Morgunblaðið - 08.11.2019, Side 33

Morgunblaðið - 08.11.2019, Side 33
ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019 Á leið minni frá Árósum til Álaborgar 18. júní 2011, í rútu fullri af hressum Íslendingum, var komið við á bensínstöð. Þar inni rak ég augun í danskan 1x2-bás og ákvað að skoða hver stuðullinn væri á að Ísland ynni nú Christian Eriksen og félaga í liði heima- manna, á EM U21-landsliða í fót- bolta. Í ljós kom að trúin á ís- lenska liðið virtist sáralítil, stuðullinn á sigur íslensku gull- kynslóðarinnar var að minnsta kosti 6-7, nema þá að talan hafi stækkað eins og lax eftir því sem ég rifja þetta oftar upp. Ég hafði óbilandi trú á ís- lensku strákunum og borgaði upp ferðina með því að veðja á leikinn, enda unnu þeir 3:1-sigur og voru að lokum aðeins einu marki frá því að komast í undanúrslit EM með tilheyrandi möguleika á sæti á Ólympíuleikunum. Síðan þá hef ég eins og marg- ir Íslendingar áfram haft nánast óbilandi trú á íslenska liðinu, sem enda hefur komist í lokakeppni EM og HM og staðið sig vel á báð- um mótum. Ég hef líka fulla trú á því að Ís- land komist á þriðja stórmótið í röð. Ég er ekki svo bjartsýnn að halda að það takist í þessum mánuði en samt gælir maður við það að liðið vinni sigur í látunum í Tyrklandi, gegn þessu sterka tyrk- neska liði sem tók fjögur af sex stigum gegn heimsmeisturum Frakka. Og þá sendir maður sína bestu strauma til Ildefons Lima og félaga í Andorra. Líkurnar eru auðvitað litlar á að Ísland komist svona beint á EM en stærri kraftaverk hafa gerst. Að öðrum kosti tekur við umspil í lok mars og þó að því miður sé ekki hægt að ganga að því vísu að Ísland geti spilað á Laugardals- velli hef ég tröllatrú á að okkar menn kæmust í gegnum það um- spil. BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Árósum, Bakken Bears, hafa nokkra sérstöðu í Danmörku. „Ef ég á að vera hreinskilinn þá er Bakken Bears í hálfgerðum sér- flokki. Þeir eru með meira fjár- magn en önnur lið og eru að reyna að komast lengra en í Evr- ópukeppnunum. Erfitt er því að keppa við þá og þeir hafa verið stöðugir í mörg ár. Í úrslitarimm- unni hafa þeir unnið tólf leiki í röð á síðustu árum. Þeir eru risinn hérna. Við erum ásamt tveimur til þremur öðrum liðum sem reyna að narta í hælana á þeim. Hjá Hor- sens vilja menn ná árangri og liðið varð meistari 2015 og 2016. Liðið hefur auk þess verið í úrslitum undanfarin ár, er núverandi bik- armeistari og menn vilja vera í toppbaráttunni.“ Spurður um hvernig það kom til að Finnur fór til Danmerkur segir hann landsliðsþjálfarann Craig Pedersen, sem lengi hefur búið í Danmörku, hafa átt hlut að máli. „Ég held að Craig eigi nú stærstan þátt í því. Hann spilaði í Horsens og var vinsæll leikmaður hér í gamla daga. Þeir settu sig í samband við hann og mér skilst að Craig hafi bent þeim á mig. Þegar þeir fóru að skoða þá sáu þeir að ég hafði náð athyglisverðum ár- angri og var eitthvað sem þeir vildu skoða betur. Svo gekk þetta frekar fljótt fyrir sig eftir að við ræddum saman í fyrsta skipti. Þá snerist þetta bara um hvort ég vildi taka stökkið,“ sagði Finnur þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans. Finnur Freyr stýrir alþjóðlegri blöndu leikmanna í Danmörku  Krefjandi áskorun hjá Horsens  Þarf ekki að kvarta yfir úrslitunum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Samstarfsmenn Finnur Freyr ræðir við Craig Pedersen en þeir hafa unnið vel