Morgunblaðið - 18.10.2019, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019
Tignarlegt Bygging nýs húss Hafrannsóknastofnunar er langt komin við Fornubúðir í Suðurhöfninni í Hafnarfirði. Húsið er timburhús, fimm hæðir og rúmlega fjögur þúsund fermetrar.
Hari
Fimm þættir móta samtíð
okkar á þann veg að ástæða er til
að velta fyrir sér áhrifum þeirra
umfram aðra. Þeir hafa áhrif á
geopólitíska stöðu hér í okkar
heimshluta, það er hvernig
stjórnmál og landafræði tvinnast
saman.
Fyrir íslensk stjórnvöld er
ekki nýmæli að standa frammi
fyrir slíkum breytingum. Þau
hafa hingað til borið gæfu til
réttra ákvarðana. Að þau geri
það áfram skiptir sköpum.
Hertaka Rússa á Krím
Öll samskipti ríkja í okkar heimshluta hafa
þróast á verri veg eftir að ofbeldisstefna Vla-
dimirs Pútíns Rússlandsforseta birtist í ólög-
mætum landvinningum hans á Krímskaga árið
2014 og hernaði í austurhluta Úkraínu sem
kostað hefur um 15.000 manns lífið.
Áhrifa þessarar framgöngu Pútíns gætir
hér á landi. Hann setti innflutningsbann á ís-
lenskar sjávarafurðir. Beitti okkur rangindum
í skjóli refsiaðgerða Vesturlanda.
Vegna ótta nágrannaþjóða Rússa við yf-
irgangsstefnu þeirra hefur NATO gripið til
gagnaðgerða. Efnt verður til mikillar her-
æfingar bandalagsins á næsta ári til að stað-
festa þær.
Af endurnýjun á mannafla og herbúnaði
Bandaríkjamanna í Evrópu leiðir aukið mik-
ilvægi siglingaleiða yfir Norður-Atlantshaf.
Bandaríkjastjórn hefur að nýju virkjað 2. flota
sinn, Atlantshafsflotann. Haustið 2018 sigldi
bandarískt flugmóðurskip í fyrsta sinn í 30 ár
til æfinga á Noregshafi fyrir norðan Ísland.
Belti og braut-stefnan
Xi Jinping, aðalritari kínverska komm-
únistaflokksins, forseti Kína og formaður mið-
lægu hermálanefndarinnar, hefur sölsað undir
sig meira vald en nokkur annar fyrir utan Maó
formann í 70 ára stjórnartíð kommúnista. Xi
hefur alla valdaþræði í hendi sér og kennisetn-
ingum hans er haldið að kínverskri alþýðu.
Þessi herta alræðisstjórn innan
flokksins er í andstöðu við stefnu
Dengs, arftaka Maós, sem breytti
Kína í efnahagsveldi í krafti kap-
ítalismans.
Belti og braut-stefnan er
heimsvaldastefna kínverskra
kommúnista, ekki í krafti kenni-
setninga heldur fjármagns og
framkvæmda. Fast er sótt að ís-
lenskum stjórnvöldum að ánetj-
ast þessari stefnu. Þegar Mike
Pence, varaforseti Bandaríkj-
anna, oftúlkaði andstöðu ríkis-
stjórnar Íslands og varaði við
stefnunni umturnaðist Jin Zhijian, kínverski
sendiherrann á Íslandi, og sakaði varaforset-
ann um „meinfýsinn rógburð“.
Óvenjulegt er að kveða svo fast að orði á
diplómatískum vettvangi. Meira er í húfi að
mati kínverskra stjórnvalda en lagning járn-
brauta eða vega, gerð hafna eða símaviðskipti.
Viðbrögð Grænlendinga, Dana og Banda-
ríkjamanna við ásælni Kínverja á Grænlandi
sýna að talið er nauðsynlegt að sporna við fæti.
Ekki til þess að hindra framkvæmdir heldur
til að setja pólitískum áhrifum eða ítökum
skorður.
Brexit
Í rúm þrjú ár hafa nágrannar Breta og sam-
aðilar þeirra að EES-samstarfinu fylgst af
áhuga og stundum nokkrum kvíða með fram-
gangi mála undir brexit-gunnfánanum.
Engan grunaði að þessi vegferð yrði svona
erfið og svo mjög reyndi á innviði breska
stjórnkerfisins eða samheldnina innan Bret-
lands vegna landamæra milli Norður-Írlands
og Írska lýðveldisins.
Úrslitastundin nálgast og breska þingið er
boðað til sérstaks fundar á morgun, laugar-
daginn 19. október.
Þrisvar sinnum varð Theresa May forsætis-
ráðherra að lúta í lægra haldi með viðskiln-
aðarsamning sinn á breska þinginu áður en
hún vék til hliðar og Boris Johnson var kjörinn
leiðtogi Íhaldsflokksins og forsætisráðherra.
