Morgunblaðið - 18.10.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
TAUBLEIUBÚÐIN ÞÍN
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Átak í samgöngumálum
Mörgum verkefnum verður flýtt Unnið verði í einum jarðgöngum á hverjum
tíma Gerð Fjarðarheiðarganga hefjist árið 2022 Hringtenging fylgi í kjölfarið
Guðni Einarsson
Anna Lilja Þórisdóttir
Bein framlög til samgöngumála
nema alls tæpum 633 milljörðum
króna á 15 ára tímabili samgöngu-
áætlunar. Drög að uppfærðri sam-
gönguáætlun fyrir árin 2020-2034
eru nú í samráðsgátt stjórnvalda.
Einnig er kynnt uppfærð aðgerða-
áætlun fyrir fyrsta tímabilið, 2020-
2024. Frestur til að skila umsögnum
er til 31. október 2019.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
kynnti samgönguáætlun á opnum
fundi ráðuneytisins í Norræna hús-
inu í gærmorgun. Síðan voru pall-
borðsumræður um samgöngumál.
Fundurinn var sendur út á netinu.
Lögð er áhersla á að flýta fram-
kvæmdum innan tímabilsins frá því
sem áður var áætlað. Þá eru kynntar
nýjar stefnur um flug á Íslandi og al-
menningssamgöngur milli byggða.
Til vegagerðar eiga að falla tæpir
560 milljarðar, til flugvalla og flug-
leiðsögu um 37 milljarðar, rúmir 14
milljarðar til hafnamála, rúmir 19
milljarðar í stjórnsýslu, öryggi og
eftirlit og rúmir 2,5 milljarðar til
Rannsóknarnefndar samgönguslysa,
að því er fram kemur á vef sam-
gönguráðuneytisins.
Sérstök jarðgangaáætlun er í
samgönguáætlun og er gert ráð fyrir
að unnið sé að jafnaði í einum jarð-
göngum á landinu á hverjum tíma.
Ráðgert er að flýta upphafi fram-
kvæmda við Fjarðarheiðargöng til
ársins 2022. Í kjölfarið verði farið í
göng milli Seyðisfjarðar og Mjóa-
fjarðar og svo frá Mjóafirði til Norð-
fjarðar sem myndi hringtengingu.
Gert er ráð fyrir að framlög af sam-
gönguáætlun standi undir helmingi
framkvæmdakostnaðar jarðganga.
Gjaldtaka af umferð í jarðgöngum
standi undir hinum helmingi kostn-
aðarins við framkvæmdir.
Sigurður Ingi sagði að stefnt væri
að samvinnuverkefnum einkaaðila
og ríkisins við sumar framkvæmd-
irnar. Þar yrði gjaldtaka í afmark-
aðan tíma, t.d. við akstur um Sunda-
braut, nýja brú yfir Ölfusá, tvöföld
Hvalfjarðargöng og jarðgöng um
Reynisfjall og Axarveg. Ríkið mundi
síðan eignast innviðina í lok samn-
ingstímans. Gjaldtakan helgaðist af
því að ráðast þyrfti í kostnaðarsamar
samgöngubætur á næstu 15 árum
sem myndu taka 50 ár með hefð-
bundinni fjármögnun hins opinbera.
Málum, sem árlega hafa borist nefnd
um eftirlit með lögreglu, hefur fjölg-
að mikið frá því nefndin var sett á
stofn fyrir þremur árum. Á árinu
2017 voru málin alls 81, árið 2018
voru þau 100 og það sem af er árinu
2019 hafa nefndinni borist 86 mál.
Þetta kemur fram í umsögn Skúla
Þórs Gunnsteinssonar, formanns
nefndarinnar, um þingsályktunar-
tillögu sem liggur fyrir Alþingi en
samkvæmt tillögunni, sem Helgi
Hrafn Gunnarsson og fleiri þing-
menn Pírata lögðu fram, á forseti Al-
þingis að leggja fyrir forsætisnefnd
þingsins að semja lagafrumvarp um
sérstaka stofnun á vegum Alþingis
sem hafi eftirlit með störfum lög-
reglu.
