Morgunblaðið - 08.11.2019, Side 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019
✝ Þorvaldur G.Óskarsson
fæddist á Minni-
Ökrum í Blönduhlíð
2. október 1933.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnuninni á
Sauðárkróki 1. nóv-
ember 2019.
Foreldrar hans
voru Sigrún Sigurð-
ardóttir, f. 16. okt.
1910, d. 23. septem-
ber 1988, og Óskar Gíslason, f.
12. júlí 1897, d. 27. júlí 1977.
Systir Þorvaldar var Arndís
Guðrún, f. 28. júlí 1941, d. 1.
desember 2007, gift Brodda
Björnssyni.
Þorvaldur kvæntist 17. júní
1955 Sigurlínu Eiríksdóttur, f.
30. ágúst 1932, d. 28. ágúst
2016.
janúar 1963, gift Finni J. Niku-
lássyni, synir þeirra Þorvaldur
Örn, sambýliskona Jóhanna
Jónsdóttir, og Nikulás Már,
sambýliskona Særún Erla
Baldursdóttir.
Þorvaldur fluttist ungur
ásamt foreldrum sínum að
Sleitustöðum og bjó þar ætíð
síðan. Hann gekk í barnaskóla
Óslandshlíðar í Hlíðarhúsi og
síðar Iðnskólann á Sauðárkróki,
þar sem hann lauk námi í bif-
vélavirkjun. Síðan lá leið hans
til Reykjavíkur þar sem hann
starfaði í nokkur ár við fagið.
Heim kominn rak hann Bif-
reiðaverkstæðið á Sleitustöðum
og einnig kenndi hann nokkur
ár við Bændaskólann á Hólum.
Hann hafði mikinn áhuga á fé-
lagsmálum, var í Lions, söng
með Hörpunni á Hofsósi og
Karlakórnum Feyki, síðar
Heimi, þar sem hann var
formaður um árabil.
Þorvaldur verður jarðsung-
inn frá Sauðárkrókskirkju í
dag, 8. nóvember 2019, og hefst
athöfnin klukkan 11.
Foreldrar henn-
ar voru Herdís
Ólöf Jónsdóttir, f.
11. ágúst 1912, d.
1. sept. 1996, og
Eiríkur Guð-
mundsson, f. 28.
júní 1908, d. 9.
maí 1980.
Börn Þorvaldar
og Línu eru: 1)
Eyrún Ósk, f. 26.
maí 1956, gift
Rúnari P. Björnssyni. Börn
þeirra: Ingi Þór, kvæntur Fjólu
Bjarnadóttur, þeirra börn Rak-
el Heba, Sebastian Þór, Jóhann-
es Rúnar og Inga Lea. Þórdís
Ósk, í sambúð með Yngva Jósef
Yngvasyni, sonur þeirra er
Kristófer Rúnar. 2) Sigurður, f.
1. janúar 1959, d. 6. september
2009. 3) Edda Björk, f. 24.
Í dag kveð ég Þorvald
tengdaföður minn og á þeim
tímamótum er gott að rifja upp
genginn veg.
Ég var svo lánsamur að
kynnast Eyrúnu á unga aldri
og fljótlega eftir það var Ingi
Þór kominn í heiminn, og dótt-
irin aðeins sextán ára, sem var
að vísu ekkert einsdæmi á þeim
árum. Aldrei reyndu Þorvaldur
og Lína að stjórna lífi okkar,
við fengum að spjara okkur
sjálf.
Þorvaldi féll aldrei verk úr
hendi, hann var alltaf eitthvað
að brasa. Endalaus verkefni á
verkstæðinu og Sleitustaða-
virkjunin þurfti mikið viðhald í
gegnum árin. Honum óx ekkert
í augum og þeir voru ófáir bíl-
arnir, sem margir hefðu úr-
skurðað ónýta, sem hann gerði
eins og nýja. Þegar ég spurði
hann hvernig gengi með hitt og
þetta sem hann var að lagfæra
var svarið oftar en ekki „það
versta er búið“ þó svo að hann
væri nýbyrjaður á verkinu.
