Morgunblaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019
✝ Einar BragiBragason
fæddist 11. ágúst
1965 í Reykjavík.
Hann lést 4. októ-
ber 2019. Foreldrar
hans voru: Bragi
Einarsson, f. 11.6.
1930, d. 9.12. 1994,
og Margrét Bettý
Jónsdóttir, f. 9.9.
1930, d. 15.5. 1997.
Einar Bragi var
yngstur fjögurra bræðra. Elstur
er Sturla, fæddur 16. apríl 1950,
kvæntur Hrafnhildi Guðnadótt-
ur, 2) Þór, fæddur 18. sept-
ember 1951, kvæntur Hafdísi
Guðjónsdóttur, 3) Jón, fæddur
23. september 1952, d. 8.1. 2002.
Einar Bragi kvæntist Ásu
Kristínu Árnadóttur og eiga þau
þrjú börn: Elmar Bragi, fæddur
23.11. 1988, sambýliskona hans
er Katla Mist Brynjarsdóttir, f.
25.08. 1991. Ásdís Birta, fædd
30.12. 1994, d. 1.1. 1995.
Elísa Björt, fædd 27.1. 1997.
Þau slitu samvistum.
Núverandi sambýliskona Ein-
ars Braga er Hafdís Rut Ru-
dolfsdóttir, f. 3.8. 1966. Hann
syrgja börn Hafdísar: Ágústa
Ósk, f. 18.5. 1989, Heiðrún
Svala, f. 12.3. 1991, og Hrefna
lagði Einar Bragi leið sína á
Vopnafjörð og þaðan til Pat-
reksfjarðar þar sem hann starf-
aði sem skólastjóri Tónlistar-
skóla Vesturbyggðar fram til
síðasta dags.
Einar Bragi var afkastamikill
tónlistarmaður og eftir hann
liggur fjöldi lagasmíða og út-
setninga. Einar Bragi gaf út
tvær sólóplötur og var með þá
þriðju í vinnslu, en af henni hafa
nokkur lög nú þegar verið gefin
út. Einar Bragi spilaði inn á yfir
hundrað platna fyrir fjölda ann-
arra tónlistarmanna sem og
hljómsveita. Hann tók tvisvar
sinnum þátt fyrir Íslands hönd í
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva. Fyrst árið 1990
með lagið „Eitt lag enn“ í flutn-
ingi Stjórnarinnar og síðan árið
1993 með lagið „Þá veistu svar-
ið“ ásamt Ingibjörgu Stef-
ánsdóttur. Einar var í miklu
samstarfi við aðra hljómlist-
armenn búsetta erlendis, meðal
annars lék hann á djasshátíðinni
Sortland Jazzfestival í Norður-
Noregi nokkrum sinnum og
myndaðist við það ævarandi vin-
skapur og samstarf milli hans
og annarra tónlistarmanna sem
sóttu hátíðina. Einar Bragi var
tilnefndur til Íslensku tónlist-
arverðlaunanna árið 1993 fyrir
saxófónleik. Einar var einnig
valinn Austfirðingur ársins árið
2008.
Útför Einars Braga fer fram
frá Vídalínskirkju í dag, 18.
október 2019, kl. 15.
Björk, f. 15.2. 1995,
Aronsdætur.
Einar Bragi ólst
upp á Holti í Garða-
bænum sem þá hét
Garðahreppur.
Hann hóf skóla-
göngu í Flataskóla,
hélt sem leið lá í
Gagnfræðaskóla
Garðabæjar og síð-
an í Fjölbrauta-
skóla Garðabæjar.
Hann stundaði framhaldsnám í
Tónlistarskóla Reykjavíkur og
útskrifaðist þaðan árið 1987 úr
blásarakennaradeild en var
einnig á sama tíma í djassdeild
Tónlistarskóla FÍH. Einar starf-
aði fyrstu ár sín við Tónlistar-
skóla Seltjarnarness og sem tón-
listarkennari við Melaskóla.
