Morgunblaðið - 08.11.2019, Side 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019
Ég hef misst sjónar á þér nefnist
einkasýning sem Anna Júlía Frið-
björnsdóttir opnar í Neskirkju á
sunnudag kl. 12 að lokinni messu.
„Anna Júlía gerir samband
manns og náttúru að viðfangsefni
sínu og sækir efnivið í andstæða
póla; annars vegar í hinn tilbúna
manngerða heim og hins vegar í
náttúrulegt lífríki sjávar. Sýningin
ber með sér áríðandi en þögul skila-
boð um stöðu sjávarspendýra á vá-
lista og vekur til umhugsunar þá
firringu eða fjarlægð sem orðið
hefur milli manns og náttúru.
Verkin byggjast á morskóða, sem
notaður er í alþjóðlega stöðluð kall-
merki, og birtist m.a. í ljósaseríum í
gluggum og utanhúss. Þannig seil-
ist sýningin út í almannarýmið og
tengir saman tvær opinberar stofn-
anir í næsta nágrenni hvor við aðra;
Safnaðarheimili Neskirkju (miðstöð
hins andlega) og Náttúruminjasafn
Íslands (varðveislustofnun hins
náttúrulega),“ segir í tilkynningu.
Sýningin er gerð í samstarfi við
Náttúruminjasafn Íslands og styrkt
af Myndlistarsjóði. Sýningin stend-
ur til 23. febrúar 2020.
Ég hef misst sjónar á þér í Neskirkju
Sjávarspendýr Eitt verka Önnu Júlíu Frið-
björnsdóttur sem sýnt verður í Neskirkju.
Jean-Paul
Dubois hlaut
Goncourt--
verðlaunin 2019,
sem eru virtustu
bókmenntaverð-
laun Frakka, fyr-
ir skáldsöguna
Tous les hommes
n’habitent pas le
monde de la
même façon. Skáldsagan fjallar um
karlmann sem situr inni í kan-
adísku fangelsi fyrir óþekktan
glæp. Philippe Claudel, sem sæti á í
dómnefnd, segir bókina meistara-
verk „fullt af manngæsku, depurð,
íróníu“. Segir hann ákvörðun
Dubois að staðsetja margar skáld-
sagna sinna í Norður-Ameríku end-
urspegla þversagnakennda afstöðu
Frakka til heimsálfunnar.
Dubois hlýtur
Goncourt-verðlaunin
Jean-Paul Dubois
Árni Matthlíasson
arnim@mbl.is
Ármann Jakobsson sendir frá sér
tvær bækur býsna ólíkar fyrir þessi
jól, sína hjá hvorum útgefandanum,
annars vegar reyfarann Urðarkött
og hins vegar barnabókina Bölvun
múmíunnar. Athygli vekur að höf-
undur síðarnefndu bókarinnar er
ekki „bara“ Ármann Jakobsson,
heldur segir Prófessor Ármann Jak-
obsson á kápu.
Ármann segir að sú tilhögun sé
ekki hans hugmynd, heldur útgef-
anda barnabókarinnar. „Ég veit
ekki hvort þetta sé vísun í Ævar vís-
indamann, sem er reyndar ekki al-
vöruvísindamaður, en ég er alvöru-
prófessor,“ segir hann og hlær, „en
kannski finnst þeim það gefa ein-
hvern blæ á bókina. Það á svo sem
líka við því ég nota heilmikið af því
sem ég er að rannsaka í minni vinnu
í bókunum mínum, líka í barnabók-
unum.“
– Hvað kom til að þú skrifaðir
barnabók?
„Barnabókin er skrifuð á undan
Urðarketti, þótt þær komi út á sama
ári. Mig dreymdi bókina, dreymdi
mæðgur sem bjuggu á þjóðminja-
safni og að þar yrðu dularfullir at-
burðir tengdir múmíu og blóðbletti.
Það var ekki meira í þeim draum, en
ég bjó bókina út frá honum. Það er
nú svo að þegar mann dreymir svona
er eins og það sé búið að skora á
mann og ég fór því af stað að skrifa.
