Morgunblaðið - 18.10.2019, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 18.10.2019, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 Tignarlegt Bygging nýs húss Hafrannsóknastofnunar er langt komin við Fornubúðir í Suðurhöfninni í Hafnarfirði. Húsið er timburhús, fimm hæðir og rúmlega fjögur þúsund fermetrar. Hari Fimm þættir móta samtíð okkar á þann veg að ástæða er til að velta fyrir sér áhrifum þeirra umfram aðra. Þeir hafa áhrif á geopólitíska stöðu hér í okkar heimshluta, það er hvernig stjórnmál og landafræði tvinnast saman. Fyrir íslensk stjórnvöld er ekki nýmæli að standa frammi fyrir slíkum breytingum. Þau hafa hingað til borið gæfu til réttra ákvarðana. Að þau geri það áfram skiptir sköpum. Hertaka Rússa á Krím Öll samskipti ríkja í okkar heimshluta hafa þróast á verri veg eftir að ofbeldisstefna Vla- dimirs Pútíns Rússlandsforseta birtist í ólög- mætum landvinningum hans á Krímskaga árið 2014 og hernaði í austurhluta Úkraínu sem kostað hefur um 15.000 manns lífið. Áhrifa þessarar framgöngu Pútíns gætir hér á landi. Hann setti innflutningsbann á ís- lenskar sjávarafurðir. Beitti okkur rangindum í skjóli refsiaðgerða Vesturlanda. Vegna ótta nágrannaþjóða Rússa við yf- irgangsstefnu þeirra hefur NATO gripið til gagnaðgerða. Efnt verður til mikillar her- æfingar bandalagsins á næsta ári til að stað- festa þær. Af endurnýjun á mannafla og herbúnaði Bandaríkjamanna í Evrópu leiðir aukið mik- ilvægi siglingaleiða yfir Norður-Atlantshaf. Bandaríkjastjórn hefur að nýju virkjað 2. flota sinn, Atlantshafsflotann. Haustið 2018 sigldi bandarískt flugmóðurskip í fyrsta sinn í 30 ár til æfinga á Noregshafi fyrir norðan Ísland. Belti og braut-stefnan Xi Jinping, aðalritari kínverska komm- únistaflokksins, forseti Kína og formaður mið- lægu hermálanefndarinnar, hefur sölsað undir sig meira vald en nokkur annar fyrir utan Maó formann í 70 ára stjórnartíð kommúnista. Xi hefur alla valdaþræði í hendi sér og kennisetn- ingum hans er haldið að kínverskri alþýðu. Þessi herta alræðisstjórn innan flokksins er í andstöðu við stefnu Dengs, arftaka Maós, sem breytti Kína í efnahagsveldi í krafti kap- ítalismans. Belti og braut-stefnan er heimsvaldastefna kínverskra kommúnista, ekki í krafti kenni- setninga heldur fjármagns og framkvæmda. Fast er sótt að ís- lenskum stjórnvöldum að ánetj- ast þessari stefnu. Þegar Mike Pence, varaforseti Bandaríkj- anna, oftúlkaði andstöðu ríkis- stjórnar Íslands og varaði við stefnunni umturnaðist Jin Zhijian, kínverski sendiherrann á Íslandi, og sakaði varaforset- ann um „meinfýsinn rógburð“. Óvenjulegt er að kveða svo fast að orði á diplómatískum vettvangi. Meira er í húfi að mati kínverskra stjórnvalda en lagning járn- brauta eða vega, gerð hafna eða símaviðskipti. Viðbrögð Grænlendinga, Dana og Banda- ríkjamanna við ásælni Kínverja á Grænlandi sýna að talið er nauðsynlegt að sporna við fæti. Ekki til þess að hindra framkvæmdir heldur til að setja pólitískum áhrifum eða ítökum skorður. Brexit Í rúm þrjú ár hafa nágrannar Breta og sam- aðilar þeirra að EES-samstarfinu fylgst af áhuga og stundum nokkrum kvíða með fram- gangi mála undir brexit-gunnfánanum. Engan grunaði að þessi vegferð yrði svona erfið og svo mjög reyndi á innviði breska stjórnkerfisins eða samheldnina innan Bret- lands vegna landamæra milli Norður-Írlands og Írska lýðveldisins. Úrslitastundin nálgast og breska þingið er boðað til sérstaks fundar á morgun, laugar- daginn 19. október. Þrisvar sinnum varð Theresa May forsætis- ráðherra að lúta í lægra haldi með viðskiln- aðarsamning sinn á breska þinginu áður en hún vék til hliðar og Boris Johnson var kjörinn leiðtogi Íhaldsflokksins og forsætisráðherra. Eindreginn brexit-sinni