Morgunblaðið - 08.11.2019, Qupperneq 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 - Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, allir velkomnir -
Hreyfisalurinn er opinn milli 9:30-11:30, líkamsræktartæki, teygjur og
lóð - Zumba Gold 60+ kl.10:30 - BINGÓ kl.13:30, 250 kr. spjaldið -
Kaffi kl.14:30-15:00 -
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Leik-
fimi með Hönnu kl. 9-9.45. Göngubretti, æfingarhjól m/leiðb. kl.13.
Línudans kl. 13.30. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17.
Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:45-
15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700.
Áskirkja Jólabasar Áskirkju verður haldinn þann 10. nóvember eftir
messu kl. 12 Tertur lagkökur, smákökur, sultur og allskyns kruðerí til
sölu. Flóamarkaðurinn góði á sínum stað með notaða og nýja hluti,
fatnað og margt fleira. Vöfflukaffi 1000 kr Ef þið getið gefið okkur
muni,köku eða annað kruðerí hafið samb við Petreu s 8918165.
Allur ágóði rennur til starfs Safnaðarfélags Áskirkju
Boðinn Vöflukaffi kl. 14:30. Línudans kl. 15:00.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl.
10:00-10:30. Heimsókn frá Háteigsskóla kl. 10:30. Bingó kl. 13:00.
Bústaðakirkja Föstuddags Karlakaffið sem átti að vera 8. nóv
frestast til 15. nóvember, nánar auglýst síðar.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-
10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Hádegismatur alla virka daga kl. 11:30-
12:20. Bridge í handavinnustofu 13:00. Bingó klukkan 13:15
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8:50.Thai Chi
kl. 9. Hæðarvellir ef veður leyfir kl. 10. Boccia kl. 10:15-11:20.
Hádegismatur kl. 11:30. Skráning á Jólahlaðborð Hollvina þ. 15.11.
stendur yfir. Myndlistanámskeið kl. 12:30-15:30. Hæðargarðsbíó kl.
13. Skráning á Jólamarkaðinn þ. 30.11. stendur yfir.
Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunleikfimi kl. 9:45. Boccia kl. 10:00.
Föstudagshópurinn hittist kl. 10:00. Tálgað í tré kl. 13:00. Frjáls spila-
mennska kl. 13:00-16:30. Handaband kl. 13:00. Bingó kl. 13:30.
Hádegismatur frá 11:30 til 12:30 og vöfflukaffi kl. 14:30 til 15:30.
Heitt á könnunni fyrir hádegi. Nánari upplýsingar í síma 411-9450.
Verið öll hjartanlega velkomin á Vitatorg.
Garðabæ Dansleikf. Sjál. kl. 9:30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10:00.
Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13:00. Smiðjan Kirkjuhv opin kl. 14:00 –
17:00 allir velkomni
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl.08:30-16:00. Prjónakaffi
kl. 10:00-12:00. Leikfimi gönguhóps kl. 10:00-10:20. Gönguhópur um
hverfið kl.10:30. Leikfimi Maríu 10:30-11:15. Bókband m/leiðb. kl.
13:00-16:00. Kóræfing kl.13:00-15:00. Allir velkomnir.
Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.00 Boccia-æfing, kl. 9.30
Postulínsmálun, kl. 12.45 Tréskurður, kl. 20.00 Félagsvist FEBK.
Gullsmára Handavinna kl. 9.00. Leikfimi kl. 10.00.
Fluguhnýtingar kl. 13.00 Gleðigjafarnir kl. 13.30.
Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl 8.00-12.00 Línudans kl 10.30
Bridge kl 13.00
Korpúlfar Skrustskriftarnámskeið með Þorvaldi í Borgum í dag kl.
13:00 þátttökufjöldi 9 manns. Fleiri skrautskriftarnámskeið með
meistara Þorvaldi verða eftir áramót, nánar auglýst síðar.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga með Ingibjörgu kl 9:00 í Borgum,
sundleikfimi kl. 9:00 í Grafarvogssundlaug. Gönguhópar Korpúlfa
leggja af stað kl 10 frá Borgum og inni í Egilshöll, kaffispjall á eftir.