Eindreginn brexit-sinni varð þar með for-
sætisráðherra og setti ríkisstjórninni það
markmið að fara úr ESB 31. október 2019
hvað sem það kostaði.
Óhjákvæmilegt er að boðað verði til þing-
kosninga í Bretlandi fyrr en síðar. Brexit
snýst að verulegu leyti um völd og áhrif á
heimavelli.
Angela Merkel Þýskalandskanslari veitti þó
sýn á annars konar valdabaráttu þegar hún
sagði þriðjudaginn 15. október að ekki mætti
gleyma að eftir brexit yrðu Bretar „nýir
keppinautar við dyr Evrópu“. ESB-þjóðirnar
yrðu að efla samkeppnishæfni sína og axla
geopólitíska ábyrgð.
Þessi staðreynd snýr ekki síður að okkur Ís-
lendingum en öðrum EES-þjóðum. Þegar hart
er tekist á í Evrópu höfum við jafnan hallað
okkur að Bretum. Þetta hefur líklega ekki
breyst við þorskastríð eða beitingu hryðju-
verkalaga gegn okkur.
Stjórnarhættir Trumps
Fyrir tæpum hálfum mánuði tilkynnti Do-
nald Trump Bandaríkjaforseti á Twitter að
hann ætlaði að kalla bandarískan liðsafla á
brott frá Norður-Sýrlandi. Hann opnaði með
því leið fyrir tyrkneskan innrásarher og rak
rýting í bak Kúrda, samherja Bandaríkja-
manna.
Ákvörðun forsetans er líkt við uppgjöf í stað
skipulegs undanhalds. Bent er á að í krafti
stöðu sinnar í Sýrlandi hafi enginn getað huns-
að Bandaríkjastjórn við lausn deilumála á
þessum slóðum eða í Mið-Austurlöndum. Nú
hafi Trump gefið þetta allt frá sér og Rússar
fylli tómarúmið, Vladimir Pútin hafi verið gef-
ið trompspil.
Þegar Trump sætti gagnrýni hótaði hann að
leggja efnahag Tyrklands í rúst. Hann sagði
að gerðu Tyrkir eitthvað sem hann teldi „af
mikilli og óviðjafnanlegri visku“ sinni úr hófi
mundi hann „að fullu eyðileggja og afmá efna-
hag Tyrkja“. Í byrjun vikunnar hóf hann refsi-
aðgerðir gegn valdamönnum í Tyrklandi og
sendi Mike Pence varaforseta svo á vettvang.
Þetta gerði Trump eftir að demókratar og
repúblíkanar í báðum deildum Bandaríkja-
þings boðuðu sameiginlegar aðgerðir til að
draga úr tjóninu sem forsetinn hafði valdið.
Öll framvindan er vatn á myllu þeirra sem
vilja að fulltrúadeild þingsins ákæri forsetann
og öldungadeildin felli yfir honum dóm. Enn
er fjarlægt að það gerist, þó ekki óhugsandi
sjái Trump ekki að sér.
Hneykslunar- og reiðibylgja vegna ákvarð-
ana Trumps varð vatn á myllu ESB-aðild-
arflokkanna Viðreisnar og Samfylkingar. Þeir
töldu meira að segja varasamt að treysta á tví-
hliða varnasamning við Bandaríkjamenn.
Loftslagsmálin
Vegna hlýnunar jarðar hefur áhugi á norð-
urslóðum aukist. Við blasir að allir helstu ger-
endur og áhrifavaldar í alþjóðastjórnmálum og
hermálum láta eða ætla að láta að sér kveða á
okkar slóðum. Undan því verður ekki vikist og
Íslendingar fá í raun engu um það ráðið.
Viðfangsefni íslenskra stjórnvalda er að
setja sér markmið og vinna að þeim. Í raun er
um að ræða tvíþætt markmið annars vegar í
loftslagsmálum og hins vegar vegna þróunar
þeirra mála.
Stjórnvöld á Íslandi og í Noregi ætla að
standa að sameiginlegu markmiði með ESB-
ríkjunum gagnvart Parísarsamkomulaginu frá
2015 sem fullgilt var af alþingi 19. september
2016. Nú er rætt hvernig innleiða skuli reglu-
gerðir um sameiginlegu markmiðin inn í EES-
samninginn.
Viðbrögðin vegna hlýnunar jarðar mótast af
þáttunum fjórum sem nefndir eru hér á undan.
Geopólitískir hagsmunir tengjast með nýjum
hætti á norðurhveli vegna loftslagsbreyting-
anna. Það er óhugsandi að af þeim sökum yf-
irgefi Íslendingar núverandi bandamenn sína,
þvert á móti kann samstarfið að dýpka.
Eftir Björn Bjarnason » Fyrir íslensk stjórnvöld
er ekki nýmæli að
standa frammi fyrir
geopólitískum breytingum.
Þau hafa hingað til borið
gæfu til réttra ákvarðana.
Björn Bjarnason
Fimm alþjóðastraumar á norðurhveli
Höfundur er fyrrv. ráðherra.