Morgunblaðið - 18.10.2019, Síða 27

Morgunblaðið - 18.10.2019, Síða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 að vinna með þér í skólamálum, fylgjast með þér leysa fjölmargar áskoranir við uppbyggingu og rekstur á stórum og flóknum framhaldsskóla. Þar naustu þín til hins ýtrasta og skilaðir drjúgu ævistarfi. Þú varst nýbyrjaður í verð- skulduðu námsleyfi – farinn að læra aftur og grúska til að end- urnýja þig. Trúr þeirri mennta- hugsjón að við erum alltaf að læra. Það er sárt að kveðja svona skyndilega og svona sviplega. Vegir skiptast – allt fer ýmsar leiðir inn á fyrirheitsins lönd. Einum lífið arma breiðir, öðrum dauðinn réttir hönd. Einum flutt er árdags kveðja, öðrum sungið dánarlag, allt þó saman knýtt sem keðja, krossför ein með sama brag. Veikt og sterkt í streng er undið stórt og smátt er saman bundið. (Einar Benediktsson) Þessi drengur verður áfram í lífi okkar. Í sögunum sem við segjum þegar við hittumst, í minningum okkar og sem fyrir- mynd um hvernig á að lifa lífinu af heilindum. Þínir vinir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, Ásgeir Gunnarsson, Magnús Ingvason, Ólafur Jónsson og Sölvi Ólafsson. „Hann Helgi fékk heilablóðfall og þetta lítur ekki vel út.“ Þetta voru fréttirnar sem okkur bárust sunnudaginn 6. október. Stuttu síðar fengum við að vita að það væri engin von, að tími hans hér á jörðu væri á enda. Við erum enn að meðtaka það að hann Helgi okkar sé farinn og sorgin nístir hjörtu okkar. Helga kynntumst við í Menntaskólanum í Kópavogi þar sem við kenndum mismunandi greinar og myndaðist strax með okkur vinátta sem dýpkaði með árunum. Öll tókum við að okkur önnur störf innan skólans sem þýddi að samstarfið jókst enn frekar. Margs er að minnast eftir öll þessi ár, undirbúningur og samvera í haust- og vorferðum innanlands sem utan, þorrablót- um og starfsdögum að ógleymd- um stuttum fundum í lok dags þar sem farið var yfir lífið og til- veruna og ýmis mál rædd til hlít- ar. Á þessum fundum gæddum við okkur oft á kókosbollum sem voru í sérstöku eftirlæti hjá Helga. Ekki getum við sleppt því að minnast á brauðsúpu með miklum rjóma en Helgi passaði að hún væri reglulega á matseðl- inum í skólanum. Hann var líka alltaf tilbúinn að fórna sér í smakk þegar nemendur skólans voru að æfa sig í hvers kyns matargerðarlist. Við áttum það til að stríða Helga. Einu sinni tókum við okk- ur til og snerum bókstaflega öllu við á skrifstofunni hans. Síðasta prakkarastrikið var svo eftir síð- asta páskafrí þegar við vorum búnar að dúlla okkur í að plasta alla skrifstofuna og alla hluti meðan hann brá sér í frí. Hann hafði gaman af þessu brölti okkar og stríddi okkur góðlátlega með því til dæmis að lauma sæt- indamolum inn á skrifstofurnar okkar. En þó að Helgi væri mikið fyrir sætindi og góðan mat hugs- aði hann vel um sig. Hann synti reglulega og æfði fimleika af kappi og reyndi án árangurs að fá okkur til að slást í hópinn hjá Gerplu. Helgi var driffjöðrin í því að afreksíþróttasvið var stofnað við skólann nú í haust en hann hafði mikinn áhuga á því að styðja og hlúa að íþróttafólkinu okkar. Helgi var einstaklega ljúfur og góðhjartaður maður sem vildi allt fyrir alla gera. Hann mátti ekkert aumt sjá og átti það bæði við um starfsmenn og nemendur skól- ans. Það var ótrúlegt hvað hann var næmur á líðan og tilfinningar allra í kringum sig. Hann var allt- af til staðar fyrir okkur, hann passaði upp á okkur hvort sem það var á álagstímum í vinnunni eða ef eitthvað bjátaði á í lífi okk- ar utan skólans og fyrir það erum við þakklátar. Við biðjum góðan Guð að styrkja