Fæðingarhríðirnar urðu svolítið
langar, því ég var að skipta um út-
gefanda á þeim tíma, en ég held að
bókin hafi bara batnað á meðan.
Fyrsti útgefandinn sem ég fór til
vildi að ég hefði hana meira fyrir
yngri börn, en ég vildi það ekki, vildi
hafa hana fyrir eldri börn. Um leið
og ég byrjaði að skrifa bókina fann
ég að hræðslan við múmíuna hjá
stelpunni er í raun hræðsla við að
missa móður sína. Móðirin er búin
að vera veik, barnið þorir ekki að
ræða það við hana og móðirin vill
hlífa barninu og ræðir því ekki veik-
indin við stúlkuna sem eykur bara
áhyggjur hennar. Hún setur svo all-
an þenna ótta í múmíuna af því
múmían er fyrir henni tákn dauðans
og lífsins. Af þessu spinnst nú sag-
an.“
Glímt við glæpi
– Svo ertu að glíma við annað
form, þar sem er glæpasagan Urðar-
köttur.
„Já, þetta er glæpasaga númer
tvö hjá mér. Í fyrri bókinni, Útlaga-
morðunum, var ég með margar per-
sónur, eins margar og ég hélt að les-
andinn þyldi, og kynnti þær allar
smávegis, og í framhaldsbókum ætl-
aði ég að taka tilteknar persónur og
kynna þær betur. Stíllinn er líka
annar, fyrri bókin var mjög leikrits-
kennd, það var mikið af samtölum.
Þannig vildi ég hafa það en það var
allaf ætlunin að hafa þessa bók öðru-
vísi, hafa meiri textaþunga í henni
og öðruvísi fléttu. Í fyrri bókinni
vildi ég hafa atburðarásina tilvilj-
unarkenndari, en það er ráðgáta í
henni sem Bjarni þarf að ráða fram
úr.
Ég vildi líka hafa skýrari hvörf í
sögunni, nákvæmlega hvað það var
sem leiddi lögregluna á slóð rétta
morðingjans. Ég vil líka hafa bæk-
urnar þematískar. Í fyrri bókinni
var það útlegðin sem morðinginn er í
í raun og veru, en nú er það for-
eldrar; hvaða máli skipta foreldrar
börn og hvaða vandamál skapast ef
sambandið er ekki í lagi.“
– Í Urðarketti kemur við sögu for-
vitnileg menningar- eða fræðaklíka
sem starfar í ónefndri stofnun.
„Ég er náttúrlega búinn að vinna í
háskóla í þrjátíu ár og ef það er eitt-
hvað sem ég þekki þá er það
háskólatýpan og reyni að nota það
eins og ég get. Það eru margar litlar
rannsóknastofnanir og ég hef unnið
á nokkrum, hef verið viðstaddur
kaffitíma og svo framvegis, og mig
langaði að analýsera kollega mína
pínulítið, háskólatýpuna. Í háskóla
vinnur fólk við að muna það sem aðr-
ir hafa gleymt og langrækni er eitt
helsta einkenni háskólakennara og
kennara kannski yfirleitt.
Ein persónan segir að það sé fá-
ránleg tilhugsun að þetta fólk sé
hættulegt, það sé óhættulegasta fólk
sem hún geti ímyndað sér. Tilfinn-
ingar og flækjur og alls konar hlutir
geta samt sprungið út og gera það í
þessari bók af því að ein persónan
fær vondar fréttir um heilsu sína.
Annars hefði morðið kannski aldrei
verið framið.“
Múmíur og
menningarklíkur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölhæfur Ármann Jakobsson sendir frá sér reyfara og barnabók.
Ármann Jakobsson sendir frá sér tvær ólíkar bækur fyrir
jólin: glæpasögu og óttalega barnabók Alvöruprófessor
Efni af plötunni A Historical Glimpse of the Future sem
The Magnetics gáfu út árið 1981 verður flutt á tón-
leikum í Gamla bíói í kvöld kl. 21.20-22. Tónleikarnir eru
hluti af tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem stendur
nú sem hæst. Alan Howarth, sem skipar The Magnetics
ásamt Jakobi Frímanni Magnússyni, á ekki heiman-
gengt. Í hans stað kemur því Hermigervill, sem að sögn
Jakobs er ekki síðri liðsmaður.
