Morgunblaðið - 08.11.2019, Page 16

Morgunblaðið - 08.11.2019, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019 Kennarar og for- eldrar sem sitja nám- skeið og kynningar um Vináttu – forvarnaverk- efni Barnaheilla gegn einelti eru spurðir hvað þeir telji mikilvægast að börn upplifi og læri í skólanum sínum. Svörin eru öll á sömu leið, hvort sem um er að ræða kennara eða leið- beinendur í leik- eða grunnskólum eða foreldra barna á mismunandi aldri. Að barninu líði vel, það eigi vin, barnið finni fyrir öryggi og það fái góða sjálfsmynd eru svörin sem alltaf koma. Og af hverju er það svo? Við höfum alla tíð haft þörf fyrir að tilheyra samfélaginu og vera sam- þykkt af eigin verðleikum. Þegar mannkynið var frumstæðara var það lífsspursmál að vera hluti af hópi ann- ars fólks og ef einhver var útilokaður var óvíst að hann myndi lifa af. Í dag er það ef til vill ekki spurning um líf eða dauða, og þó. Þegar afleiðingar útilokunar, sem er ein birtingarmynd eineltis, eru skoðaðar kemur í ljós að einelti getur haft mikil áhrif á líðan einstaklinga til lengri tíma og haft mótandi áhrif á líf þeirra um alla framtíð. Að bjóða upp á einelti Ekkert barn býður upp á að vera útilokað, beitt ofbeldi eða niðurlægt á ýmsan máta. Það er ólíklegt að nokk- urt foreldri fari með leyfisbréf í skóla barnsins og tilkynni opinberlega að barnið sé skotmark fyrir alla hina og megi leggja í einelti. Samt sem áður eru dæmi um að kennarar hafi út- skýrt einelti þannig að börnin bjóði upp á það. Slík mál hafa því miður stundum verið „leyst“ þannig en sömu börn hrökklast jafnvel úr skól- anum, þjökuð eftir þá meðferð sem þau fengu og fá nýtt tækifæri í nýjum skóla. Í tveimur af hverjum þremur tilfellum líður barninu betur í nýja skólanum og segir það skýrt til um að barnið sjálft bauð ekki upp á eineltið heldur hafði það með menninguna í barnahópnum að gera. Að koma út með reisn Hugmyndafræði Vin- áttu byggist á fjórum gildum, umburðarlyndi, umhyggju, virðingu og hugrekki og er þeim fléttað inn í námsefni verkefnisins sem er fyr- ir börn á aldrinum 0-9 ára. Börnin læra að hafa orð á líðan sinni, setja sig í spor annarra og leysa úr þeim deilum sem upp geta komið þannig að allir komi út með reisn. Forðast er að finna sökudólga og fórnarlömb með tilheyrandi vitna- leiðslum sem eiga að leiða í ljós hverj- um ber að segja lykilorðið fyrirgefðu. Þess í stað er áhersla lögð á hópinn sem heild, einblínt á þá menningu sem hefur myndast og að aðstoða börnin í að reynast hvert öðru góðir félagar. Snemmtæk íhlutun – forvarnir og fræðsla Sífellt fleiri rannsóknir benda til að börn séu gríðarlega móttækileg strax á fyrstu æviárum sínum. Þau tileinka sér fljótt það sem þau læra úr um- hverfinu og taugabrautir þeirra þroskast og tengjast. Því er mik- ilvægt að börn læri sem fyrst góð samskipti sem eru grunnur að velferð þeirra síðar meir. Fyrirbyggja þarf af öllum mætti að börn þurfi að upplifa þá vanlíðan sem fylgir því að vera lagður í einelti eða verða vitni að slíku. Ábyrgðin er okkar fullorðna fólksins! Einelti þrífst best í aðstæðum sem börn hafa ekki val um að vera í og dæmi um slíkar aðstæður eru bekk- urinn sem þau „lenda í“ eða deildin