saman hjá íslenska landsliðinu. KÖRFUBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Körfuknattleiksþjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson lætur vel af sér í Danmörku. Þar er hann að stíga sín fyrstu skref í þjálfun utan land- steinanna en síðasta sumar var hann ráðinn þjálfari karlaliðs Hor- sens. Finnur hafði tekið sér ársfrí frá þjálfun í meistaraflokki, að því undanskildu að vera aðstoðarlands- liðsþjálfari. Þar á undan stýrði hann karlaliði KR í fimm ár og varð Íslandsmeistari í öll skiptin. Í Danmörku þarf hann ekki að kvarta yfir úrslitunum í upphafi deildakeppninnar. Horsens hefur unnið sex af fyrstu sjö leikjunum hingað til. „Ég kom frekar hratt inn í þetta hjá Horsens í aðdraganda deilda- keppninnar eftir að hafa verið í landsliðsverkefnum í ágúst. Það hefði verið óskandi að fá aðeins meiri tíma til að byrja með. Hér er ýmislegt öðruvísi en heima. Eins og við þekkjum öll eru Íslendingar sérstakir á jákvæðan hátt. Ég er að læra inn á umhverfið en í leik- mannahópnum er ég með þrjá unga Bandaríkjamenn, tvo Serba, Dana af serbneskum ættum og Dani. Þetta er blanda sem maður þarf að venjast og ég þarf að eiga við mismunandi persónur sem er virkilega krefjandi en skemmti- legt,“ sagði Finnur en hann stýrir ekki jafn reyndum mönnum hjá Horsens og hann gerði hjá KR. „Heima var ég að vinna með mjög reyndum leikmönnum en nú er ég kominn í deild sem er svolítið öðruvísi. Ég er með yngri leikmenn í liðinu heldur en heima. Þetta er því bara mjög skemmtileg áskor- un,“ sagði Finnur en hann er með liðið á æfingum átta til níu sinnum í viku. Þrisvar til fjórum sinnum í viku eru morgunæfingar þar sem 80% af liðinu mætir. Allir nema skólastrákarnir eins og hann kallar þá. Spurður hvort munur sé á því hvernig Danir og Íslendingar nálg- ast íþróttina segir Finnur að ákefð- in sé meiri hjá Dönunum. Fleiri góðir leikmenn „Mér finnst ákefðin vera meiri hérna í Danmörku. Ég tel að ástæðan sé sú að hér eru fleiri góð- ir leikmenn. Hér eru meiri gæði í grunninn en hæfileikaríkustu mennirnir hér eru ekki endilega betri en hæfileikaríkustu mennirnir heima. Erlendu leikmennirnir á Ís- landi eru til að mynda almennt reyndari og dýrari en hérna. Bestu Íslendingarnir myndu einnig vera á meðal bestu leikmanna hérna,“ sagði Finnur og hann segir liðið í Sveindís Jane Jónsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru á skotskón- um fyrir íslenska U19 ára landslið kvenna í knattspyrnu sem vann þægi- legan 2:0-sigur gegn Svíþjóð í vin- áttulandsleik í Egilshöll í gær. Leikurinn fór fjörlega af stað og strax á 2. mínútu kom Sveindís Jane íslenska liðinu yfir með laglegu skoti úr teignum. Karólína Lea bætti svo við öðru marki Íslands á 66. mínútu eftir lag- legan undirbúning Áslaugar Mundu Gunnlaugsdóttir og Hafrúnar Rakel- ar Halldórsdóttur. Þetta var annar vináttuleikur lið- anna á þremur dögum en á þriðju- daginn síðasta vann íslenska liðið 3:0- sigur gegn því sænska í Fífunni í Kópavogi. bjarnih@mbl.is Markaskorari Sveindís Jane Jónsdóttir í baráttunni við varnarmenn Svía. Stelpurnar endurtóku leikinn gegn Svíum Rauðarárstígur 12–14, sími 551 0400 · www.gallerifold.is Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. lokað VIÐ LEITUM AÐ LISTAVERKUM SÍÐUSTU FORVÖÐ AÐ KOMA VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ ÁHUGASAMIR GETA HAFT SAMBAND Í SÍMA 551-0400

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.