Árið 1994 tók litla fjölskyldan
sig upp og flutti austur á Seyð-
isfjörð þar sem Einar Bragi tók
við skólastjórastöðu Tónlistar-
skóla Seyðisfjarðar. Þar átti
hann eftir að marka spor
margra nemenda sinna á tónlist-
argöngu þeirra. Einar Bragi var
farsæll kennari og hafði ótrú-
lega hæfileika við að vekja
áhuga nemenda sinna á tónlist
og tónlistarnámi. Eftir áralanga
farsæla kennslu á Seyðisfirði
Mælikvarðinn á kærleik og
ást er ekki metinn af árunum
sem við þekktum hvert annað
heldur í orði og verki. Á þann
hátt sýndir þú svo heitt hversu
mikils virði við vorum þér. Þú
sýndir það með faðmlögunum,
öllum ævintýrunum sem við átt-
um saman og öllu spjallinu yfir
heitu kaffi.
Það er erfitt að ná utan um
það, elsku Einar, að við fáum
ekki að sjá þig aftur. Síðustu
dagar hafa verið erfiðir og við
skiljum ekki hvernig maður í
blóma lífsins hefur nú verið tek-
inn frá okkur. Þú sem gerðir
veröld okkar svo sannarlega lit-
ríkari. Þú tókst okkur opnum
örmum frá fyrsta degi og varst
duglegur að minna á að það sem
skiptir mestu máli í lífinu er að
njóta og elska sína nánustu.
Eins og þú sagðir alltaf: „Þetta
er ekki flókið; bara njóta og
elska.“
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
(Bragi Valdimar Skúlason)
Það eru engin orð sem geta
lýst þessari sorg en eftir situr
þakklætið.
Þakklæti fyrir það að þú
komst inn í líf mömmu þar sem
hamingja ykkar leyndi sér svo
sannarlega ekki. Þessi tími sem
við áttum með ykkur er okkur
svo kær.
Þakklæti fyrir það að þú
tókst okkur sem þínum eigin og
síðast en ekki síst þakklæti fyr-
ir alla tónlistina, snöppin,
myndirnar og fimmaurabrand-
arana.
Engar áhyggjur, elsku Einar,
það verður áfram hryggur á
sunnudögum.
Ágústa Ósk og
Anna Kristín.
Haustið 1984, þá 19 ára,
kynntist ég þér á leikskólanum
Klettaborg þar sem við höfðum
bæði nýhafið vinnu. Það var
ekki ást við fyrstu kynni en svo
tókst þér að heilla mig upp úr
skónum því þú varst svo sætur
og skemmtilegur.
Og við ráðvilltu unglingarnir
fórum að búa saman.
Á þessum árum varstu í nám-
inu þínu við Tónlistarskólann,
að vinna á leikskóla og mikið að
gera í ballspilamennsku á öllum
helstu skemmtistöðum landsins
og þú blómstraðir í öllu sem þú
tókst þér fyrir hendur.
Það var mikil og djúp ham-
ingja þegar frumburðurinn okk-
ar og fjörkálfurinn hann Elmar
Bragi fæddist 23. nóvember
1988 og þú naust þess svo inni-
lega að verða pabbi.
Þú varst algjört náttúruta-
lent þegar kom að tónlistarhæfi-
leikum; hafðir ekkert fyrir því
að blása, hvort sem það var í
saxófóninn eða flautuna. Í því
varstu bestur. Svo kom Stjórnin
þar sem þú varst annar tveggja
stofnenda þeirrar hljómsveitar
(Matthías Hemstock hinn) og þá
fór nú að verða mikið að gera í
spilamennskunni og við Elmar
Bragi sáum ekki mikið af þér.
Árin liðu og við svo ham-
ingjusöm, en óveðursskýin fóru
að hrannast upp, Bakkus tók öll
völd.
Í maí 1994 er tekin sú
ákvörðun að flytja til Seyðis-
fjarðar, sem var mikið gæfuspor
fyrir okkur litlu fjölskylduna.
Þar tókst þú við stjórn Tón-
listarskóla Seyðisfjarðar og skil-
aðir því hlutverki ofurvel af þér
í 20 ár. Þú varst vinsæll kennari
og mikill vinur barnanna sem
voru í námi hjá þér.