sem þau eru „sett á“. Þar eru börnin margar klukkustundir á dag, fimm daga vikunnar, stóran hluta ársins. Ef þeim líður illa þar þurfa þau að þrauka, þau komast ekki í burtu. Ef okkur fullorðna fólkinu líður illa á vinnustað eða í öðrum hópum sem við tilheyrum höfum við val um að fara, hætta í vinnunni. Börnin hafa ekki það val. Það erum við fullorðna fólkið sem sköpum þær aðstæður sem börn- in eru sett í og ábyrgðin er því okkar. Við þurfum að muna að við erum fyr- irmyndirnar. Allir eru með Þegar unnið er með forvarnir gegn einelti er mikilvægt að allir taki þátt. Námsefni Vináttu er ekki eingöngu fyrir börnin heldur einnig fyrir kenn- ara og foreldra og er byggt á ítarleg- um rannsóknum og tekið reglulega út. Unnið er með Vináttu í rúmlega 55% íslenskra leikskóla auk þess sem 19 grunnskólar hafa verið að tilrauna- kenna grunnskólaefnið og kemur efn- ið út í endanlegri útgáfu á nýju ári. Vinátta kemur frá Danmörku og þar er unnið með efnið í 60% leikskóla, 40% ungbarnaskóla og 45% grunn- skóla og gefa rannsóknir sterklega til kynna að einelti hafi minnkað veru- lega þar í landi með tilkomu þessa verkefnis. Vinátta er einnig í Eist- landi, Færeyjum, Grænlandi og Rúm- eníu auk þess sem mörg önnur lönd sýna hugmyndafræðinni og námsefn- inu mikinn áhuga. Boðið er reglulega upp á námskeið fyrir kennara auk kynninga fyrir foreldra. Að lokum Barnið þitt býður ekki upp á einelti, það gerir ekkert barn. Börn eiga rétt á vernd gegn ofbeldi eins og kemur fram í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og það verðum við að tryggja. Við þurfum að tryggja að öll börn fái tækifæri til að upplifa allt það sem við erum sammála um að sé mik- ilvægast. Með því stuðlum við að ham- ingjusamari börnum sem um leið verða margfalt meðtækilegri fyrir öllu öðru námi og aukum um leið lík- urnar á að þau komist öll í gegnum líf- ið með reisn. Býður barnið þitt upp á einelti? Eftir Lindu Hrönn Þórisdóttur » Við þurfum að tryggja að öll börn fái tækifæri til að upplifa allt það sem við erum sammála um að sé mikilvægast. Linda Hrönn Þórisdóttir Höfundur er verkefnastjóri hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi, leik- og grunnskólakennari og uppeldis- og menntunarfræð- ingur. linda@barnaheill.is Í dag, 8. nóvember 2019, fagnar Zonta- hreyfingin 100 ára af- mæli sínu. En fyrir hvað stendur Zonta? Markmið Zonta, sem er alþjóðafélagsskapur fagfólks, er að vera leiðandi í víðtækum hjálpar- og stuðnings- verkefnum fyrir konur hvarvetna þar sem þess er þörf. Zonta starfar bæði al- þjóðlega, á landsvísu og í gegnum svæðisbundin verkefni sem miða að því að styrkja konur og efla lífsgæði þeirra. Í samvinnu við Sameinuðu þjóðirnar er stuðlað að verkefnum sem bæta heilsu og menntun kvenna um allan heim. Í dag eru um 30.000 félagar í Zontasamtökunum í 67 löndum. Zontasamtökin eru upprunnin í Bandaríkjunum, Buffalo í New York-ríki, 8. nóvember 1919 í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Á þess- um tímum höfðu orðið miklar þjóð- félagsbreytingar, en á stríðsárunum fóru fleiri konur út á vinnumark- aðinn en áður hafði tíðkast. Þær tóku að sér stjórnunarstörf og við- skipti ýmiss konar sem karlar höfðu