Mig langar að nefna eitt
dæmi sem sneri að mér, en það
var eftir eina af mörgum törn-
um okkar við lagfæringu á
Sleitustaðavirkjun að hann
sagði við mig að hann og Nonni
(Jón Sig.) ætluðu að koma með
beltavél, jarðýtu og tvo vöru-
bíla út í Tungu í Fljótum, þar
sem við Eyrún erum með
sumarbústað, og bera ofan í af-
leggjarann, sem var hálfófær 2
km moldartroðningur. Ég taldi
þetta fráleita hugmynd, en
þeim frændum varð ekki hagg-
að og mættu þeir með tækin og
vorum við tvær langar helgar
að bera ofan í slóðann sem var
eins og „malbik“ á eftir. Svona
var hjálpsemi þeirra frænda á
Sleitustöðum.
Félagsstörf áttu mikinn þátt
í lífi Þorvaldar og Línu. Þau
voru í Lions og sungu saman í
Hörpu á Hofsósi og kirkjukór
Hólahrepps. Einnig starfaði og
söng Þorvaldur í Karlakórnum
Heimi og var formaður kórsins
í mörg ár. Með kórnum fór
hann í margar ferðir bæði inn-
an- og utanlands.
Þau eru ófá handtökin sem
við Þorvaldur höfum unnið
saman í gegnum áratugina og
lærði ég margt af honum, enda
hann með eindæmum laghentur
maður. Ef eitthvað þurfti að
dytta að bílunum okkar Ey-
rúnar var hann ávallt tilbúinn
að aðstoða mig og ekki lá Siggi
á liði sínu.
Þorvaldur var ekki skaplaus
maður og hafði fastmótaðar
skoðanir á flestum málum eins
og algengt er með framtaks-
sama menn. Þrátt fyrir það bar
aldrei skugga á okkar samband
og er ég ákaflega þakklátur
fyrir það.
Alveg frá upphafi hefur verið
mikill samgangur okkar á milli
og oft gistu Ingi og Þórdís í
sveitinni. Það er ómetanlegt að
börn geti umgengist afa sína og
ömmur, sérstaklega þegar þau
hafa eitthvað uppbyggilegt að
miðla til þeirra.
Ég minnist Þorvaldar með
hlýhug og er þakklátur fyrir
einlæga vináttu.
Rúnar.
Elsku besti afi minn. Orð fá
ekki lýst hversu vænt okkur
þótti um þig og þú varst alltaf
til staðar þegar við þurftum á
þér að halda. Það var alltaf
gaman að koma í sveitina til
ykkar ömmu, þrátt fyrir að þið
Siggi væruð meira og minna á
verkstæðinu eitthvað að brasa,
jafnt virka daga sem um
helgar. Amma sá um að hafa
matinn og kaffið tilbúið þegar
ykkur hentaði að koma, klukk-
an stjórnaði ekki ykkar vinnu-
tíma, það voru verkin. Oft
undraðist ég þolinmæði ömmu,
t.d. í eitt skiptið þegar við ætl-
uðum að borða með ykkur
kvöldmat og þið Siggi og Yngvi
voruð ekki komnir í mat klukk-
an að verða átta og þolinmæði
mín var löngu þrotin, þá sagði
amma: „Þórdís mín, við skulum
bara koma inn í stofu og spjalla
saman, þeir koma bráðum.“
Þeir eru ófáir bílarnir sem
þú ert búinn að gera við í gegn-
um árin og ekki var kastað til
hendinni. Þú smíðaðir hús á
jeppa, rútur og húsbíla, einnig
nokkur hjólhýsi og er eitt
þeirra enn í flottu standi eftir
tæp fimmtíu ár. Einnig eru ófá
dagsverk þín við Sleitustaða-
virkjunina, sem þú komst á
laggirnar ásamt félögum þínum
og vinum þeim Ólafi Jóns og
Jóni Sig.
