Morgunblaðið - 18.10.2019, Side 40
Christopher Lund opnar ljósmynda-
sýningu í Gallery Grásteini við
Skólavörðustíg 4 í dag kl. 17 í tilefni
af útgáfu nýrrar ljósmyndabókar.
„Það er von mín að myndirnar mín-
ar geti fært fólk nær þeim fjársjóði
sem í landinu býr og um leið verði
til fleiri talsmenn þess og vernd-
arar,“ segir Christopher um sýn-
ingu sína og bók.
Christopher Lund sýnir
í Gallery Grásteini
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 291. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Hlaupaskór sem eru nýir á mark-
aðnum verða væntanlega teknir til
skoðunar hjá Alþjóðafrjálsíþrótta-
sambandinu á næstunni. Þau Eliud
Kipchoge og Brigid Kosgei, bæði
frá Keníu, náðu nýlega bestu tímum
sem náðst hafa í maraþoni og
hlupu í þessari nýju skótegund.
Fjallað er um málið á íþróttasíð-
um blaðsins í dag. »32
Stór afrek í maraþoni
vekja spurningar
ÍÞRÓTTIR MENNING
Strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar
Íslands leikur þætti úr konsertum
eftir Corelli og Händel undir stjórn
enska fiðluleikarans Matthews
Truscotts á hádegistónleikum í
Norðurljósum Hörpu í dag kl. 12.
Truscott hefur getið sér gott orð
sem konsertmeistari upprunasveit-
arinnar Orchestra of the Age of
Enlightenment. Bar-
okktónlist, sem hef-
ur hátíðlegan blæ,
er ekki meðal hinna
daglegu verkefna
stórra sinfóníu-
hljómsveita.
Aðgangur er
ókeypis.
Barokk á hádegistón-
leikum Sinfóníunnar
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Sjö Íslendingar eru nú staddir í St.
Paul í Minnesota-ríki, þar sem
fram fer heimsmeistaramótið í X-
Wing, borðspili sem hermir eftir
flugbardögunum í Stjörnustríðs-
heiminum. Spilið sameinar kænsku
og heppni, og má stundum segja að
það sé líkt því að spila skák og
póker á sama tíma.
„Þetta er búið að ganga framar
vonum,“ segir Gísli Baldur Braga-
son, einn af sjömenningunum, en
hann mun spila í dag, á seinni degi
mótsins, ásamt fjórum öðrum úr
hópnum.
„Af okkur sjö voru þrír búnir að
tryggja sér sæti á sjálfu mótinu
fyrirfram og þrír af hinum fjórum
tryggðu sér keppnisréttinn í sér-
stakri undankeppni á miðvikudag-
inn,“ segir Gísli, en hann, Egill
Björnsson og Hákon Davíð Hall-
dórsson sjá um vinsælan hlað-
varpsþátt um spilið, Thule Squad-
ron Radio.
- En hvernig standa Íslendingar
samanborið við aðrar þjóðir í
spilinu? „Við höfum í fullu tré við
alla andstæðinga, enda launar spil-
ið þeim sem æfa sig og stunda það
af kappi,“ segir Gísli og bætir við
að höfðatalan sé einnig okkur í vil.
„Hér eru átta Frakkar og sjö Ís-
lendingar, sem segir ýmislegt.“
„Svo er það bara staðreynd, að
X-Wing samfélagið er frábært, við
höfum allir eignast marga góða
vini fyrir lífstíð,“ segir Gísli að lok-
um
Eins og að spila skák
og póker á sama tíma
Sjö Íslendingar keppa á HM í Stjörnustríðsborðspili
Ljósmynd/Carlos Ramirez
StarWars Borðspilarar á X-Wings heimsmeistaramóti í USA, f.v. Freyr Magnússon, Egill Björnsson, Arnar Björns-
son, Andri Baldvinsson, Hákon Davíð Halldórsson, Gísli Baldur Bragason og Stefán Gunnar Sveinsson.
Ljósmynd/Andri Baldvinsson
Keppni Hákon Davíð einbeittur við
keppni á mótinu í St. Paul í gær.
Picasso
rmúla 24 • S. 585 2800