Bridge kl. 12:30 í Borgum og hannyrðahópur Korpúlfa kl. 12:30 í
Borgum. Tréútskuður á Korpúlfsstöðum frá 13-16 í dag og hið vinsæla
föstudagsvöfflukaffi frá kl. 14:30 til 15:30 í Borgum í dag.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi í salnum á
Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl. 13. Kaffi á
eftir. Spilað í króknum kl. 13.30 og bridge í Eiðismýri kl. 13.30. Nk.
mánudag er síðasti skráningardagur vegna leikhúsferðarinnar 14.
nóvember á Atómstöðina. Nk. þriðjudag 12. nóvember verður svo
bingó í golfskálanum kl. 14.00.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 14. Heitt á
könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er
frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga
eða bíó kl. 13.00. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Stangarhylur 4, Íslendingasögur / fornsagnanámskeiðið -Laxdæla
kl. 10.00 og kl. 13.00. Leiðbeinandi Baldur Hafstað. Dansleikur Stang-
arhyl 4, sunnudagskvöld 10.nóvember kl. 20.00.
Hljómsveit hússins. Mætum öll og njótum.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
NÁTT- OG
HEIMAFÖT
18.900.-
29.900.-
19.900.-
15.900.-
www.frusigurlaug.is
Glæsileg vefverslun
- Frí póstsending -
Opið á laugardögum
11 - 16
MJÓDD | S. 774-7377
Í MIKLU ÚRVALI
Laugavegi 178, 105 Reykjavík
sími 551 3366. Opið virka daga
kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
Misty
Sabrina kjóll
St: S-XXL 6.990,-
Bona kjóll
St: S-XXL 6.990,-
Bona kjóll
St: S-XXL 7.550,-
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
með
morgun-
nu
✝ SigurðurBjarnason frá
Óseyri í Stöðv-
arfirði fæddist 4
september 1932 á
Hóli í Breiðdal.
Hann lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Fossahlíð, Seyð-
isfirði 29. október
2019.
Foreldrar hans
voru Bjarni
Metúsalem Jónsson, f. 26. nóv-
ember 1891, d. 1. ágúst 1974,
og Jóhanna Elísabet Sigurð-
ardóttir, f. 31. júlí 1899, d. 10.
janúar 1986.
Þriggja ára gamall fluttist
Sigurður með foreldrum sín-
um frá Hóli í Dísastaðasel í
Breiðdal og bjuggu þau þar til
ársins 1945. Þá flutti fjöl-
skyldan að Randversstöðum í
Breiðdal og bjuggu þar til árs-
ins 1947. Þessu næst fóru þau
hjón með börn og búslóð yfir
að Víkurgerði í Fáskrúðsfirði,
en þangað hafði elzta dóttirin
þá hleypt heimdraganum.
Fjölskyldan settist að á Hval-
nesi í Stöðvarfirði árið 1952
og bjó þar til ársins 1960. Þá
flutti hún að Óseyri við Stöðv-
arfjörð og þar bjó Sigurður
lengst af síðan. Alsystkini Sig-
urðar voru: a) Elín, f. 14. maí
1922, d. 3. júní 2002, b) Sigríð-
ur Ingibjörg, f. 9. júlí 1924, d.
16. október 1974,
c) Herborg, f. 9.
júlí 1924, d. 14.
ágúst 2003, d)
Jón, f. 21. júní
1930, d. 8. apríl
1999 og e) Þórir f.
3. mars 1936, d. 8.
janúar 2012.
Börn Elínar og
eiginmanns henn-
ar, Ragnars
Björgvinssonar,
eru: a) Sigurvin, f. 22. júlí
1945, d. 15. júlí 1948, b) Sig-
rún, f. 28. júlí 1946, c) Jó-
hanna Sigurbjörg f. 10. maí
1948, d) Gunnar Þórður, f. 5.
júlí 1949, d. 22. september
1975, e) Bjarni Metúsalem, f.
27. nóvember 1950, d. 13.
ágúst 2004, f) óskírður dreng-
ur, f. 8. marz 1953, d. 13.
marz 1953, og g) Björgvin
Jónas, f. 5. maí 1958.
Sigurður og Þórir bjuggu
áfram á Óseyri eftir lát for-
eldra þeirra og stunduðu þar
búskap. Lengst af voru þar
með þeim systkinin Herborg
og Jón. Sigurður var sam-
vinnumaður að upplagi og
glöggur fjármaður, sem hugs-
aði vel um bústofn sinn. Hann
naut sín vel í allri útivist,
enda náttúruunnandi. Útför
Sigurðar fer fram frá Stöðv-
arfjarðarkirkju í dag, 8. nóv-
ember 2019, klukkan 14.
