Morgunblaðið - 08.11.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 08.11.2019, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019 ✝ Sigrún Sturlu-dóttir fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 18. apríl 1929. Hún lést 1. nóvember 2019. Sigrún var dóttir hjónanna Kristeyjar Hall- björnsdóttur hús- móður og Sturlu Jónssonar oddvita og hreppstjóra á Suðureyri við Súgandafjörð. Systkini Sigrúnar eru Eva, Krist- ín, Jón og Eðvarð. Sigrún giftist 1949 Þórhalli Halldórssyni verk- stjóra og sveitarstjóra, f. 21. október 1918, d. 23. apríl 2015. Foreldrar hans voru Steinunn Jónsdóttir húsmóðir og Halldór Jónsson bóndi á Arngerðareyri við Ísafjörð. Dætir Sigrúnar og Þórhalls eru: 1) Inga Lára, f. 1949, maki Elvar Bæringsson, f. 1948. Börn a) Sigrún Arna, maki: Stein- grímur Þorgeirsson, þau eiga fjögur börn. b) Þóra Björk, maki: Bjarki Jónsson, þau eiga tvö börn. c) Hrafnhildur Ýr, maki: Sigurður Ólafsson, þau eiga eitt barn. 2) Sóley Halla, f. 1953, maki Kristján Pálsson, f. 1944. Börn a) Kristín Sif, maki: Ólafur Rafns- son, þau eiga þrjú börn. 2) Bryn- dís, f. 1949, maki Vilbergur Stef- ánsson, f. 1948. Börn hennar og Bergþórs Hávarðarsonar eru a) Ragnheiður Bergdís, maki: Þór- arinn Jakobsson, þau eiga tvö börn. b) Páll Björgvin, maki: Re- beca Aquado Primo, þau eiga eitt barn. c) Kjartan Hávarður, maki: Svanhvít Ingibergsdóttir. Sigrún stundaði nám við Hér- aðsskólann á Núpi og við Hús- mæðraskólann Ósk á Ísafirði. Sigrún og Þórhallur kynntust á Suðureyri og hófu þar búskap. Á Suðureyri var Sigrún mjög virk í félagsmálum. Hún var í stjórn kvenfélagsins Ársólar og hélt uppi öflugu starfi í barnastúk- unni. Eftir að þau hjón fluttu til Reykjavíkur vann hún ýmis störf og síðustu starfsárin var hún kirkjuvörður við Bústaðakirkju. Sigrún var m.a. í stjórn Kven- félagasambands Íslands, var í orlofsnefnd húsmæðra í Reykja- vík og sá um orlofsdvöl þeirra í mörg ár og tók þátt í starfi IOGT. Hún var virk í starfi Framsóknarflokksins. Sigrún hlaut fjölda viður- kenninga fyrir störf sín að fé- lagsmálum og árið 2006 var hún sæmd heiðursmerki hinnar ís- lensku fálkaorðu fyrir störf að félagsmálum. Sigrún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag, 8. nóv- ember 2019, og hefst athöfnin klukkan 11. Hallgerður Lind, maki: Magnús Þór- arinsson, þau eiga þrjú börn. b) Sigrún, maki: Guðmundur Sigmundsson, þau eiga þrjá syni. Börn Kristjáns og Að- alheiðar Jóhann- esdóttur eru a) Arn- dís, á tvo syni, maki: Ingólfur Ásgeirs- son. b) Ólöf, á tvær dætur, maki: Dave Meadows. 3) Auður, f. 1958, maki Siggeir Sig- geirsson, f. 1959. Börn a) Sigríð- ur Rún, maki: Hlynur Gylfason, þau eiga þrjá syni. b) Þórhallur. c) Vilhjálmur, maki: Edda Sif Pálsdóttir. 4) Steinunn, f. 1966, maki Einar Þór Einarsson, f. 1962, d. 2014. Börn a) Steinar Þór. b) Fannar Þór. Barn Einars Þórs og Stellu Hafsteinsdóttur a) Ágústa Ósk, maki: Einar Jóns- son, þau eiga þrjú börn. Dætur Þórhalls og Ásthildar Pálsdóttur eru: 1) Björg, f. 1949, maki Gunnbjörn Ólafsson, f. 1938. Barn a) Drífa, maki: Guðjón Þor- steinsson, þau eiga eitt barn. Börn Bjargar og Gunnars Garð- arssonar a) Ásgeir, maki: María Jensdóttir, þau eiga þrjú börn. b) Þegar ég hugsa um Rúnu tengdamömmu mína á þessari kveðjustund dettur mér Súg- andafjörður fyrst í hug. Rúna elskaði að tala um fjörðinn sinn fyrir vestan, „það er svartalogn núna“, sagði hún gjarnan þegar við horfðum yfir spegilsléttan fjörðinn hennar úr „Afahúsi“ í Selárdal. Við áttum margar ferð- irnar vestur til að dytta að „Afa- húsi“ og njóta fegurðarinnar svo ég tali ekki um berjatínsluna en