Morgunblaðið - 08.11.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 08.11.2019, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019 ✝ Birgir ÍsleifurGunnarsson fæddist í Reykjavík 19. júlí 1936. Hann lést á líknardeild Landspítalans 28. október 2019. Foreldrar hans voru Gunnar Espól- ín Benediktsson, hrl. og forstjóri, og Jórunn Ísleifsdóttir ritari. Systir hans er Lilja Jóhanna Gunnarsdóttir, f. 1940. Birgir giftist eiginkonu sinni, Sonju Backman, 6. október 1956. Sonja lést 5. október sl. Börn þeirra eru: 1) Björg Jóna, námsstjóri hjá Listaháskóla Ís- lands, f. 1957, gift Má Vilhjálms- syni, rektor Menntaskólans við Sund. Dætur Bjargar eru Sonja Bjarnadóttir, f. 1982, og Ingi- björg Jóhanna Bjarnadóttir, f. 1985. Dætur Más eru Vaka Más- dóttir, f. 1983, og Harpa Más- Björg Sóley Kolbeinsdóttir, f. 1997; Edda Lilja Viktorsdóttir, f. 2004, og Katla Guðrún Vikt- orsdóttir, f. 2009. Barnabarnabörn Sonju og Birgis eru alls sjö. Birgir varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1955 og lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1962. Birgir varð héraðsdómslögmaður 1962 og hæstaréttarlögmaður 1967. Hann tók virkan þátt í stjórn- málum og var m.a. formaður Vöku, Heimdallar, Stúdentaráðs Háskóla Íslands og SUS. Birgir sat í borgarstjórn frá árinu 1962 til 1982 og var borgarstjóri frá 1972 til 1978. Hann sat á Alþingi frá 1979 til 1991 og var mennta- málaráðherra frá 1987 til 1988. Birgir var seðlabankastjóri frá 1991 til 2005. Hann sat um tíma í stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur og sóknarnefnd Hallgrímskirkju. Hann var for- seti Rótarý á Íslandi um nokkurt skeið. Birgir var heiðraður með ýmsum hætti fyrir störf sín og hlaut m.a. stórriddarakross ís- lensku fálkaorðunnar. Útför hans fer fram frá Hall- grímskirkju í dag, 8. nóvember 2019, og hefst athöfnin kl. 15. dóttir Fenger, f. 1988, gift Sigurði Lúðvík Stefánssyni. 2) Gunnar Jóhann lögmaður, f. 1960, giftur Sveinbjörgu Jónsdóttur, graf- ískum hönnuði. Börn Gunnars eru Birgir Ísleifur Gunnarsson, f. 1980, giftur Ernu Bergmann; Unnur Elísabet Gunnarsdóttir, f. 1984, í sambúð með Þorgils Helga- syni; Katrín Björk Gunnars- dóttir, f. 1994, og Gunnar Freyr Gunnarsson, f. 2002. Sonur Sveinbjargar er Jón Þórarinn Úlfsson Grönvold, f. 1993. 3) Lilja Dögg Birgisdóttir, starfar hjá Ási styrktarfélagi , f. 1970. 4) Ingunn Mjöll Birgisdóttir, verkefnisstjóri hjá Menntasviði Kópavogsbæjar, f. 1970, gift Viktori Gunnari Edvardssyni, söluráðgjafa hjá Sensa. Dætur: Kær tengdamóðir mín er ný- látin og nú kveð ég Birgi Ísleif, tengdaföður minn og vin. Birgir og Sonja fylgdust að í lífinu frá því þau voru unglingar og þau kvöddu lífið líka saman. Það var lengi vitað að barátta Birgis við sjúkdóminn væri töpuð. Hann tók þeirri staðreynd með þeirri stó- ísku ró sem einkenndi svo margt í lífi hans. Birgir var einstakur maður. Hann var eldklár, minnugur, ein- staklega vel lesinn og með djúpan skilning á því sem skiptir máli í lífinu. Í pólitískum skilningi var hann íhaldsmaður en hann hugs- aði oft út fyrir rammann eins og listamönnum er tamt og kunni sannarlega að meta það sem vel var gert, óháð því hvaðan það kom. Aldrei heyrði ég hann tala illa um nokkurn mann. Það var ekki