haft svo til einungis á höndum og þær stóðu ekki jafnfætis körlum. Blaðakonan Marian de Forest gerði sér grein fyrir þessu ójafnvægi og að það væri mikilvæg og sjálfsögð krafa kvenna að njóta sömu réttinda á vinnumarkaðnum og karlar. Þessi róttæka hugmynd hennar um jafn- rétti var auðvitað óþekkt á þeim tíma og jafnvel áratugum á undan þeirri umræðu sem við þekkjum í dag og finnst sjálfsögð. Vöxur hreyfingarinnar hélt áfram innan Bandaríkjanna. Það er síðan árið 1927 að hreyfingin breiddist út til Kanada og síðar, árið 1930, til Evrópu en þá varð Zontahreyfingin alþjóðleg. Í Evrópu var fyrsti klúbb- ur stofnaður í Vínarborg árið 1930. Árið 1935 voru fyrstu klúbbarnir stofnaðir á Norðurlöndum, annar í Kaupmannahöfn og hinn í Stokk- hólmi. Zontahreyfingin kemur síðan til Íslands árið 1941 þegar Zonta- klúbbur Reykjavíkur var stofnaður. Nú í dag eru Zontaklúbbar á Íslandi 6 og í þeim eru 160 félagar. Zontahreyfingin er skipt upp í vinnuumdæmi í heiminum, Ísland er 13. umdæmi með Noregi, Danmörku og Litháen. Það eru síðan svæð- isstjórar þessara landa sem mynda stjórn yfir umdæminu og vinna að markmiðum Zontahreyfingarinnar með félögum klúbbanna. Zonta-merkið sam- anstendur af fimm táknum Sioux-indjána sem saman mynda orð- ið ZONTA en það þýðir ljós, tryggð og sam- heldni, samábyrgð, skjól og vernd. Alþjóðasamtök Zonta og klúbbar um víða veröld hafa valið verkefni til að vinna að hverju sinni. Alþjóða- samtökin velja verkefni annað hvert ár á alþjóðlegri ráð- stefnu sem haldin er á mismundandi stöðum í heiminum, 100 ára afmæl- isráðstefnan verður haldin í höf- uðstöðvum Zontasamtakanna í Chi- cago í júlí á næsta ári. Aðalverkefni samtakanna fram til ársins 2020 er að koma í veg fyrir barnahjónabönd. Það er gleðilegt að minnast á það að UN Women á Ís- landi stóð fyrir landssöfnun fyrir þessu málefni um síðuastu helgi. Zontahreyfingin er ein af samstafs- aðilum Unicef, Barnahjálpar Sam- einuðu þjóðanna. Zontahreyfingin styrkir árlega konur til náms. Þessir styrkir eru veittir námskonum sem stunda nám í viðskiptum, almannatengslum, tæknigreinum og til kvenna sem lok- ið hafa námi í geimvísindum, flug- vélaverkfræði og skyldum greinum. Framtíðarsýn Zontasamtakanna er heimur þar sem réttindi kvenna eru viðurkennd sem mannréttindi og þar sem sérhver kona getur nýtt möguleika sína að eigin vild. Þar munu konur geta nýtt öll tækifæri sem þeim gefast og staðið jafnfætis körlum við ákvarðanatöku. Í slíkum heimi mun engin kona þurfa að lifa í ótta við ofbeldi. Í tilefni af 100 ára afmælinu held- ur Zontasamband Íslands afmæl- isráðstefnu í dag í Veröld, húsi Vig- dísar Finnbogadóttur og í Borgum í Háskólanum á Akureyri. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Ísland í heim- inum, heimurinn á Íslandi. Rástefnan hefst klukkan 15 og eru allir hjartanlega velkomnir. Eftir Þóru Ákadóttur »Zonhreyfingin er alheimssamtök fagfólks og er leiðandi í víðtækum hjálpar- og stuðningsverkefnum fyr- ir konur hvarvetna þar sem þess gerist þörf. Þóra Ákadóttir Höfundur er svæðisstjóri Zontasambands Íslands. Zontahreyfingin 100 ára Hópur af nýnasistum hefur verið á síðustu dögum að dreifa hat- ursáróðri um há- skólasvæðið, m.a. að