hvergi eru aðalbláberin stærri og betri en í Selárdal í Súgandafirði. Við fórum stundum gangandi upp í dalinn og þá vildi Rúna fá mynd af sér með tröllskessunni, „við er- um vinir“ sagði hún brosandi. Rúna var alin upp á miklu rausnarheimili í Súgandafirði sem var í raun hjarta sveitarfé- lagsins í embættistíð föður henn- ar, Sturlu Jónssonar, sem var bæði oddviti og hreppstóri Suð- ureyrarhrepps um áratugaskeið auk þess sem hann var með eigin útveg. Rúna var því alin upp í hringiðu sveitarstjórnarmálanna og var heimili þeirra mjög gest- kvæmt og fólk að koma daginn út og inn í hinum ýmsu erindagjörð- um. Vegna veikinda móður sinnar þurfti Rúna að taka mikinn þátt í heimilisstörfunum en hún fór í Húsmæðraskólann á Ísafirði 17 ára gömul. Rúna var lagin í sam- skiptum við fólk og vildi leysa hvers manns vanda, það var því sóst eftir hennar starfskröftum í mörgum félagasamtökum sem döfnuðu vel undir hennar stjórn. Þegar Rúna flutti með fjöl- skylduna til Reykjavíkur varð hún ein af forystukonunum í Kvenfélagasambandi Ísland, Stórstúku Íslands og hjá Fram- sóknarflokknum í Reykjavík. Það lá því alltaf beint við að mér fannst að hún gæfi kost á sér til forustu í stjórnmálum enda mjög áhugasöm og vinnusöm Fram- sóknarkona. Það átti þó ekki fyrir henni að liggja þó svo hún skipaði sæti á listum flokksins bæði til borgarstjórnar Reykjavíkur og til Alþingis. Hún vildi frekar vinna að gras- rótarstarfi flokksins og stofnaði m.a. Framsóknarkvenfélög og hjálpaði frambjóðendum flokks- ins á alla lund. Hún var ein af þeim sem bökuðu kökur fyrir flokkinn „sinn“ og þegar það var hringt þá spurði hún? „Hvað margar? Er það nóg?“ Já, hún bakaði ófáar kökurnar fyrir Framsókn. Þegar sýnt var frá fundum flokksins þá kom ævinlega bros- andi andlit Rúnu á skjáinn. Ég öf- undaði Framsóknarflokkinn af því að eiga svona öfluga konu í sínum röðum. Rúna var ötul í störfum sínum fyrir kirkjuna og stjórnaði tómstundastarfi aldr- aðra. Fyrir störf sín var Rúna sæmd margskonar viðurkenning- um, m.a. hinni íslensku fálkaorðu. Rúna var ágætlega minnug og átti auðvelt með að rifja upp lífið í Súganda á árum áður en hennar sterkustu minningar voru tengd- ar átthögunum. Var hún ávallt trúr og tryggur Súgfirðingur og formaður Súgfirðingafélagsins í Reykjavík um tíma og heiðurs- félagi þess. Rúna hafði yndi af því að prjóna á barnabörnin sín og eiga þau ófáa vettlingana, peysur og húfur sem hún prjónaði lista- vel. Ég vil að leiðarlokum þakka Rúnu fyrir hennar miklu og góðu áhrif sem hún hafði á allt mitt líf og fjölskyldu minnar. Guð blessi minningu Sigrúnar Sturludóttur frá Súgandafirði. Kristján Pálsson. Elsku amma. Þegar ég var 22 ára gömul flutti ég til Reykjavíkur og byrj- aði að búa með Bjarka í bílskúr við Ægisíðuna. Við áttum ekki lúxusgræju eins og þvottavél og því kom ég a.m.k. aðra hverja viku, í nokkur ár, í Espigerðið til þess að þvo þvottinn. Síðan komu Ísabella Sól og Jökull Máni í heiminn og ég reyndi að halda því að heimsækja ykkur afa reglu- lega og alltaf voru krakkarnir glaðir og ánægðir að fara í heim- sókn til ömmu og afa-lang. Síðan afi dó þá fannst mér þú allt í einu vera orðin eitthvað svo gömul og þreytt, en það var eitthvað sem mér fannst ekki áður. Kannski var það afi sem hafði þessi yng- ingaráhrif á þig, en hann var 11 árum eldri en þú, eða að þú varst að vinna með eldri borgurum í Bústaðakirkju og þá talaðir þú um að fara og vera með gamla fólkinu, eins og þú værir ekki ein af því, þó þetta væru oft á tíðum jafnaldrar þínir. Þú varst bara ein af þessum hörkuduglegu konum sem verða eiginlega aldrei veikar og þegar þú