hans stíll að fara í manninn en málefnin var hann tilbúinn að ræða og hann gat sannarlega rætt margt. Þekking hans var einstaklega víð og hann rak ekki í vörðurnar. Hann gat, meðal ann- ars, rætt um dægurmál, fótbolta og dans, pólitík, skipulagsmál, kvikmyndir og umhverfismál. Hann var fjölfróður um mennta- og menningarmál og hafði ástríðu fyrir skógrækt, tónlist og bók- menntum. Birgir var hinn mesti lestrarhestur. Aldrei kom ég svo á Fjölnisveginn að ekki væri opin bók á borðinu og tónlistartímarit í seilingarfjarlægð. Langoftast var einhver dásemdartónlist á fónin- um. Hann las eiginlega allt og tónlistaráhuginn var langt í frá einskorðaður við eina tegund tón- listar þó svo að djassinn hafi átt stærstan sess í hjarta hans. Hann virtist nánast vita allt um tónlist- ina og þá sem spiluðu hana. Hann virtist líka muna allt sem hann las og hvenær hann las það. Í því ljósi er skondið að segja frá því að hann tók þann sið upp 12 ára gamall að skrifa niður allt sem hann las og þeim sið hélt hann í yfir 70 ár allt til dánardags. Hann skráði samviskusamlega höfund og heiti hverrar einustu bókar sem hann las og hvenær lestrin- um lauk. Á líknardeildinni las hann sem aldrei fyrr og allt var skráð. Ég hef stundum hugsað um það til hvers hann væri að skrá þetta því hann mundi hvort sem er allt og gat auðveldlega sagt frá innihaldi bóka sem hann las fyrir áratugum. Þetta voru tugir bóka á ári hverju og þar var allt undir; fagurbókmenntir, ljóð, ævisögur, sagnfræði og glæpa- sögur. Þá las hann mikið magn tímaritsgreina um hugðarefni sín eins og um skógrækt, tónlist og fleira og auðvitað var djassinn þar fyrirferðarmikill. Það var gaman, gefandi og gott fyrir sálartetrið að vera með Birgi og Sonju. Við Birgi var hægt að ræða um lífið og til- veruna, gleðina og sorgina, dauð- ann, fótbolta, kvikmyndir, bók- menntir og tónlist á svo eðlilegan hátt. Birgir kvaddi sáttur við lífið, veikindi sín og hið óumflýjanlega. Hann vildi, þrátt fyrir lífsorkuna, fara í sitt síðasta ferðalag því lífið án Sonju var honum nær óhugs- andi. Ég græt Birgi Ísleif sem hafði svo mikið að gefa. Sorginni sem fylgir því að kveðja fylgir líka gleði yfir því að vita að enda- lokin voru eins og hann vildi hafa þau. Þau Sonja studdu hvort ann- að, gáfu fjölskyldunni allt og fylgdust að allt á leiðarenda. Már Vilhjálmsson. Í dag kveð ég tengdaföður minn Birgi Ísleif Gunnarsson. Það er í raun ótrúlegt að ég sé að skrifa þessi orð um hann núna þegar ekki eru liðnar nema þrjár vikur síðan við kvöddum Sonju Backman, eiginkonu Birgis og tengdamóður mína. Ég kynntist Birgi og Sonju fyrst fyrir hart- nær 20 árum þegar yngsta dóttir þeirra kynnti þau fyrir tilvonandi tengdasyni í heimsókn á Fjölnis- veginn. Þar var mér svo sannar- lega tekið opnum örmum og boð- inn velkominn í fjölskylduna. Margt kemur upp í hugann þegar farið er yfir þennan tíma sem er liðinn frá fyrstu kynnum. Óteljandi matarboð á Fjölnisveg- inum, heimsóknir í sumarbústað- inn á Þingvöllum ásamt ferðalög- unum til útlanda. Þar minnist ég Danmerkurferðarinnar okkar ár- ið 2005 þegar Birgir var að klára starfsferilinn sinn og við það að setjast í helgan stein. Áttum við þar frábærar tvær vikur í sumar- húsi í Gilleleje. Einnig verð ég að minnast á 