Morgunblaðið - 08.11.2019, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 8. N Ó V E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 263. tölublað 107. árgangur
FÉKK HUGMYND
AÐ BARNABÓK
Í DRAUMI
MÓTUÐ
AF NÁTT-
ÚRUNNI
TEKUR Á
BRÝNUM
VANDAMÁLUM
JÓHANNA 75 ÁRA 30 HELKÖLD SÓL 37ÁRMANN JAKOBSSON 36
Ísland sett á bannlista
Cyprus Development Bank lokar á millifærslur til Íslands Stefnubreyting hjá
bankanum sem tók gildi í byrjun nóvember Millifærslur hafa gengið treglega
lista hjá bankanum yfir þau lönd sem
ekki er heimilt að opna á millifærslur
af neinum toga. Athygli vekur að
Kýpur er ekki aðili að alþjóðlegu
samtökunum Financial Action Task
Force (FATF) sem settu Ísland í síð-
asta mánuði á gráan lista vegna
ónógra varna gegn peningaþvætti.
Krefjast mikils magns gagna
Í frétt ViðskiptaMoggans frá því á
miðvikudag var haft eftir heimildum
að ekki hefði verið haldið nægilega
vel á spilunum hér á landi undanfar-
in ár hvað varðar reglur sem kveða á
um að kanna eigi bakgrunn við-
skiptavina áður en þeir hefja við-
skipti (e. know your customer, KYC)
ásamt innleiðingu laga um peninga-
þvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Var þar haft eftir heimildum að sá
möguleiki væri talinn raunverulegur
að athuganir íslenskra fjármálafyr-
irtækja á viðskiptavinum sínum yrðu
ekki teknar gildar. Því gætu erlendir
bankar þurft að framkvæma eigin
sjálfstæðar athuganir án þess að
hafa til hliðsjónar athuganir íslensku
bankanna vildu íslenskir einstak-
lingar eða lögaðilar stofna til við-
skipta.
Heimildir Morgunblaðsins herma
enn fremur að treglega hafi gengið
undanfarnar vikur að millifæra
greiðslur frá CDB til Íslands og að
krafist hafi verið mikils magns
gagna og vottana frá mörgum að-
ilum til þess uppfylla þau skilyrði
sem bankinn krefst núorðið í anda
KYC. Frá því í byrjun nóvember
hafi svo slíkar millifærslur verið
stöðvaðar að öllu leyti.
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Íslenskum viðskiptavinum Cyprus
Development Bank (CDB) var á
dögunum neitað um millifærslu um-
talsverðrar fjárhæðar á bankareikn-
inga hér á landi. Samkvæmt gögnum
sem Morgunblaðið hefur séð lýtur
ákvörðunin að breyttri stefnu bank-
ans um hvaða viðskiptavini hann
samþykkir sem sína. Sú breyting tók
gildi nú í nóvember.
Samkvæmt heimildum er Ísland á
Nemendur og kennarar Hagaskóla héldu góð-
gerðardaginn í 11. sinn í gær. Nemendur opnuðu
stofur sínar fyrir gestum og boðið var upp á
ýmsar skemmtanir. Meðal þeirra var leit að
blöðru með spotta í einni stofunni. Að venju var
safnað fé til góðra málefna. Ákveðið var að
halda áfram að styrkja Iklaash-munaðarleys-
ingjahælið í Kenía og við kosningu varð Land-
vernd fyrir valinu sem nýtt verkefni.
Morgunblaðið/Eggert
Leitað að blöðru með spotta á góðgerðardaginn
Nýlegar jarðsjármælingar benda til
þess að fornar rústir kunni að leynast
undir túni á Keldum á Rangárvöllum.
Dr. Steinunn J. Kristjánsdóttir, forn-
leifafræðingur og prófessor, segir að
uppgröft þurfi til að sannreyna hvað
er þarna undir og hvers eðlis þessar
byggingar hafi verið. Einnig þurfi að
gera aldursgreiningu til að vita hvað
þetta er gamalt. Ekki er vitað um
neinar byggingar á þessum stað á
seinni tímum.
Sagt er að íbúðarhús Jóns Lofts-
sonar, þess mikla höfðingja og stofn-
anda Keldnaklausturs, hafi staðið á
þessu túni. Lækur skilur að túnið og
bæjarhúsatorfuna og lítil náttúruleg
brú yfir hann. Nú sjást engar rústir á
þessum stað. »6
Ljósmynd/Steinunn J. Kristjánsdóttir
Keldur Þar stóð Keldnaklaustur.
Fornar rústir
undir túni
á Keldum
Grafa þarf rúst-
irnar upp og greina
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
c
ta
v
is
7
1
1
0
3
0
Betolvex
B-12
H
Fæst án
lyfseðils
VÍKINGUR
OGDANÍEL
FÖSTUDAGUR
8. NÓVEMBER 19:30
AUKATÓNLEIKAR
Edvard Grieg Pétur Gautur, valdir þættir
Daníel Bjarnason Processions, píanókonsert
W.A. Mozart Hornkonsert nr. 3
Jean Sibelius Sinfónía nr. 5
Daníel Bjarnason
hljómsveitarstjóri
Radovan Vlatković
einleikari
nossfalÓraðieHrugnikíV
einleikari
TÓNLEIKUNUMER
STREYMTBEINT Í
MYNDÁSINFONIA.IS
ÖRFÁSÆTI LAUS