Selmu, Baldur, Bryndísi og fjölskyldur þeirra, Bryndísi og Kristján og aðra aðstandendur á þessum erfiðu tímum. Minningin um góðan vin mun lifa áfram í hjörtum okkar. Helene og Sigríður Guðrún. Sunnudagsmorgunn og yfir- þyrmandi sorg hellist yfir. Helgi er farinn frá okkur. Elsku Helgi – brosmildur, já- kvæður og hjartahlýr, sannkallað gull af manni, hefur kvatt þennan heim. Sorgin er ólýsanleg, en þó taka fljótlega við góðar minningar um yndislegan mann sem hafði svo mörg hlutverk og sinnti hverju þeirra betur en öðru. Helgi, eiginmaður Selmu, faðir Baldurs og Bryndísar og ekki síst yndislegur sonur og frábær afi. Hann var nefnilega fjölskyldu- maður í húð og hár og sinnti því með stakri prýði. Við systur urð- um þeirra forréttinda aðnjótandi að njóta þessa og hans hlýju nær- veru árum saman. Það var alltaf gott að koma í heimsókn í Berg- staðastrætið. Nærveru Helga og stóra brossins verður sárt saknað um ókomin ár. Stórmenni er fallið frá og kviknað hefur á nýrri stjörnu á himnum. Elsku Helgi. Við erum svo mörg sem munum sakna hans sárt og munum leitast við að styðja við elsku Selmu hans, Baldur, Bryndísi og fjölskyldur þeirra, sem nú standa saman í sorginni. Við minnumst allra góðu stundanna, með brosi í gegnum tárin. Megi hann hvíla í friði. Steinunn Björt, Heiðrún Arna og Árdís Björg. Helgi fór á námssamning í ket- il- og plötusmíði í Stálsmiðjunni 1978. Hann var einkar laghentur smiður og varð með tímanum sér- fræðingur í að valsa plötustál. En hugurinn stefndi annað og hann lagði einnig stund á nám í sagn- fræði og fékk kennsluréttindi í framhaldsskóla. Þegar hann loks þreytti sveinsprófið í iðn sinni 1994 var búið að breyta heiti hennar í stálvirkjasmíði. Þá kom sagnfræðingurinn upp í honum og hann heimtaði að fá að taka sveinspróf undir upprunalegu heiti samkvæmt námssamningi. Við kynntumst sumarið 1986 þegar ég flutti heim frá Svíþjóð og hóf störf í Stálsmiðjunni. Efnafræðin milli okkar gekk full- komlega upp og við vorum settir saman í vinnuteymi. Við það varð til sterkur strengur vináttu og væntumþykju sem aldrei slitnaði. Á þeim árum höfðu menn áhuga á stjórnmálum og ræddum við mik- ið saman um vinstripólitíkina, baráttuna gegn aðskilnaðarstefn- unni í Suður-Afríku og samstöð- una með Níkaragva. Einhverjum kann að hafa þótt meira talað en unnið. Á þessum árum var Helgi uppátækjasamur grallari og var ýmislegt brallað á vinnutíma sem kom vinnunni ekkert við. Af gömlu mönnunum í smiðj- unni lærðum við ekki einasta vinnubrögð og verklag, við lærð- um að brúka neftóbak, sem hét „schnauses in nauses“ á okkar leynimáli. Áhrifin voru notaleg þegar við flettum vísnaheftinu góða eða ræddum lífsíns „píleg- aana“ og vorum þá komnir út í djarfari umræðuefni. Báðir hættum við í stálsmíð- inni og snerum okkur að skóla- málum. Þar lágu leiðir aftur sam- an og fann ég þá að vináttan var traust og Helgi samur við sig, þótt báðir hefðu tamið sér fágaðri framgöngu og gamli grallara- skapurinn að mestu látinn eiga sig. Við sviplegt fráfall vinar míns verður mér hugsað til þess hvað lífið er gott og vináttan dýrmæt. Hver dagur er Guðs gjöf og við getum verið þakklát fyrir þær stundir sem við fáum. Mér er efst i huga þakklæti fyrir að hafa átt Helga að sem vin. Minning hans lifir ljós og yljar um ókomin ár. Ólafur Grétar Kristjánsson. Þegar hugsað er til baka rifjast fyrst upp minningarnar þar sem Breiðholtið er nýtt og í byggingu, barnmargar fjölskyldur í hverju húsi og ein af þeim var Bryndís og Kristján með barnahópinn sinn. Helgi elstur, ábyrgðarfullur og umhyggjusamur fyrir yngri systkinum sínum og Helgi