80 ára afmælisferðina til Ítalíu 2016 þar sem öll fjöl- skyldan átti ógleymanlegan tíma saman. Eftir að þau hjón hættu að vinna eignuðust þau sitt annað heimili í Dunedin í Flórída sem þau voru dugleg að dvelja í yfir hörðustu vetrarmánuðina á Ís- landi. Oftar en ekki fékk ég að skutla þeim út á flugvöll og sækja þau síðan aftur nokkrum vikum síðar. Þetta voru sannkallaðar gæðastundir fyrir mig með Sonju og Birgi. Birgir var mikill lestrarhestur og nánast alæta á bókmenntir. Hann hafði alltaf mikið dálæti á reyfurum bæði íslenskum og er- lendum sem ég naut góðs af og það verður undarlegt að geta ekki farið lengur í heimsókn á Fjöln- isveginn og fengið spennandi bók að láni. Birgir var einnig mikill áhuga- maður um enska knattspyrnu og hélt þar með Arsenal og þar sem ég studdi Liverpool var alltaf mikil spenna að horfa á leiki þess- ara liða með Birgi á Fjölnisveg- inum. Ég held þó að á endanum hafi hann alltaf stutt við bakið á mínum mönnum í Liverpool þeg- ar þeir voru ekki að etja kappi við Arsenal. Birgir var alltaf höfðingi heim að sækja, skemmtilegur sögu- maður og fyrst og fremst fjöl- skyldumaður sem undi sér best með Sonju, Lilju Dögg og okkur hinum. Ég er þakklátur fyrir þann tíma sem ég fékk með þeim hjón- um. Hvíl í friði. Viktor Gunnar Edvardsson. Við Fjölnisveg 15 geng ég inn um hvítt látlaust hlið. Við mér blasir einn fegursti garður í Reykjavík, en krónan í garðinum er ægifagur hlynur sem staðið hefur undir steinveggnum í rúm áttatíu ár. Ég er að heimsækja tengda- foreldra mína sem búið hafa alla sína hjúskapartíð á æskuheimili Birgis Ísleifs. Birgir Ísleifur er enginn venju- legur maður. Af látleysi og hóf- semi en jafnframt festu hefur hann stigið frá því að vera lítill drengur í blómum prýddum garði, með lítinn hlyn sem er að vaxa, yfir í það að stýra borginni með framsýni og metnaði. Borgin skiptir hann máli. Fólkið í borg- inni skiptir hann máli. Að hlut- irnir séu í lagi skiptir hann máli. Stofninn í lífi Birgis er þó fyrst og fremst fjölskyldan. Sonja og börnin. Afkomendur sem eru svo ríkir að geta tileinkað sér og þroskað með sér viðhorf Birgis, viðmót og lífsgildi. Hann miðlar af visku og víðsýni þannig að aldr- ei er á neinn hallað. Hann ræktar garðinn sinn þannig að hver ein- asta jurt fær notið þess besta. Það er okkar fjársjóður. Nú hallar hausti og hlynurinn hefur fellt laufin. Að vetri loknum með hækkandi sól mun gróðurinn dafna á ný og hlynurinn skarta sínu fegursta. Sár söknuður mun breytast í ljúfar minningar, þakk- læti og andlegan auð. Saman ganga þau heiðurshjónin Sonja og Birgir hönd í hönd, niður trjá- göngin á Fjölnisvegi 15 og halla hvíta hliðinu á eftir sér. Það ómar djass í fjarska. Að baki þeim stendur einn fegursti garður í Reykjavík. Elsku Birgir Ísleifur og Sonja – takk fyrir allt. Ykkar tengdadóttir, Sveinbjörg. Elsku afi. Á síðustu stundum þínum rifjuðum ég og þú saman upp gamlar minningar. Þú mund- ir svo skýrt eftir þeim tíma þegar ég var lítil. Þér fannst einstaklega gaman að segja frá því þegar ég brá mér í hlutverk eiganda kaffi- húss í stofunni ykkar á Fjölnis- veginum. „Kaffihús Bjargar Backman“. Þú hafðir alltaf tíma fyrir mig og mín uppátæki. Til dæmis þegar ég var tíu ára skotta hjálpaði ég ykkur við ýmis verk í sumarbústaðnum. Í kjölfarið setti ég á fót „Hjálparhönd Bjargar Backman“ og bauð upp á ýmiss konar þjónustu, til dæmis upp- vask og tiltekt. Eitt skiptið hjálp- aði ég þér að taka til í geymslunni undir bústaðnum. Þú vildir að sjálfsögðu borga fyrir vinnuna enda strangheiðarlegur maður. Þú réttir mér pening og ég hristi hausinn og sagði við þig: „Ég mun taka hærra gjald fyrir svona hreinsun, afi minn.