Morgunblaðið - 08.11.2019, Side 40

Morgunblaðið - 08.11.2019, Side 40
Steinsmiðjan Rein | Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík Sími 566 7878 | rein.is Kvarts steinn er unnin steinafurð. Við framleiðslu kvarts steinsins er nýtt það besta úr kvartsi með því að mylja steininn niður, blanda í hann litar- og bindiefnum áður en steinninn er aftur pressaður saman. Útkoman er mjög slitsterkt efni með þéttara yfirborð en hefðbundinn náttúrusteinn. silestone.com Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Bakteríuvörn Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Bassaleikarinn Bjarni Sveinbjörns- son flytur eigin tónsmíðar ásamt hljómsveit á tónleikum Jazzklúbbs- ins Múlans á Björtuloftum Hörpu í kvöld kl. 21. „Tónlistin er bráð- hressandi fönk-skotinn bræðingur sem hressir, bætir og kætir,“ segir í tilkynningu. Með honum leika Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar, Agnar Már Magnússon á píanó og Benedikt Brynleifsson á trommur. Bráðhressandi bræð- ingur á Björtuloftum FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 312. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Mikael Anderson, leikmaður U21 árs landsliðsins og danska úrvals- deildarliðsins Midtjylland, var val- inn í A-landsliðshópinn fyrir leikina gegn Tyrklandi og Moldóvu í undan- keppni EM sem fram fara ytra í næstu viku. Emil Hallfreðsson, sem er enn án félags, missti sæti sitt í hópnum sem og Valsmaðurinn Birkir Már Sævarsson. »32 Mikael í landsliðshóp- inn en enginn Emil ÍÞRÓTTIR MENNING Reykjavík bókmenntaborg UNESCO stendur, í samvinnu við SÍUNG – félag barnabókahöfunda, Fyrirmynd – félag myndhöfunda og Menntavísindasvið HÍ, fyrir málþingi um bernskulæsi í víðum skilningi í Skriðu, sal Menntavísindasviðs HÍ í Stakkahlíð í dag milli kl. 14-17 og er aðgangur ókeypis. Þar verður sjónum beint að mikilvægi orðlistar, mynda og tóna í lífi ungra barna. Meðal þeirra sem flytja erindi eru Kristín Ragna Gunnarsdóttir myndhöfundur og Bryndís Loftsdóttir frá Félagi ís- lenskra bóka- útgefenda. Málþing um bernsku- læsi í víðum skilningi Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Börn og ungmenni hafa greiðan aðgang að orkudrykkjum og raf- rettum þó að hvorugt eigi að selja þeim sem ekki hafa náð átján ára aldri. Þetta er meðal þess sem fram kom í máli nokkurra ungmenna á nemendaþingi um orkudrykkja- neyslu og rafrettunotkun ung- menna í Réttarholtsskóla í gær. Umræður um svefn voru einnig á borðinu hjá þeim sem og á nem- endaþingum sem voru haldin sam- tímis í Breiðagerðisskóla og Foss- vogsskóla. Blaðamaður Morgunblaðsins fékk að tylla sér hjá nokkrum nemendum í áttunda til tíunda bekk, þeim Unu Erlín, Nínu, Arnari Nóa, Kristjáni, Silju Borg og Guðna Degi sem ræddu málin sín á milli. Tilgangur þingsins var að fá fram „skoðanir um unglinga frá unglingum“, eins og Una orðaði það. Ekkert þeirra taldi að íslenskir unglingar fengju nægan svefn og svöruðu þau því flest til að þau væru í símanum fyrir svefninn. Þau myndu ráðleggja yngri systk- inum sínum að koma upp svefnrút- ínu svo þau fengju nægan svefn. „Það er auðveldara að gera allt ef maður nær að sofa nóg,“ sagði Kristján. „Þá verður maður jákvæðari,“ bætti Silja við. Vilja það sem er bannað Ungmennin voru sammála um að þau myndu ráðleggja yngri krökkum að halda sig frá orku- drykkjum en Kristján taldi að það væri líklega erfitt að minnka orku- drykkjaneyslu unglinga. „Af því að krakkar mega ekki kaupa þetta þá vilja þeir frekar kaupa þetta.“ Guðni sagði að það væri lítið mál fyrir börn og ungmenni að kaupa sér orkudrykki. „Búðunum er alveg sama, þau láta mann aldrei sýna skilríki.“ Ungmennin í hópnum voru sam- mála um að verslunarrekendur þyrftu að fylgjast betur með því að aldurstakmörk væru virt en marga orkudrykki mega einungis þeir sem eru orðnir átján ára kaupa. Nína sagðist áhyggjufull yfir því að ungir krakkar væru farnir að reykja rafsígarettur. „Því þau fæddust fyrir svona viku og eru byrjuð að veipa.“ Una tók undir það. „Ef þau byrja á þessu svona ung gætu þau orðið háð þessu fyrir lífstíð.“ Ungmennin sögðu sömuleiðis að það væri lítið mál fyrir börn og unglinga að kaupa sér rafsígarett- ur þó þær væru bannaðar börnum. Nemendaþing Þingið var haldið í samræmi við nýja menntastefnu borgarinnar, „Látum draumana rætast“. Sjaldan beðin um skil- ríki vegna orkudrykkja  Auðvelt fyrir börn að nálgast orkudrykki og rafrettur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.