móð- urafi sem var mikið á heimili dótt- ur sinnar. Foreldrarnir glaðvær, gestrisin og áttu auðvelt með tengjast vinum Helga tryggða- böndum. Gamli Skódinn hans Stjána var alltaf til staðar fyrir Helga sem ók svo oft með okkur strákana á vit ævintýranna. Helgi var íþróttamaður, fjölhæfur og fallega skapaður. Hann var veiði- maður sem veiddi af næmni og til- finningu. Þegar kom að því að velja sér námsbraut og starfsvettvang valdi Helgi fyrst að feta í fótspor föður síns. Hann lærði járnsmíði samhliða stúdentsprófinu og sagnfræði nam hann við Háskóla Íslands. Á námsárunum vann hann í Stálsmiðjunni og síðar tóku fræðin yfir með kennslurétt- indum og starfi við Menntaskól- ann í Kópavogi þar sem hann var fyrst vinsæll kennari og síðar að- stoðarskólameistari. Helgi hafði sterkan bakgrunn til að starfa sem skólastjórnandi í framhalds- skóla sem bæði býður upp á bók- nám og verknám auk þess sem hann hafði sérstakt lag á að að- stoða nemendur við það að finna fjölina sína og stýra þeim á rétta braut og er opna brautin á afreks- íþróttasviði í MK gott dæmi um það. Það var ást við fyrstu sýn þeg- ar Helgi og Selma hittust fyrst. Hún 18 ára og hann 17 ára. Þau voru glæsilegt par og ást þeirra stækkaði og þroskaðist eftir því sem árin liðu. Sveitin togaði alltaf í hann hvort sem það var Öxl í Þingi, Kjósin, Mývatnssveitin eða hver sá staður sem bauð upp á útvist og tengingu við náttúruna. Helgi var í eðli sínu sáðmaður sem dreifði fræjum og fyllti hlöður af góðmennsku, tryggð og gleði. Ef við höldum okkur við myndmálið og skoðum í hlöður sáðmannsins þá sjáum við fjölskylduna og um- gjörð hennar, vinahópana, vinnu- félagana, Oddfellowana og alla nemana sem hann aðstoðaði. Allir þessir hópar eiga það sameigin- legt að hafa átt vináttu Helga og hjálpsemi. Síðustu hlöðuna sem sáðmaðurinn fyllti, fyllti hann eft- ir andlát sitt, en með líffæragjöf gefur Helgi alvarlega veiku fólki von um bata. Áþreifanlegra getur ævistarf eins manns ekki orðið og lykillinn var einfaldlega að rækta garðinn sinn og jú jú garð ná- grannans líka ef á þurfti að halda. Eftir unglingsárin héldum við vinirnir hópinn með því að spila fótbolta, lengi á sunnudags- morgnum þar sem börnin komu með og samverustundin endaði í ísbúðinni. Síðan þróaðist þetta í kvöldfótbolta og eftir að skrefin styttust og menn hættu að elta boltann er boðið upp á göngutúra einu sinni í viku. Á þessari kveðjustund þökkum við allar góðu minningarnar úr útilegum, veislum, veiðitúrum, skákmótum og öðru sem haldið hefur hópnum saman. Alla þessa áratugi stóð Helgi vaktina og ræktaði vináttuna. Elsku Selma, Baldur og Bryn- dís. Við vottum ykkur og fjöl- skyldunni allri okkar innilegustu samúð. Fyrir hönd Gulldrengjanna, Óskar Bergsson.  Fleiri minningargreinar um Helga Kristjánsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Minningargreinar Elsku Erla er farin frá okkur. Hún fékk loksins hvíld eftir erfiða tíma undanfarin ár. Erla kom okkur í ömmu stað þegar amma Halla féll frá og við vorum heppin að fá að eiga hana svolítið út af fyrir okkur. Foreldr- ar okkar og Erla voru alltaf mjög náin, pabbi og Erla litu hvort eftir öðru á ólíkum æviskeiðum og mamma og hún voru afar góðar vinkonur. Við eigum yndislegar minning- ar um Erlu hvort sem var fyrir austan þegar við vorum lítil og fengum að fara með henni í rútu eða flugi til Neskaupstaðar, í Álftalandinu þar sem hún bjó með ömmu og tók alltaf vel á móti okkur á unglingsárunum, í Kirkjulundi eða undir það síðasta á Ísafold þar sem hlutverkin höfðu snúist við. Erla leit eftir okkur þegar mamma og pabbi ferðuðust til