Að Sigurði Bjarnasyni gengn-
um kveðjum við sem hann þekkt-
um góðan dreng er við svo mörg
eigum hlýjar minningar um. Hann
var af flestum kenndur við Óseyri,
enda ól hann þar aldur sinn lengst
af eftir að foreldrar Sigurðar
keyptu þessa góðu sauðfjárjörð.
Eftir að foreldrarnir brugðu búi
tóku bræðurnir Sigurður og Þórir
við af þeim og sinntu jörð sinni af
mikilli kostgæfni. Voru þeir um-
hyggjusamir við bústofn sinn og
naut Sigurður sveitastarfanna í
hvívetna. Tekið var eftir sam-
heldni bræðranna og mikilli vand-
virkni og snyrtimennsku, þegar
gengið var til verka. Samhliða bú-
störfum og þeim tengt má geta
þess að Sigurður gegndi starfi
forðagæzlumanns fyrir byggðar-
lag sitt í áratugi. Hann var fjár-
glöggur með afbrigðum og smali
góður, enda hafði hann sinnt fjall-
skilum í Stöðvardal og víðar í 52
ár, þegar yfir lauk.
Örnefnafróður var Sigurður og
minnugur á nöfn og staðhætti með
afbrigðum. Gilti það ekki bara um
hans nánasta umhverfi, heldur
Stöðvarfjörð allan. Hann gat verið
forn í tali og sagði gjarnan, þegar
honum voru boðnar góðgjörðir:
„Vandi er vel boðnu að neita.“
Margir minnast Sigurðar fyrir
steinasöfnun hans. Í ferðum sín-
um um fjöll og hlíðar heimabyggð-
ar sinnar fór hann smám saman að
taka með sér heim fágæta steina
og halda þeim til haga. Það vatt
svo upp á sig og ekki leið á löngu
þangað til hann varð sér úti um
sög til að opna undraheima þá er
honum virtust búa í mörgum
hnullungnum. Þær gersemar voru
síðan hafðar til skrauts, bæði utan
húss og innan.
Þeir bræður Sigurður og Þórir
nutu þess á efri árum að fara í
kynnisferðir um land sitt, einkum
innan fjórðungs, rifja upp örnefni
og snæða nesti úti í náttúrunni að
þjóðlegum sið. Á efri árum vildi
Sigurður eitt sinn fara að Dísa-
staðaseli til að rifja upp bernsku-
minningar, en til þess hafði hann
aldrei gefið sér tíma meðan bú-
störfin kölluðu. Hann talaði ætíð
fallega um hina fögru sveit Breið-
dal og dvöl fjölskyldunnar þar,
þótt vissulega hljóti stundum að
hafa verið hart í ári á þeim tímum.
Hug sinn til átthaganna sýndu
Sigurður og Þórir vel þegar þeir
gáfu árið 2009 fjármuni til að reisa
klukknaport við kirkjuna á Stöðv-
arfirði til minningar um systkini
sín og foreldra. Síðar bætti Sig-
urður við veglegri gjöf í sama
skyni til minningar um Þóri. Turn-
inn mun því gnæfa við loft, jafnvel
um aldir, sem sannur minnisvarði
um gefendurna og halda minningu
þeirra á lofti, þótt flest sé for-
gengilegt í heimi hér. Þeir bræður
sýndu einnig vel hve mikils þeir
mátu ástundun og árangur ungs
íþróttafólks á Stöðvarfirði, þegar
ákveðið var að tyrfa malarvöllinn
utan við þorpið. Afhentu þeir allt
þökuefnið í verkið, endurgjalds-
laust. Munaði um minna.
Ég veit að ég tala fyrir munn
margra af eldri kynslóð Stöðfirð-
inga þegar ég þakka Sigurði
Bjarnasyni góð kynni og þá hlýju
sem frá honum stafaði. Hann var
hógvær, lítillátur og kurteis mað-
ur, en undir bjó sterkur vilji til að
gera vel í þeim verkefnum sem
hann tókst á hendur. Með honum
er genginn mætur maður og trúr
og sannur Stöðfirðingur.
Blessuð sé minning hans.
Björn Hafþór Guðmundsson.
Meira: mbl.is/andlat
Sigurður
Bjarnason
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi lið-
ur, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Minningargreinar