Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.10.2019, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.10. 2019 LÍFSSTÍLL S á dagur rann að því verk- efni yrði ekki slegið á frekari frest að aka Will Rogers Highway eins og hann hét, The Mother Road sem John Steinbeck gerði að ódauðlegu heiti í Þrúgum reiðinnar, The Main Street of America eða bara U.S. Route 66 eins og vegurinn hét í opinberu þjóðvegakerfi Bandaríkj- anna þar til hann var lagður niður sem þjóðvegur árið 1985. Að frum- kvæði sveitarfélagsins Springfield í Missouri var þessi tæplega 4.000 kíló- metra langa leið endurvakin árið 1990 undir heitinu Historic Route 66, Hinn sögulegi 66, og hér má þá lesa ágrip af því þegar miðaldra íslensk hjón leigðu sér blæjubíl, þóttust vera 25 ára og lögðu til atlögu við goðsögnina. Eftir að hafa sótt eldrauða Ford Mustang-blæjubifreið úr véum Alamo-bílaleigunnar á Logan- flugvellinum í Boston mánudaginn 2. september ókum við á nokkrum dög- um til Chicago, en þar sem annað þótti ótækt en að aka alveg stranda landsins á milli hófst förin við Atl- antshafið og lauk við Kyrrahaf. Í Chicago var áð tvær nætur enda borgin hin skemmtilegasta og spillti ekki fyrir að á sakleysislegu kráarölti síðari daginn var okkur fyrirvara- laust boðið í brúðkaupsveislu tveggja ungra manna hinum megin í borg- inni, í Andersonville, eftir að hafa rekist á tvo vini þeirra, Frakka og Bandaríkjamann sem linntu ekki lát- um fyrr en þeim auðnaðist að draga íslensku ferðalangana með í brúð- kaup vina sinna og hlaust af hin besta skemmtun. Byrjunarreiturinn þrífluttur Daginn eftir var komið að brottför frá Chicago og fyrsta degi á Route 66. Byrjunarreitur leiðarinnar er auð- kenndur með skilti á horni Michigan Avenue og Adams Street en rétt er að geta þess að hin upprunalega Route 66 átti sér ekki þann upphafs- punkt. Hann var við Jackson Boule- vard fram til 1937 en færðist þá og svo aftur 1955 þegar Jackson varð einstefnugata vestan Michigan Ave. Nú er það allmisjafnt hvað heillar fólk á ferðalögum en líklega yrðu ein- hverjir til að sammælast okkur um að fyrsti þriðjungur Route 66, rúmlega 1.300 kílómetra kafli frá Chicago nið- ur til Oklahoma-borgar, er ekki lík- legur til að drepa meðalmanneskju úr spennu. Leiðin er án mikillar tilbreyt- ingar, mest þráðbeinn vegur með bleika akra og slegin tún til beggja handa enda farið um mikil landbún- aðarríki svo sem Kansas og Missouri. Að mati þeirra sem hér skrifa magn- ast hinir eiginlegu töfrar Route 66 þegar ekið er í vestur frá Oklahoma áleiðis til Amarillo í Texas. Eftir það er varla dauður punktur á leiðinni og lítill hörgull á sögulegum áningar- stöðum. Dvöl í Oklahoma-borg hófst á að skoða minnismerkið The Field of Empty Chairs sem stendur á því sem var grunnflötur Alfred P. Murrah- stjórnsýslubyggingarinnar þar í borg þar til Timothy McVeigh, fyrrverandi hermaður úr Persaflóastríðinu, sprengdi þar fyrir utan bifreið með 2,3 tonnum af ammóníumnítrati og nítrómetani 19. apríl 1995 klukkan 09:02 að staðartíma. Í raun er um nokkur minnismerki að ræða auk safns um atburðinn. Frá Oklahoma liggur leiðin í vest- ur, rúma 400 kílómetra til Amarillo í Texas þar sem finna má hið annálaða steikhús Big Texan Steak Ranch & Brewery og kannast margir vafalítið við áskorun hússins sem felst í því að hesthúsa tveggja kílógramma nauta- steik sem er á kostnað hússins takist það. Hvorugum greinarhöfunda hugnaðist sú hólmganga. Billy the Kid-safnið Margt er þó að skoða á leiðinni til Amarillo og má þar nefna Route 66- safnið í Elk City í Oklahoma, en er nær dregur Amarillo birtist Cadillac Ranch á vinstri hönd við þjóðveg 40, ákaflega myndrænt listaverk hóps sem kallaði sig Ant Farm og gróf árið 1974 tíu Cadillac-bifreiðar af árgerð- um 1949 til 1963 í jörðu með aftur- endann upp. Býsna myndrænt og til- valið að gera stutt hlé á akstri og skoða. Nær óumflýjanlegt er að líta örlítið út fyrir sjálfa Route 66 og skoða staði sem eru spölkorn frá veginum en þó fullkomlega þess virði að heimsækja. Má þar nefna Santa Fe, höfuðborg New Mexico, sem þó hýsir aðeins rúmlega 70.000 íbúa en liggur rúm- lega 2.100 metra yfir sjávarmáli og er þar með sú ríkishöfuðborg allra Bandaríkjanna sem hæst liggur. Annar bær sem óhætt er að nefna rétt utan við Route 66 á þessum slóð- um er Fort Sumner sem áhugafólk um útlagann sem gekk ýmist undir nöfnunum Henry McCarty, William H. Bonney eða bara Billy the Kid ætti ekki að láta fram hjá sér fara. Í Fort Sumner skaut Pat Garrett lögreglustjóri Billy the Kid til bana 14. júlí 1881 og þar í bænum er rekið safn um útlagann, Billy the Kid Museum. Apache-dauðahellirinn í Two Guns Full ástæða er til að koma við í draugabænum Two Guns skömmu eftir að Arizona tekur við af New Mexico. Sú var tíðin að Two Guns ið- aði af lífi og var fjölsóttur ferða- Í kompaníi við malbikið Atli Steinn Guðmundsson og Rósa Lind Björns- dóttir höfðu haft það á stefnuskrá sinni síðustu sex ár að aka hinn goðsagnakennda þjóðveg Route 66 frá Chicago til Santa Monica þegar þau létu loks slag standa nú á haustdögum og auðguðu höll minninganna sem aldrei fyrr. Hér er stiklað á því allra stærsta úr för sem seint fellur í gleymskunnar dá. Texti og myndir: Atli Steinn Guðmundsson Nei sæll, kemurðu oft hingað? Í gullnámubænum Oatman í Arizona virðist tíminn hafa staðið kyrr síðan á 19. öld, meira að segja enn þá virkar gullnámur í bænum sem sjá 70 manns fyrir atvinnu. Asnar rölta í rólegheitum um göturnar og eru í raun í vinnu við að sitja fyrir á myndum ferðamanna. Án þess að vera með klukku þekkja þeir sinn vitjunartíma og rölta heim á bæinn sinn um klukkan sex og eru þá ekkert að hugsa um hvort þeir þvælist fyrir umferð eða ekki, stinga jafnvel snoppu sinni inn um bílglugga ferðalanga sem bjóða þeim viðurgerning til að seðja sárasta hungrið. (Í engri sérstakri röð)  Field of Empty Chairs, OK  Cadillac Ranch, TX  Grand Canyon, AZ  Petrified Forest, AZ  Santa Fe, NM  Two Guns, AZ  Oatman, AZ  Indian Village Gift Shop, NM  Adrian, TX (66 hálfnuð)  Route 66 Museum, OK TOPP TÍU STAÐIR VIÐ ROUTE 66

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.