Morgunblaðið - 18.10.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019
Framkvæmdir eru í fullum gangi á vegum Olís við gerð
nýrrar Ób-stöðvar á Akureyri. Unnið var að því í gær-
morgun að koma stærðarinnar birgðatönkum fyrir í
grunni stöðvarinnar. Rís hún við Sjafnargötu, við þjóð-
veginn út úr bænum að norðanverðu, skammt frá Húsa-
smiðjunni og Byko.
Að sögn Páls Baldurssonar hjá Olís á Akureyri er
stefnt að því að taka stöðina í notkun um miðjan desem-
ber. Á stöðinni verða tvær dælueyjar, með öflugum
dælum, þar sem áhersla er lögð á að þjónusta stærri
ökutæki sem þurfa gott pláss, eins og rútur og vöru-
flutningabíla. „Minni bílar geta að sjálfsögðu tekið
þarna eldsneyti en planið er sérstaklega hannað fyrir
stóru bílana þar sem aðgengið verður betra en á hefð-
bundinni bensínstöð,“ sagði Páll en um viðbót er að
ræða á Akureyri. Fyrir eru tvær Ób-stöðvar og tvær
Olís-stöðvar, þar af ein sem afgreiðir metan í samstarfi
við Norðurorku.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Stöðin hönnuð fyrir stærri bíla
Birgðatönkum komið fyrir í grunni nýrrar Ób-stöðvar á Akureyri
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
SÍÐAN 1969
FLOTTUSTU BÚNINGARNIR
ÞÍNAR SÉR ÓSKIR UM FJÖLBREYTTA
FRAMLEIÐSLU EÐAMERKINGAR
846 BLS BÆKLINGUR Á HEIMASÍÐUNNI HENSON.IS
TIL MERKINGA EÐA EKKI
SENNILEGA FJÖLHÆFASTI FATAFRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI
ÍSLANDS ÞÓVÍÐARVÆRI LEITAÐ!
Brautarholti 24 · 105 Reykjavík · S.: 562 6464 · henson@henson.is
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
HS Orka kaupir raforku frá 13 smá-
virkjunum sem samtals eru með
tæplega 24 megavött í uppsettu afli
og framleiða um 147 gígavattstundir
á ári. Að auki eru þrjár virkjanir í
byggingu sem teknar verða í notkun
á næsta ári. Þá verður uppsett afl
smávirkjana sem fyrirtækið er í við-
skiptum við 42 MW og framleiðslan
247 GWst á ári. Þetta er svipuð fram-
leiðsla og 4. stærsti orkuframleiðandi
landsins er með og meira uppsett afl.
Kom þetta fram í erindi Friðriks
Friðrikssonar, framkvæmdastjóra
framleiðslu og sölu hjá HS Orku, á
erindi sem Orkustofnun hélt í gær
um uppbyggingu smávirkjana á Ís-
landi. Ráðstefnan var fjölmenn. Á
hana mættu 250 manns og um 220 að
auki fylgdust með í beinni útsend-
ingu á netinu.
Aukinn áhugi er hjá orkufyrir-
tækjum og landeigendum að byggja
upp smávirkjanir og er fjöldi verk-
efna í þróun um allt land. Í erindum á
ráðstefnunni var fjallað um ýmsar
hliðar málsins. Meðal annars var
sagt frá þróun mála í Noregi en þar
hafa 837 smávirkjanir verið byggðar
upp á síðustu átta árum með 6.400
GWst framleiðslugetu. Þær eru ým-
ist byggðar af landeigendum eða þá
að landeigendur leigja fjárfestum
vatnsréttindin.
Spara í kaupum á toppafli
Grunnorka HS Orku er frá jarð-
varmavirkjunum fyrirtækisins. Hún
er mjög jöfn. Fyrirtækið selur mun
meiri orku en það framleiðir og þarf
að kaupa orku frá öðrum. Þá eru
sveiflur í almenna markaðnum, ekki
síst milli dags og nætur.
Friðrik Friðriksson sagði að ork-
an sem fyrirtækinu stæði til boða frá
„einu ákveðnu fyrirtæki“, eins og
hann tók til orða og á væntanlega við
Landsvirkjun, væri með stífum skil-
málum og litlum sveigjanleika.