Þú áttir svo sannarlega góð
ár á Seyðisfirði, komst þér í ým-
iskonar vinnu með tónlistar-
skólastarfinu, m.a. lögreglu-
starf, í stjórn skíðafélagsins og
varst óþrjótandi í alls konar
sjálfboðavinnu í þágu bæjar-
félagsins.
Árið sem við flytjum, 1994,
deyr pabbi þinn í desember og
Ásdís Birta okkar fæðist og
deyr nokkrum dögum seinna.
Þetta voru erfiðir tímar fyrir
okkur eftir allt annað sem hafði
gengið á.
En hamingjan er val og svo
kom yndið okkar hún Elísa
Björt 27. janúar 1997.
Þú varst svo mikill og besti
pabbi í heimi og gerðir alltaf
mikið af því að sinna og sýna
Elmari Braga og Elísu Björt
allan þinn áhuga þegar að kom
að námi þeirra og tómstundum,
alltaf varstu fyrstur að bjóða
þig fram í hvers konar sjálf-
boðavinnu sem tengdist því.
En aftur varð Bakkus besti
vinur þinn og ekki við neitt ráð-
ið.
Leiðir okkar skildi en von
mín og barnanna þinna um að
þú kæmist í bata rættist og þín
mesta gæfa á þessum tíma var
að hefja vinnu fyrir vestan á
Patreksfirði við tónlistarskólann
og hitta Hafdísi þína, með henni
áttir þú tvö góð ár.
Ég óska þér alls hins besta á
nýjum stað og þakka fyrir árin
þrjátíu sem við áttum saman.
Dýpsta sæla og sorgin þunga
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga
tárin eru beggja orð.
(Ólöf Sig. frá Hlöðum)
Hvíl í friði.
Ása Kristín.
Í dag kveðjum við góðan vin
og samstarfsmann, Einar Braga
Bragason, sem lést aðeins 54
ára að aldri. Einar Bragi var
einn af stofnendum Stjórnarinn-
ar og átti svo sannarlega sinn
þátt í velgengni hjómsveitarinn-
ar og vinsældum. Strax á ung-
lingsárunum kom í ljós hversu
flinkur hann var á saxófóninn,
enda leið ekki á löngu þar til
hann var orðinn einn af eft-
irsóttustu hljóðfæraleikurum
landsins. Hann var fagmaður
fram í fingurgóma, vandvirkur
og mætti ávallt einstaklega vel
undirbúinn, hvort sem var á æf-
ingar, í hljóðver eða á tónleika.
Hann hafði mikla ástríðu fyrir
starfinu og lagði sig allan fram.
Á fyrstu starfsárum hljóm-
sveitarinnar var álagið oft mik-
ið. Við spiluðum allar helgar yf-
ir vetrartímann og á sumrin
ferðuðumst við um landið þvert
og endilangt og spiluðum á
sveitaböllum. Á þessum ferða-
lögum var ýmislegt brallað og
mikið hlegið. Einar Bragi gaf
þar mikið af sér, enda mikill
fjörkálfur og húmoristi. Hann
átti það til að vera stríðinn, en
þó aldrei þannig að særði held-
ur bara til að létta stemn-
inguna. Ef draga ætti fram eitt
helsta persónueinkenni Einars
Braga væri það tryggð við vini
og vandamenn. Hann var
traustur vinur og duglegur að
halda sambandi.
Í lífi Einars Braga skiptust á
skin og skúrir. Það hefur verið
einstaklega ánægjulegt að fylgj-
ast með honum undanfarin ár.
Hann blómstraði í starfi sínu
sem skólastjóri Tónlistarskóla
Vesturbyggðar og var ham-
ingjusamur í sínu einkalífi. Þau
Hafdís Rut höfðu eignast fallegt
hús á Patreksfirði með útsýni
yfir hafið. Einar Bragi þreyttist
ekki á að birta myndir af lita-
dýrð himinsins við sólarupprás
og sólarlag yfir firðinum. Þá
duldist engum hve stoltur hann
var af börnunum sínum og hve
heitt hann unni Hafdísi.
