stjórn- málaflokkarnir styðjast við. Höfundur er fyrrverandi þingmaður. gunnsa@simnet.is Fyrir 16 árum ákváðum við hjónin að flytja úr miðbæ Reykjavíkur upp í Engjahverfi í Grafar- vogi. Vorum við þá búin að skoða ýmis hverfi borgarinnar en það sem heillaði okkur við Grafarvoginn var að hann er samansettur úr litlum hverfum með grunnskóla í hjarta hvers hverfis. Þarna sáum við að börnin okkar þyrftu ekki að fara yfir götu á leið í skólann og þótti okkur það stór kostur. Þess vegna völdum við Grafarvoginn. Á þessum 16 árum höfum við því miður ekki fengið að hafa skólann okkar í þeirri mynd sem hann var. Það nýjasta sem stendur nú til er sú hugmynd meirihlutans í borginni að leggja niður skólann í Staðahverfi og gera Víkurskóla að safnskóla fyrir unglinga í norðan- verðum Grafarvoginum. Sem íbúi og foreldri tveggja barna hef ég reynt að fylgjast með því sem er að gerast í nærumhverfi mínu. Margur gæti nú spurt hvað ég sé að hafa áhyggjur af því sem er að gerast í öðrum hlutum Grafarvogs en raunin er að þetta kemur mér allt við. Ég lít á Grafar- voginn í heild sem mitt hverfi og þótt ekki standi til lokun á skól- anum næst mér gæti hann alveg eins lent undir öxinni næst. Með þessum breytingum núna er fyrirhugað að senda börnin úr Engja- hverfi í Víkurhverfi í gagnfræðaskóla. Þýðir það að dóttir mín myndi þá fara í þriðja skólann á grunnskólagöngu sinni þrátt fyrir að hafa alla ævi búið á sama stað með grunn- skóla innst í götunni. Áður en kom að þessum nýjustu hugmyndum var bú- ið að sameina Engjaskóla og Borga- skóla og þurftu börn í 6. og 7. bekk í Engjahverfi að ganga þvert yfir Grafarvoginn í Borgaskóla í öllum veðrum. Ég sat um daginn opinn fund stjórnar Íbúasamtakanna í Grafar- vogi þar sem ræddar voru áhyggjur íbúa af skóla- og samgöngumálum svo fátt eitt sé nefnt. Á fundinn voru mættir foreldrar skólabarna og aðrir íbúar í hverfinu. Fundarmenn höfðu miklar áhyggjur af hótunum um lok- anir á skólum og sameiningu. Sam- göngubætur hafa ekki fylgt þeim sameiningum skólanna sem hingað til hafa verið gerðar og því er oft á tíðum erfitt fyrir börnin að komast örugg á milli hverfa. Þau eru því keyrð, sem eykur á umferð og er allt annað en umhverfisvænt. Ekki hefur heldur verið hægt að sýna fram á að samein- ingar skólanna skili sparnaði. Skól- arnir eru hjarta hverfisins og eru hluti af lögbundinni grunnþjónustu Reykjavíkurborgar. Þá eru skólarnir jafnframt skilgreindir í deiliskipulagi. Því er verið að ganga á rétt okkar íbúa sem borgum lóðarleigu þegar skólum er lokað eða þeim er breytt. Ég er alveg búin að fá nóg og er einfaldlega að gefast upp. Mín spurning að lokum til borgar- yfirvalda er einföld: Hvernig stendur á því að ekki er hægt að spara í gælu- verkefnum í stað þess að ráðast á grunnþjónustu okkar hér í úthverf- unum? Sameining og lokanir skóla í norðanverðum Grafarvogi Eftir Þóru Þórsdóttur »Hvernig stendur á því að ekki er hægt að spara í gæluverk- efnum í stað þess að ráðast á grunnþjónustu okkar hér í úthverf- unum? Þóra Þórsdóttir Höfundur er sérfræðingur í hjúkrun, foreldri og íbúi i Engjahverfi í Grafar- vogi. starengi106@gmail.com Eftir að hafa hlust- að á sjónvarpsþátt um málefni eldri borgara í sjónvarpinu 1. októ- ber, sem var góður, kom mér á óvart að ekkert hefði verið minnst á virðisauka- skatt á lyfseðilsskyld lyf hér á landi. Við höf- um verið með hæsta vsk. í Evrópu mörg undanfarin ár. Vsk. skiptir að sjálfsögðu miklu máli fyrir eldri borgara, sem eru að mínu mati aðalviðskiptavinir lyfseðils- skyldra lyfja hér á landi. Hvernig stendur á því að ýmsir aðilar hafa fengið lækkaðan vsk. á sínar afurðir? Eru eldri borgarar svo máttlitlir í baráttu sinni fyrir réttindum sínum? Þess skal getið að síðast er ég vissi voru þrjú ríki í Evrópu með engan vsk. á lyfseðilsskyld lyf: Malta, England og Sví- þjóð. Ég tek undir hug- mynd sem kom þarna fram að rétt sé orðið fyrir eldri borg- ara að bjóða sjálfir fram til alþingis- kosninga er kosið verður til hins háa Alþingis hér á landi næst. Það er spurning hvort nokkurt vit sé í öðru? Eftir Jón Kr. Óskarsson Jón Kr. Óskarsson » Við höfum verið með hæsta vsk. í Evrópu mörg undanfarin ár. Höfundur er fv. formaður eldri borg- ara í Hafnarfirði. etrade@simnet.is Málefni eldri borgara

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.