Þess vegna hefði fyrirtækið leitað
eftir kaupum á raforku frá litlum
orkuframleiðendum fyrir hluta afl-
og orkuþarfar. Eftir að raforku-
markaðurinn opnaðist var samið við
eigendur þriggja smávirkjana sem
hafa möguleika á miðlun. Fram-
leiðslu virkjana er stýrt af HS Orku
og það hefur gefið fyrirtækinu
möguleika á að minnka þörfina á
kaupum á toppafli frá öðrum fram-
leiðendum. HS Orka hefur samið við
eigendur 10 smávirkjana til viðbótar
og eru smávirkjanirnar farnar að
hafa mikil áhrif á markað fyrirtækis-
ins.
Þrjá virkjanir bætast við á næsta
ári. Það eru Brúarvirkjun í Tungu-
fljóti sem HS Orka reisir sjálf í sam-
vinnu við landeiganda og tvær virkj-
anir í Eyjafirði. Fyrirtækið verður
enn sjálfbærara þegar þær hefja
framleiðslu.
Þá á HS Orka aðild að Vesturverki
sem er að undirbúa Hvalárvirkjun
og rannsaka möguleika á virkjunum
á nokkrum stöðum í Ísafjarðardjúpi.
Orkan markaðssett sérstaklega
Segir Friðrik að HS Orka hafi
mjög góða reynslu af kaupum á raf-
orku frá smávirkjunum og samstarfi
við eigendur þeirra. Fyrirtækið
stefni að því að nýta sérstöðu sína og
markaðssetja sérstaklega raforku
frá smávirkjunum. Segist hann viss
um að markaðurinn svari því á já-
kvæðan hátt.
HS Orka kaupir raforku
af 13 smávirkjunum
Þrjár bætast við á næsta ári Uppsett afl verður 42 MW
Morgunblaðið/Hari
Framkvæmdir Brúarvirkjun verður tekin í notkun í janúar. HS Orka reisir
hana í samvinnu við landeigandann á Brú. Framkvæmdum er að ljúka.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Frá upphafi árs til loka september
voru umsóknir um hæli hér á landi
alls 621. Fjölmennasti hópur um-
sækjenda er ríkisborgarar frá Írak,
Venesúela og Afganistan. Útlend-
ingastofnun veitti 216 hælis-
umsækjendum vernd, viðbótar-
vernd eða dvalarleyfi af
mannúðarástæðum á sama tímabili,
flestum frá áðurnefndum þremur
ríkjum. Er þetta meðal þess sem
fram kemur í nýbirtri samantekt
Útlendingastofnunar, en gögnin eru
aðgengileg á heimasíðu stofnunar-
innar.
Það sem af er ári hefur samtals
fengist niðurstaða í rúmlega 800
mál hjá Útlendingastofnun. Máls-
meðferðartími umsókna sem af-
greiddar voru með ákvörðun voru
157 dagar.
Þeir sem sóttu um alþjóðlega
vernd hér á landi eru 621 af 68 þjóð-
ernum. Er það um 15% fleiri um-
sóknir en bárust á sama tímabili
síðasta ár, en þá var um að ræða
532 einstaklinga um alþjóðlega
vernd. Hlutfall umsókna frá svoköll-
uðum „öruggum upprunaríkjum“ er
lægra en á síðasta ári, eða tæp 20%.
Helmingur fullorðnir karlmenn
Stærstu hópar umsækjenda á
þessu ári eru frá Írak (110), Vene-
súela (84) og Afganistan (42). Þar á
eftir koma Nígería (38), Albanía
(34), Sómalía (30), Georgía (26) og
Íran (25). Þá má einnig nefna að
tveir sóttu um hæli hér á landi frá
Bandaríkjunum, fimm frá Kína, 13
frá Rússlandi og einn frá Bretlandi.
Helmingur umsækjenda um hæli
var fullorðnir karlmenn og rúmur
fjórðungur yngri en 18 ára.
Einstaklingum í þjónustu í
verndarkerfinu fjölgaði á fyrstu
mánuðum ársins en fækkaði aftur
um mitt árið. Í byrjun þessa mán-
aðar nutu alls 577 umsækjendur um
alþjóðlega vernd þjónustu í íslenska
kerfinu.
Umsóknir um alþjóðlega vernd
Fjöldi umsókna 2016-2019* Kyn og aldur umsækjenda
Janúar-september 2019
1.200
1.000
800
600
400
200
0
Örugg upprunaríki
Önnur upprunaríki
Stúlkur Konur
Drengir Karlar
H
e
im
ild
: Ú
tl
e
n
d
in
ga
st
o
fn
u
n
1.133
436
697
1.096
525
571
800
607
193
621*
506
115
2016 2017 2018 2019
*Jan.-sept. 2019
50% 23%
14%
13%
Yfir 200 fengið
vernd á þessu ári
Hátt í 600 í íslenska verndarkerfinu