“ Þú varst allt- af með bros á vör þegar þú sagðir þessa sögu. Brosið þitt var einkennandi fyrir þig afi minn og þú varst ótrúlegur sögumaður. Þú varst alltaf jákvæður þótt aðstæður væru erfiðar eins og síðustu mánuðina í þínu lífi. Alveg fram á síðustu stundu hélstu í húmorinn og varst ánægður með litlu hlutina, eins og þegar ég kom með uppáhaldsbakkelsið þitt, cro- issant eða vínarbrauð. Jú, eða nýja bók fyrir þig til að lesa, því fljótur varstu með þær. Þú varst kletturinn hennar ömmu í gegn- um veikindi hennar eins og amma var kletturinn þinn í þínum. Sam- band ykkar var einstaklega fal- legt. Þið verðið ávallt mínar fyr- irmyndir og ég er stolt af því að hafa fengið að vera barnabarn þitt. Hvíldu í friði elsku afi minn og ég bið að heilsa ömmu. Afi minn er sætur og fínn, alltaf í sumarbústað. Kemur heim í hádeginu og fær sér örlitla síld. Afi minn les margar bækur, því það er mikil hvíld. Enda alltaf hress og sprækur. (Björg Sóley, 19. júlí 2006) Björg Sóley Kolbeinsdóttir. Afi Birgir er látinn. Tilfinning- in er sár og furðuleg. Margar af mínum fyrstu og fallegustu minn- ingum eru af Fjölnisveginum, heimili afa og ömmu, þar sem ég var svo oft sem strákur. Ég sat á teppinu í stofunni og hlustaði dol- fallinn á afa spila djass á píanóið. Ákvað svo með tímanum að þetta yrði ég að kunna sjálfur líka. Ætli megi ekki segja að þessi flotta spilamennska afa á píanóið sé mikill örlagavaldur í þessari fjöl- skyldu minni. Það er jú spila- mennskunni að þakka að amma sá afa fyrst og heillaðist af hon- um. Ekki veit ég hvað flaug í gegnum huga hennar á leið sinni á ballið í Framheimilinu þetta kvöld. En varla vissi hún að fram- tíðareiginmaður hennar léki fyrir dansi. Amma á auðvitað sinn þátt í þessu líka. Það var hún sem gekk upp á sviðið í miðju lagi og settist á píanóbekkinn við hlið afa. Nokkrum árum síðar voru þau gift. Eitt er ljóst að ég væri ekki sjálfur hér í dag ef afi hefði slegið margar feilnótur þetta kvöld. En svona fannst mér afi vera. Hann sló fáar feilnótur fyrir mér og við sáum hvor annan alltaf í fallegu ljósi. Eftir því sem árin liðu varð samband okkar nánara og samverustundirnar fleiri. Við fórum til að mynda alltaf reglu- lega í sérstakar ferðir í bæinn þar sem við keyptum hvor sína plöt- una, helst á vínil, og fórum svo heim á Fjölnisveginn að hlusta og pæla. Afi hafði óbilandi áhuga og mikla þekkingu á sinni uppá- haldstónlist. Ætli hann sé ekki einn mesti djassgeggjari sem fæðst hefur á þessu landi. Ég trúi því. Þessi tónlistaráhugi leiddi okkur alltaf saman í lífinu og það er erfitt að þurfa að sætta sig við að þessar samverustundir verði ekki fleiri. Þegar við fjölskyldan sátum í kringum afa á líknar- deildinni daginn sem hann lést setti ég djass á fóninn. Oscar Pet- erson, Erroll Garner og Dave Brubeck hljómuðu í græjunum og okkur