Morgunblaðið - 18.10.2019, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 18.10.2019, Qupperneq 34
BREIÐABLIK Kristján Jónsson kris@mbl.is „Mér líst bara mjög vel á liðið. Við erum með sama kjarna í liðinu og í fyrra. Ég hef fulla trú á okkur,“ sagði Björk Gunnarsdóttir, leik- maður Breiðabliks, þegar Morgun- blaðið spjallaði við hana í gær um tímabilið sem er nýhafið í Dominos- deild kvenna í körfuknattleik. „Það eru auðvitað bara þrjár um- ferðir búnar en mér líst vel á er- lendu leikmennina okkar. Þær styrkja hópinn,“ sagði Björk en Breiðablik teflir í vetur fram Violet Morrow frá Bandaríkjunum og Paulu Önnu Tarnachowitz frá Pól- landi. Morrow er 22 ára gömul og leikur sem bakvörður en Tarnacho- witcz er 28 ára og getur leikið sem framherji eða miðherji. Ívar stýrir nú Blikunum Ívar Ásgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, er tekinn við liðinu og kemur með mikla reynslu inn í hópinn en lið Breiðabliks er skipað fremur ungum leikmönnum. „Ég er mjög ánægð með hann og hann hef- ur komið vel inn í þetta. Hann er flottur enda erum við allar rosalega ánægðar með Ívar. Hann er að gera góða hluti. Við vorum með erlendan þjálfara á síðasta tímabili og áherslubreytingarnar eru töluverð- ar. Við erum ekki með mjög reynt lið en við fengum Fanneyju Lind og Bryndís Hreinsdóttir sem var með okkur á síðasta tímabili er að byrja aftur eftir smá pásu. Þær hafa verið lengi í deildinni og það hjálpar okk- ur. Á hinn bóginn er Sóllilja farin (til KR) og Ragnheiður (Björk Ein- arsdóttir) er farin til Bandaríkj- anna. Það eru stærstu breyting- arnar á leikmannahópnum fyrir utan erlendu leikmennina.“ Góð frammistaða gegn KR Breiðablik tapaði fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni fyrir Snæ- felli, KR og Keflavík. Þrátt fyrir það er Björk nokkuð bjartsýn en Breiðablik átti góðan leik gegn vel mönnuðu liði KR þótt leikurinn hafi tapast 69:78. „Við stóðum í þeim all- an tímann og sýndum þá að við eig- um heima í þessari deild. Við getum gert alla leiki að hörkuleikjum þeg- ar við finnum taktinn. Okkar mark- mið er að halda okkur uppi í efstu deild en ég sé samt alveg fyrir mér að við getum barist um sæti í úr- slitakeppninni. Stóra markmiðið er að komast þangað og ég hef fulla trú á að það sé möguleiki ef liðið smellur vel saman,“ sagði Björk ennfremur. Vel á málum haldið Hjá Breiðabliki er unnið um- fangsmikið starf í hinum ýmsu íþróttagreinum og Björk segir vel vera staðið að málum varðandi körf- una í Smáranum. „Að mínu mati er unnið frábært starf hjá körfuknattleiksdeildinni, bæði í yngri flokkunum sem og meistaraflokkunum. Þar ríkir jafn- rétti á milli kynjanna sem mér finnst vera rosalega flott. Mjög vel er haldið utan um starfið,“ sagði Björk Gunnarsdóttir sem er 21 árs gömul og hefur skorað rúm 6 stig að meðaltali í fyrstu leikjum liðsins. Gætu komist í efri hlutann ef vel gengur Morgunblaðið/Hari Breiðablik Björk Gunnarsdóttir er í stóru hlutverk hjá Blikunum.  Þjálfaraskipti en svipaður kjarni leikmanna hjá Breiðabliki í vetur 34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 Isabella Ósk Sigurðardóttir Linda Marín Kristjánsdóttir Melkorka Sól Péturadóttir Paula Tarnachowicz Þjálfari: Ívar Ásgrímsson. Árangur 2018-19: 8. sæti úrvals- deildar en fékk boð um að halda sæti í úrvalsdeild þegar Stjarnan dró lið sitt úr keppni. Íslandsmeistarar: 1995. Bikarmeistarar: Aldrei.  Breiðablik hefur tapað þremur fyrstu leikjum sínum í deildinni, gegn Snæfelli, KR og Keflavík, og mætir næst Haukum á útivelli 23. október. BAKVERÐIR: Björk Gunnarsdóttir Guðrún Heiða Hjaltadóttir Sara Dagný þórarinsdóttir Selma Pedersen Kjartansdóttir Telma Lind Ásgeirsdóttir Þórdís Jóna Kristjánsdóttir FRAMHERJAR: Elín Lára Reynisdóttir Fanney Lind Thomas Hafrún Erna Haraldsdóttir Marta Ellertsdóttir Violet Morrow Þórdís Rún Hjörleifsdóttir MIÐHERJAR: Eyrún Ósk Alfreðsdóttir Lið Breiðabliks 2019-20 KOMNAR Fanney Lind Thomas frá Skalla- grími, eftir hlé Linda Marín Kristjánsdóttir frá Stjörnunni Paula Tarnachowicz frá Durham (Englandi) Violet Morrow frá Eastern Wash- ington-háskólanum í Bandaríkj- unum FARNAR Aníta Rún Árnadóttir til Vals Arndís Þóra Þórisdóttir til ÍR Hulda Ósk Bergsteinsdóttir óvíst Ivory Crawford óvíst Lovísa Falsdóttir hætt Ragnheiður Björk Einarsdóttir í California Baptist University Sóllilja Bjarnadóttir til KR Breytingar á liði Breiðabliks  Of fáar kanónur til að ná að vera með í barátt- unni um Íslandsmeistaratitilinn en það er væntan- lega ekki endilega markmiðið enda í þeirri stöðu fyrir stuttu að vera á leið í 1. deildina.  