Morgunblaðið - 27.11.2019, Page 10

Morgunblaðið - 27.11.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2019 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is spilafíkla sem hafa lokið meðferð. Meðferðin opnar augu fólks, en það þarf að vinna áfram í vandanum eftir að henni lýkur.“ Annað sem Jónas segir skorta eru úrræði fyrir aðstandendur spilafíkla. „Það þarf meiri fræðslu; þetta er svo falinn vandi og það er satt best að segja erfitt að skilja þetta. Fólk er ekki að innbyrða nein efni og það er auðvelt að fela þetta. Allt of auð- velt.“ Hann er sjálfur óvirkur alkóhólisti og segir það vera sína tilfinningu að meiri skilningur sé á áfengisfíkn en spilafíkn. „Ég hélt sjálfur áður fyrr að spilafíkn væri einhverskonar hlið- arfíkn með áfengis- eða vímuefna- vanda. Ég áttaði mig engan veginn á því hvað hún er sterk fyrr en ég kynntist fólki sem er að berjast við þetta.“ Hún spilaði fyrir skírnar- gjöf sonarins  Eyddi 4 milljónum á 5-6 mánuðum Morgunblaðið/Árni Sæberg Spilakassar Jónas segir að afar auðvelt sé að fela spilafíkn. Spilafíkn » Daníel Þór Ólason, prófessor í sálfræði við HÍ, sagði í viðtali á mbl.is að tæplega 6.000 Íslend- ingar ættu við verulegan spila- vanda að stríða. » Þetta sýndi rannsókn Daní- els. Þar kom líka fram að hátt í 700 séu hugsanlegir spilafíklar. SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Hún spilaði fyrir skírnargjöf sonar okkar. Lét sig hverfa og eyddi hátt í milljón á mánuði. Eitt það versta var þegar við höfðum mælt okkur mót í Grasagarðinum á afmælisdegi sonar okkar þar sem við ætluðum að eiga skemmtilegan dag. Þegar hún kom ekki fór ég að leita að henni og fann hana á næsta spilakassastað.“ Þetta segir Jónas, karlmaður á fimmtugsaldri, en fyrrverandi eig- inkona hans er spilafíkill. Hann vill ekki koma fram undir nafni af tillits- semi við fyrrverandi konu sína og segir að spilafíknin hafi valdið þeim nægilegum þjáningum nú þegar. „Þetta var stjórnlaust“ „Við kynntumst 2006 og hún sagði mér fljótlega að hún væri spilafíkill. Ég vissi hvað það var, því ég átti vin sem var í sömu sporum. Við ákváðum að hún myndi leita sér að- stoðar og henni tókst að ná sér á strik með aðstoð GA-samtakanna.“ Þar vísar hann til Gamblers Ano- nymous, alþjóðlegra samtaka sem bjóða upp á aðstoð við einstaklinga sem eiga í spilavanda. Konan, sem hafði eingöngu spilað í spilakössum, var óvirkur spilafíkill í um tíu ár, en þá fór allt á versta veg. Hún fór að spila aftur og eyddi um fjórum milljónum á 5-6 mán- uðum. „Þetta var stjórnlaust,“ segir Jónas og í framhaldi af þessu fór konan í meðferð á Vogi og í Vík á vegum SÁÁ. „Það var ágætis með- ferð, en hún er miðuð að þörfum áfengis- og vímuefnafíkla. En hún gat sem betur fer tengt við margt og ég held að hún hafi verið án spila eft- ir þetta,“ segir Jónas. Aðstandendur þurfa úrræði Hann segir fyrrverandi eiginkonu sína lánsama að hafa getað nýtt sér meðferðina. „Ég veit því miður um spilafíkla sem þessi meðferð hefur ekki hentað og þá er fátt annað í boði. Það þyrfti sérhæfðari með- ferðir fyrir spilafíkla, maður fær á tilfinninguna að þetta sé eins og hálfgerð hliðarafurð hjá þeim. Það vantar líka meiri eftirfylgni fyrir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Viðlegupláss flutningaskipa eykst til muna í Bíldudalshöfn þegar viðlegu- kantur hafskipabryggjunnar hefur verið lengdur og hluti eldri kants endurnýjaður. Flutningar um höfn- ina hafa aukist mjög vegna vaxandi laxeldis og aukinna umsvifa