Morgunblaðið - 18.10.2019, Síða 21

Morgunblaðið - 18.10.2019, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 ✝ Eiríkur GarðarSigurðsson vél- virkjameistari fæddist í Hafnar- firði 27. febrúar 1933. Hann lést á líknardeild Land- spítalans 7. októ- ber 2019. Foreldr- ar hans voru Sig- urður Eiríksson, f. 1903, d. 1977, vél- stjóri og Jenný Ágústsdóttir, f. 1908, d. 1995, húsmóðir. Systkini: Þorsteinn, f. 1928, d. 2017, Steinvör, f. 1930, d. 2014, Ágúst, f. 1931, Sigrún, f. 1935, Reimar, f. 1937, d. 1995, Hafsteinn, f. 1938, Bergur, f. 1941, d. 2016, Gestur Breiðfjörð, f. 1943, d. 2004, Sigurður Jens, f. 1945 og Kolbrún, f. 1952, d. 2014. Garðar kvæntist Erlu Elísa- betu Jónatansdóttur, 16.10. 1934, dóttur Jónatans Ólafs- sonar hljóðfæraleikara, f. 1914, d. 1997, og Þorbjargar Guð- mundsdóttur húsmóður, f. 1917, d. 1993. Börn Garðars og Erlu: 1) Jónatan, f. 1955, kvæntur Rósu Sigurbergsdóttur, f. 1957, börn þeirra: a) Erla, f. 1981, b) Davíð, f. 1989, í sambúð með Berglindi Hlín Aðalsteinsdóttur og eiga þau eina dóttur; 2) jónssyni, f. 1970. Sonur Krist- ínar er Eiríkur Grímar, f. 1994, í sambandi með Erlu Sigurjóns- dóttur. Dætur Kristínar og Hlyns: Irma, f. 1999, í sambandi með Bergþóri Snæ Gunnarssyni, og Una, f. 2002; 6) Sigurður, f. 1968 d. 1977; 7) Drífa, f. 1969, gift Ármanni Úlfarssyni, f. 1968. Börn þeirra: Orri, f. 1996, í sam- búð með Rebekku Dan Rakel- ardóttur, þau eiga eina dóttur, og Salka, f. 2000, í sambandi með Daníel Sighvatssyni. Dóttir Ármanns og uppeldisdóttir Drífu er Hrefna Sif, f. 1986, í sambúð með Stefáni Jóni Sig- urðssyni, þau eiga tvo syni. Garðar lærði vélvirkjun í Vél- smiðjunni Kletti 1953-57, vann í Vélsmiðju Hafnarfjarðar 1957- 63, var verkstjóri í skipasmíða- stöðinni Stálvík 1963-73 og rak Stýrisvélaþjónustu Garðars Sig- urðssonar 1973-2001. Garðar var formaður Sundfélags Hafn- arfjarðar, í stjórn Íþróttabanda- lags Hafnarfjarðar og formaður Sundsambands Íslands. Hann var fararstjóri sundlandsliðsins í keppnisferðum erlendis og á Ólympíuleikum. Hann var heið- ursfélagi Sundfélags Hafnar- fjarðar og hlaut gullmerki Sundsambands Íslands og Íþrótta- og ólympíusambands Ís- lands. Útför Garðars fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 18. október 2019, klukkan 13. Jenný, f. 1958, gift Arnóri Friðþjófs- syni, f. 1958. Dóttir Jennýjar er Bryndís Marteinsdóttir, f. 1981, í sambúð með Gunnari E. Annels- syni, þau eiga tvo syni. Börn Jennýjar og Arnórs: a) Úlfar Karl, f. 1988, í sam- búð með Carmen Maju Valencia, þau eiga tvær dætur, b) Elín, f. 1991 í sambúð með Símoni Þórólfs- syni; 3) Erla Björg, f. 1959, gift Arnlaugi Ólafssyni, f. 1963. Dóttir Erlu Bjargar er Tinna Magnúsdóttir, f. 1979, hún á þrjú börn og er í sambandi með Gunnari Guðmundssyni. Dætur Erlu Bjargar og Arnlaugs: a) El- ísabet Ruth, f. 1995, í sambandi með Sævari Pálmarssyni, b) Birna Karen, f. 1997, í sambúð með Þorsteini Ara Hallgríms- syni, þau eiga einn son; 4) Hrafn- hildur, f. 1962, gift Sigurjóni Þórðarsyni, f. 1963, börn þeirra: a) Garðar Hrafn, f. 1985, kvænt- ur Önnu Ósk Stefánsdóttur, b) Kristinn Örn, f. 1992, í sambúð með Rakel Hjelm Jónsdóttur, og Hanna Jóna, f. 1999, í sambandi