þótti þetta öllum svo sjálf- sagt og rétt. Auðvitað varð afi að fá að heyra almennilega tónlist þessi síðustu andartök. Það kom ekki annað til greina. En nú er þessu lokið. Það er ekkert hægt að gera annað en að ylja sér við minningarnar sem lifa um afa og ömmu og reyna að sjá þau fyrir sér í huganum. Það er fallegt að ímynda sér að nú séu þau sam- einuð á ný. Að einhvers staðar sitji þau, hlið við hlið, á píanó- bekk. Að amma halli höfðinu á öxlina á afa. Að afi spili áfram djass. Birgir Ísleifur. Nú á haustdögum kvöddum við systkinin Birgi Ísleif móðurbróð- ur okkar, aðeins þremur vikum eftir að eiginkona hans Sonja féll frá. Við urðum þess láns aðnjót- andi að alast upp í sannkölluðu fjölskylduhúsi, þar sem amma okkar Jórunn bjó á efstu hæðinni, Birgir og Sonja á miðhæðinni og okkar fjölskylda á neðstu hæð- inni. Samgangurinn var mikill á árum áður og við systkinin tíðir gestir á heimili þeirra hjóna. Það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar við minnumst frænda okkar er án efa tónlistin. Hann var afskaplega músíkalsk- ur maður, mikill áhugamaður um djass og spilaði sjálfur listilega vel á píanó, og naut sín þar vel. Ósjaldan bárust því ljúfir tónar niður til okkar sem fylltu húsið lífi. Á þeim árum þegar fjölskyld- urnar héldu jólin saman fengum við að njóta góðs af spilamennsk- unni þegar Birgir settist við pí- anóið og spilaði jólalög. Eitt árið gerði hann sér líka lítið fyrir og klæddi sig upp sem jólasvein. Þetta vakti auðvitað mikla kátínu hjá yngstu kynslóðinni sem vissi ekki fyrr en mörgum árum seinna hver hinn raunverulegi sveinki hafði verið. Svona mann hafði Birgir að geyma, hann var hjarta- hlýr og hafði húmor fyrir lífinu. Heilsteyptur maður, sem gott var að hafa nærri sér, og skapaði fjölda góðra minninga. Það var fallegt að sjá ástina og virðinguna á milli þeirra hjóna blómstra fram á síðasta dag. Okk- ur er mjög minnisstæð ræða sem Birgir hélt eiginkonu sinni á áttræðisafmæli hennar í fyrra. Þar fór hann yfir upphaf þeirra kynna og talaði svo fögrum orð- um til konu sinnar að varla var þurr vangi í salnum. Birgir var af- ar góður ræðumaður og mælskur, ígrundaði orð sín vel og talaði alltaf af mikilli ró og staðfestu. Birgir tókst á við veikindi sín og fráfall eiginkonu sinnar af aðdáunarverðu æðruleysi. Hann var jafn yfirvegaður og endranær með húmorinn að vopni allt fram á síðasta dag. Hann hræddist ekki dauðann en talaði um líf sitt og fjölskyldu af mikilli hlýju og var sáttur við æviverkin. Það er skammt högganna á milli hjá fjöl- skyldunni og biðjum við Guð að blessa Björgu Jónu, Gunnar Jó- hann, Ingunni Mjöll, Lilju Dögg og fjölskyldur þeirra á þessum erfiðu tímum. Stefán, Jórunn Sjöfn og Halla Sif. Ég naut þeirrar gæfu að eiga langa samleið með Birgi Ísleifi Gunnarssyni á lífsgöngu minni. Við áttum samleið í stjórnmálun- um, en Birgir átti sæti í borgar- stjórn í 20 ár og var borgarstjóri í sex ár og þingmaður í 12 ár. Birg- ir hafði mjög sterka réttlætis- kennd og vék sér ekki undan að standa með og berjast fyrir því sem réttlætiskennd hans bauð að væri rétt. Það á við hann, sem írski stjórnmálamaðurinn og lög- fræðingurinn Daniel O’Connell sagði á sínum tíma: „Ekkert er pólitískt rétt ef það er siðferði- lega rangt.