Morgunblaðið - 18.10.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 18.10.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ekki tókst heildarsamkomulag á milli strandríkja um stjórnun makrílveiða á Norðaustur-Atlantshafi á næsta ári í þriggja daga samningalotu sem lauk í London í gær. Ísland verður því áfram utan samnings á næsta ári og segir Kristján Freyr Helgason, aðal- samningamaður Íslands, að fljótlega hafi orðið ljóst á þessum fundum að ekki væri vilji til þess að svo stöddu að taka nýja aðila inn í samkomulag um stjórnun veiðanna. „Við sögðum í upphafi funda að við værum komnir til London með það að markmiði að verða aðilar að samn- ingi,“ segir Kristján Freyr. „Við for- menn sendinefnda Íslands, ESB, Noregs og Færeyja áttum nokkra fundi. Þar viðruðum við sjónarmið og hugmyndir Íslendinga og færðum rök fyrir okkar máli, en það komst síðan ekki lengra. Okkur var fljótlega gert ljóst með skýrum hætti að á þessum tímapunkti yrði samningur þriggja af strandríkjunum; Evrópusambands- ins, Noregs og Færeyja, ekki útvíkk- aður.“ Kristján Freyr vill ekki ræða einstök efnisatriði í viðræðunum. Harma ákvörðun Íslendinga Noregur, Evrópusambandið og Færeyjar endurnýjuðu hins vegar samning sinn um makrílveiðar og miða þjóðirnar við 922 þúsund tonna heildarafla á næsta ári, sem er í sam- ræmi við ráðgjöf ICES. Af þessu magni verða 15,6% tekin frá fyrir Ís- land, Grænland og Rússland. Skipt- ingin á milli samningsaðila er sú að 455 þúsund tonn koma í hlut Evrópu- sambandsins, Noregur fær 208 þús- und tonn og í hlut Færeyja koma 116 þúsund tonn. Í bókun með samningnum segjast strandríkin þrjú harma þá ákvörðun Íslendinga að auka makrílkvóta sinn einhliða síðasta sumar. Sú ákvörðun standist engar vísindalegar kröfur og grafi undan viðleitni Evrópusam- bandsins, Færeyja og Noregs til að viðhalda sjálfbærni stofnsins til lengri tíma og þeirri ákvörðun sem tekin var fyrr á árinu að auka ekki heildarkvót- ann. Loks eru Íslendingar gagnrýnd- ir fyrir að hafa ekki ráðfært sig við samstarfsþjóðir sínar áður en einhliða ákvörðun um makrílkvótann var til- kynnt. Sömuleiðis eru Grænland og Rússland gagnrýnd fyrir að gefa út einhliða kvóta. Aðrir stofnar í næstu viku Í dag verða viðræður um veiðar á úthafskarfa og frá þriðjudegi til fimmtudags í næstu viku ræða strandríkin um veiðar og stjórnun á norsk-íslenskri síld og kolmunna. Samningar eru ekki í gildi milli Ís- lands og annarra strandríkja um síld og kolmunna frekar en makríl. Kristján segir að Íslendingar hafi í lok fundar lýst því yfir að nú sem endranær væru Íslendingar tilbúnir að vinna með öllum aðilum að gerð heildarsamkomulags um stjórnun veiða á uppsjávarstofnunum þremur. Hvort heldur sem samið væri um makríl sérstaklega eða sameiginlega um makríl, norsk-íslenska síld og kol- munna. Enn utan sam- komulags um makrílveiðar  Var gert ljóst að samningur yrði ekki útvíkkaður að svo stöddu Morgunblaðið/Árni Sæberg Guðni Einarsson Þór Steinarsson Árangur í kjarasamningum er lang- hlaup og stjórnvöld og atvinnurek- endur þurfa að leggja sitt af mörk- um til þess að tryggja jöfnuð í samfélaginu svo að þeir launalægstu beri ekki þyngstu byrðarnar. Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobs- dóttur forsætisráðherra á ársfundi Samtaka atvinnulífsins (SA) í gær. Ársfundurinn var haldinn í Eldborg í Hörpu. Þetta var í fyrsta sinn sem ársfundurinn er haldinn að hausti. Það var gert í tilefni af því að 20 ár eru liðin frá stofnun SA. „Svigrúm til óábyrgra kjarasamn- inga er minna en áður. Launin duga betur en nokkru sinni og almenn vel- megun og jöfnuður hefur aldrei ver- ið meiri,“ sagði Eyjólfur Árni Rafns- son, formaður SA, í ávarpi. „Ólík sjónarmið, heilbrigt samtal og gagn- kvæmur skilningur leiða af sér nið- urstöðu þar sem enginn einn fær ráðið öllu né nær öllu sínu fram. Um málamiðlun þarf að skapast sátt allra aðila og sannfæring fyrir því að innistæða fyrir nýjum samningum sé til staðar,“ sagði Eyjólfur. „Ábyrgð samningsaðila við gerð kjarasamninga er mikil, og þó að ekki væri nema vegna þess þá gegna Samtök atvinnulífsins og launafólks mikilvægu hlutverki í þjóðfélaginu. Samskipti okkar við verkalýðshreyf- inguna byggjast á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir sjónar- miðum hvert annars.“ Auk Katrínar forsætisráðherra og Eyjólfs Árna, formanns SA, töl- uðu þau Ásdís Kristjánsdóttir, for- stöðumaður efnahagssviðs SA, og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, á fundinum. Þau litu um öxl í sögu SA og einnig fram á veg. Ásmundur Stefánsson, fyrrverandi forseti ASÍ, og Þór- arinn Viðar Þórarinsson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambands Íslands, sögðu frá Þjóðarsáttinni 1990. Gestir ársfund- arins fengu að gjöf nýja bók Guð- mundar Magnússonar, Frá þjóð- arsátt til lífskjarasamnings, Samtök atvinnulífsins 1999-2019, þar sem rakin er saga vinnumarkaðar og efnahagslífs síðustu tveggja ára- tuga. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon SA 20 ára Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði ársfund SA sem var 20 ára afmælisfundur. Velmegun og jöfnuður aldrei meiri en nú  Samtök atvinnulífsins fögnuðu 20 ára afmæli með ársfundi Smiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is STIMPILPRESSUR Loftpressur af öllum stærðum og gerðum Mikið úrval af aukahlutum Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Farfuglum hefur fækkað um 20-30 prósent í Evrópu á síðustu fimmtíu árum, sérstaklega hvað varðar lang- dræga farfugla, fugla sem fljúga 2.000 kílómetra eða lengra á milli varp- og ætisstöðva. Helsta ástæðan fyrir þessari miklu fækkun er eyðing búsvæða á heimsvísu. Farfuglar virðast við- kvæmari fyrir henni en staðfuglar. Þetta segir Tómas Grétar Gunnars- son, líffræðingur og forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi, sem hélt erindi á líf- fræðiráðstefnu sem hófst í Öskju í gær. Hérlendis hafa íslenskir vað- fuglar verið rannsakaðir í um tutt- ugu ár. „Við erum að reyna að nota íslenska vaðfugla til að skýra almenn mynstur sem sjást í hnignun far- fuglastofna um heiminn,“ segir Tóm- as. „Þeir hafa að mörgu leyti líka lífs- hætti á Íslandi en þeir hafa mjög mismunandi farlengdir. Við erum að reyna að nota þetta kerfi til að sjá hver munurinn er á viðkomu lang- og skammdrægra farfugla í þessum hópi. Það sem kemur í ljós er að skammdrægu farfuglarnir koma miklu fyrr til landsins. Það veldur því að þeir hafa meiri tíma á vorin til að bregðast við því að það séu hlý vor,“ segir Tómas. Því verpa fugl- arnir fyrr og þeim gengur betur með varp. „Svo vantar eiginlega almennilega vöktun á okkar algengustu mófugl- um sem flestir okkar vaðfuglar eru til þess að geta séð hvort þessi mynstur sem við sjáum og þessi mikli munur sem við sjáum sé að koma fram í stofnbreytingum. Hvort langdrægum farfuglum eins og spó- um til dæmis sé að fækka á meðan skammdrægari fuglum eins og til dæmis jaðrakan eða lóu er ekki að fækka.“ Fækkun farfugla rannsökuð hér  Vaðfuglar notaðir til útskýringar Morgunblaðið/Ómar Jaðrakan Fækkar ekki hér á landi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.