með Stefáni Birni Björnssyni; 5) Kristín, f. 1966, gift Hlyni Guð- Pabbi átti merkilega ævi og ólst upp í stórum systkinahópi við gott atlæti. Hann var skírður Eiríkur Garðar, nafni afa síns Eiríks í Görðum Sigurðssonar. Hann var í sveit hjá afa sínum í Breiðuvík- urhreppi og seinna hjá frænku sinni á Hömrum í Grímsnesi. Hann fékk ungur liðagigt og Ak- ureyrarveikina og lá lengi á sjúkrahúsi en náði undraverðum bata. Hann var í Skátafélaginu Hraunbúum, æfði glímu hjá Glímufélaginu Ármanni, var í handbolta, fótbolta og frjálsum íþróttum í FH og eru fótboltaskór hans til sýnis í Kaplakrika. Hann var einn af stofnendum Skíða- og skautafélags Hafnarfjarðar og Sundfélags Hafnarfjarðar, var sundkóngur Hafnarfjarðar, með þeim fyrstu sem kepptu í flug- sundi og þjálfaði sigursælt sundlið SH. Hann lærði vélvirkjun, fékk meistararéttindi, kom lærlingum í gegnum námið og var virkur fé- lagi í Iðnaðarmannafélagi Hafnar- fjarðar. Hann byrjaði ungur að hreinsa kolakatla, var annar kokkur á togara og vélstjóri á síld- ar- og humarvertíðum. Lengst af vann hann við skipaviðgerðir og skipasmíðar og annaðist stýris- vélaþjónustu fyrir íslenska skipa- flotann. Pabbi og mamma hófu búskap ung og áttu 68 góð ár sam- an. Þau byggðu einbýlishúsið sitt rétt rúmlega tvítug og bjuggu þar í 60 ár. Við systkinin vorum sjö talsins og hvíldi uppeldið mest á mömmu því pabbi vann mikið og lét sig félagsmál miklu skipta. Hann var í forystusveit sund- íþróttarinnar, tók að sér alls kon- ar trúnaðarstörf fyrir íþrótta- hreyfinguna, sinnti dómgæslu á sundmótum og keppti á sínu síð- asta sundmóti þegar hann var um áttrætt. Hann hafði áhuga á tón- list, einkum óperum, klassískri tónlist og fögrum listum. Pabbi og mamma sóttu tónleika og listvið- burði hvar sem þau voru stödd í heiminum. Pabbi var í skátunum og kynntist útivist, ferðalögum og þekkti landið vel. Við fórum í margar ferðir um landið frá fyrstu tíð, bæði að sumri og vetri. Gist var í tjöldum eða hjá ættingjum úti á landi, farið í gönguferðir, sund og berjamó og skíðaíþróttin iðkuð af kappi á vetrum. Það þótti einstakt þegar öll fjölskyldan, níu manns, fór í sumarleyfi til Spánar árið 1974. Svo mannmörg fjöl- skylda hafði ekki áður verið í slíkri ferð, en við systkinin vorum á aldrinum frá fjögurra til 19 ára. Eftir að við fluttum að heiman héldu pabbi og mamma áfram að ferðast og létu sig ekki muna um að aka Evrópu þvera og endi- langa, ferðast til Kína, Suður-Afr- íku og annarra landa. Hér heima var sælureitur þeirra í Grímsnesi þar sem þau gróðursettu fjölda trjáplantna, en trjá- og blóma- rækt höfðu þau jafnan í hávegum. Pabbi fylgdist með öllum íþrótt- um, var minnugur á met og tíma sundmanna og miðlaði af þekk- ingu sinni. Síðustu áratugi var golfið helsta afþreyingin. Pabbi mætti daglega á golfvöllinn, sama hvernig viðraði. Síðustu misserin var heilsan farin að daprast og þótti honum verst að geta ekki gripið í kylfu og notið útiverunnar. Viðburðaríkri ævi er lokið og hvíldin komin. Þakkir færir fjöl- skyldan starfsfólki heimahjúkrun- ar, HERU og líknardeildar fyrir einstaka alúð og góða umönnun. Jónatan Garðarsson. Elsku pabbi er látinn, þessi sterki og raunsæi maður sem ég leit