Morgunblaðið - 07.10.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 07.10.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2019 Rað- og smáauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9-12. Opin handavinnuhópur kl. 12-16. Boccia með Guðmundi kl. 10. Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Myndlist með Elsu kl. 16-19. Opið fyrir inni- pútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535 2700. Boðinn Boccia kl. 10.30. Gönguhópur kl. 10.30. Félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 13. Sundleikfimi kl. 14.30. Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Jóga með Carynu kl. 8.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Jóga með Ragnheiði kl. 11.10. Hádegismatur alla virka daga kl. 11.30-12.20 og kaffi kl. 14.30-15.30. Jóga með Ragnheiði kl. 12.05. Tálgun – opinn hópur kl. 13-16. Frjáls spilamennska kl. 13. Liðleiki í stólum kl. 13.30. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Kaffi, spjall og blöðin við hringborðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-12. Ganga kl. 10. Byrjendanámskeið í línudansi kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarnámskeið kl. 12.30-15.30. Félagsvist kl. 13. Handavinnu- hornið kl. 13. Foreldrastund kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Jól í skókassa verkefnið í gangi. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30. Núvitund kl. 10.30. Silkimálun kl. 12.30. Bókabíllinn á svæðinu kl. 13.10-13.30. Göngutúr um hverfið kl. 13. Bridge kl. 13. Skák kl. 14. Handavinnuhópur hittist kl. 15.30. Á morgun kl. 15 verður Ragna rithöfundur og skáld með upplestur og bókaspjall á Vitatorgi. Heitt á könnunni. Verið öll hjartan- lega velkomin. Nánari upplýsingar í síma 411 9450. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Vatnsleikf. Sjál kl.7.10/7.50/15.15. Kvennaleikf Sjál. kl. 9.30. Kvenna- leikf Ásg. kl. 11. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Zumba salur Ísafold. kl. 16:15 Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Útskurður m/leiðb. kl. 9-16. Qigong kl. 10-11. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta-spil, kl. 16.30 kóræfing Söngvina, kl. 19.00 skapandi skrif. Kl. 12.30 Kynning - Starfsmaður frá Heimkaupum kemur og kennir okkur að versla á netinu og fá vörurnar sendar heim að dyrum. Gullsmára Postulínshópur kl. 9. Jóga kl. 9.30 og 17. Handavinna og Bridge kl.13. Félagsvist kl. 20. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9–14. Jóga kl. 10–11. Hádegismatur kl. 11.30. Sögustund kl. 12.30-14. Prjónaklúbbur kl. 14-16. Hraunsel Ganga alla daga í Kaplakrika kl. 8-12. Myndmennt kl. 9. Ganga í Haukahúsi kl. 10. Gaflarakórinn kl. 11. Félagsvist kl. 13. Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 9 í Borgum, ganga kl. 10 frá Borgum og Grafarvogskirkju, mánudagsdansinn hefst kl. 11 í Borgum, gaman að fá fleiri í dansfjörið. Skartgripagerð kl. 13 í Borgum, félagsvist kl. 13 í Borgum, tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í umsjón Gylfa. Kóræfing Korpusystkina í dag í umsjón Kristínar, fleiri velkomnir í kórinn og allir áhugasamir velkomnir að hlusta. Seltjarnarnes Gler, neðri hæð Félagsheimilisins kl. 9. og 13. leir, Skólabraut kl. 9. Billjard í Selinu kl. 10. Kaffi og krossgátur í króknum kl. 10.30. Jóga með Öldu í salnum á Skólabraut kl. 11. Handavinna á Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568 2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík ZUMBA Gold byrjendur kl. 9.20. ZUMBA Gold framhald kl. 10.30. STERK OG LIÐUG leikfimi fyrir dömur og herra kl. 11.30. Umsjón Tanya. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com mbl.is alltaf - allstaðar Vantar þig dekk? FINNA.is ✝ GuðmundurÞorleifsson fæddist 5. apríl 1932 í Efri-Miðbæ í Norðfjarðarsveit. Guðmundur lést 30. september 2019. Foreldrar Guð- mundar voru Þor- leifur Árnason frá Grænanesi í Norð- fjarðarsveit, f. 26. okt. 1892, d. 14. nóv. 1973, og Guðríður Guðmundsdóttir frá og Þórhildur Þorleifsdóttir, f. 17. apríl 1946, d. 31. ágúst 2012. Guðmundur kvæntist Önnu Hólm Káradóttur frá Akureyri, f. 1. júlí 1930 á Nolli, Grýtu- bakkahreppi, d. 21. ágúst 2007. Guðmundur og Anna fluttu snemma í Egilsstaði þar sem þau bjuggu alla tíð síðan. Börn Guðmundar og Önnu eru Kári Hólm, f. 1954, Birna, f. 31. des. 1955, d. 30. maí 2016, Þórleifur Hólm, f. 1957, Guð- ríður Björg, f. 1960, og Guð- mundur Hólm, f. 1966. Guðmundar og Anna eiga 14 barnabörn, 26 barnabarnabörn og eitt barnabarnabarnabarn. Útför Guðmundar fer fram frá Egilsstaðakirkju í dag, 7. október 2019. Efri-Miðbæ í Norð- fjarðarsveit, f. 14. ágúst 1903, d. 2. okt. 1982. Fimm systur Guðmundar kom- ust á legg. Borg- hildur Þorleifs- dóttir, f. 5. maí 1926, d. 7. okt. 2000, Sigrún Jó- hanna Þorleifs- dóttir, f. 4. júní 1930, Sigurlaug Þorleifsdóttir, f. 24. jan. 1935, d. 16. nóv. 1999, Með Guðmundi Þorleifssyni er genginn einn af gegnustu mönn- um Fljótsdalshéraðs. Norðfirð- ingur sem settist að á Egilsstöð- um þaðan sem hann helgaði starfskrafta sína því að halda símasambandi Austfirðinga gangandi. Á fyrstu árum loftlín- anna kostaði það mikið þrek og ódeigan hug að brjótast í ófærð um fjöll og firnindi til viðgerða. Kom sér þá vel að hafa alist upp við útiveru og skíðamennsku. Okkar leiðir lágu saman þegar hann réð mig óframfærinn ung- linginn í símavinnuflokk sinn á Seyðisfirði. Óbeðinn tók hann það upp hjá sér að koma mér þar í ökukennslu í vinnutímanum og síðan í ökupróf sem þurfti að þreyta á Reyðarfirði. Sýndi hann þar þá hugulsemi sem var ríkur þáttur í fari hans. Örgeðja var Guðmundur og kunnu því ekki allir réttilega að meta mannkosti hans. Hann var félagslyndur og á efri árum virkur í félagsskap eldri borgara og enginn var duglegri né úthaldsmeiri að dansa þegar tæki- færi bauðst. Áhugi á samfélags- málum var honum í blóð borinn og hélst til æviloka. Lá hann ekki á skoðunum sínum og gat sýnt mikla málafylgju. Þegar lítilli sundlaug var fyrst komið upp á Egilsstöðum var hann hvatamað- ur að morgunsundi og myndaðist fljótlega þéttur hópur karla og kvenna sem mætti með honum í sund fyrir allar aldir. Guðmundur sá um að opna fyrir hópnum og féll helst aldrei niður tími. Þegar þessi fyrsta sundlaug hafði verið seld upp á Jökuldal fyrir traktor og önnur nýtískulegri risin missti Guðmundur að vísu lyklavöldin en áfram mætti hann manna best og hvatti aðra til dáða með fordæmi sínu. Fyrir hönd morgunsundshóps- ins tjái ég aðstandendum hans innilega samúð okkar og söknuð en jafnframt þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast slíkum öndvegismanni og Guðmundur var. Um hann gilti orðatiltæki gengins bónda úr Hróarstungu: „Hann var góður maður og ágæt- ur.