út- landa og við áttum alltaf vísan stað hjá henni og fundum fyrir kærleikanum. Í seinni tíð höfum við fengið að hugsa um Erlu og börnin okkar fengið hlutverk og stað í hjarta frænku og notið sam- vista við hana. Hún elskaði fátt meira en að hitta þau sem voru á vissan hátt hennar barnabarna- börn og eiga við þau samskipti. Heimilið var hlaðið góðgæti og útbreiddur faðmur tók á móti þeim fram á það síðasta. Við munum alltaf sakna Erlu og erum þakklát fyrir að hafa átt hana að alla okkar ævi. Okkur langar að þakka starfsfólki Ísa- foldar fyrir auðsýndan hlýhug á undanförnum árum og auðvitað pabba fyrir einstaka umhyggju við umönnun systur sinnar. Erla, góða Erla! ég á að vagga þér. Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér. (Stefán frá Hvítadal) Hvíldu í friði, elsku frænka. Takk fyrir allt. Steinunn Ýr, Erla Hrönn, Pálmi Freyr og fjölskyldur. „Ég trúi því að hver maður hafi tilgang, ekki aðeins einhvern til- gang, heldur hinn mesta hugsan- lega tilgang.“ Þessi orð Gunnars Dal finnst mér eiga einkar vel við Erlu Ármannsdóttur, tengdaf- rænku mína, sem nú er kvödd hinstu kveðju. Hún hafði marg- þættan tilgang, ekki síst göfugan, bjartan og kærleiksríkan, og því skilur hún eftir birtu og þakklæti í hjarta okkar margra. Tæp hálf öld er liðin síðan ég sá hana fyrst. Með hnút í mag- anum klöngraðist ég upp langar tröppurnar á Hlíðargötunni þeg- ar ég var kynntur fyrir stórfjöl- skyldunni á Norðfirði fyrsta sinni. En frjálslegt viðmótið, sem ætíð einkenndi fólkið þar, var fljótt að rekja hnútinn, og enn er mér í fersku minni hlýtt handtak- ið, þegar Erla bauð mig velkom- inn með blíðu brosi. Erla fæddist árið 1929. Þá var Erla Ármannsdóttir ✝ Erla Ármanns-dóttir fæddist 12. janúar 1929. Hún lést 3. október 2019 á Hjúkrunar- heimilinu Ísafold. Foreldrar Erlu voru Ármann Magnússon útgerð- armaður og Halla Hallsdóttir hús- móðir. Systkin: Agnar Hall Ármannsson, Hrönn Ár- mannsdóttir, Kolbrún Ármanns- dóttir, Ægir Ármannsson og Randver Ármannsson. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju í dag, 18. október 2019, klukkan 13. öldin og þjóðin að vakna til stórra verka. Fjölskyldan var stór og samhent og gestagangur mikill og víst er að hugur Erlu mótaðist mjög af uppvaxtar- árunum á Norðfirði. Tengdafrænku minni var augljós- lega búið gott vega- nesti úr foreldra- húsum, sem hún hefur búið að alla tíð. Líf hennar hefur sýnt það og sannað. Erla starfaði lengst af hjá kaupfélaginu Fram á Norðfirði og sinnti hún starfi sínu af ein- stakri alúð og trúnaði. Einhvern veginn var það svo í mínum huga að starfsemi kaupfélagsins á Norðfirði stæði og félli með þeim stöllum: Erlu, Hrönn, Nönnu og Sigríði, enda töluðu þær einum rómi af hugsjón og lotningu um reksturinn þar. En auðvitað komu þar fjölmargir aðrir við sögu og augljóst að samheldnin og vinskapurinn var mikill í starfsmannahópnum. Og ekki bara þar, heldur í samfélaginu öllu á Norðfirði. Það heyrðist best, þegar Erla lýsti fyrr og síð- ar æskubyggð sinni. Enda var það svo, að eftir að Erla flutti ásamt móður sinni til Reykjavík- ur þráði hún að heimsækja æsku- stöðvarnar svo oft sem frekast var kostur. Erla var mikil mannkostakona. Hún gerði alltaf strangari kröfur til sjálfrar sín en annarra, var trygg í lund, hjálpsöm með af- brigðum og einstaklega elsk að fólkinu sínu. Hún umvafði kær- leika alla þá sem hún umgekkst, jafnt unga sem aldna, þar var enginn undanskilinn. Þegar aðrir lutu í gras miðlaði hún huggun í hógværð sinni og íþyngdi aldrei öðrum með sínum sorgum; þeim deildi hún með æðri máttarvöld- um. Allt hennar fas bar vott