varð þar með for- sætisráðherra og setti ríkisstjórninni það markmið að fara úr ESB 31. október 2019 hvað sem það kostaði. Óhjákvæmilegt er að boðað verði til þing- kosninga í Bretlandi fyrr en síðar. Brexit snýst að verulegu leyti um völd og áhrif á heimavelli. Angela Merkel Þýskalandskanslari veitti þó sýn á annars konar valdabaráttu þegar hún sagði þriðjudaginn 15. október að ekki mætti gleyma að eftir brexit yrðu Bretar „nýir keppinautar við dyr Evrópu“. ESB-þjóðirnar yrðu að efla samkeppnishæfni sína og axla geopólitíska ábyrgð. Þessi staðreynd snýr ekki síður að okkur Ís- lendingum en öðrum EES-þjóðum. Þegar hart er tekist á í Evrópu höfum við jafnan hallað okkur að Bretum. Þetta hefur líklega ekki breyst við þorskastríð eða beitingu hryðju- verkalaga gegn okkur. Stjórnarhættir Trumps Fyrir tæpum hálfum mánuði tilkynnti Do- nald Trump Bandaríkjaforseti á Twitter að hann ætlaði að kalla bandarískan liðsafla á brott frá Norður-Sýrlandi. Hann opnaði með því leið fyrir tyrkneskan innrásarher og rak rýting í bak Kúrda, samherja Bandaríkja- manna. Ákvörðun forsetans er líkt við uppgjöf í stað skipulegs undanhalds. Bent er á að í krafti stöðu sinnar í Sýrlandi hafi enginn getað huns- að Bandaríkjastjórn við lausn deilumála á þessum slóðum eða í Mið-Austurlöndum. Nú hafi Trump gefið þetta allt frá sér og Rússar fylli tómarúmið, Vladimir Pútin hafi verið gef- ið trompspil. Þegar Trump sætti gagnrýni hótaði hann að leggja efnahag Tyrklands í rúst. Hann sagði að gerðu Tyrkir eitthvað sem hann teldi „af mikilli og óviðjafnanlegri visku“ sinni úr hófi mundi hann „að fullu eyðileggja og afmá efna- hag Tyrkja“. Í byrjun vikunnar hóf hann refsi- aðgerðir gegn valdamönnum í Tyrklandi og sendi Mike Pence varaforseta svo á vettvang. Þetta gerði Trump eftir að demókratar og repúblíkanar í báðum deildum Bandaríkja- þings boðuðu sameiginlegar aðgerðir til að draga úr tjóninu sem forsetinn hafði valdið. Öll framvindan er vatn á myllu þeirra sem vilja að fulltrúadeild þingsins ákæri forsetann og öldungadeildin felli yfir honum dóm. Enn er fjarlægt að það gerist, þó ekki óhugsandi sjái Trump ekki að sér. Hneykslunar- og reiðibylgja vegna ákvarð- ana Trumps varð vatn á myllu ESB-aðild- arflokkanna Viðreisnar og Samfylkingar. Þeir töldu meira að segja varasamt að treysta á tví- hliða varnasamning við Bandaríkjamenn. Loftslagsmálin Vegna hlýnunar jarðar hefur áhugi á norð- urslóðum aukist. Við blasir að allir helstu ger- endur og áhrifavaldar í alþjóðastjórnmálum og hermálum láta eða ætla að láta að sér kveða á okkar slóðum. Undan því verður ekki vikist og Íslendingar fá í raun engu um það ráðið. Viðfangsefni íslenskra stjórnvalda er að setja sér markmið og vinna að þeim. Í raun er um að ræða tvíþætt markmið annars vegar í loftslagsmálum og hins vegar vegna þróunar þeirra mála. Stjórnvöld á Íslandi og í Noregi ætla að standa að sameiginlegu markmiði með ESB- ríkjunum gagnvart Parísarsamkomulaginu frá 2015 sem fullgilt var af alþingi 19. september 2016. Nú er rætt hvernig innleiða skuli reglu- gerðir um sameiginlegu markmiðin inn í EES- samninginn. Viðbrögðin vegna hlýnunar jarðar mótast af þáttunum fjórum sem nefndir eru hér á undan. Geopólitískir hagsmunir tengjast með nýjum hætti á norðurhveli vegna loftslagsbreyting- anna. Það er óhugsandi að af þeim sökum yf- irgefi Íslendingar núverandi bandamenn sína, þvert á móti kann samstarfið að dýpka. Eftir Björn Bjarnason » Fyrir íslensk stjórnvöld er ekki nýmæli að standa frammi fyrir geopólitískum breytingum. Þau hafa hingað til borið gæfu til réttra ákvarðana. Björn Bjarnason Fimm alþjóðastraumar á norðurhveli Höfundur er fyrrv. ráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.