“ Þetta hafði Birgir sem leiðarvísi í allri sinni póli- tísku göngu. Hann tileinkaði sér góða þekkingu á þeim málum sem hann vann að og fylgdi eftir af rökhyggju og réttsýni. Hann til- einkaði sér háttvísi í framkomu og vinsemd í samskiptum. Ég minnist þess þegar ég tók sæti í fyrsta sinn í borgarráði eft- ir borgarstjórnarkosningarnar 1974, þegar Birgir, sem þá var borgarstjóri, bauð mig velkominn og lýsti fyrir mér verksviði borg- arráðs. Í borgarstjórnartíð Birgis var lögð áhersla á framkvæmdir sem snerust um umhverfi og úti- vist og fékk heitið „græna bylt- ingin“. Meiri áhersla var lögð á gróður og græn svæði en áður. Nú horfa menn hins vegar á það að ráðist er á grænu svæðin, sem sett hafa svo góðan svip á um- hverfið víða í borginni og borg- arbúar hafa notið, eru eydd og þau nú látin víkja fyrir steyp- umassa og eru kirkjugarðar ekki einu sinni undanskildir. Birgir var tónlistarunnandi og spilaði á píanó. Stundum gerðist það þegar hann tók á móti gest- um í Höfða, þegar hann var borg- arstjóri, að hann settist við píanó- ið þegar gestir höfðu lokið við góða máltíð og spilaði nokkur lög og höfðu gestir, sem oft voru er- lendir, gaman af að hlýða á vin- sæla tónlist sem borgarstjórinn framkallaði. Ég og kona mín, sem nú er lát- in, bundumst sterkum vináttu- böndum við Birgi og elskulega konu hans Sonju, sem er nýlátin, þegar við Birgir unnum saman í borgarstjórn fyrir um 40 árum. Ég er mjög þakklátur fyrir sam- fylgdina, sem ég og kona mín átt- um með þessum góðu hjónum öll þessi ár, sem aldrei bar skugga á. Ég tel það gæfu bróðurdóttur minnar, Sveinbjargar Jónsdótt- ur, að hafa eignast fyrir eigin- mann Gunnar son þessara góðu hjóna. Ég sendi börnum þeirra og öll- um aðstandendum einlægar sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning þessara góðu hjóna. Magnús L. Sveinsson. Birgir Ísleifur Gunnarsson gekk til liðs við Sjálfstæðisflokk- inn nýbyrjaður í Menntaskólan- um í Reykjavík um miðbik liðinn- ar aldar. Stjórnmálaáhuginn lifnaði þó ekki síður þegar hann hóf laganám við Háskóla Íslands og þátttöku í stúdentapólitíkinni. Hann varð formaður Heimdallar 1959 og stýrði félaginu af mynd- ugleik til 1962, en þá var hann, bráðungur 25 ára maðurinn, fyrst kjörinn í borgarstjórn Reykjavík- ur. Fimm árum síðar var hann kjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Birgir Ísleifur sat í borgar- stjórn Reykjavíkur um 20 ára skeið, frá 1962 til 1982, en hann varð 9. borgarstjóri Reykjavíkur árið 1972 þegar Geir heitinn Hall- grímsson hvarf þaðan yfir á Al- þingi. Árið 1974 leiddi Birgir Ís- leifur svo sjálfstæðismenn í Reykjavík til mesta kosningasig- urs flokksins í borginni, þegar flokkurinn hlaut 57,9% atkvæða. Birgir Ísleifur naut mikilla vin- sælda í borgarstjórastóli. Hann tók við embættinu 36 ára gamall og þótti hafa til að bera dug, þor og glæsileika í jöfnum mæli við fumleysi, öryggi og farsæld, allt það sem góðan borgarstjóra má prýða. Í hinum ágæta borgarbrag Austurstræti eftir Ladda er sungið um mannlífið í miðborg- inni. Í lokin spyr aldurhniginn sögumaðurinn, dolfallinn yfir Birgir Ísleifur Gunnarsson Sálm. 14.2 biblian.is Drottinn horfir á mennina af himnum ofan til þess að sjá hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.