um virðingu fyrir lífinu. Erla naut sín á fjölskyldumót- um og skipaði hún jafnan öndveg- issætið. Ekki það sem trónir á toppnum, heldur hitt sem er mitt á meðal allra hinna í stórri fjöl- skyldunni og þá ekki síst við hlið- ina á þeim sem þurftu mest á henni að halda. Hún lifði fyrir okkur og með okkur: systkinum, systkinabörnum, tengdafólki og barnahópnum. Og ekki var um- hyggjan síst fyrir börnunum. Erla frænka fagnaði þeim ávallt sem fulltíða tignum gestum og gladdi þau á marga lund. Nú eru þessi börn alvarleg og hljóðlát og bera fram margar spurningar, sem erfitt er að svara. Allir elsk- uðu þessa hjartahlýju konu frá fyrstu kynnum, og náði „Erla frænka“ persónulegum tengslum langt út fyrir hóp blóðskyldra barna. Frá fyrstu kynnum hefur fjöl- skylda mín notið vináttu og um- hyggju Erlu frænku. Fyrir það og samfylgdina alla er ljúft að þakka á skilnaðarstund. Samver- unnar verður ekki lengur notið nema í minningunni, en þar er hún líka hlý eins og fyrsta hand- takið. Minning hennar lifir í þakklátum huga okkar allra, sem hana þekktum. Ingimundur Sigurpálsson. Mín kæra vinkona Erla Ár- mannsdóttir er fallin frá. Við Erla vorum frænkur, fæddar og upp- aldar austur á Norðfirði. Nokkur ár aðskildu okkur og því kynntist ég henni fyrst þegar ég um tví- tugt hóf að starfa hjá Kaupfélag- inu Fram á Norðfirði. Erla hafði þá unnið þar í nokkur ár. Hún vann þar af dugnaði og trú- mennsku og jafnframt bar hún umhyggju fyrir samstarfsfólki sínu. Þeirrar umhyggju varð ég strax aðnjótandi sem óöruggur nýr starfsmaður. Í kaupfélaginu störfuðu einnig Hrönn systir Erlu og Nanna Pétursdóttir vin- kona þeirra og frænka mín. Ég var orðalaust tekin inn í hóp þeirra og hafa ekki aðrir hópar reynst betur. Þarna stofnaðist til varanlegrar vináttu sem aldrei hefur borið skugga á. Margt rifjast upp þegar litið er til baka sem of langt er upp að telja en geymast mun í minning- unni. Erla hafði gaman af að ferðast og gera sér dagamun. Hún var ávallt hvetjandi í því efni. Margt var sér til gamans gert og á góðum stundum átti Erla auðvelt með að koma auga á bros- legar hliðar tilverunnar. Á Norð- fjarðarárunum var flest sumur farið norður í land til Akureyrar og þá gjarnan dansað í Sjallanum. Ekki má gleyma ferð okkar Erlu sumarið 1968 á Ólafsvöku í Færeyjum. Sú ferð var ævintýri líkust enda oft rifjuð upp. Þá var fótbolti sameiginlegt áhugamál og farið um fjallvegi á aðra firði til að hvetja Þrótt, heimaliðið okkar. Á þessum árum dvöldum við Erla einn vetur í Reykjavík þar sem við leigðum saman litla íbúð og unnum báðar í KRON á Skóla- vörðustígnum. Þótt sambúðin hafi gengið vel og nokkur ánægja verið með borgarlífið kom þó ekki annað til greina en að halda heim til Norðfjarðar um vorið. Um tíma vorum við Erla bú- settar hvor á sínu landshorninu en eftir að við vorum báðar flutt- ar á höfuðborgarsvæðið fjölgaði samverustundum á ný. Voru þær þá oft ásamt sameiginlegum norðfirskum vinkonum, ánægju- legar sumarbústaðaferðir á sumrin og leikhúsferðir á vet- urna. Erla átti um árabil við van- heilsu að stríða. Með mikilli seiglu og stuðningi fólksins síns, sem hún var þakklát fyrir, gat hún lengi búið á heimili sínu í Garðabæ og tekið þátt í samveru okkar vinkvennanna. Seinustu árin dvaldi hún á Hjúkrunar- heimilinu Ísafold og langt fór að verða milli samverustunda. Alltaf var mér samt jafn vel tekið. Á kveðjustund er mér efst í huga þakklæti fyrir þá vináttu og um- hyggju sem Erla ávallt sýndi mér. Randveri og öðrum aðstand- endum Erlu sendi ég samúðar- kveðju. Guðný Björnsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.