Morgunblaðið - 18.10.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 18.10.2019, Qupperneq 12
BAKSVIÐ Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Unbroken er fæðubótarefni sem er nýkomið á markað. Það er einstakt að því leyti að það inniheldur svo- kölluð vatnsrofin (e. hydrolyzed) prótín úr ferskum laxi sem gera upptöku þeirra mun auðveldari og hraðvirkari. Var- an kemur í freyðitöflum sem settar eru í vatn og leysast upp áður en vatnið með uppleysta efninu er drukk- ið. „Ferska laxa- prótínið er í raun formelt á náttúr- legan máta niður í byggingarefni próteins sem er amínósýrur. Líkaminn þarf því ekki að eyða neinum tíma eða orku í að brjóta niður fæðuna,“ segir Steinar Kristjánsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Unbroken ehf. sem framleiðir vöruna. Hann segir upp- töku næringarefnanna í vörunni vera mun hraðari en fólk á að venj- ast. „Vöðvanæringin er komin út í blóðið innan 10 mínútna og þetta er ein sú hraðvirkasta vöðvanæring sem við höfum séð varðandi upp- töku og gæði,“ segir Steinar en hann segir klíníska rannsókn sem framkvæmd var af Íþróttaháskól- anum í Osló standa á bak við þessa fullyrðingu. Að prótínið sé formelt á náttúr- legan máta þýðir einfaldlega að ensím úr laxinum sjálfum hafa verið notuð til að brjóta niður prótínið í amínósýrur, steinefni og vítamín sem gerir upptöku líkamans auð- veldari. „Við erum þeir einu í heim- inum sem gera þetta, aðrir nota iðn- aðarensím úr svínum eða gerjun,“ segir Steinar. Fyrir fólk undir álagi Steinar segir efni á borð við Unbro- ken vera mikilvæg fyrir fólk sem er undir miklu álagi, hvort sem það er vegna æfinga, veikinda eða annars. Þá nefnir hann einnig aldraða í því samhengi. „Álagið takmarkar getu meltingarkerfisins,“ segir hann og því komi varan sér vel fyrir íþróttafólk og aðra þar sem meltingarkerfið er undir álagi. Hann vill meina að varan nýtist betur strax eftir æfingar heldur en t.d. heil mjólkurprótín við að flýta fyr- ir endurheimt. Þetta hafi rannsóknin í Íþróttaháskólanum í Osló sýnt fram á. Unbroken hefur fjóra þekkta cross- fit-kappa á sínum snærum, þar á með- al Íslendingana Björgvin Karl Guð- mundsson og Ragnheiði Söru Sigmundsdóttur. „Íslendingar eiga marga af bestu crossfiturum í heimi og við tókum því þann pólinn í hæðina að nálgast íslenska og norræna cross- fitara,“ segir Steinar en Norðmaður- inn Kristin Holte og Svíinn Lukas Högberg, eru einnig í sam- starfi við Unbroken. „Þau eru búin að vera á þessu í meira en hálft ár til þess að vita hvernig þau upplifa vöruna varðandi endurheimt, líðan og annað slíkt og gefa þessu mjög góða dóma. Þau finna mikinn mun á sér þegar þau eru undir miklu álagi og finna fyrir minni strengjum og öðru slíku.“ Steinar telur vöruna einnig geta nýst til að vinna gegn næringarskorti sjúklinga sem eiga erfitt með melt- ingu heilla próteina og upptöku nær- ingar. „Við erum að vinna með lækn- um og næringarfræðingum við að skoða klínískar rannsóknir sem tengj- ast þessu.“ Þá gæti varan aðstoðað við að koma í veg fyrir vöðvarýrnun(e. sarcopenia), að sögn Steinars. Hannað fyrir geimfara Varan er framleidd í Noregi þar sem aðgangur að ferskum laxi er mik- ill auk þess að tæknin sem varan byggist á þróaðist þar. „Þessi hug- mynd kemur upphaflega frá geim- ferðastofnun Sovétríkjanna þar sem þetta var hannað fyrir geimfara. Það er vísindamaður þar sem flytur til Noregs eftir fall Sovétríkjanna og undirbýr byggingu á verksmiðju til að framleiða vöruna,“ segir Steinar en í Sovétríkjunum hafði hugmyndin ekki enn færst úr tilraunastofunni og yfir í framleiðslu. Það er mikilvægt að hafa aðgang að stöðugu framboði af ferskum laxi og það höfum við í Noregi, að sögn Stein- ars. „Þar sem laxinn er á fóðri myndast þessi stöð- ugleiki í amínósýrunum,“ segir Steinar og bætir við að slíkt sé mikilvægt. „Nálægðin við ferska hráefnið er lykillinn að þessu.