alltaf upp til. Þegar ég var að alast upp vann pabbi mikið, þrátt fyrir það var hann til staðar. Það var gaman að fá tækifæri til að fara með honum í vinnu þá í Stálvík, hann var verk- stjóri þar til margra ára við bygg- ingu stálskipa. Við fórum stolt fjölskyldan við sjósetningu í Garðabæ. Alla tíð var hann sund- maður og þjálfari, einnig lengi dómari og yfirdómari á sundmót- um. Á tímabili fór hann snemma á morgnana og synti í Sundhöllinni í Hafnarfirði, ég stakk mér gjarnan með, ómetanlegar stundir. Pabbi og mamma voru mjög dugleg að fara með okkur krakk- ana í útilegur og varð Laugarvatn gjarnan fyrir valinu; tjaldað, farið í fjallgöngur, synt í Laugarvatni og gufan á eftir. Útilegurnar voru um landið þvert og endilangt, hvar sem við komum var farið í sundlaug og bleytt í okkur. Við höfðum mjög gaman af því að fara í sund og var ég orðin synd snemma enda ekki annað í boði. Þær eru fáar sundlaugarnar á landinu sem við vorum ekki búin að prufa. Þegar búið var að fara í sund var bryggjan skoðuð og heilsað upp á sjómenn sem þar voru. Pabbi var lengi vel með verk- stæði í bílskúrnum heima, þar smíðaði hann og vann mikið fyrir útgerðina. Kallarnir hringdu þeg- ar þá vantaði að láta gera við bát- inn, vélina eða stýrisvélina, þá þurfti að hlaupa út og sækja pabba eða slá í handriðið sem er uppi á skúrnum, þá kom hann hlaupandi inn. Ég fékk tækifæri til að vinna fyrir pabba á verk- stæðinu þar sem við vorum að sækja hluti og saga niður rör. Þeir voru oft hissa karlarnir sem við hittum á að stelpur væru að vinna svona vinnu, hlógu að okkur, sem þeir þurftu svo að kyngja. Seinna byggði pabbi verkstæði uppi á Hrauni og var þar í mörg ár með fyrirtæki sitt, Stýrisvélaþjónustu Garðars. Pabbi fylgdist mjög vel með öll- um íþróttum. Á uppvaxtarárunum tók hann virkan þátt í íþrótta- starfi; spilaði handbolta og fót- bolta með FH og synti með SH. Það var dásamlegt í seinni tíð að sitja með pabba á áhorfendapöll- unum þegar við vorum að horfa á Kidda og Hönnu Jónu okkar Sig- urjóns keppa í handbolta. Pabbi hvatti þeirra lið, lét skoðanir sínar í ljós og lét dómarana heyra það ef hann var ósáttur við þeirra störf. Eftir að pabbi hætti að vinna fór hann að spila golf, mamma fylgdi í kjölfarið og spiluðu þau mikið saman. Seinna spilaði ég með þeim golf og naut ég leiðsagnar hjá honum. Síðasta árið hef ég fengið mikla hjálp og stuðning í mínu verkefni og þau ávallt verið til staðar. Þeg- ar pabbi veiktist fórum við stund- um þrjú saman inn á Landspítala; hann í sína meðferð og ég í mína. Þrátt fyrir að pabbi væri orðinn mjög veikur fylgdist hann vel með, sýndi það sig þegar Garðar sonur okkar kom í heimsókn til hans, nýkominn úr skíðaferð frá Síle. Þeir ræddu af áhuga saman um ferðalagið. Síðustu dagana sást vel hvað mamma og pabbi voru samrýnd og var dásamlegt að sjá þegar mamma var að hlúa að honum undir það síðasta, þá setti hann stút á munninn sem mamma svar- aði svo fallega. Takk fyrir dásam- leg ár saman kæri pabbi. Hrafnhildur Garðarsdóttir (Habba). Það er skrítið að segja ekki lengur mamma og pabbi eða amma og afi því þau voru alltaf saman, gerðu nánast allt saman og okkur finnst nánast óhugsandi að tveir verði