Platan þótti á sínum tíma brjóta blað á sviði elektrón-
ískrar tónlistar á Íslandi. The Magnetics fylgdu plötunni
eftir með tónleikum bæði hér- og erlendis.
Elektrónískt endurlit í Gamla bíói
Jakob Frímann
Magnússon
VINNINGASKRÁ
168 9123 20882 28558 38301 47600 55340 69780
893 9133 20926 29066 38873 48236 55656 71012
1514 9847 20963 29165 38893 48352 56012 71137
1593 10515 21005 29819 39038 48550 56277 71652
1630 10527 21150 30048 39047 49195 57443 71690
1847 10835 21514 30254 39148 49317 57711 71844
1979 10950 21583 30393 39651 49396 57924 71850
2349 11454 21961 30529 39756 49884 58059 72272
2644 11617 22027 30607 40026 49971 58478 72409
2681 11838 22422 30861 40320 50042 59030 72586
2723 12350 22504 31195 40583 50342 59842 72761
2910 12488 23188 31680 41041 50822 60191 73202
3173 12793 23404 31940 41284 50944 60211 73683
3690 12887 23422 31972 41354 51773 60885 74066
3786 13340 23507 32506 41749 51791 61012 74235
4243 13517 24348 32916 42877 51811 61273 74347
4331 13716 24395 33026 43215 51879 61555 74407
4587 13821 24567 33110 43499 52000 61993 74682
4679 14464 24626 33419 43693 52423 62675 74881
4680 14626 24958 33747 43786 52529 63634 75499
4714 14689 25217 34412 43908 52581 63985 75582
4803 15093 25406 34494 43991 52642 64311 75738
4845 15955 25871 34577 44251 52887 64355 75768
5492 16026 25946 34579 44528 53100 64387 75878
5599 16102 26009 34614 44623 53239 64752 75920
5622 16149 26110 35165 44899 53913 64821 76370
6860 16608 26817 35468 44902 53992 65281 76651
7015 16718 26912 35564 45176 54038 65338 76751
7394 17127 27018 35632 45297 54479 65473 78324
7494 17514 28058 36867 45848 54551 65869 78358
7535 17826 28169 36949 45945 55019 65906 79514
7576 17861 28201 37162 46253 55072 65926
7914 17951 28315 37323 46508 55130 66020
8289 18523 28374 37447 46573 55171 66650
8370 19919 28382 37540 46695 55222 67169
8429 20146 28425 37843 46720 55299 67493
8744 20260 28478 38137 47091 55301 69696
596 10017 19990 29327 40871 49661 61085 70985
785 11893 20394 29477 41398 53152 61329 71671
1189 12259 20656 31575 42001 54339 61764 72273
2194 12687 22123 32206 42910 54650 61794 73301
2343 14733 22727 32293 43249 54672 62161 74705
2480 14760 23344 33431 43489 55043 62179 75202
2689 15344 23978 35048 44049 55153 62892 75829
3943 17450 24317 35050 45103 56280 63848 76080
4202 18245 25382 35461 46397 56351 65555 78760
4328 18403 25588 38460 46686 57869 66849
6372 19157 27209 38490 48894 59613 67527
7958 19227 28924 38758 49590 60230 69627
9988 19232 29007 39856 49598 60777 70502
Næstu útdrættir fara fram 14., 21. & 28. nóvember 2019
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
7036 16745 24542 30674 73253
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
857 13171 30799 43226 50509 62486
1496 21670 31070 44120 54042 65435
4039 23314 33484 44329 54882 68251
4702 30727 39304 49911 59170 72630
Aðalv inningur
Kr. 4.000.000 Kr. 8.000.000 (tvöfaldur)
3 4 7 0 8
27. útdráttur 7. nóvember 2019