Þú hafðir mikinn áhuga á
félagsmálum, starfaðir í Lions
og Karlakórnum Heimi þar
sem þú varst formaður um ára-
bil. Þú hafðir mikinn metnað
fyrir hönd kórsins og vildir
koma honum í fremstu röð
kóra á Íslandi. Það vantaði
ekki stórhuginn; útgáfa á
plötum og ferðir til útlanda
með kórnum eru gott dæmi þar
um.
Þær eru ófáar utanlands-
ferðirnar ykkar ömmu og
minnir mig að þú hafir sagt að
löndin sem þið hefðuð heimsótt
væru á þriðja tuginn. Einnig
ferðuðust þið mikið innanlands,
þar sem þið voruð oft í góðra
vina hópi. Það var og er gaman
að skoða allar myndirnar sem
þú varst svo duglegur að taka á
ferðalögum ykkar ömmu. Þær
ylja okkur um hjartarætur um
ókomin ár.
Þið amma voruð ákaflega
samrýnd og aldrei varð ég vör
við ósætti ykkar á milli. Það
sem þurfti að gera, það gerðuð
þið saman, jafnt í félags-
málunum og á verkstæðinu,
þar sem amma sá jafnvel um
að ganga frá bílum að innan
o.fl.
Þú hafðir mikinn áhuga á
hvernig okkur gengi og nú hin
síðari ár hvernig barnabarna-
börnin spjöruðu sig. Kristófer
Rúnar var þér mjög hjartfólg-
inn og þið áttuð margar góðar
stundir saman sem gott er að
minnast. Ég er ekki frá því að
hann hafi smá verklagni frá
þér.
Okkur fjölskyldunni þótti
óendanlega vænt um ykkur
ömmu og reyndum við að sýna
það í verki eins og við gátum
og við þurfum ekki að hugsa
eftir á að við hefðum átt að.
Ég er mjög þakklát fyrir að
hafa verið hjá þér undir lokin
ásamt Inga og Yngva. Nú ert
þú kominn í Sumarlandið að
dansa við fallegustu stelpuna á
ballinu, eins og þú sagðir svo
oft um ömmu. Elsku afi, þú
knúsar Sigga og ömmu frá
okkur.
Þín er sárt saknað.
Þórdís Ósk.
„Kveð ég fagra fjörðinn
Skaga.“
Fallinn er frá Þorvaldur G.
Óskarsson frá Sleitustöðum í
Skagafirði. Þorvaldur söng með
Karlakórnum Heimi í þrjá ára-
tugi og veitti kórnum forstöðu
nánast allan þann tíma. Hann
gekk til liðs við kórinn árið
1971, um það leyti sem kórarnir
tveir í Skagafirði, Karlakórinn
Feykir og Karlakórinn Heimir,
sameinuðust formlega undir
merkjum Heimis. Þorvaldur
var valinn til formennsku stuttu
síðar eða árið 1973 og gegndi
þeim starfa óslitið næstu 27 ár-
in af mikilli elju og trú-
mennsku.
Hann bar hag kórsins mjög
fyrir brjósti og var vakinn og
sofinn yfir velferð hans. Svo
var um þau hjón bæði, Þorvald
og Línu. Þær verða trúlega
ekki taldar þær stundir sem
þau hjón unnu kórnum þann
tíma sem Þorvaldur léði honum
krafta sína.
Þorvaldur stóð í stafni á
þeim tíma þegar kórsöngur al-
mennt átti nokkuð undir högg
að sækja. Hann var dugnaðar-
forkur, ákveðinn og fylginn sér,
fastur fyrir þar sem hann taldi
þörf á. Þess nutum við Heimis-
menn. Hann var einnig við
stjórnvölinn á mesta uppgangs-
tíma kórsins, um og upp úr
1990, og átti sinn þátt í vel-
gengni hans, sem enn eimir eft-
ir af.