allt í einu einn. Þeg- ar við horfum til baka og rifjum upp minningar um hann kemur fyrst upp í hugann hvað hann var duglegur, ósérhlífinn, hreinskilinn og tryggur. Hann kenndi mér að synda þegar ég var fimm ára og við synt- um saman í sjónum á hverju sumri þegar við fjölskyldan fórum saman utan. Hann kenndi mér líka margt þegar ég vann hjá hon- um í Stýrisvélaþjónustunni, þar á meðal að taka í sundur vélar, slípa, saga og bora í járn, vera skítug upp fyrir haus, drullu- þreytt en keyra samt á milli staða því þá gat pabbi sofið á meðan. Hann kenndi mér vinnusemi og að redda mér, hugsa í lausnum og vera ekki með neitt væl. Það var alltaf skemmtilegt að koma upp í sumarbústað, þar sem afi og amma tóku hlýlega á móti manni, afi kenndi okkur að flagga íslenska fánanum, fór með okkur í gönguferðir upp á leiksvæði og borðaði með okkur skonsur sem hann hélt fram að hann hefði bak- að sjálfur og við kölluðum þær því afaskonsur. Þegar við sáum golfkúlu varð okkur hugsað til afa, geymdum þær í vasanum og glöddum afa þegar við komum með þær til hans. Það var alltaf gott að koma til afa og ömmu að fá saltfisk, kartöflur og smjör. Afi flysjaði kartöflurnar fyrir okkur og skellti nógu af smjöri á fiskinn. Hann fór svo inn í svefnherbergi eftir mat- inn að horfa á íþróttir og þá var gott að leggjast við hliðina á hon- um til að horfa og spjalla saman. Rauðköflóttur vasaklútur mun alltaf minna okkur á afa, hann fór aldrei langt án þess að vera með einn í vasanum. Hann tók lengi í nefið og reyndi oft að fá Eirík Grímar til að prófa að taka í nefið því hann hafði tröllatrú á að það myndi lækna kinnholusýkingarn- ar. Hann mætti á sundmót, tók út sundstíla, reiknaði út lokatíma og gaf okkur góð ráð. Einnig kom hann á tónleika og aðrar tóm- stundir sem börnin tóku þátt í. Mér eru mjög minnisstæð sein- ustu orðin hans til mín, þá vorum við mæðgurnar búnar að sitja hjá honum og spjalla. Hann horfði til okkar á leiðinni út og sagði: „Takk fyrir komuna og takk fyrir skemmtilegheitin.“ Kristín Garðarsdóttir, Hlynur Guðjónsson, Eiríkur Grímar, Irma og Una. Mín gæfa í lífinu var að hitta Hrafnhildi og það sem samvistun- um hefur fylgt. Börnin okkar og foreldrar hennar. Garðar og Erla tóku strax vel á móti mér og buðu velkominn. Tók stund að kynnast en á kynnin hef- ur aldrei fallið. Garðar var skemmtilegur maður, blanda af sinni kynslóð og nýjum, birtist t.d. í viðhorfi hans til kynjanna. Hann var ríkur af konum, eiginkona og fimm dætur af sjö börnum. Þrjú fyrstu barnabörnin stúlkur en fagnaði fæðingu fyrsta drengsins, Garðars Hrafns okkar Hrafnhild- ar með því að stíga dans með kampavínsflösku að sögn tengda- mömmu. Hann var maður jafn- ræðis, þoldi ekki óréttlæti, kunni að meta dugnað, heiðarleika og bjartsýni. Traustari og ábyggi- legri maður finnst ekki og var góð fyrirmynd okkar er fengu að þroskast í skjóli þeirra hjóna. Þegar ég vann sem mest vakta- vinnu vann ég með Garðari í bát- um og skipum. Lærði mikið af honum um verklag og lausnar- hugsun sem einkenndi vinnu- brögðin. Snillingur í vinnu, af- kastamikill en leiðbeinandi. Margar stundir líka á verkstæð- inu þar sem hann framdi galdra sína á rennibekk og suðutækjum. Garðar