varðst 90 ára þá sagðist þú aldrei hafa aldrei átt von á því að verða níræð því enginn í þinni sveit varð svo gamall þegar þú varst ung. Ég mun sakna þess að sitja með þér og spjalla um lífið og tilveruna eða hlusta á þig tala um hvernig lífið var hjá þér í gamla daga en ég veit að þú varst orðin þreytt og lúin og í stað þess að halda lífinu áfram eins og það var síðustu vikurnar þá er gott að vita að þú hafir fengið að fara á vit feðra þinna og ég veit að afi mun taka vel á móti þér. Elsku besta amma mín, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Ég segi svo við þig eins og afi sagði alltaf við mig, að þú varst bæði einstök og sérstök og þú munt alltaf skipa stóran sess í hjarta mínu. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hvíl í friði, elsku amma. Þín Þóra Björk. Elsku amma, stundum verða manns eigin orð svo fátækleg, fann þetta ljóð sem lýsir svo vel hvernig mér líður og hvernig ég minnist þín. Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlétst okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Elsku besta amma, takk fyrir allt. Fyrir faðmlög, kossa og kær- leikann sem þú alltaf sýndir og takk fyrir að þú baðst alltaf Guð að geyma mig og svo seinna meir okkur fjölskylduna. Ég er svo þakklát fyrir að ég og Svanhildur gátum kvatt þig með kossum og faðmlögum, og að ég bað Guð um að geyma þig. Þín Hrafnhildur. Elsku amma mín. Nú er komið að kveðjustund. Takk fyrir dýrmætar sam- verustundir og lærdómsríkar. Við áttum margar ógleyman- legar stundir með handavinnuna okkar – hvort sem það var út- saumur, hekl eða prjónarnir. Þú alltaf svo natin við að hjálpa mér og kenna. Dásamlegar og notalegar stundir hjá ykkur afa í Espigerð- inu ylja manni á þessum erfiðu tímamótum. Heimsóknirnar til þín í Bústaðakirkju og sumarbú- staðaferðir vestur í Afahús eða Galtalæk. Sofðu nú blundinn væra, blessuð sé sálin þín hrein. Minningin, milda og tæra, merluð, minning í stein. Man ég þig ástkæra meyja, meðan að ég lifi hér. Minning sem aldrei skal deyja samverustundin með þér. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir) Fyrir hönd litlu drengjanna minna – sem nú eignast einn verndarengil til viðbótar, vernd- arstjörnu sem skín skærast á himnum og fylgir þeim allt, þakka ég þér hlýhug til þeirra á þeim stutta tíma sem þið fenguð saman. Það er notalegt að hugsa til þess að nú sért þú á ný með elsku besta afa – hann hefur tekið á móti þér með ylvolga jólaköku og ástarpunga. Takk fyrir allt – þín verður sárt saknað, elsku amma mín. Þín yngsta dótturdóttir, Sigríður Rún Siggeirsdóttir. Elsku amma Rúna er nú fallin frá. Minningarnar sem koma upp í hugann þegar við hugsum um ömmu eru opinn faðmur og stórt bros. Á heimili hennar og afa Þórhalls vorum við ávallt vel- komnar og var okkur fagnað vel og innilega. Amma var einstak- lega hjartahlý og hugsaði vel um okkur. Við vorum ekki fyrr komnar inn um dyrnar á heimili þeirra en búið var að bjóða okkur upp á hinar ýmsu kræsingar. Amma var virkilega áhugasöm um okkar hagi og var mikið í mun að okkur og líka langömmubörn- unum liði vel hjá henni. Barnabarnabörnin vildu líka alltaf koma til þeirra, en á heimili langömmu og langafa máttu þau gera það sem þau vildu. Þau máttu leika sér í sjúkrarúminu hans afa og ýta því upp og niður, fá sér ótakmarkað af nammi og kökum og leika sér með allt fí- neríið sem amma átti. Í gegnum tíðina varr amma dugleg að gera ýmsa hluti fyrir barnabörnin og langömmubörnin eins og jólasokka, peysur, út- saumaða púða og ótal pör af vett- lingum og sokkum. Aldrei fór maður tómhentur út frá ömmu Rúnu. Amma passaði vel upp á