Í umsögn Skúla kemur fram, að
nefndinni, sem nú starfar, séu settar
ákveðnar skorður hvað varðar vald-
heimildir, meðal annars hafi nefndin
engar sjálfstæðar rannsóknarheim-
ildir og geti ekki beitt lögreglumenn
eða lögreglustjóra viðurlögum vegna
brota í starfi, né lagt slíkt til við lög-
reglustjóra sem þeirra yfirmenn.
Telja þörf á auknum
fjárveitingum
Hlutverk nefndarinnar sé ein-
skorðað við að koma kvörtunum eða
kærum í viðeigandi farveg og eftir
atvikum koma með athugasemdir
við afgreiðslu og meðferð mála.
Nefndin geti þó beint tilmælum til
lögreglustjóra um breytingu á verk-
lagi eða gert tillögur um aðrar að-
gerðir en þær sem afgreiðsla emb-
ættanna kveði á um. Þau tilmæli séu
þó ekki bindandi.
Einnig kemur fram í umsögninni
að fjárveiting til nefndarinnar sé um
18 milljónir á ári, en auknar fjárveit-
ingar þyrfti til þess að eftirlit nefnd-
arinnar geti verið viðunandi og hún
sinnt starfsskyldum sínum með við-
hlítandi hætti.
Fjöldi mála til eftirlitsnefndar
86 mál hafa borist
það sem af er árinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lögreglan Fjöldi mála berst til
nefndar um eftirlit með lögreglu.
Eldur kom upp í Vesturborg ÍS 320
frá Suðureyri þar sem báturinn var í
slipp í Stykkishólmi í gær. Nokkrir
menn unnu við bátinn þegar eldurinn
kom upp síðdegis en engan sakaði.
„Þetta var heilmikið mál og bát-
urinn er mikið skemmdur. Það
bjargaði þessu að það var hægt að
draga hann út úr húsinu,“ sagði Álf-
geir Marinósson, slökkviliðsstjóri í
Stykkishólmi, í samtali við mbl.is í
gærkvöldi.
Slökkviliðið í Stykkishólmi kom
fljótt á vettvang eftir að útkall barst.
Slökkvilið Grundarfjarðar og Snæ-
fellsbæjar voru kölluð út til að að-
stoða ef eldurinn hefði náð að berast í
húsnæðið en sem betur fer varð það
ekki raunin og einu skemmdirnar á
húsnæði voru vegna reyks.
Rannsókn málsins er komin í
hendur lögreglunnar í Stykkishólmi.
Bátur
brann í
Hólminum
Miklar skemmdir
en engan sakaði
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Bruni Vesturborg er mikið skemmd.
Sænska jólageitin var sett upp við IKEA í Garða-
bæ í gær og minnti á að það styttist til jóla.
Löng hefð er orðin fyrir því að verslunin setji
upp jólageit við verslunina. Jólageiturnar á Ís-
landi hafa þó ekki allar náð að standa til jóla.
Dæmi eru um að brennuvargar hafi kveikt í jóla-
geitinni, þrátt fyrir að hennar sé vandlega gætt,
og eins hefur komið fyrir að íslenskt vetrarveður
hafi feykt geitinni um koll.
Svipmikil geit minnir á að það styttist til jóla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Ég held að það sé nú ekki
neinn gríðarlegur titringur.
Minn skjálftamælir mælir smá-
vægilegan titring og það er nú
líka venjan þegar samgöngumál
eru rædd,“ sagði Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráðherra,
spurð um meintan titring í rík-
isstjórnarsamstarfinu vegna
kynningar Sigurðar Inga Jó-
hannssonar samgönguráðherra
á samgönguáætlun í gærmorg-
un. Áætlunin hafði þá hvorki
verið kynnt ríkisstjórn né þing-
flokkum stjórnarflokkanna.
thor@mbl.is
Smávægileg-
ur titringur
SAMGÖNGUÁÆTLUN