Fyrir rúmum tveimur árum
hélt kórinn til vesturstrandar
Kanada, í samstarfi við Vest-
urfararsafnið á Hofsósi, afar vel
heppnaða ferð. Þorvaldur átti
þess kost að koma með okkur í
þessa ferð og naut sín vel í
gleði og söng, í félagsskap er
hann þekkti svo vel. Þessar
samverustundir voru Þorvaldi
afar mikils virði og svo er um
alla Heimisfélaga sem þátt tóku
í þessari ferð.
Við þökkum samfylgdina og
vottum aðstandendum innileg-
ustu samúð okkar.
Fyrir hönd Heimisfélaga,
Gísli Árnason.
Horfinn er á braut góður vin-
ur og félagi. Kynni okkar Þor-
valdar eru búin að vera löng og
góð, allt frá því ég var bóndi í
Bæ á Höfðaströnd. Ég á honum
líka mikið að þakka. Við Áróra,
konan mín sáluga, ákváðum að
hætta búskap á sínum tíma og
flytja suður. Þorvaldur og Lína
gátu ekki hugsað sér að missa
okkur í burtu og buðu okkur
bæði vinnu og húsnæði á Sleitu-
stöðum. Ég hef alltaf sagt að
það hafi verið mín guðs náð og
gæfa.
Ég vann hjá Þorvaldi í þrjú
ár og var það góður og
skemmtilegur tími. Alla tíð síð-
an hef ég mátt koma með bílinn
minn til að gera við ef ég hef
þurft. Við ferðuðumst mikið
saman og minnist ég sérstak-
lega ferðar sem við hjónin fór-
um saman á Strandirnar og síð-
an um Vestfirðina. Svo allar
ferðirnar sem við fórum saman
með karlakórnum Heimi. Þor-
valdur gekk mikið á eftir mér
áður en ég lét eftir og hef ég
aldrei séð eftir því, þetta var
góður tími.
Einnig má minnast skemmti-
legra samverustunda í Mun-
aðarnesi þegar Þorvaldur var
meðal gesta í sjötugsafmæli
mínu. Þar var hann hrókur alls
fagnaðar og flutti eftirminni-
lega ræðu.
Að endingu vil ég þakka Þor-
valdi góð kynni og vináttu sem
aldrei bar skugga á. Aðstand-
endum votta ég mína dýpstu
samúð.
Hvíl í friði, kæri vinur.
Haukur Björnsson.
Þorvaldur G.
Óskarsson
HINSTA KVEÐJA
Elsku pabbi minn, nú er
komið að kveðjustund.
Horfið er nú sumarið og sólin,
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin;
nú einn ég sit um vetrarkvöld.
Ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar.
Ég reyndar sé þig alls staðar.
Þá napurt er, það næðir hér
og nístir mig.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Þín
Eyrún.
✝ Halla KristjanaHallgrímsdótt-
ir fæddist á Akur-
eyri 1. maí 1925.
Hún lést 28. októ-
ber 2019 á dvalar-
og hjúkrunarheim-
ilinu Grund.
Foreldrar henn-
ar voru Ragnheið-
ur Maren Söebech
kaupmaður, f. 10.3.
1894, d. 22.7. 1977,
og Hallgrímur Þorvaldsson bif-
reiðastjóri, f. 27.9. 1893, d. 8.12.
1925. Systur Höllu voru tvær;
Sigríður Ingibjörg, f. 14.5. 1920,
d. 15.1. 2008, og Karólína Frið-
rika, f. 26.7. 1921, d. 23.1. 2013.
Halla lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri og
BA-prófi í frönsku frá Háskóla
Íslands.
