Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Page 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.10. 2019 Þ að var fátt um fréttir á heimavíg- stöðvum síðustu vikurnar og er það þakkarefni. En margt kallaði á eftir- tekt annars staðar frá. Splunkunýtt samsæri Demókratar í Washington láta enn eins og þeir hafi ákært Trump forseta til embættismissis, þótt þeir hafi ekki gert það. Trump tönglast á því í tísti að það skuli þeir endilega gera en jafnvel það dugar ekki til. Regluverkið sem leyfir slíka atlögu fulltrúadeildar- innar að forseta Bandaríkjanna er óljóst um sumt en ekki þetta. Deildin, sem Nancy Pelosi er í forsvari fyrir, þarf að bera tillögu um slíkt undir atkvæði og fá samþykkta og þá má hefja rannsóknir sem geta eftir atvikum leitt til ákæru. Pelosi, sem verður áttræð næsta vor, og ætti af þeim ástæðum að vera í fram- boði til forseta er hrædd og hikandi. Hún veit að verði gengið götuna til enda á öldungadeildin lokaorðið. Forseti Hæstaréttar sest þá í forsæti og hann er ekki veikur fyrir skrípalátum. En demókratar hafa fram að þessu ekki þorað að bera tillögu sína undir atkvæði enda óöruggir um að hún fái meirihluta, þannig að þeir gætu með lögmæt- um hætti byrjað fyrri hluta leikþáttarins. Seinni hlut- inn, kæmi hann til, er sjálfdauður. Ekki vegna þess að repúblikanar hafi meirihluta í öldungadeildinni, held- ur vegna þess að dómur gegn forsetanum er ónýtur nema tveir þriðju hlutar þingmanna deildarinnar, 67 þingmenn af 100, samþykki hann. En næðu demókratar að fá deildina til að sam- þykkja rannsókn sem leitt gæti til ákæru, fengju repúblikanar í fulltrúadeildinni hlutverk við rann- sóknina og eins fulltrúar Hvíta hússins og lögfræð- ingar þaðan svo að demókratar gætu ekki haldið áfram með sinn löglausa einleik lengur eins og þeir komast upp með núna þegar sviðsetningin minnir á lokað réttarhald í höfuðstöðvum Demókrataflokksins. En um þetta er nánast óþarfi að fjalla því að enn sem komið er þá er þetta eingöngu á farsastiginu. Demókratar settu „impeachmentið“ af stað tengt þörf á að rannsaka símtal Trumps við forseta Úkra- ínu þótt þeir hefðu í tvö og hálft ár fullyrt að slíkt kæmi til eftir að Mueller saksóknari hefði afhjúpað hið ógurlega rússneska samsæri. En símtalið dugar lítt til rannsókna því að forsetinn gerði þeim þann óleik að láta birta það uppskrifað, en slíkt hefur ekki verið gert áður. Vitnaleiðslur yfir „litlu símamönnunum“ sem sögðust hafa heyrt ein- hvern segja sér um hvað símtal forsetanna væri hefðu aldrei orðið gott efni. Þeir höfðu sagt að sínir heimild- armenn hefðu verið viðstaddir eða legið löglega á hleri eða hefðu sagt einhverjum sem hefði sagt þeim hvað hefði verið sagt. Þótt slíkir væru yfirheyrðir með höfuðpoka sem „whistleblowers“ um samtal sem allir hefðu uppskrift að myndi það seint kalla á áhorf eða hlustun! Önnur og kræsilegri símtöl Það yrði hins vegar miklu æsilegra hefðu demókratar beðið um að öll samtöl Merkel, kanslara Þýskalands, yrðu birt. Ekki bara samtöl hennar við Obama og Hillary heldur samtöl hennar við alla sem hún hefði talað við síðustu átta árin, því eins og menn muna, þá lét Obama sendiráð sitt í Berlín hlera öll samtöl kanslarans. Þegar sá ótrúlegi leikur uppgötvaðist sagðist frið- arverðlaunahafi Nóbels vera yfir sig leiður (les. yfir því að þetta komst upp). Sagðist hann þegar í stað hafa gefið fyrirmæli um að nú skyldi hætt að hlera síma þessa helsta bandamanns í Evrópu. En fyrrverandi leyniþjónustumenn hafa bent á að Obama hefði engu lofað um að símar þeirra sem Merkel talaði við yrðu ekki hleraðir. En svo lengi sem Merkel talar eingöngu við sjálfa sig í síma er hún þó algjörlega örugg í þessum efnum. Væri þess vegna ekki ósanngjarnt að hún legði til að Obama forseti fengi friðarverðlaunin aftur því í upphafi fékk hann verðlaunin fyrir ekkert, en þetta væri þó að minnsta kosti eitthvað, þótt lítið væri. Og ekki gæti það spillt að Obama studdi Bræðralag múslíma í aðför þeirra að forseta Egyptalands, að valdahruni í Túnis og Líbíu, með tilheyrandi falli her- manna og almennra borgara og „vorhreingerningar“ í Sýrlandi með öllum þeim ósköpum sem þeim fylgdu. Og að auki þá er Assad enn við völd í Sýrlandi eftir allan hryllinginn og með Pútín forseta Rússlands þar í aðalhlutverki á svæðinu. En þótt fátt væri fréttnæmt í næsta nágrenninu þá var eins og fyrr segir meira að frétta utan úr heimi. Það má segja að bókmenntaverðlaun Nóbels hafi ver- ið frétt því að fréttin var í mörgum tilvikum það fyrsta sem hafði frést af verðlaunahöfunum. Getur unnið aftur Hillary Clinton sagði opinberlega á fundi í liðinni viku, sem sýnt var frá, að hún teldi sig auðveldlega getað „unnið Trump aftur“ haustið 2020 eins og hún hefði gert síðast! Það vakti athygli að Donald Trump sat á sér og tísti ekkert um þetta nóttina eftir yfirlýsinguna en sagt er að leitarsveitir hafi farið um Hvíta húsið því forset- Aldrei hafa jafnmargir legið jafn víða jafn illa undir grun af jafnmörgum og nú Reykjavíkurbréf11.10.19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.