Við vorum svo lánsöm að eiga
dýrmætar stundir með Einari
Braga í fyrra þegar Stjórnin
fagnaði 30 ára afmæli. Ekki ór-
aði okkur fyrir að þetta yrði síð-
asta skiptið sem við spiluðum
öll saman. Þetta eru dýrmætar
minningar en jafnframt áminn-
ing um að njóta hvers dags og
alls þess sem lífið hefur upp á
að bjóða.
Við þökkum Einari Braga
samfylgdina um leið og við
sendum fjölskyldu hans og vin-
um okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Eiður, Grétar, Jón
Elvar, Sigríður (Sigga)
og Þorsteinn.
Það var mikið áfall að fregna
að Einar Bragi Bragason væri
allur.
Kynni okkar Einars Braga
hófust á fyrri hluta tíunda ára-
tugar síðustu aldar með því að
Þorvaldur Jóhannsson bæjar-
stjóri á Seyðisfirði hnippti í mig
fyrir utan Karrann og kynnti
mig fyrir nýjum tónlistarskóla-
stjóra. Svo leiddi eitt af öðru.
Börnin stunduðu nám í tónlist-
arskólanum og lúðrasveitinni
hjá Einari Braga þannig að
snertifletir urðu strax margir.
Einar Bragi stjórnaði Tónlistar-
skólanum og lúðrasveitinni með
miklum glæsibrag svo eftir var
tekið. Hann var mjög barngóð-
ur og hafði einstakt lag á
krökkunum. Í gegnum þessi
kynni tókst með okkur vinátta
sem hélst allt til loka.
Ég minnist þess með sér-
stakri ánægju þegar við fórum
til gæsaveiða í árdaga vináttu
okkar. Þótt aflinn hafi ekki allt-
af verið merkilegur voru þessar
ferðir einstaklega ánægjulegar
og kom góð kímnigáfa Einars
Braga þá oft við sögu. Margar
góðar sögur voru sagðar og fór
húmor okkar ágætlega saman,
enda skiptumst við oft á upplýs-
ingum um undarlega sjónvarps-
þætti og fleira í þeim dúr.
Seinna reyndi einnig á þennan
þátt vináttu okkar þegar við
hjónin lentum með þeim Einari
og Ásu í þorrablótsnefnd. Þar
kom hinn frjói hugur Einars
Braga að góðu gagni við að búa
til glens og grín, að ekki sé nú
talað um óeigingjarnt starf hans
við að stjórna tónlistaratriðum
við slik tækifæri. Lionsklúbbur
Seyðisfjarðar vill koma kæru
þakklæti á framfæri fyrir alla
þá hjálp sem Einar Bragi veitti
við hinar árvissu jólaskemmt-
anir með undirleik og stjórnun
söngatriða.
Einar Bragi vann ómetanlegt
starf sem formaður skíðadeildar
Hugins um árabil og þegar
krakkarnir voru yngri hittumst
við oft í fjallinu. Þá var ekki
leiðinlegt að rekast á Einar
Braga á fótboltavellinum. Skoð-
anir hans á frammistöðu ein-
stakra leikmanna og þá ekki
síst dómara voru sterkar.
Einar Bragi vann hjá emb-
ætti Sýslumannsins á Seyðis-
firði frá 1. febrúar 1997 sem
héraðslögreglumaður og sumar-
afleysingamaður í lögreglunni
um langt árabil. Einar Bragi
vann líka hjá tollinum á Seyð-
isfirði.
Við hjónin komum oft á heim-
ili Einars Braga og Ásu á Múla-
veginum og þar var ætíð mikil
gestrisni ríkjandi og gott að
koma. Ýmislegt var brallað og
Einar Bragi hafði gaman af að
sýna það sem hann var að vinna
að í tónlistinni. Þá kom hann að
máli við mig og bað mig að vera
veislustjóri þegar þau Ása giftu
sig og þótti mér mjög vænt um
það. Einhverju sinni fóru fjöl-
skyldurnar saman á jólahlað-
borð á Skriðuklaustri og er það
mjög minnisstætt.