“ Stefán Þórarinsson. Þegar ég var að alast upp á Eg- ilsstöðum var Guðmundur eitt þessara andlita sem maður sá víða en þekkti ekki mikið til. Það var ekki fyrr en löngu síðar, þegar ég tók oddvitasætið á lista Fram- sóknarflokksins fyrir sveitar- stjórnarkosningarnar 2010, sem ég get sagt að ég hafi kynnst hon- um að ráði. Guðmundur tók þá einnig sæti á listanum, 40 árum eftir að hann hafði síðast gert það, og átti síðan eftir að taka virkan þátt í bæjarmálastarfi Framsókn- arflokksins á Fljótsdalshéraði allt til dauðadags. Guðmundur var besti liðsfélagi sem hægt er að hugsa sér. Hann hélt manni við efnið, var ófeiminn að koma mál- um á framfæri og fylgja þeim eft- ir. Hann var alltaf málefnalegur og þó að skoðanaskipti við Guð- mund gætu á stundum orðið hvöss var það aldrei í illu. Alltaf vorum við áfram vinir og samherjar þeg- ar upp var staðið. Guðmundur tók ekki þátt í stjórnmálum sjálfs sín vegna og erindi hans sneru aldrei að honum eða hans hagsmunum. Hann var alltaf að hugsa um aðra, samfélagið sitt og þá ekki síst eldri borgara og þrautseigja hans í mál- flutningi kom mörgu góðu til leið- ar. Ég minnist með mikilli hlýju ferða okkar saman um sveitir fyrir þrennar sveitarstjórnarkosning- ar. Guðmundur keyrði og réði ferðinni, fræddi mig um ábúendur og helstu mál sem máli skiptu, kom á fyrstu kynnum þegar kom- ið var á bæi og leyfði mér svo að reyna að tryggja atkvæðin eftir bestu getu. Ég óttast að Guð- mundur hafi reynst mér betri liðs- félagi en ég honum. Að minnsta kosti man ég eftir fleiri en einu máli sem hann reglulega brýndi mig til að koma í framkvæmd sem ekki er lokið enn. Ég ætla að reyna að standa mig en það verður sannarlega söknuður að hafa Guð- mund ekki á svæðinu til að halda sér við efnið. Ég sendi fjölskyldu hans og vinum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Stefán Bogi Sveinsson. Guðmundur Þorleifsson ✝ Pálína MargrétStefánsdóttir fæddist 12. febrúar 1925 á Hvalskeri í Rauðasandshreppi. Hún lést á Land- spítalanum Foss- vogi 20. september 2019 eftir stutt veikindi. Foreldrar henn- ar voru Valborg Pétursdóttir, f. 8. janúar 1893, d. 17. júlí 1975, og Stefán Ólafsson, f. 10. janúar 1891, d. 3. maí 1942. Pálína var þriðja í röð fimm systkina sem voru Þórir, d. 1999, Guðbjörg (Stella), d. 1984, Pétur Eysteinn, d. 2010, Arnfríður Ásta lifir systkini sín. Pálína giftist 29. maí 1952 Guðný Kristín, f. 12. febrúar 1955, maki Bjarni Hermann Halldórsson, f. 28. júní 1955, börn þeirra eru Heiða Björg, maki Eiríkur Aðalsteinsson, eiga þau þrjá syni, Hörður Sigurjón, maki Emilía Gísladóttir, eiga þau einn son. Vignir Ingi, maki Rebekka Rúnarsdóttir, saman eiga þau fjórar dætur. Pálína fór ung í Söngskóla þjóðkirkjunnar og menntaði sig í orgelleik. Hún spilaði í kirkjum fyrir vestan og einnig við sérstök tilefni svo sem afmæli. Hún var ein af stofnendum Samkórs Kópavogs. Einnig var hún félagi í Freyju, félagi framsóknar- kvenna í Kópavogi. Eftir að dæt- ur hennar stálpuðust fór hún að vinna utan heimilis. Vann hún lengst af við verslunarstörf, hjá Mjólkursamsölunni, Hannyrða- versluninni Storkinum og mötu- neyti Seðlabanka Íslands til starfsloka. Útför Pálínu fór fram í kyrr- þey að hennar ósk frá Kópavogs- kirkju 4. október 2019. Herði Sigurjóni Kristóferssyni bif- vélavirkjameistara, f. 9. október 1917, d. 21. september 2006. Foreldrar hans voru Kristófer Bjarni Jónsson, d. 1923, og Guðjónía Stígsdóttir, d. 1963. Dætur Pálínu og Harðar eru Valborg Stella, f. 4. sept- ember 1953, d. 24. október 2016. Hennar maki var Eggert Þór Jó- hannsson, f. 21. október 1952, synir þeirra eru Hörður Páll, maki Karen Ómarsdóttir, saman eiga þau fimm börn, Anton Ingi, unnusta Nicola Willis, Stefán Jó- hann, maki