Reynsla í þjálfaranum sem vonandi færir þeim nokkra sigra og jafnvel bikarúrslit.  Ágætur átta manna kjarni sem verður sýnd veiði en ekki gefin.  Hjálpar mikið þegar Isabella kemur inn sem verður vonandi í kringum áramót og Björk Gunnarsdóttir fær dýrmæta reynslu við að stjórna liðinu í efstu deild, lærir að taka af skarið og skora þegar það þarf eins og sönnum leiðtoga sæmir.  Violet er í sínu fyrsta verkefni eftir háskóla og því óþekkt stærð en Paula er hávaxin og hjálpar vonandi til þangað til Isabella er klár. Margrét Sturlaugsdóttir um Breiðablik  Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, hafa lokið keppni á 2. stigi úrtökumótanna fyrir LPGA-atvinnumótaröðina í golfi í Bandaríkjunum. Þær eru báðar úr leik og komast ekki inn á lokaúrtökumótið. Ólafía Þórunn lék hringina fjóra á 292 höggum (74-75-72-71) og var samtals á fjórum höggum yfir pari. Ólafía endaði í 94. sæti Valdís Þóra lék hringina fjóra á 296 höggum (75-76-74-71) og samtals á átta yfir pari. Hún endaði í 134. sæti. Hefðu þær þurft á leika á þremur undir pari til að komast áfram.  Í gær var dregið til 16-liða úrslitanna í Coca Cola-bikarkeppni karla og kvenna í handknattleik. Stórleikurinn hjá körlunum er viðureign Hauka og Vals en hjá konunum leikur Stjörnunnar og Fram. Leikirnir fara fram 21. nóv- ember hjá körlunum en 6. nóvember hjá konunum. Í 16-liða úrslitum í karla- flokki mætast: Stjarnan - HK, Aftureld- ing - KA, Haukar - Valur, Grótta - FH, Þróttur - ÍBV, Fjölnir - Fram, Mílan - ÍR og Þór Akureyri - Selfoss. Í 16-liða úr- slitum í kvennaflokki mætast: Selfoss - KA/Þór, Haukar - ÍBV, HK - Afturelding, Fylkir - Fjölnir, ÍR - Grótta, Víkingur - FH, Stjarnan - Fram en Valur situr hjá.  Í frétt á heimasíðu KKÍ í gær kemur fram að mistök hafi verið gerð þegar læknismenntuðum leikmanni KR var ekki hleypt inn á völlinn til að huga að samherja í leik KR og Vals. „Eftir á að hyggja er dómarinn þeirrar skoðunar að það hafi verið mistök af sinni hálfu að hleypa ekki leikmanninum inn á völl- inn. Dómaranefnd er sammála dóm- aranum um að mistök hafi verið að ræða,“ segir á vef KKÍ.  Kristinn Guðmundsson, annar af þjálfurum karlaliðs ÍBV í handknattleik, gæti átt yfir höfði sér refsingu en sam- kvæmt heimildum mbl.is hefur Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, sent ummæli sem höfð voru eftir Kristni eftir tap ÍBV gegn Aftureldingu í fyrrakvöld til aganefndar HSÍ.  Hrafnhildur Hauksdóttir skrifaði í dag undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild FH. Hafnarfjarðarliðið verður nýliði í efstu deild næsta sumar eftir eins árs veru í 1. deild. Undanfarin tvö keppnistímabil hefur Hrafnhildur spilað með Selfossi og varð m.a. bikar- meistari síðasta sumar. Þar áður var hún í Val og Selfossi.  Knattspyrnuþjálfarinn Ólafur Jó- hannesson tjáði mbl.is í gær að hann ætlaði að taka sér frí frá þjálfun. „Ég er búinn að fá fullt af fyrirspurnum frá lið- um hér heima og frá Færeyjum en ég ætla að taka mér frí á næsta ári. Ég held að það sé bara ágætt að hvíla sig að- eins frá þessu en ég er ekki hætt- ur. Það er öðru- vísi með mig heldur en marga aðra þjálfara. Ég fer bara að smíða eins og ég er vanur að gera,“ sagði Ólafur meðal annars. Eitt ogannað Íslands-, deildar- og bikarmeistarar Vals sóttu í gærkvöldi tvö stig til Akureyrar í Olís-deild kvenna í handknattleik þegar liðið heimsótti KA/Þór í KA-heimilið. Valur vann með átta marka mun 32:24 en ekki verður heiglum hent að eiga við Valsliðið í vetur. Meist- ararnir hafa byrjað Íslandsmótið með látum og unnið fyrstu fimm leikina. Stórt tap fyrir Fram í Meistarakeppni HSÍ í aðdraganda deildakeppninnar virðist ekki hafa truflað Valskonur mikið. Sandra Erlingsdóttir var marka- hæst með 8 mörk en þær Díana Dögg Magnúsdóttir og Hildur Björnsdóttir skoruðu 5 mörk hvor fyrir Val. Martha Hermannsdóttir átti stór- leik fyrir KA/Þór og skoraði 10 mörk. Var hún langmarkahæst en næstar komu Aldís Ásta Heimis- dóttir, Katrín Vilhjálmsdóttir og Martina Corkovic með 3 mörk hver. KA/Þór hefur unnið tvo leiki en tapað þremur í fyrstu fimm um- ferðunum og er í 4. sæti. Morgunblaðið/Eggert Markahæstar Sandra Erlingsd. og Martha Hermannsd. skoruðu grimmt. Fimmti sigur Valskvenna í fyrstu fimm leikjunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.