Góður drengur er fallinn í
valinn. Við Hrafnhildur sendum
þeim Ásu, Elmari Braga og El-
ísu Björt okkar innilegustu
samúðarkveðjur og biðjum góð-
an Guð að blessa þau í þeirra
miklu sorg. Þá sendum við sam-
úðarkveðjur til sambýliskonu
Einars Braga, Hafdísar Run-
ólfsdóttur, sem nú sér á eftir
góðum vini.
Kveðjum svo góðan vin með
eftirfarandi orðum:
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Valdimar Briem)
Seyðisfirði, 14. október 2019,
Lárus Bjarnason.
„Ekkert mál. Ég mæti, verð
kominn eftir viku.“
Þannig svaraði Einar Bragi
þegar ég bað hann að taka við
Tónlistarskóla Vesturbyggðar
fyrir tæpum fjórum árum. Og
það stóð heima. Hann kom, sá
og sigraði.
Einar varð strax aðalspraut-
an í tónlistarlífinu fyrir vestan.
Það var ekki samkoma án hans
og krakkanna. Það var ekki
messa án Einars og allt varð
fallegra. Við grínuðumst með að
markmiðið yrði að hafa lúðra-
sveit næst þegar kveikt yrði á
jólatré í Vesturbyggð. Auðvitað
lét Einar Bragi það gerast. Ell-
efu mánuðum seinna var komin
lúðrasveit sem lék jólalögin
þegar ljósin voru kveikt á jóla-
trjánum á Patreksfirði og í
Bíldudal! Mikið varð ég stolt.
Hann hreif börnin með sér,
stofnaði hljómsveit og fékk
krakkana til liðs við sig. Lúðra-
sveit og rokkband, allir fundu
sína fjöl. Ég leyfi mér að full-
yrða að það eru fáir staðir á
landinu þar sem jafn hátt hlut-
fall barna stundar tónlistarnám
eins og í Vesturbyggð. Það er
Einari Braga að þakka.
Við Einar urðum strax miklir
vinir. Hann hafði hlýja nærveru
og kom til dyranna eins og hann
var klæddur. Ræddi breysk-
leika mannanna og var opinn
með alla sína lífsreynslu. Þau
voru ófá skiptin sem hann kom
upp á skrifstofu til mín til að
spjalla um framtíð tónlistarskól-
ans og hvernig við ættum að
haga málum. Og hann talaði
tæpitungulaust við mig, sem var
gott. Starfsfólkinu á bæjarskrif-
stofunum fannst ekki verra að
fá hann í kaffi. Það var alltaf
gaman. Eftir að við Hafþór
fluttumst með börnin okkar
norður á Akureyri heyrðumst
við Einar Bragi reglulega og
alltaf urðu fagnaðarfundir þeg-
ar við komum vestur. Það var
gott að heyra í Einari og finna
vináttuna sem aldrei bar skugga
á.
Stuttu eftir að Einar Bragi
fluttist vestur sagði hann mér
frá því að hann hefði hitt gamla
skólasystur sína á leiðinni vest-
ur og núna ætlaði hún að flytja
til hans. Hafdís kom eins og
ferskur blær inn í samfélagið á
Patreksfirði og þau kærustu-
parið sáu framtíðina á Patró.
Nýbúin að kaupa hús og taka
við nýjum verkefnum. Fram
undan var bjart.
Þau stóðu þar sem þaut með
björtum lit
hið þunga fljót og horfðu í vatnsins
strengi
og heyrðu að sunnan sumarvinda
þyt um síki og engi.
Og armlög þeirra minntu á fyrsta
fund
þó fölur beygur hægt um sviðið
gengi
er laut hann höfði og sagði í sama
mund:
Veiztu hvað gleðin tefur tæpa stund
en treginn lengi.
(Hannes Pétursson)
Það voru hörmulegar fréttir
sem bárust árla morguns 4.
október frá Patreksfirði. Einar
Bragi hafði orðið bráðkvaddur
þá um nóttina. Það er mikið
högg fyrir lítið samfélag þar
sem hver íbúi skiptir máli. Ein-
ars Braga verður sárt saknað af
öllum þeim sem hann þekktu en
minning hans mun lifa. Við Haf-
þór vottum Hafdísi og börnum
þeirra Einars Braga okkar
dýpstu samúð.