kalkþör- ungavinnslunnar. Hagtak hf. átti langlægsta tilboð í framkvæmdir við Bíldudalshöfn. Býðst fyrirtækið til að vinna verkið fyrir rúmar 138 milljónir kr. sem er tæplega 16 milljónum kr. undir áætl- uðum verktakakostnaði. Er nú verið að semja um verkið. Áður var búið að kaupa stálþilið sem rekið verður niður. Efnisvinnsla var boðin út sér- staklega. Lægsta tilboð í hana var 38 milljónir en efnið nýtist í fleiri verk. Kostar 400 milljónir Elfar Steinn Karlsson, hafnar- stjóri Vesturbyggðar, segir áætlað að kostnaður við framkvæmdina í heild verði um 400 milljónir kr. Þar af greiðir hafnarsjóður Vestur- byggðar um 140 milljónir. Unnið verður að lengingu og lag- færingum í tveimur áföngum. Í kjöl- farið verður væntanlega steypt þekja á bryggjuna. Það verk er ekki inni í útboðinu nú. Viðlegukanturinn verður 180 metrar að lengd að framkvæmdum loknum. Bætir hann aðstöðu fyrir flutningaskipin og eykur athafna- pláss við höfnina. Meira pláss verður fyrir gáma með afurðum til útflutn- ings. Bendir Elfar Steinn á að í ár komi 100 flutningaskip til Bíldudals. Skip Samskipa koma þar við einu sinni í viku og taka lax, flutningaskip taka kalkþörunga og fóðurskip koma með fóður fyrir laxeldið. Þar fyrir ut- an liggur brunnbátur við kantinn flesta daga ársins og dælir lifandi laxi upp í sláturhúsið. Þá eru fiskeld- isfyrirtækin með þjónustubáta af ýmsu tagi í höfninni. Ótalin eru þá fiskiskipin sem gerð eru út frá Bíldu- dal, en þau nota bæði smábáta- bryggjuna og viðlegupláss við kant inni í höfninni. Tekjur hafnarsjóðs hafa aukist mikið á síðustu árum vegna aukinna umsvifa við hafnir Vesturbyggðar. Tekjurnar voru um 80 milljónir á árinu 2014 en reiknað er með að þær verði um 190 milljónir í ár. Vantar þjónustulóðir Elfar segir að sárlega vanti iðn- aðarlóðir á hafnarsvæðinu. Fyrir- tæki sem þjónusti laxeldið og kalk- þörungavinnsluna þurfi lóðir. Möguleiki er á að koma þeim fyrir á landfyllingu vestan við kalkþörunga- vinnsluna og er gert ráð fyrir því á skipulagi. Elfar Steinn segir að hafnarsjóður hafi ekki úr miklum fjármunum að moða og því sé ekki vitað hvenær af framkvæmdum geti orðið. Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Bíldudalshöfn Þjónustubátar fyrir fiskeldið hafa að mestu tekið við af fiskiskipum í höfninni. Flutningaskipin fá meira viðlegupláss  Framkvæmdir í Bíldudalshöfn vegna aukinna flutninga Grunnkort/Loftmyndir ehf. 1. ÁFANGI Lenging milli Stórskipakants og Haf- skipabryggju, um 70 m 2. ÁFANGI Endurbygging Hafskipabryggju, um 97 m Ve rks mi ðja Ís ka lkAr na rla xEndurbygging á Bíldudalshöfn  Fjallað er um spilafíkn á mbl.is undir yfirskriftinni: Rafrænt mor- fín eða saklaus spilamennska? Frumvarp fjár- málaráðherra um ívilnanir vegna vistvænna ökutækja, raf- magnsreiðhjóla og annarra reið- hjóla var sam- þykkt í ríkis- stjórn í gær. Helstu nýmæli frumvarpsins eru að auðvelda fólki kaup á hvers kyns vistvænum hjólum. Frum- varpið hefði það í för með sér að felldur yrði brott virðisauka- skattur af rafmagnsreiðhjólum og öðrum reiðhjólum, upp að ákveðnu marki. Gert er ráð fyrir að hámark niðurfellingar virðisaukaskatts af rafmagnsreiðhjólum verði 96 þús- und krónur en 48 þúsund fyrir reiðhjól og var sú upphæð tvöföld- uð eftir umsagnir sem bárust um málið í samráðsgátt stjórnvalda. Ívilnun vegna vistvænna ökutækja er framlengd til ársloka 2023. Ívilnanir vegna vist- vænna bíla og hjóla Hjól Munu lækka nokkuð í verði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.