Jóhanna Brynjólfs- dóttir, þau eiga tvær dætur. Hún Pálína frænka er farin. Það er skrítin tilhugsun að eiga ekki eftir að koma við í kaffi til hennar og spjalla. Við ættingjarn- ir að vestan áttum alltaf athvarf hjá þeim heiðurshjónum Pálu og Herði á Digranesvegi 112, hvort sem það var í stuttri bæjarferð eða lengri dvöl. Iðulega höfðu þau einn ungling úr fjölskyldunni í kjallaranum hjá sér sem stundaði nám eða starf í höfuðborginni. Það lýsir vel Pálu að hún var góð við alla, ekki bara menn heldur líka málleysingja. Hún létti undir með svöngum, einstæðum villi- kattamæðrum sem áttu heima í holtinu við Digranesveginn og hún átti margar sögur af þeim. Einnig áttu fuglarnir við Kópa- vogsbrautina sinn stein sem þeim var gefið á. Það var alltaf tilhlökkunarefni þegar þau hjónin komu vestur á sumrin fyrir okkur krakkana í sveitinni. Hún fylgdist alltaf með sinni æskusveit og í samtölum vestur sagði hún iðulega: „En hvað er að frétta af Rauðasandi?“ Það er einstakt hve Pála virtist lítið þurfa að sofa, því auk þess að stunda vinnu og sinna matseld og heimilisstörfum, sat hún við að prjóna fram á rauða nætur. Hún prjónaði barnateppi fyrir litlu börnin sem fæddust ættingjum og vinum, ógrynni af barnafötum og í seinni tíð prjónaði hún fyrir fátæk börn í öðrum löndum. Pála hafði gaman af að eiga fal- legt heimili. Þegar hún endurnýj- aði hjá sér, sem gerðist endrum og sinnum, fengu við unga fólkið að njóta þess og sófasettin hófu hringferð sína milli okkar. Það er margt sem við eigum Pálínu að þakka, hún var alltaf boðin og búin að leggja öllum lið og við þökkum fyrir það. Þau Pála og Haddi eiga stóran afkomendahóp og vottum við þeim samúð. Systkinin frá Skeri, Margrét. Pálína Margrét Stefánsdóttir Amma var þvílíkt gull af konu. Hún var svo kærleiksrík og hafði svo mikið að gefa. Hún vildi ekki einu sinni gera skor- dýrum mein. Stundum benti maður á húsflugu sem maður sá inni: „amma, fluga!“ þá svaraði hún alltaf „já sjáðu, þetta er vin- kona okkar“. Amma kenndi mér nokkur töfrabrögð með spilum og Guðrún Pálsdóttir ✝ Guðrún Páls-dóttir (Gugga) fæddist 15. sept- ember 1943. Hún lést 14. september 2019. Útför Guðrúnar fór fram 28. sept- ember 2019. í mínum augum var amma galdrakona. Hún var best í að baka, best í að prjóna, best í að gera bútasaum, hún var best í öllu og gerði allt svo vel og vandvirkt. Hún var „húkt“ á prjónunum og leið hálfilla án þeirra. Ég hef alltaf verið gikkur á mat en sama hvað amma eldaði eða bakaði þá gat ég borðað það, hún meira að segja gat látið mig borða grænmeti! Svo var hún líka svo fyndin, mikill húmoristi og var svo góð í að segja sögur. Allir sem þekktu ömmu elskuðu hana og dýrkuðu því hún einhvern veg- inn náði til allra. Það er gaman að rifja upp minningar um ömmu því þær eru svo margar og allar svo góðar að það fær mig alltaf til að brosa eða jafnvel hlæja. Þegar ég var yngri spurði amma mig hvort ég vissi hvers vegna það rigndi. Hún sagði: „Það er vegna þess að englarnir á himnum eru að gráta.“ Svo spurði hún hvort ég vissi hvers vegna það kæmi regnbogi, svarið hennar var: „Regnboginn er brú fyrir fólk sem er á leiðinni til himna.“ Það er sárt að hún sé farin frá okkur en minning hennar lifir áfram í hjörtum okkar allra. Elsku amma mín, ég sakna þín svo mikið. Ég trúi því að þú sért nú komin á betri stað í sumar- landinu. Þú ert fallegasta sálin á himnum. Ég elska þig. Þín ömmustelpa, Rakel Marín. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.