Hún giftist þann 11. október
1952 Óla Kr. Guðmundssyni
lækni, f. 27. mars
1925, d. 13. ágúst
1995. Dætur þeirra
eru Sigríður, f.
18.1. 1953, maki
Calum Campbell, f.
14.10. 1943; Þóra
Karó Mörk, f.
18.12. 1953; Ragn-
heiður, f. 16.11.
1954; Guðný, f.
14.8. 1958, d. 20.3.
2018, eftirlifandi
maki er Torsten Lindman, f. 1.6.
1956; Guðrún Edda, f. 5.8. 1960;
Solveig Lilja, f. 26.4. 1962, maki
Victor G. Cilia, f. 15.10. 1960;
Ólöf Halla, f. 27.3. 1968, maki
Pálmi Bernhardsson Linn, f.
15.5. 1972.
Barnabörn Höllu eru 18 og
barnabarnabörnin 14.
Útförin fer fram frá Guðríð-
arkirkju í dag, 8. nóvember
2019, klukkan 13.
Kjarninn, akkerið, lífið.
Nú hefur mamma kvatt, 94
ára að aldri. Mamma var kjarn-
inn í fjölskyldunni sem hélt öllu
gangandi. Það að koma heim úr
skólanum og hún var ekki heima
var erfitt því það var svo nauð-
synlegt að tala við hana, fá ráð og
hjálp eða bara spjalla um lífið og
tilveruna. Heimilið virkaði tómt
án hennar og nú upplifi ég tóm-
leika.
Þegar ég fór t.d. í fyrsta
frönskutíma minn og kom í öng-
um mínum heim settist mamma
niður með mér og las í gegnum
efnið með mér og útskýrði. Þá
komst ég að því að hún kunni
frönsku.
Hún lumaði á alls kyns hæfi-
leikum og var alltaf tilbúin að
hjálpa. Og það var ekki bara
franska sem hún hjálpaði með,
hún var viskubrunnur þegar kom
að íslenskri málfræði. Reyndar
gat maður komið með hvað sem
er og fengið hjálp.
Hún var reglusöm og dugleg
kona sem gaf mér svo mikið með
mér inn í framtíðina. Það gilti
það sama um heimilið og sum-
arbústaðinn, mömmu tókst að
gera allt svo yndislegt og hlýlegt.
Ég lærði af henni mikilvægi
þess að vera tilgengileg og hjálp-
leg og hef nýtt það í uppeldi
barnanna minna. Þau minnast
vel allra fjölskyldusamkvæm-
anna hjá ömmu með hlýju og
gleði.
Hún var ótrúlega spræk kona
mestan partinn af lífinu og bjarg-
aði sér sjálf. Svo fór ellin að segja
til sín og hún fór 93 ára gömul
inn á Elliheimilið Grund. Þar var
hún mjög ánægð með allt og
þakklát fyrir alla góðu hjálpina
sem hún fékk.
Ég kveð þig, elsku mamma
mín, með söknuði og er svo þakk-
lát fyrir að hafa notið þess að
alast upp hjá þér. Ég elska þig.
Guðrún Edda Óladóttir.
Nú kveðjum við yndislega
mömmu, ömmu og tengda-
mömmu, Höllu Kristjönu Hall-
grímsdóttur. Söknuðurinn er
mikill en við erum þakklát fyrir
tímann sem við áttum með henni
og yljum okkur við dýrmætar
minningar. Hún var stoð og
stytta, dásamleg mamma með
hlýjan faðm. Hún var skemmti-
leg amma sem nennti að spila
endalaust ólsen-ólsen og löngu-
vitleysu og kenndi lítilli ömmu-
skottu að leggja kapal af ein-
stakri þolinmæði.
Hún var hvetjandi og óspör á
hrós. Samgladdist innilega þegar
vel gekk, var stoð og stytta í erf-
iðleikum.
Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt
sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt
hverju orði fylgir þögn
og þögnin hverfur alltof fljótt.