“ Aðaleigendur fyrir- tækisins eru Íslendingar þó að framleiðslan fari fram í Noregi og segir Steinar verk- smiðjuna hafa farið í íslenska eigu í fyrra. „Þá var tekin sú stefna að fara inn á íþróttavörumarkaðinn með eigið vörumerki.“ Markaðssetning vörunnar hófst um síðustu helgi og er hún komin í sölu á netinu í Bandaríkjunum og Evrópu, þar með talið á Íslandi. „Stefnt er að því að varan verði fáanleg á öllum helstu líkamsræktar- og crossfit- stöðvum á landinu innan nokkurra vikna,“ segir Steinar. Ein fljótvirkasta vöðvanæringin  Nýtt fæðubótarefni sem byggist á tækni sem þróuð var fyrir geimfara lítur dagsins ljós  Samkvæmt rannsóknum er næringin komin út í blóðið innan 10 mínútna  Framleitt í Noregi Steinar Kristjánsson Fæðubótarefni Norræn Unbroken hefur fengið hrausta crossfit-iðkendur til liðs við sig. 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 18. október 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 125.07 125.67 125.37 Sterlingspund 159.33 160.11 159.72 Kanadadalur 94.58 95.14 94.86 Dönsk króna 18.456 18.564 18.51 Norsk króna 13.603 13.683 13.643 Sænsk króna 12.747 12.821 12.784 Svissn. franki 125.34 126.04 125.69 Japanskt jen 1.1503 1.1571 1.1537 SDR 171.43 172.45 171.94 Evra 137.91 138.69 138.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.8274 Hrávöruverð Gull 1482.55 ($/únsa) Ál 1701.5 ($/tonn) LME Hráolía 58.9 ($/fatið) Brent STUTT Líklegt er að eitt vaxtalækkunar- skref verði stigið til viðbótar fyrir áramót að því er fram kemur í nýj- asta Korni Íslandsbanka. Nefndar- menn í peningastefnunefnd Seðla- bankans voru á einu máli um að lækka stýrivexti um 0,25 prósentur á síðasta vaxtaákvarðanafundi í byrj- un október og er það annað skipti í röð sem samstaða er um vaxtalækk- un. Í greiningu Íslandsbanka segir að talsverðar líkur séu á að vextir verði lækkaðir. Enn syrti í álinn er- lendis og hljóði nýjar spár OECD og AGS fyrir 2019-2020 upp á hægasta vöxt á heimsvísu í áratug. Þá hafi gengi krónunnar áfram haldist stöð- ugt og horfur eru á að verðbólga verði komin í markmið fyrir áramót. Hljóðar nýjasta verðbólguspá bank- ans upp á 2,7% verðbólgu í október og að verðbólgan verði komin niður í 2,2% í jánúarmánuði næstkomandi. Morgunblaðið/Ómar Efnahagur Greinendur Íslands- banka telja líkur á vaxtalækkun. Lækkun er líkleg ● Icelandair leiddi lækkanir gærdags- ins í Kauphöll Íslands þar sem rautt var um að litast. Félagið lækkaði um 3,44% í 36 milljóna króna viðskiptum og nemur gengi þess nú 5,61 kr. Gengið var síðast svo lágt í mars 2012 og hafa hlutabréf Icelandair lækkað um 41% á þessu ári. Þau félög sem viðskipti voru höfð með í gær lækkuðu öll. Næstmest lækkaði TM eða um 2,19% í 29 milljóna króna viðskiptum og stendur gengi bréfanna í 29 krónum. Bréf Sýnar lækkuðu um 2,16% í 31 milljónar króna viðskiptum og stendur gengi bréfanna í 24,9 krónum. Mest voru viðskipti með bréf Arion banka sem lækkaði um 0,7% í 343 milljóna króna viðskiptum og stendur gengi bankans nú í 71,2 kr. Icelandair leiddi lækk- anir í kauphöllinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.