Morgunblaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 Á umdæmisþingi Rótarý á Ís- landi, sem haldið var í Kópavogi sl. laugardag, voru veittar viður- kenningar og styrkir úr verð- launa- og styrktarsjóði hreyfing- arinnar. Árlega eru veittir styrkir til aðila á félagssvæði þess rótarýklúbbs sem heldur umdæmisþingið en í ár var það Rótarýklúbburinn Borgir í Kópa- vogi. Ákvörðun sjóðstjórnar var að veita tvenn 500 þúsund króna verðlaun að þessu sinni fyrir framúrskarandi og nýstárlegt framtak á sviði mennta og vís- inda. Jón B. Guðnason, formaður sjóðstjórnar, kynnti verðlauna- hafana. Menntun í ferðatösku er verk- efni sem Gunnar Stefánsson pró- fessor hefur stjórnað. Tutor-web er ókeypis netkennslukerfi í stærðfræði og tölfræði sem hann hefur þróað og kynnt í háskólum í Keníu. Þá átti Gunnar frum- kvæði að stofnun styrktarfélags- ins Broskarla, sem safnar fé til kaupa á spjaldtölvum og tölvu- þjónum fyrir nemendur í fátæk- um héruðum Afríku. Fræðslusetrið í Guðmundar- lundi á vegum Skógræktarfélags Kópavogs hlaut einnig verðlaun Rótarý. Í tilefni af 50 ára afmæli félagsins tók það í notkun Fræðslusetrið í Guðmundarlundi í Kópavogi, sem vígt var 30. ágúst. Fræðslusetrið verður meðal ann- ars nýtt af leik- og grunnskólum í Kópavogi og stefnt er að því að í Guðmundarlundi verði boðið upp á fyrsta flokks aðstöðu til úti- kennslu þar sem lögð verður sér- stök áhersla á náttúrulæsi, um- hverfis- og náttúruvernd og áhrif loftslagsbreytinga á umhverfið. Fræðslu- setur og menntun í ferðatösku Ljósmynd/Markant Verðlaun Margrét Friðriksdóttir, fulltrúi í stjórn verðlaunasjóðs, Gunnar Stefánsson, stjórnandi verkefnisins Menntunar í ferðatösku, Bernhard Jóhannesson og Kristinn H. Þorsteinsson, fulltrúar Skógræktarfélagsins, Anna Stefánsdóttir, umdæmisstjóri Rótarý, og Jón B. Guðnason, formaður verðlauna- og styrktarsjóðs. Lagastofnun HÍ, Norræna ráð- herranefndin, Persónuvernd, dómsmálaráðuneytið og dóm- stólasýslan standa að ráðstefnu í dag með yfirskriftinni: „Njóta börn nægrar persónuverndar í stafræn- um heimi? Áskoranir fyrir stjórn- sýslu, dómstóla og skóla.“ Ráðstefnan verður í hátíðarsal Háskóla Íslands og stendur frá kl. 13-17. Hún fer fram á ensku, undir stjórn Bjargar Thorarensen. Fundað um börn og persónuvernd í dag Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, og Eliza Reid forsetafrú halda til Japans í næstu viku og verða viðstödd krýningarhátíð Na- ruhitos Japanskeisara þriðjudaginn 22. október. Munu þau taka þátt í opinberum viðburðum í tengslum við krýningarhátíðina ásamt fjöl- mörgum öðrum þjóðarleiðtogum hvaðanæva úr veröldinni. Þau sitja m.a. hátíðarkvöldverð í keisarahöllinni að kvöldi 22. októ- ber og kvöldverð Shinzos Abes for- sætisráðherra til heiðurs Naruhito Japanskeisara að kvöldi miðviku- dagsins 23. október. Forsetahjónin á leiðinni til Japans Morgunblaðið/Eggert Til Japans Forsetahjónin Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson. Ökumaður, sem lögreglan á Suð- urnesjum tók úr umferð í fyrra- kvöld vegna gruns um fíkniefnaakst- ur, var með kanna- bisefni í kaffi- könnu í bílnum. Sýnatökur á lögreglustöð gáfu til kynna að hann hefði neytt kannabisefna, að því er segir í dagbók lögregl- unnar. Þá hafa allmargir ökumenn ver- ið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu það sem af er vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 130 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Með kannabis í kaffikönnu Paralympic- dagurinn 2019 Frjálsíþróttahöllin í Laugardal 19. október frá 13-16 Íþróttafréttamaðurinn Haukur Harðarson stýrir deginum Paralympic-dagurinn er risavaxinn kynningar- dagur á íþróttum fatlaðra á Íslandi. Það verður nóg við að vera fyrir alla þann 19. október en opið verður í Frjálsíþróttahöllinni frá kl. 13-16. Íþróttafréttamaðurinn Haukur Harðarson tekur vel á móti gestum og mun spreyta sig í hinum ýmsu íþróttum fatlaðra, við skorum á ykkur að mæta og skora Hauk á hólm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.