er ein af mínum fyrir- myndum í lífinu, hvað hann elsk- aði hana Erlu tengdamömmu, saman heil 68 ár í blíðu og stríðu. Kunnu alveg að gera vel við sig, ótrúlegir ferðagarpar, fóru um all- an hnöttinn, hugrökk eins og ljón og úræðagóð með afbrigðum. Hrein unun að hlusta svo á ferða- sögurnar þegar þau komu heim. Miklir áhrifavaldar barna okkar með hvatningu og hafa smitað þau af ferðabakteríunni. Garðar Hrafn, afi og amma allt- af verið mjög samrýnd og gott að eiga þau að. Auðvitað er smáauka að vera nafni og með því áttum við eitthvað sérstakt. Afi hefur alltaf haft áhuga á skíðum og hafði gam- an af að heyra hvernig gekk að verða fjallaskíðaleiðsögumaður. Hann vissi vel að þetta er frekar erfið vinna og ég upplifði að hann var stoltur af mér, takk afi fyrir allt. Kristinn Örn, þau voru að gera það sem þau langaði, fyrirmynd- arhjón í að lifa sér til ánægju. Gott að tala við þau um ferðalög, sam- eiginlegt áhugamál okkar. Þau hafa alltaf verið sjálfstæð og því ekki auðvelt að hjálpa þeim, en þegar það gerðist þá voru þau mjög þakklát. Alltaf stolt af mér, hvetjandi og jákvæð. Kunnu að meta árangur og sjá þegar maður stendur sig, takk fyrir mig, afi. Hanna Jóna, hann var alltaf duglegur að koma á handbolta- leiki hjá mér, sérstaklega í yngri flokkunum. Heyrði í afa þegar hann var í stúkunni. Svo var hann næstum því eins montinn og ég í vor þegar ég kláraði stúdentinn, takk, afi, hvatningin þín mun allt- af fylgja mér. Tengdapabbi hefur fengið hvíldina, við verðum að spjara okkur án hans. Það mun taka okk- ur einhvern tíma að finna út úr því, en höfum lært að horfa á praktísku hliðina og halda áfram. Hanna Jóna fimm ára kenndi okk- ur „þegar maður saknar er gott að fara í hjarta sitt og sækja fallegar minningar“. Takk, kæri tengdapabbi og afi, fyrir allt. Við leggjum okkur fram við að styðja Erlu ömmu og tengdamömmu, það er komið að okkur, þú hefur vísað veginn og gert þitt. Sigurjón, Garðar Hrafn, Krist- inn Örn og Hanna Jóna. Garðar Sigurðsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN MARGRÉT ÁRNADÓTTIR, Hæðargarði 35, lést 9. október á Landspítalanum við Hringbraut. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sólveig Guðrún Pétursdóttir Hannes Pétursson Júlíana Sigurðardóttir Grétar Vilhelmsson barnabörn og langömmubörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KRISTÍN BJÖRG JÓHANNSDÓTTIR, Árskógum 6, lést 1. október á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, Hjördís Hafnfjörð Rafnsd. Hjörtur R. Zakariasson Birna H. Rafnsdóttir Gunnar Örn Kristjánsson Hrafnhildur H. Rafnsdóttir Kristján Gunnarsson Elín Þóra Rafnsdóttir Þyri Rafnsdóttir Elvar Örn Unnsteinsson Jóhann Hafnfjörð Rafnsson Dómhildur Árnadóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR GRÉTA ÚLFSDÓTTIR, Njarðarvöllum 2, Njarðvík, lést á Hrafnistu, Nesvöllum, föstudaginn 11. október. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Magnús Jónsson Hrönn Þorsteinsdóttir Unnur Sig. Gunnarsdóttir Johan Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn Minningarvefur á mbl.is Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningar og andlát

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.