Ásthildur Sturludóttir.
Það er erfitt að hugsa til þess
að Einar Bragi skólastjóri tón-
listarskóla Vesturbyggðar sé
fallinn frá og mikill missir fyrir
okkur öll. Það var mikil spenna
í loftinu þegar hann var ráðinn
nýr skólastjóri í janúar 2016 og
það er óhætt að segja að Einar
Bragi hafi komið inn í líf okkar í
Vesturbyggð með lúðrablæstri.
Einar Bragi lagði áherslu á
allar tónlistarstefnur og blást-
urshljóðfærin voru dregin upp
úr geymslum þar sem enginn
kennari hafði verið í mörg ár.
Tónlistarskólinn fylltist af börn-
um og var frábært að sjá hvern-
ig krakkarnir voru á vappi í
kringum tónlistarstofurnar og
greinilegt að þeim leið vel.
Nýi skólastjórinn var frekar
poppaður og sumir spurðu sig
hvort þetta væri nógu hátíðlegt
og formlegt allt saman en fljót-
lega sást árangurinn. Einar
Bragi var óþreytandi að hvetja
nemendur til dáða og tónlistar-
kennararnir náðu að mynda frá-
bæra heild sem smitaði gleði og
tónlist til allra.
Á vortónleikunum síðastliðið
vor var öllum ljóst hversu mikill
árangur hafði náðst í tónlistar-
skólanum og vorum við afskap-
lega stolt af krökkunum, kenn-
urunum og skólastjóranum sem
voru öll að uppskera árangur af
æfingum síðustu ára. Það var
oftast stutt í brosið hjá honum
og hann gat verið uppátækja-
samur og glettinn með nemend-
um sínum sem var auðvitað lyk-
illinn að góðum árangri því það
var gaman að spila.
Einar Bragi var óþreytandi á
samfélagsmiðlum og átti hann
þá til að blása um málefni líð-
andi stundar milli þess sem
hann sendi upptökur úr tónlist-
arskólanum eða af nýjum lögum
sem hann hafði verið að semja.
Síðan hans var orðin fréttaveita
út af fyrir sig.
Einar Bragi hafði mikil áhrif
á samfélagið allt því hann bauð
öllum frísklega góðan daginn og
var duglegur að hrósa fyrir það
sem vel var gert og ef hann var
beðinn að aðstoða var svarið
oftast “já, ekkert mál“. Það lifn-
aði því mjög yfir viðburðum
bæjarins þar sem hann mætti
og spilaði eða aðstoðaði aðra við
tónlistina. Á síðasta ári, þegar
Pólverjar í Vesturbyggð héldu
glæsilega hátíð vegna 100 ára
sjálfstæðisafmælis Póllands,
gerði hann því góð skil á sam-
félagsmiðlum og skrifaði meðal
annars: “Pólverjar lita sam-
félagið hér á frábæran hátt“ og
þótti öllum vænt um ummæli
hans.
Hann kom ferskur inn í tón-
listarlífið og dreif upp öflugan
tónlistarskóla með jákvæðni og
hvatningu. Eitt sinn er við sát-
um á spjalli um mikilvægi tón-
listar vorum við sammála um að
það væri fátt betra en að hafa
tónlistina með út í lífið sama
hvert framtíðarstarfið yrði. Svo
bætti hann við: „En mikið
óskaplega er ég stoltur af öllum
þeim nemendum sem hafa valið
tónlistina sem starfsvettvang.“
Hann var óþreytandi að sá góð-
um tónlistarfræjum þar sem
hann kom.
Við viljum votta Hafdísinni
hans Einars og fjölskyldu okkar
dýpstu samúð og erum þakklát
fyrir þann tíma sem við fengum
að verða samferða hér í Vest-
urbyggð.
Guðrún Anna
Finnbogadóttir og
Wioletta Kozuch.
Einar Bragi
Bragason