alla í kringum sig og var einstaklega gjafmild á afmælum og jólum enda voru bestu jólagjafirnar frá langömmu Rúnu þar sem hún var oft búin að pakka mörgum litlum hlutum inn svo það voru margar litlar gjafir að opna sem krakk- arnir elskuðu. Hjálpsemi einkenndi ömmu alla tíð, bæði gagnvart okkur fjöl- skyldunni sem og öðrum í gegn- um hjálparstarf og ýmsar nefndir sem hún sat í. Ef við nefndum það að okkur vantaði sumarvinnu sem unglingar þá greip hún það á lofti og var komin með símann í hönd til að nýta sitt stóra tengsl- anet til að útvega okkur vinnu. Hún var afskaplega vinmörg og hafði eflaust hjálpað mörgum öðrum í gegnum tíðina eins og hún gerði við okkur. Við munum eftir ömmu sem dugnaðarforki bæði inni á heim- ilinu sem utan. Hún vann í Bú- staðakirkju þegar við vorum krakkar og virtist stjórna öllu þar, með afa með sér til halds og trausts. Amma vildi vera vel inni í hlutunum jafnvel þegar hún var komin á efri ár, lærði m.a. á fa- cebook til að geta skoðað myndir og fylgst með. Við systurnar erum ævinlega þakklátar og glaðar að hafa feng- ið að njóta nærveru ömmu eins lengi og við fengum og yljum okk- ur nú við minningarnar um allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Hvíl í friði elsku amma. Sigrún og Hallgerður Kristjánsdætur. Í dag kveð ég elskulega föð- ursystur mína Sigrúnu Sturlu- dóttur sem lést eftir skammvinn en erfið veikindi. Rúna, eins og hún var alltaf kölluð, ólst upp vestur í Súgandafirði en þaðan flutti hún sama dag og ég fædd- ist, 20. júlí árið 1971. Það leið hins vegar ekki á löngu þar til hún og Þórhallur reistu sér sumarhús í Selárdal, hinum megin í firðinum fagra. Á uppvaxtarárum mínum fannst mér sumarið komið þegar Rúna frænka var komin vestur í fjörðinn sinn en í minningunni kom hún alltaf færandi hendi með eitthvert lítilræði handa okkur unga fólkinu. Það er margs að minnast. Samvera frá í vor stendur vissu- lega upp úr þegar hún fagnaði með eftirminnilegum hætti 90 ára afmælisdegi sínum í faðmi fjölskyldu og vina, en Rúna var mikil félagsvera og naut sín vel innan um fólkið sitt, sem hún ræktaði af alúð og umhyggju. Hún sýndi mér og mínu fólki ætíð mikla væntumþykju og fyrir það verð ég ætíð þakklát. Það sýndi sig vel þegar hún deildi með mér sögu ömmu minnar í kjölfar veikinda, en ég hafði þá verið greind með sama sjúkdóm og hún. Á þeim tíma var fátt vitað um sjúkdóminn en að sögn Rúnu hafði amma verið með þeim fyrstu hér á landi sem greind voru formlega með hinn svokall- aða MS-sjúkdóm. Það var mér því ómetanlegt að fá þarna inn- sýn í líf og líðan ömmu minnar og fjölskyldunnar frá þessum tíma. Saga sem mögulega hefði aldrei verið skráð ella. Það kom augljóslega fram í samtölum okkar að óvænt veik- indi móður hennar, sem hafði skyndilega misst mátt og tilfinn- ingaskyn í bæði höndum og fót- um, setti strik í líf fjölskyldunnar á Aðalgötu 12. Á þessum tíma, ár- ið 1942, var Rúna 13 ára og næst- elst systkina sinna og faðir minn yngstur, þá nýorðinn fimm ára. Þau höfðu fram að þeim tíma lifað áhyggjulausu og góðu lífi en stóðu nú allt í einu frammi fyrir alvöru máli eins og hún orðaði það og breyttum kringumstæð- um. Rúna tók því snemma mikla ábyrgð og gerði hvað hún gat til að létta undir með föður sínum á þessum óvissutímum en lengi var ekki vitað hvað amaði að móður hennar. Hún sýndi því fljótt hvað í henni bjó og finnst mér þetta er- indi úr ljóði föður míns til Rúnu þegar hún var sjötug lýsa henni vel og þeirra einstaka og nána sambandi sem á rætur að rekja til bernskuáranna: Ég hugsa stundum til ára áður er ungur ég var þá lamaðist móðir, ok var þá lagt á