dreifa einblöðungum á stúdentagörðunum og í byggingar háskólans. Háskóli Íslands er stað- ur sem fagnar fjöl- breytileikanum og eru um 10% af nemendum skólans af erlendu bergi brotin, þar á meðal ég. Þar sem ég sjálfur er múslimi í minnihlutahóp og ber nafnið Muham- med leyfist mér að segja að þessi gjörningur er ekki einungis sorglegur heldur hryllir mann líka við honum þar sem þetta minnir okkur á það hvernig hugsunarháttur tíðkaðist í Evrópu árum áður. Sjálfur veit ég að stúdentahreyfingin Vaka sem ég hef verið meðlimur í síðan 2016 fordæmir þennan gjörning, einnig veit ég að vinir mínir í Röskvu gera það líka. Þetta er eitthvað sem varðar alla stúdenta og þurfum við þess vegna að taka öll á þessu saman og mótmæla þessum hatursfullu skilaboðum. Hið þversagnakennda við þetta atvik í heild sinni er að þessum áróðri hefur verið dreift um svæði þar sem erlend- ir nemendur dvelja, til dæmis í kringum Stúd- entagarðana. Þessir er- lendu nemendur koma víðs vegar að úr heim- inum og fá því afar skakka hugmynd af því hvað Íslendingar standa fyrir. Í Háskóla Íslands eru yfir 1.000 erlendir nemendur en nú hafa bæði erlendir og inn- lendir nemendur for- dæmt þennan áróður, þá sérstaklega í hópn- um Alþjóðlegir náms- menn við Háskóla Íslands (Inter- national Students at the University of Iceland) þar sem ég er meðal annars stjórnandi. Þessi áróður táknar ekki það sem Ísland stendur fyrir, né háskóla- samfélagið eða Íslendingar almennt. Áróðurinn táknar heldur ekki já- kvætt viðhorf til friðar eða samstöðu. Þessi áróður hefur skýr skilaboð um vilja til aðgreiningar, hatur og öfga- fulla hugsýn um framtíð Íslands. Við í Vöku fordæmum þessar aðgerðir á alla vegu! Við í Vöku viðurkennum ekki svona áróður, hvort sem það er innan eða utan veggja háskólans þar sem þetta fellur ekki undir siðferð- islegt málfrelsi. Þetta fellur undir hat- ursorðræðu sem hvetur til aðgrein- ingar og ofbeldis. Þessi áróður er framsetning á fáfræði og einangrun frá samfélagslegum veruleika og það er eitthvað sem Vaka stendur alls ekki fyrir. Við viljum biðja nemendur Háskóla Íslands að hafa samband við fulltrúa Stúdentaráðs Háskóla Ís- lands ef þeir telja sig hafa orðið fyrir áhrifum tiltekins atviks, þar sem þetta er algjörlega ólíðandi. Við búum í nútímasamfélagi þar sem ekki á að skipta máli hvaðan þú kemur, hverrar trúar eða kynþáttar þú ert. Við búum öll saman í þessu samfélagi þar sem fjölbreytileiki er óhjákvæmilegur og verður hann það alltaf. Þessi litli hóp- ur sem samanstendur af öfgafullum ódæðismönnum og vinnur að því um allan heim að koma á aðgreiningu með valdi og ofbeldi stendur fyrir skoðanir sem almenningur mun aldr- ei endurspegla. Öfgasinnar endurspegla ekki háskólasamfélagið Eftir Muhammed Emin Kizilkaya » Þessi áróður hefur skýr skilaboð um vilja til aðgreiningar, hatur og öfgafulla hugsýn um framtíð Íslands. Við í Vöku fordæmum þessar aðgerðir á alla vegu! Muhammed Emin Kizilkaya Höfundur er meðlimur í Vöku, hagsmunafélagi stúdenta. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morg- unblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfs- fólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.