En þó að augnablikið aldrei fylli stund
skaltu eiga við það mikilvægan fund
því að tár sem þerrað burt
aldrei nær að græða grund.
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
Þú veist að tímans köldu fjötra
enginn flýr
enginn frá hans löngu glímu aftur snýr.
Því skaltu fanga þessa stund
því fegurðin í henni býr.
(Bragi Valdimar Skúlason)
Ólöf Halla, Dagbjört Lilja
og Pálmi.
Halla móðursystir hefur lokið
þessari jarðvist eftir gifturíkt líf.
Hún ólst upp á Akureyri, falleg-
asta bæ landsins, við leik í Lysti-
garði og Gróðrarstöð. Hún gaf
hröfnum, sem að launum fylgdu
henni upp „Menntaveginn“ svo-
kallaða í skólann, en alla ævi var
hún mikill göngugarpur.
Ung veiktist hún af berklum
og var á Kristneshæli í ár og leið
þar vel að sögn. Hún hafði einkar
fallega rithönd og talaði og ritaði
gott mál.
Hlakkaði hún til að læra ís-
lensku í HÍ en leist ekki á blik-
una þegar hún leit yfir salinn,
þéttsetinn svartklæddum körl-
um, hrökklaðist út og innritaði
sig í ensku! Búandi á Gamla
Garði, í fæði á Njálsgötu 72 og
vinnandi sem blaðamaður í mið-
bænum á Vikunni rann henni til
rifja gróður- og trjáleysið á
göngu sinni. En síðar var gróð-
ursett umtalsvert í Grímsnesi og
að Löndum.
Á námsárum Óla leigðu þau
kjallaraíbúð á Laugavegi 18 og
deildu baðherbergi með annarri
fjölskyldu, dæturnar þá orðnar
þrjár.
Við tóku flutningar til Dan-
merkur og Svíþjóðar og ótal
staða innanlands. Mamma vor-
kenndi Höllu litlu við kolavélina
á Ströndum en hún lærði fljótt á
gripinn.
Í gosinu bjuggu þau í Vest-
mannaeyjum og dásömuðu flutn-
ingamennina, fengu alla sína bú-
slóð óskerta til lands, fyrir utan
það sem brann í herbergi ferm-
ingarbarnsins Guðnýjar, sem lát-
in er langt fyrir aldur fram.
Sama hvenær maður kom í
heimsókn í Stigahlíðina var
heimilið alltaf jafn tandurhreint
og fínt og móttökurnar innilegar.
Því kynntist ég á Blönduósi, þeg-
ar ég hljóp undir bagga með
þeim um tíma, hef aldrei þvegið
eins mörg gólf eða straujað jafn
stóra stafla af bleium og líni í ein-
um rykk.
Svo hneykslaður varð doktor-
inn við beiðni um verkjatöflu sem
aldrei var til á heimilinu, eins og
hefði ég beðið hann að eitra fyrir
mig!
Upplestur á kvöldin úr
skemmtilegum bókum eins og
„Syndin er lævís og lipur“, á vís-
um og frásögur af skrítnum körl-
um bætti það upp við sokkastopp
eða annað dútl. Langt genginn af
Alzheimer mundi hann vísur úr
uppvextinum, og lýsti í smáat-
riðum skjaldkirtilssaum sem
hann gekk svo snilldarlega frá að
vart sást. Enginn rúllupylsu-
saumur þar!
Vikulegar samverustundir og
ökuferðir undanfarin ár á söfn,
málverkasýningar, í hressandi
sjávarloftið í Gróttufjöru eða
bara út í búð, skilja eftir góðar
minningar um frænku mína.
Við Ásgeir vottum yndislegum
dætrum hennar og fjölskyldum
þeirra innilega samúð.
Ólöf Þórey Haraldsdóttir.
Halla Kristjana
Hallgrímsdóttir