ungar herðar en öruggt var skjól í faðmi þínum. (Eðvarð Sturluson) Rúna var ætíð mjög virk í félagsmálum, en hún sat í gegn- um árin í stjórnum og nefndum hinna ýmsu félagasamtaka, ýmist sem formaður þeirra eða stjórn- armaður. Hún var alin upp á miklu félagsmálaheimili og án efa fylgdi henni margt bæði úr móð- ur- og föðurgarði sem nýttist henni síðar vel í lífinu. Orðstír fagur aldrei deyr óhætt má því skrifa á söguspjöldum síðar meir, saga þín mun lifa. (Guðrún Jóhannsdóttir) Það er alltaf sárt að kveðja, elsku Inga Lára, Sóley Halla, Auður og Steinunn. Ég sendi ykkur og fjölskyldum ykkar mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning nöfnu minnar Sigrúnar Sturludóttur. Sigrún Edda Eðvarðsdóttir. Sönn og traust vinátta fer ekki eftir árum eða aldri. Hún leitar annarra gilda í lífinu og þá helst þeirra sem lifa amstur hvers- dagsins. Ég naut þeirra forrétt- inda að eiga Sigrúnu Sturludótt- ur sem traustan og góðan vin. Við unnum saman um árabil og tryggari starfsmann var ekki hægt að hugsa sér. Tæki Sigrún eitthvað að sér þá var það í öruggum höndum. Í raun fylgdi henni annar starfskraftur um leið því Þórhallur eiginmaður hennar var sömu tegundar og hún og hann fylgdi henni og liðsinnti og lagði sitt til að létta henni störfin. Það var mikil blessun að fá að kynnast þessum heiðurshjónum og vinna náið með þeim. Sigrún var skemmtileg kona. Ákveðin með sterkar skoðanir. Ótrúlega vel tengd við háa sem lága í þjóðfélaginu enda mikil fé- lagsmálakona. Hún starfaði af heilindum og lét aldrei dægurmál breyta sinni stefnu eða lífsskoð- un. Hún gekk ekki fram með há- vaða eða látum en hún fylgdi sínu eftir með festu og einurð. Í pólitík var hún einlit og vann af heilindum þar sem annars staðar. Henni féll ekki vel þegar vegið var að hennar fólki og var óhrædd að taka sér stöðu með mönnum og málefnum sem féllu að hennar lífsskoðun. Í kirkjustarfi var hún heil og trú og hafði mikinn metnað fyrir starfi kirkjunnar sinnar. Hún var ung í anda þegar kom að nýjum stefnum og leiðum og var hvetj- andi og styðjandi. Væri henni eitthvað á móti skapi þá fannst það fljótt án þess að orð væri á því haft. Fas hennar og fram- koma var með reisn og styrk og öll hennar framganga með þeim hætti að það mátti endalaust læra af henni. Að eiga Sigrúnu sem vin og nána samstarfskonu var sann- arlega fjársjóður sem varir, er og verður. Hún gaf af heilindum, vann með heiðarleika, var föst fyrir eins og fjöllin í heimabyggð hennar fyrir vestan. Sigrún var líka glettin og spaugsöm á sinn hátt. En henni féll ekki vel þegar grínið meiddi einhverja sem henni voru kærir í skoðunum og stefnumálum. Örugglega hefur einhverjum fundist hún vera ákveðin kona og stefnuföst. Allt hennar fas og framganga var með þeim hætti að tekið var eftir. Með hlýju og þakklæti minnist ég Sigrúnar Sturludóttur og þakka þau forréttindi að hafa fengið að starfa náið með henni að málefnum sem ég veit voru okkur báðum afar kær. Vinátta hennar, leiðsögn og hvatning lifir áfram enda þótt hún kveðji þetta jarðlíf. Trú hennar sagði henni hvað í vændum væri og ég veit að Þórhallur mun taka á móti henni og eiga samleið með henni áfram, því þannig voru þau eitt og verða það ætíð í helgri minningu hug- ans. Góðar og þakklátar kveðjur okkar Unnar til fjölskyldu henn- ar. Guð blessi hana og ykkur öll. Pálmi Matthíasson. Sigrún Sturludóttir er fallin frá. Tíminn líður og hinir sterku stofnar falla. Eftir stendur að skapa í ófullt opið skarðið. Ég kynntist Sigrúnu fyrst í flokks- starfi Framsóknarflokksins. Sigrún Sturludóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.